Morgunblaðið - 18.06.2010, Side 12

Morgunblaðið - 18.06.2010, Side 12
B ókin Eldaðu maður! kom út í kjölfar þess að ég fór á matreiðslunámskeið fyrir karlmenn,“ segir Thomas en sú bók fékk góðar við- tökur og seldist fljótt upp. Thomas er kennari við Háskólann í Reykjavík og framkvæmdastjóri Rýmis ehf. „Ég hef grillað lengi en þekki öll mistökin. Ég held að menn gangi oftar en ekki til verks óund- irbúnir og fari illa með gott hráefni. Grillið er ekkert einfalt tæki,“ segir Thomas en bókin Grillaðu maður! kom fyrst út í fyrrasumar og var heldur ekki lengi að rjúka út. Bæk- urnar eru ætlaðar karlmönnum á öll- um aldri og eru gefnar út af Sölku. Þær eru væntanlegar í bókaverslanir á ný í sumar. Thomas talar um að í raun sé öruggara að elda í eldhúsi heldur en að grilla. „Fyrst og fremst snýst þetta um rétta hugarfarið. Það er ekki auðvelt að grilla,“ segir Thomas og leggur áherslu á orð sín. Hann tal- ar um að mikilvægt sé að velja gott grill til að elda á en að hans mati segir verðið á grilli oftar en ekki til um gæði þess. Í framhaldi af því verði menn jafnframt að ákveða hvort þeir vilji gas- eða kolagrill en bókin hent- ar báðum tegundum. Nauðsynlegt er að hugsa vel um grillið og halda því hreinu eins og bílnum því óhreint grill býr ekki til góðan mat. Að grilla er að vanda sig Thomas segir að góður undirbún- ingur sé lykilatriði. Hráefnið skal gert klárt með góðum fyrirvara, snyrt, kryddað eða lagt í kryddlög. Mikilvægt er að fylgja reglum um eldunartíma en Thomas nefnir að grillun sé mikil nákvæmnisvinna. Of- grillað kjöt er ekki hægt að afgrilla og því hvetur hann menn til að grilla of lítið frekar en of mikið. Það sama gildir um krydd. „Það þarf að vanda sig við að grilla,“ segir Thomas og bætir við að alls ekki megi fara frá grillinu þegar verið er að grilla því að standa við grillið felur í sér helming- inn af árangrinum. Of seint er að ná í bjórinn þegar byrjað er að grilla – að ná í bjórinn á að vera innifalið í und- irbúningnum. Thomas veitir einnig góð ráð varð- andi grillveislur og matarboð. „Að grilla snýst um stemningu. Fallegt ís- lenskt sumarkvöld er draumarammi utan um góða grillveislu,“ segir Thomas en hann telur að hægt sé að grilla hvar sem er. Grillveislur má þannig halda við tjaldvagninn, í sum- arbústaðnum eða úti á palli. Að- spurður um af hverju svona góð stemning ríki gjarnan við grillið nefn- ir Thomas að kannski sé einhver frummaður sem komi upp í okkur. „Fyrir þúsundum ára var matreitt og borðað við eld. Ég held að þetta séu ákveðin gömul gen sem fari af stað. Við förum svolítið til baka í tímann og að útbúa mat við eld er öðruvísi en allt annað,“ segir Thomas og telur grillmenninguna á Íslandi sérstaka með tilliti til hins stutta sumars. Hvatning til karlmanna Ákveðinn húmor einkennir bókina en Thomas lýsir grillinu sem síðasta vígi karlmanna. „Konur eru komnar í veiði og golf auk þess sem þær eru farnar að bóna bíla. Við ætlum ekki að láta taka grillið af okkur,“ segir Thomas og hvetur karlmenn til að standa vörð um þetta síðasta vígi þeirra. Hann telur að karlmennirnir ættu að halda um grillstöðuna en færa sig einnig inn í eldhúsið enda er það sameiginlegt verkefni að elda mat. Þar að auki veitir hann öllum eigendum bókarinnar opinbert grill- skírteini. Viðtökurnar hafa verið frá- bærar og Thomas er reglulega beð- inn um góð ráð varðandi eldhúsið og grillið. Hann upplýsir að þriðja bókin sé