Morgunblaðið - 18.06.2010, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ | 13
Léttur og ferskur kjúklingaborgari
2 beikonsneiðar
hamborgari eða kjúklingabringa skorin í tvennt eftir
endilöngu
ein sneið af grillosti Gott í matinn frá MS
kjúklingaskinka í sneiðum
sólþurrkaðir tómatar í strimlum
pestó, hrært til helminga með sýrðum rjóma
spínat
súrdeigsbrauð í sneiðum eða hamborgarabrauð
Aðferð: Steikið beikonið á pönnu og geymið.
Grillið borgarann eftir smekk eða kjúklinginn þar
til hann er steiktur í gegn. Leggið ostinn ofan á
borgarann þegar 1-2 mínútur eru eftir af steiking-
artímanum og látið hann bráðna örlítið. Hitið
brauðið á sama tíma á efri grind grillsins. Smyrjið
brauðið ríflega með pestósósunni. Raðið svo borg-
aranum saman. Grillmatur Kjúklingaborgari er sumarlegur réttur.
Grillað að hætti MS
Á
vefsíðunni gottimatinn-
.is er að finna fjöldann
allan af uppskriftum.
„Síðan fór í loftið í apríl
2009 samhliða nýrri
matargerðarlínu frá MS,“ segir
Guðný Steinsdóttir, markaðsstjóri
Mjólkursamsölunnar. Hún nefnir
að síðan sé þannig uppbyggð að
notendur hennar geti safnað upp-
skriftum á eigin heimasvæði og
skrifað athugasemdir sínar við
þær. Á gottimatinn.is er jafnframt
hægt að skrá sig í uppskrifta-
klúbb MS en meðlimir hans fá
sendar nýjar og spennandi upp-
skriftir á tveggja vikna fresti. Þá
er boðið upp á að fá uppskriftir
sendar með sms-i í símann.
Sumarlegar uppskriftir
Síðan er reglulega uppfærð og
nýjum uppskriftum bætt við. „MS
hefur verið í samstarfi við kokka
sem aðstoða með uppskriftir,“
segir Guðný en á síðunni má auð-
veldlega finna eitthvað skemmti-
legt fyrir matarboð fjölskyldunnar
eða smáréttaveisluna. Mikið er
um sumarlegar uppskriftir sem
henta vel í góðu veðri s.s. salöt og
hamborgarar, grillpinnar og kald-
ar sósur. Á vefsíðunni eru einnig
ítarlegar upplýsingar um vörurn-
ar í Gott í matinn-línunni. Þá er
að finna fjölmörg og hagnýt ráð
fyrir matargerð og eldhúsið, til
dæmis grillráð. Að lokum er hægt
að taka persónuleikapróf til að
komast að því hvers konar mann-
gerð þú ert í eldhúsinu. Ertu
hamfarakokkur eða andlaus kokk-
ur? Á síðunni ættu flestir að geta
fundið eitthvað við sitt hæfi.
Grillblað fær
góðar viðtökur
MS gaf nýlega út Gott í matinn-
grillblað sem sent var í öll hús á
landinu. „Við höfum fengið gríð-
arlega góðar viðtökur,“ segir
Guðný og talar um að mikil vinna
hafi verið lögð í blaðið en þetta er
í þriðja skiptið sem Gott í matinn-
blað er gefið út. Inga Elsa Berg-
þórsdóttir og Gísli Egill Hrafns-
son sáu um uppskriftirnar sem
eru spennandi og girnilegar en
meðal annars má nefna upp-
skriftir að hamborgurum, kebab-
pinnum, quesadillum og fleira.
Grillblaðið frá MS er hægt að
nálgast á heimasíðunni ásamt vor-
blaðinu frá því í fyrra. Meðfylgj-
andi er uppskrift að kjúklinga-
borgara.
Gott í
grill-
matinn
Vefsíða Á síðunni gottimatinn.is er hægt að finna fjölda uppskrifta.
Mikið er um sumarlegar
uppskriftir sem henta vel
í góðu veðri s.s. salöt og
hamborgarar, grillpinnar
og kaldar sósur
Vertuklárfyrir
ferðalagið!
Vnr. 50632105
Ferðagrill
MRGRILL ferðagasgrill, grillflötur 30x37cm, efri grind,
hitadreifiplata. Þrýstijafnari og slanga fylgja ekki.
Hægt að nota við flestar gerðir gaskúta. 2,6 kW.
11.990
22.900
Vnr. 50632115
Ferðagrill
COMBO gasgrill með tveimur
brennurum, samanbrjótanlegt
með 2 hjólum og hliðarborðum.
Mjög einfalt í uppsetningu.
Grillflötur 42x35 cm. Stærð uppsett
104x46x33 cm, stærð samsett
10x46x87 cm. Neistakveikjari,
þrýstijafnari og slanga fylgja,
hitadreifiplata og lok. 3,6 kW.
Einfalt í
uppsetningu,
samsetningu
og flutningum!
Gott fyrir
útileguna!
Vnr. 50632113
Ferðagrill
ELEGANT UNION Kettle ferðakolagrill.
Hægt að leggja fætur undir grillið.
6.990
Vnr. 88016002
Einnota grill
Einnota grill.
490
EX
PO
·w
w
w
.e
xp
o.
is
Ódýrt