Nýr Stormur


Nýr Stormur - 02.09.1966, Side 11

Nýr Stormur - 02.09.1966, Side 11
FÖSTUDAGUR 2. sept. 196G "ilMMIIIt 11 Kjallaragreinin — Framh. af bls. 7. 1 norðurhluta landsins var annaö dæmi um hina hættu- legu þróun. Nkruma bauð rúss um að byggja þar flugvöll, sem var langt um stærri, en flugher Ghana hefði 'nokkru sinni not fyrir. Vestrænir her fræðingar voru sammála um að Rússarnir ætluðu sér að nota hann sem stökkbretti til Kúbu. En Ghana varð að greiða byggingarkostnaðinn — sem var um 1300 milljónir króna. Hjálpartilboð Austurblakk- arinnar leit glæsiiega út. Rússland og Austur-Evrópu löndin buðu lán að upphæð 7500 milljónir króna og Kína bauð 1850 milljónir. Hugmynd in var sú að hér yrði um vöru skipti að ræða. Ghana skyldi greiða vélar og aðrar tilbún- ar vörur með kakao og hrá- efnum. En Ghanamennirnir uppgötvuðu fljótlega að vél- arnar voru lélegar og gamal- dags og hin „fögru orð 'voru lítils virði — það sem kom var aðeins upp á 600 milljón- ir. Á sama hátt fór um aðstoð ina við landbúnaðinn. Eitt af loforðunum var að koma upp hrís maísbúgarði á 2000 hekt- urum í Adidome, í austurhluta landsins. Þrátt fyrir að inn- lenir landbúnaðarsérfræðing- ar segðu Rússunum að þetta væri þýðingarlaust vegna ó- nógs rigningarvatns, sendu þeir 11 „sérfræðinga“ og 54 traktora þangað. Rússarnir fullyrtu að traktorarnir væru nýir, en þeir hrundu samt sem áður niður, hver um annan. Og hinir rússnesku „vélfræð ingar“, sem ekki gátu gert við stærri bilanir, viðurkenndu undir fjögur augu, að heima væru þeir bara traktorstjórar. í allt kom Nkruma upp 104 búgörðum, eins og þessum og þeir kostuðu um 500 milljónir og árið 1945 var tapið á*þeim um 300 milljónir. Á sömu lund fór með hinar nýju verksmiðj ur, sem ríkið lét reisa. Sam- tals 32 verksmiðjur, sem höfðu kostað um 5000 milljónir voru komnar með 1500 milljóna tap árið 1964. ast að herinn væri með áætl- anir um að velta honum úr sessi. . Síðastliðið sumar, er orð- rómur gekk um landið um væntanlega uppreisn, vék hann yfirhershöfðingjanum, Joseph Ankrah frá störfum og útnefndi sjálfan sig „gen- eralissimus" yfir öllum hern- um. Margir yfirmenn lögreglu og hers, höfðu um langa hríð verið andstæðingar Nkruma í leyni. Þeir fengu nú pata af því að tilveru lögreglu og hers væri nú ógnað með áætlunum Nkruma um ný „fólkssamtök“ sem áttu að vera mótvægi gegn hernum. Samsærið gegn einræðishernum var fullgert af fjórum mönnum — foringj anum fyrir öðru fótgönguliðs ofursta, tveim öðrum liðsfor- ingjum og John Harley yfirmanni lögreglunnar. Þeir ákváðu þrem sinnum tilræði en frestuðu því alltaf af ótta við að mannfall yrði í bardaga við öryggisverðina. „Forseti í IVígeríu44. Nkruma fór, eins og mönn- um er í fersku minni, eftir þetta til Moskvu og síðan tók hann boði vinar síns Sékou Touré í Gíneu, sem bauð hon- um að verða „meðforseti", því að hann var hræddur um að Nkruma myndi taka hann með i fallinu. Svo gaf Nkruma þeim sjálf- ur tækifærið — óafvitandi. Með sjálfsöryggi, sem einkenn andi var fyrir hann, fékk hann þá flugu í höfuðið, að hann gæti náð árangri, sem öðrum ekki hafði tekist, en það var að koma friði á í Viet- Nam. Þann 20 febr. fór hann i ferðalag til Peking, og Hanoi sem eftir hans eígin ætlan, myndi skapa honum sess í sögunni, sem mannsins, sem kom friði á í Viet-Nam. Þegar Nkruma lenti í Pek- ing, vissi hann ekki að stjórn hans var fallin. Kínverjarnir vissu það, en heilsuðu honum samt sem áður með 21 fall- byssuskoti. Þegar þeir sögðu honum tíðindin í lysti húsi einu í útjaðri borgarinnar, varð hann algjörlega lamaður og tautaði aftur og aftur „það getur ekki verið rétt“. Síðar hugsaði hann sig bet- ur um. Hann sendi út tilkynn ingu um að Nkruma væri að- eins „heiðursforseti". B<ílusct»ing gcgn komnaimismaiium Sigurherrarnir í þessari bylt ingu gegn Nkruma útnefndu Ankrah yfirhershöfðingja sem forman-n frelsisráðsins. Þrátt fyrir að hann tók ekki þátt í samsærinu, er hann mjög vin sæll meðal hermannanna. Menn bjuggust við að nafn hans og orðstýr myndi styrkja byltinguna, en ráðið mætti engri mótspyrnu í neinni mynd. Einræðisríki N- kruma féll saman eins og spilaborg. Marxisminn hafði aldrei náð að festa rætur í Ghana. Þegar hin nýja stjórn fékk yfirsýn yfir ringulreiðina, sem Nkruma skyldi eftir sig, komst það að þeirri niðurstöðu, að myndi taka minnst tvö ár að koma landinu á legg á ný. Óafvitandi hefir Nkruma vafalaust gert landi sínu mik- ið gagn. Eins og einn diplo- mat komst að orði: Nkruma smitaði Ghana ekki af komm- únisma hann bólusetti land sitt gegn honum. ISOBIBIGilBQ N Ý R ST0RMUR býður yður úrvals efnl, erlent or innlent. Greinar um þjððmál, sem vekja athygli allra hugsandi manna, vegna bess að þar er ekkert dregið undan. Kveðjur með fölskum hljómi. Þrátt fyrir að sífellt sigi æ meir á ógæfuhliðina í efna- hagsmálunum, einangraði N- kruma sig meir og meir, jafn- vel frá sínum nánustu sam- starfsmönnum. Þegar einhver kom með ábendingar, vísaði hann þeim á bug með: „Eg er minni eiginn ráðgjafi." Eftir tvö banatilræði hafði hnrm að eins hjá sér rússneska örygg- isverði og harðsnúinn lífvörð af hans eigin ættbálki. Hann afvopnaði ríkislögregluna og byrjaði — réttilega — að ótt- „ Hver stund með Camel léttir lund!“ Kveikið í einni Camel og njótið ánægjunnar af mildu og hreinræktuðu tóbaksbragði. BEZTA TÓBAKIÐ GEFUR BEZTA REYKINN Ein mest selda sígarettan í heiminum. MADE IN U.S.A.

x

Nýr Stormur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýr Stormur
https://timarit.is/publication/793

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.