í undirbúningi. Hún fjallar um matreiðslu á villibráð og mun því heita Villimaður. kristel@mbl.is Síðasta vígi karlmannsins Morgunblaðið/Ernir Við grillið heima Thomas Möller með bók sína Grillaðu maður! sem notið hefur mikilla vinsælda, en hún kemur í kjölfarið á bókinni Eldaðu maður!. Thomas Möller er höf- undur bókarinnar Grillaðu maður! en hún var gefin út í framhaldi af bókinni Eld- aðu maður! sem naut mik- illa vinsælda. Bókin er leið- arvísir fyrir alla grilláhugamenn, uppfull af góðum ráðum og girnileg- um uppskriftum. 12 | MORGUNBLAÐIÐ HEINZ GRILLSVUNTUR x450 Heinz ~ sumarleikur ~ ~ FJÖLDI VINNINGA Í Boði ~ NÚ FYLGIR LUKKUNÚMER ÖLLUM SELDUM FLÖSKUM AF HEINZ TÓMATSÓSU. Ekta góðar grillsvuntur á konur sem karla. Grillveisla frá grillvagninum x10 Heilgrillað lambalæri og BBQ gljáður kjúklingur. • Gratínkartöflur. • Ferskt salat með fetaosti. • Léttristað grænmeti. • Hvítlauksbrauð. • Gular baunir. • Hunangssinnepssósa. • Rauðvíns- eða púrtvínssósa. SLÁÐU LUKKUNÚMERIÐ ÞITT INN Á NATHAN.IS/HEINZ OG ÞÚ FÆRÐ AÐ VITA UM LEIÐ HVORT ÞÚ HAFIR UNNIÐ EINN AF FJÖLMÖRGUM VINNINGUM Í BOÐI. WEBER Q320 GASGRILL x2 Létt og meðfærilegt gasgrill með stórum grillfleti og tveimur ryðfríum brennurum. Postulínsglerungshúðuð grillgrind úr pottstáli. Hitamælir í loki. Niðurfellanlegt hliðarborð. Rafstýrður uppkveikjurofi. Ljós í handfangi. Álbakki fyrir fitu. Nóatún býður nú upp á tilbúnar grillveislur sem hægt er að útbúa á fljótlegan og þægilegan hátt. „Val- kostirnir miðast við að hægt sé að kaupa tilbúið kryddað kjöt eða kjöt í kryddlegi ásamt meðlæti fyrir hópa,“ segir Bjarni Friðrik Jóhann- esson, rekstrarstjóri Nóatúns. Ólíkt mörgum öðrum veisluþjónustum er maturinn ekki afhentur heitur held- ur sér viðskiptavinurinn um að grilla hann sjálfur. Útfærslan er hagkvæm og þægileg. Heildarmáltíð Með þjónustunni gefst viðskipta- vinum tækifæri á að sníða grillveisl- una eftir eigin höfði. Hægt er að velja um ólíka aðalrétti og meðlæti, allt eftir því hvað gestirnir vilja en lágmarksfjöldi vegna pantana er 10 manns. „Við bjóðum upp á heildar- máltíð og allt sem getur verið hluti af grillveislunni,“ segir Bjarni og bætir við að ekki sé aðeins um að ræða aðalrétti og meðlæti heldur einnig drykkjarföng og ýmsa for- rétti. Veisluna er hægt að panta á vefsíðu Nóatúns þar sem jafnframt er hægt að greiða fyrir hana. Þar að auki er boðið upp á heimsendingu pantana sé þess óskað. Bjarni segir að þessi útfærsla á grillveisluþjónustu sé ný en viðtökur hafa verið mjög góðar. „Við byggj- um á áralangri reynslu við að ráð- leggja fólki og erum mjög sterkir á þessu sviði,“ segir Bjarni og nefnir að grillsumarið fari vel af stað í ár. Í byrjun sumarsins hafa grísahnakka- sneiðar og lambalærissneiðar verið vinsælastar í veisluna en meira selst af grillmat þetta vorið en árið áður. „Veisluþjónustan hentar ótrúlega fjölbreyttum tilefnum enda er hægt að panta veislu með stuttum fyr- irvara,“ segir Bjarni og áréttar að veislur sem þessar séu tilvaldar hvort sem er í fjölskylduboðið, á vinnustaðinn eða í HM-grillið. Þá er tekið á móti pöntunum í stærri veisl- ur, til dæmis fyrir brúðkaup eða stórafmæli. „Grillið á alltaf við,“ seg- ir Bjarni og sér fram á að grill- veisluþjónustan muni festa sig í sessi á næstu árum. Veisluborð Hægt er að velja um aðalrétti og meðlæti fyrir grillveisluna. Grillið á alltaf við

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.