Morgunblaðið - 18.06.2010, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ | 11
Peugeot framleiddi sína fyrstu piparkvörn
1840. Verkið í kvörnunum er ennþá það
áreiðanlegasta á markaðnum og ástæðan fyrir
því að Peugeot býður 30 ára ábyrgð. Peugeot
kvarnir fást hjá Kokku á Laugavegi 47, DUKA
í Kringlunni, Pottum og prikum, Glerártorgi
á Akureyri, Póley í Vestmannaeyjum, Snúðum
og snældum á Selfossi og Cabo í Keflavík. Svo
er auðvitað hægt að kaupa þær á kokka.is.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Peugeot,
skoðaður
til 2040
Grillað eggaldin
1 stk. eggaldin skorið langsum í 1 cm
þykkar sneiðar
Marinering
5 skeiðar ólívuolía
2 skeiðar balsamedik
1 hvítlaukslauf, kramið
1 skeið ferskt rósmarín (eða hálf
skeið af þurru) eða annað krydd eftir
smekk
salt og pipar eftir smekk
Grillaður kúrbítur
1 kúrbítur skorinn langsum í 1 cm
þykkar sneiðar
Marinering
2 skeiðar sesamolía
2 skeiðar tamarisósa eða önnur soja-
sósa
2 skeiðar ferskur sítrónusafi
1 hvítlaukslauf, kramið
hálf skeið karríduft
fjórðungur skeiðar af svörtum pipar,
eftir smekk
Aðferð: Marinerið í minnst 2 tíma
eða yfir nótt. Grillið þar til sneið-
arnar eru mjúkar og dökkar. Ekki
þörf á ídýfu!Grænmeti Girnilegt er að grilla
eggaldin og kúrbít.
Hollt og gott á grillið
M
anon Laméris er yfirkokkur á Grænum
kosti á Skólavörðustíg. Hún er frá Hol-
landi en hefur búið á Íslandi í þrjú ár. Hún
viðurkennir fyrir blaðamanni að hún grilli
ekki jafn mikið og gert er hér á landi en
veit þó eitt og annað um grænmeti enda hefur hún verið
grænmetisæta síðustu 20 árin. „Það kemur fólki á óvart
hvað grænmeti getur verið seðjandi,“ segir Manon og
leggur áherslu á að grænmeti þurfi alls ekki að vera
meðlæti heldur getur það vel verið aðalréttur.
Mjúkt og meinhollt
Manon talar um að gott sé að grilla grænmeti sem hef-
ur mjúka áferð. Hún nefnir sem dæmi paprikur, sveppi,
tómata, kúrbít og eggaldin. Erfiðara getur hins vegar
verið að grilla grænmeti sem er hart eins og rófur því
það gæti þurft að sjóða örlítið á undan. „Grillaður hvít-
laukur er til dæmis bæði góður og hollur fyrir blóðkerf-
ið,“ segir Manon og talar einnig um að grillaður maís sé
alltaf vinsæll. Grænmeti er hægt að leggja ýmist beint á
grillið eða vefja því inn í álpappír. Hægt er að þræða
skorna bita upp á spjót og jafnvel nota tófú með. Manon
útskýrir að tófú sé mikið notað með grænmetisréttum en
það er aðallega unnið úr sojabaunum, sítrónusafa og
jafnvel þangi. Gott ráð er að frysta tófú því þegar vatnið
losnar fær tófúið kjötáferð. Þá er hægt að leggja tófúið í
kryddlög sem gefur því meira bragð.
Brennt fer ekki á borðið
Aðspurð telur Manon að um grænmeti á grilli gildi
svipaðar reglur og um kjöt. Hægt er að setja það í bragð-
góðan kryddlög og ef það er lagt beint á grillið verður að
passa að það festist ekki við grindina. „Grillað grænmeti
getur verið hollur réttur. Hins vegar getur of mikið af ol-
íu dregið úr hollustunni, sérstaklega þegar olían hitnar.
