Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 20.01.1950, Qupperneq 1

Framsóknarblaðið - 20.01.1950, Qupperneq 1
13. árgangur. Vestm.eyjum, 20. jan. 1950. 1. tölublað. i V.S. HELGIFERST Á FAXASKERI 7. janúar 1950 „Eg vinum mínum einnar auðnu beiði: góðs eftirmælisí Nem það gleðifeginn. Að kyndlar brynnu ó gæfumannagröfum, sem góðvirkt unnu, trúað sott við höfum. . . ." St. G. St. Vélskipið Helgi, V. E. 333. Á skammri stundu skipast veður í lofti, segir gamall móls- hóttur, og skammt er milli lífs og dauða. Nýliðið ór hafði ó ýmsa lund verið okkur Islendingum happa- drjúgt, gæfudísin verið okkur hliðholl. Sjóslys urðu t. d. færri á því óri en dæmi eru til í seinni tíma sögu þjóðarinnar. Það er veigamikið atriði hjó okkur íslendingum. Um óramótin hafði því margt íslenzkt heimili við sjóinn alveg sérstaka óstæðu til að gleðjcst og þakka. Höpp og hamingja liðna órsins skapaði mörgum nýjar vonir, nýjan dug, nýja sóknarþró. Þegar eftir óramótin hófst hér i Eyjum og víðsvegar um landið marghóttaður undirbúningur nýrrar vertíðar. Ný sókn skyldi hafin með hækkandi sól til bjargræðis úr greipum Ægis. Hallgrímur Júlíusson, skipstjóri, Vest- mannaeyjum, f. 3. júní 1906, kvæntur, átti tvö börn og þrjú stjúpbörn. Þó dró allt í einu sorta fyrir sólu. Laugardagurinn 7. jan. mun lengi verða okkur Vestmanna- eyingum minnisstæður. Harmur og sorg lagðist yfir þetta hérað og landið allt; vélskipið Helgi fórst við Faxasker eða svo að segja við bæjardyrnar okkar. Átta úrvals sjómenn hurfu í hafið auk tveggja annarra nýtra drengja.

x

Framsóknarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.