Morgunblaðið - 18.06.2010, Page 8
8 | MORGUNBLAÐIÐ
P
étur hefur staðið vaktina í
Melabúðinni í um ald-
arfjórðung, fyrst með föður
sínum Guðmundi Júl-
íussyni, sem áður rak
verslunina Kjörbúð Vesturbæjar við
Melhaga frá 1964, og síðan með Frið-
riki, bróður sínum. „Pabbi kíkir enn
við til að athuga hvort strákarnir
standi sig ekki,“ segir hann og bætir
við að nánast allt sé vinsælt á grillið
um þessar mundir. Áhugi á sjáv-
arfangi hafi aukist til muna og marg-
ir fiskréttir standi til boða. Silungur,
eldislax og villtur lax njóti alltaf mik-
illa vinsælda og skötuselur sé í há-
vegum hafður. Nautakjöt, lambakjöt,
svínakjöt og kjúklingar heilli stöðugt,
ekki síst lamba- og nauta rib-eye,
lamba- og nautalundir, lambalæri og
lambafillé með fiturönd. Sérútbúnir,
handunnir hamborgarar Melabúð-
arinnar renni líka út eins og heitar
lummur. Þá sé fólk farið að grilla
meira grænmeti og ávexti en áður og
lífrænt ræktað grænmeti sé stöðugt
vinsælla.
Ferskur grillmatur
Íslendingar taka gjarnan hlutina
með látum og það á við um grillið og
grillmatinn. Færst hefur í vöxt að
fólk grilli allt árið en Pétur segir að
um leið og fari að vora með hækkandi
sól og auknu hitastigi dragi fólk al-
mennt fram grillin og byrji. Þá þurfi
þeir að vera tilbúnir og breyti
áherslum í kjöt- og fiskborðinu. Aðal-
atriðið sé að eiga nóg af öllu, bæði að-
alréttum og meðlæti, köldum sósum,
salati og öðru. „Matarvenjurnar
breytast á sumrin og þetta ástand
varir fram yfir verslunarmanna-
helgi,“ segir hann. Pétur bendir á að
víða dragist matvöruverslun í borg-
inni saman á sumrin en það eigi ekki
við um Melabúðina. Vöruúrvalið hafi
þar mikið að segja, fersk matvara og
ekki síst villti laxinn, sem fáar versl-
anir bjóði upp á. „Fólk getur treyst
því að það fær þessar vörur hérna.“
Melabúðin leggur áherslu á fersk-
an grillmat. Pétur segir að hann vilji
ekki bjóða upp á mat sem hafi legið
lengi í kryddlegi og því sé lítið úrval
af matvöru í kryddlegi í loftþéttum
umbúðum hjá sér. „Fólk vill helst fá
ferska vöru sem unnin er samdæg-
urs. Við erum með ferska vöru en
ekki gegnumsýrða af salti og öðru
kryddi.“
Sala í grillmat í Melabúðinni er
jöfn alla daga á sumrin, að sögn Pét-
urs, en búðin er opin til klukkan 20 á
kvöldin alla daga vikunnar, frá klukk-
an 9 á virkum dögum, frá kl. 10 á
laugardögum og frá kl. 12 á hádegi á
sunnudögum. 14 manns eru í fullu
starfi og með kvöld- og helgarstarfs-
fólki vinna allt að 35 manns í búðinni.
Pétur segir að salan taki reyndar oft
kipp á laugardögum, sé veðrið sér-
staklega gott, og fólk á leið út úr
bænum birgi sig gjarnan upp á föstu-
dögum áður en það leggur í hann.
„En annars grillar fólk alla daga og
ekki síst í góðu veðri. Sólin hefur
mikil áhrif á alla sölu á grillmat og við
högum okkur í samræmi við veð-
urspána, aðlögum kjöt- og fiskborðið
að spánni um helgar. Fólk stendur al-
mennt ekki í því að vera með grillp-
artí úti á verönd eða í garðinum í
rigningu og fólk fer síður í útilegu ef
veðurspáin er ekki góð,“ heldur hann
áfram.
Fyrir alla og ekki síst sælkera
„Það er algengt að fólk fari í Vest-
urbæjarsundlaugina hérna við hlið-
ina og komi svo við hjá okkur og
kaupi eitthvað á grillið,“ segir Pétur.
Hann bætir við að margir Vest-
urbæingar láti sig ekki muna um að
ganga heiman frá sér í Melabúðina
en lengra að komnir eigi svo ekki í
vandræðum með að finna bílastæði
nálægt búðinni, þó fá stæði séu fram-
an við búðina sjálfa.
Þó búðin sé staðsett í 107 Reykja-
vík er hún vinsæl langt út fyrir Vest-
urbæinn. Pétur segir algengt að
brottfluttir Vesturbæingar komi
gjarnan einu sinni til tvisvar í viku og
aðrir, sem hafi kynnst búðinni, geri
sér ferð í hana, þó um lengri veg sé
að fara. „Við heyrum fólk segja að
það sé munur að geta keypt allt á
sama stað. Oft kynnist fólk vörunum
okkar hjá vinum og kunningjum, í
boðum og veislum, og kemur gjarnan
til okkar í kjölfarið, burtséð frá því
hvar það býr, og biður um það sama.“
Þegar fólk vill fá eitthvað sér-
staklega gott á grillið fer það gjarnan
í verslanir eins og Melabúðina. Pétur
segir að þó nokkuð sé um sérpant-
anir, sérstaklega þegar um fjölmenn-
ari veislur sé að ræða. Þá vilji fólk oft
hafa vaðið fyrir neðan sig, en yfirleitt
sé allt til og því þurfi almennt ekki að
hafa fyrirvara á kaupunum. „Fólk
áttar sig fljótlega á því að það fær allt
hjá okkur, getur gert innkaupin á
Morgunblaðið/Ómar
Feðgarnir í Melabúðinni Friðrik, Guðmundur, Pétur og Snorri Örn fyrir aftan kjöt- og fiskborðið.
Mesta salan miðað við fermetrafjölda
Það er alltaf nóg að gera í
Melabúðinni við Hagamel í
Reykjavík, en gera má því
skóna að meira seljist af
grillmat og tengdum
vörum í versluninni en öðr-
um sambærilegum búðum
utanstórmarkaðanna.
„Framleiðendur og heild-
salar segja að við séum
með mestu söluna miðað
við fermetrafjölda,“ segir
Pétur Alan Guðmundsson,
einn af eigendum fjöl-
skylduverslunarinnar.
Pétur segir að margt hafi breyst
í Melabúðinni síðan hann byrjaði
fyrir um 25 árum. Grillið hafi
ekki verið búið að skjóta rótum,
fólk hafi einkum soðið eða bakað
villta laxinn, vöruúrvalið hafi ver-
ið miklu minna og almennt ekki
verið mikill áhugi á grænmeti og
ávöxtum. „Það opnaðist nýr
heimur þegar byrjað var að flytja
inn gasgrillin frá Bandaríkjunum
fyrir um 20 árum. Þá varð
sprenging.“
Eftir að gasgrill urðu almenn-
ingseign tók sala á ferskum grill-
mat eðlilega kipp. Pétur segir að
upptekin venja hafi haldist og
ekki aðeins í heimahúsum held-
ur í sumarbústöðum og úti-
legum. „Áður fór fólk mikið með
kryddaða, tilbúna kjötpakka
með sér í bústaðinn eða í útileg-
una en nú vill fólk ferskt og nýtt
hráefni í kjöti og fiski, kaldar
sósur og ferskt grænmeti.“
Sprenging með
gasgrillunum