Auk þess þarf að passa að grænmetið brenni ekki því
brenndur matur getur verið krabbameinsvaldandi,“ seg-
ir Manon og bendir á að til að koma í veg fyrir að græn-
metið brenni er sniðugt að setja það í álpappír eða ál-
bakka þó sumt grænmeti sé alltaf betra að setja beint á
grillið.
Grænmetisveislur
Manon virðist sem Íslendingar séu duglegir við að
grilla en grilli helst kjöt. Hún nefnir að í Hollandi sé
einnig grillað en þar er meiri hefð fyrir fjölbreyttu með-
læti með matnum. Í hollenskum grillveislum er oft boðið
upp á kartöflu- eða pastasalöt, sósur og brauð sem er
gott með kjötinu en getur einnig verið seðjandi eitt og
sér. „Í fjölda verslana er hægt að fá grænmetisborgara
eða grænmetispylsur,“ segir Manon um úrræði fyrir
grænmetisætur í grillveislum og telur að slíkur matur
njóti nokkurra vinsælda hér því úrvalið virðist stækka
með ári hverju. Með því að grilla grænmeti gefst hins
vegar skemmtilegt tækifæri til að vera skapandi og nefn-
ir Manon sem dæmi að gott sé að grilla sveppi með osta-
fyllingu eða krydda grænmetið eftir smekk hvers og
eins, til dæmis er hægt að nota chiliolíu eða karríkrydd
til að gera matinn sterkari.
Grillaðir ávextir
Ásamt grænmeti geta ávextir komið til greina sem
skemmtileg tilbreyting á grillið. Grillaða banana með
súkkulaði þekkja eflaust margir en þá er skorið langsum
í miðju bananans og súkkulaðibitum raðað í skurðinn,
honum vafið í álpappír og hann lagður á grillið. Manon
telur að fleiri ávextir séu góðir grillaðir. „Ananas er gott
að grilla og lítið þarf að gera við hann nema mögulega
skera hann í bita eða sneiðar,“ segir Manon og bætir við
að ananasinn þurfi ekki að vera sætur eftirréttur heldur
sé hann einnig góður með grænmeti. Þrátt fyrir að hafa
ekki grillað mikið af ávöxtum nefnir Manon að grillaðar
perur með gráðaosti og valhnetum gætu verið góðar auk
þess sem grillaðar plómur með smávegis rommi eða öðru
áfengi væri eflaust frábær eftirréttur.
Magurt en matarmikið
Meðlæti með grilluðu grænmeti getur verið marg-
víslegt. Ef ostur er notaður við matreiðsluna verður að
hafa í huga að maturinn getur orðið þungur. Því er betra
að nota ídýfur sem eru léttar og byggjast á tómatgrunni
frekar en þær sem gerðar eru úr rjómaafurðum. Manon
mælir með ýmsum léttum jógúrtsósum s.s. tzatziki en
það er grísk sósa gerð úr jógúrt, gúrkufræjum og hvít-
lauk.
Þá er sniðugt að bera ólífuolíu og nudda hvítlauk á
brauðsneiðar til að rista á grillinu auk þess sem hægt er
að baka litlar pitsur með pítubrauðum með hita grillsins.
„Ég finn fyrir auknum áhuga Íslendinga á hollum mat og
matreiðslu,“ segir Manon að lokum. Meðfylgjandi eru
uppskriftir að grilluðu eggaldini og grilluðum kúrbít.
kristel@mbl.is
Grænt á grillið
Morgunblaðið/Ernir
Hollt er vinsælt Manon Laméris finnur fyrir auknum áhuga á hollum mat. Hún er yfirkokkur á Grænum kosti
við Skólavörðustíg og er hér fyrir miðju ásamt samstarfsfólki sínu í eldhúsinu.
Oftar en ekki gegnir grænmeti hlutverki meðlætis á matarborðinu og á það til að falla í
skuggann af aðalréttinum. Grænmeti er hins vegar gott grillað í ýmsum útfærslum auk
þess sem skemmtilegt er að grilla sæta ávexti að sumarlagi.