Nýr Stormur - 06.10.1967, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 6. OKT. 1967.
Ð
I MALI OG MYNDUM
ORRUSTAN
UM
ENGLAND
Orustan um England.
Þjó'överjar notu'öu 2670 flug-
vélar í loftárásum sínum á Eng-
land en loftfloti Royal Air Force
var aðeins 1475 .flugvélar, Þrátt
fyrir það lét enski loftflotinn
engan bilbug á sér finna og
enska þjóðin neitaði að gefast
upp. Sprengjuflugvélar af gerð-
inni Heinkel, Dornier og Junkers
flugu í bylgjum yfir Englandi og
voru varðar af Messerscmitt og
Focke-Wulf orustuflugvélum.
Um leið og Englendingar urðu
þeirra varir hófu sig á loft Hurri
cane og Spitfire orustuflugvélar
og skutu fjölda hinna þýzku flug
véla niður. Fyrir hverja vél sem
skotin var niður fyrir Royal Air
Force misstu Þjóðverjar tvær. Á
sama tíma og Englendingum
tókst að bjarga fjölda flug-
manna sinna úr vélum, sem
skotnar höfðu verið niður, höfðu
Þjóðverjar ekki sömu aðstöðu til
þess að bjarga sínum mönnum
og misstu því mikinn fjölda flug
manna, sem þeir höfðu alls ekki
ráð á.
Churchill hyllti hina hraustu
flugmenn Royal Air Force með
svofelldum orðum:
Frá öllum íbúum eyjar okkar,
heimsveldinu og öllum í heimin-
um, að undanteknum þeim, sem
sekir eru, berast þakkir til hinna
brezku flugmanna, sem þrátt
fyrir margfalt erfiðari aðstöðu
en óvinurinn, hafa ekki látið bug
ast, heldur með dugnaði og
t
Enskar orustuvélar tilbúnar til varnarorustu.
skyldurækni snúið ósigri í sigur.
Aldrei í allri sögu styrjaldarinn-
ar hafa jafn margir staðið í
þakkarskuld við jafn fáa.
Loftbelgjahindranir, loftvarna
Loftbelgur á sveimi yfir Tower brúnni í London.
byssur og radartæki, sem enskir
vísindamenn höfðu fullkomnað
með leynd á þann hátt, að hægt
var að sjá til ferða flugvéla í
tæka tíð til þess að geta búizt
til varnar, voru allt liðir i varn-
arkerfinu og störfuðu í náinni
samvinnu við Spitfire og Hurri-
cane orustuflugvélarnar.
John Beard, flugmaður, segir
frá þátttöku sinni í orustunni
um England á þessa leið:
Við flugum í fjórum V fylking
arskipunum á þremur vélum.
Ég flaug í fremstu flugsveitinni,
sem var foringjans. Við flugum
yfir London og úr 7000 metra
hæð sást ekkert nema reykur úr
miklum fjölda reykháfa. Maður
sá móta fyrir loftvarnarbelgj-
unum og ánni Thems.
Mínúturnar liðu. Nú flugum
við yfir vegum og grænum ökr-
um. Ég skimaði í allar áttir til
þess að reyna að koma auga á
þýzkar flugvélar. Við fengum til
kynningu gegnum útvarpið að
breyta stefnu og halda áfram
undan sól. Stuttu seinna heyrði
ég rödd eins flugstjórans. Ég
brá fljótt við og leit í áttina til
flugdeildar hans og kom brátt
auga á óvininn.
Rödd flugsveitarforingjans
þrumaði fyrirskipanir. Við flug-
um í stóran hring til þess að
kóma þeim í opna skjöldu mitt
á milli þeirra. Þegar við heyrð-
um fyrirskipunina lækkuðum við
flugið. Ég hélt báðum höndum
um stýrið og þumalfingrinum á
vélbyssugikknum. Áður en mað-
ur hleypir skoti af, verður vélin
að vera algjörlega kyrr og má
ekki hággast.
Eg var undrandi augnablik,
þegar ég sá hversu Heinkel vél-
in flaug rólega í fylgd orustu-
vélar. Hversvegna hefst bjáninn
ekkert að? hugsaði ég, um leið
og ég hnyklaði vöðvana til við-
bragðs því, sem ég mundi hafa
gert í hans sporum.
Þegar hann var í skotfæri,
þrýsti ég á hnappinn. Það fór
titringur um vélina þegar skot-
unum var hleypt af úr 8 vél-
byssum mínum. Ég lét rigna vfir
hana skotum í tvær sekúndur
og bætti einni við. Púðurreykur
blandaður olíu fyllti loftið.
Ég sá, að skotin, sem ég fvrst
lét rigna yfir hana, höfðu hitt
í mark, og þegar ég var yfir flug-
vél hans og ætlaði að beygja,
tók ég eftir rauðum lijarma inni
í vélinni. Ég tók krappa beygju,
kom vélinni í skotfæri og sá eld-
tungurnar teygja sig um alla
vélina. Síðan féll hún til jarðar
og í fallinu þeyttust hlutar úr
vélinni í allar áttir.
Ég hækkaði flugið til að leita
að nýrri bráð. f stefnu á London
kom ég auga á fjölda sprengju-
flugvéla sem umkringdar voru
Messerschmitt orustuflugvélum.
Flugvélar þessar stefndu allar í
norður.’ Þegar ég nálgaðist þær
komu þrjár flugsveitir Spitfire
flugvéla æðandi á móti þeim og
létu skothríðina dynja á þeim
úr vélbyssum sínum. Sérhver
þeirra hlýtur að hafa fyrirfram
ákveðið á hvaða vél skyldi ráð-
ist, því augnaliliki síðar sá ég
óvanalega sjóji: Átta þýzkar
sprengjuflygvélar og orustuvélar
féllu í eldhafi til jarðar.
Þýzk sprengjuflugvél varpar sprengjum á England.