Morgunblaðið - 01.07.2010, Side 2

Morgunblaðið - 01.07.2010, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 2 Viðskipti Auður I fagfjárfestasjóður slf. hef- ur keypt öll hlutabréf í félögunum Yggdrasil og Veru líf af einkafjár- magnssjóðnum Arev NI slhf. Mar- git Robertet, framkvæmdastjóri Auðar Capital, segir að kaup- verðið sé trúnaðarmál. Fyrir á Auður I félögin Maður lifandi og BioVörur. Í tilkynningu um kaup- in kemur fram að með kaupunum hyggist sjóðurinn „styrkja stöðu fyrirtækja sinna á markaði fyrir heilsu- og lífrænt ræktaðar vörur, ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri og styrkja grundvöllinn fyrir frekari sókn í framtíðinni. Aðspurð hvort Auður hyggist ná fram þessari hagkvæmni með því að sameina félög segir Margit að það hafi ekki verið ákveðið, en komi til skoðunar. Í tilkynningu um kaupin segir að Yggdrasill og Vera líf sinni heildsölu- og smásöluverslun á líf- rænt ræktuðum og heilsu- samlegum vörum. „Meðal þekktra vörumerkja sem Yggdrasill flytur inn eru Rapunzel, Dr.Hauschka- snyrtivörur frá Þýskalandi, Clip- per te- og kaffivörur frá Bret- landi, Holle-barnamatur frá Sviss og nokkur vörumerki frá hol- lenska fyrirtækinu Natudis sem er eitt stærsta lífræna fyrirtækið í Hollandi og Belgíu. Fimmta fjárfesting sjóðsins Um er að ræða fimmtu fjárfest- ingu fagfjárfestasjóðsins Auðar I sem rekinn er af Auði Capital hf., en sjóðurinn festi nýlega kaup á öllu hlutafé í Tali hf. Arev verðbréfafyrirtæki hf. var ráðgjafi seljanda við söluna en fyrirtækjaráðgjöf Auðar Capital hf. ráðgjafi kaupanda. ivarpall@mbl.is Auður kaupir Yggdrasil  Fimmta fjárfesting fagfjárfestasjóðsins Auðar I, sem á dögunum keypti Tal  Á fyrir Maður lifandi og BioVörur  Segir sameiningu munu koma til skoðunar Halla Tómasdóttir Margit Robertet unum þeirra, að eiginfjárhlutfall þeirra færi ekki undir 16 prósent, en lögbundið lágmark er 8 pró- sent. Hann segir erfitt að meta það hvort einhver bankanna fari undir þessi 8 prósent nú. Upplýs- ingaöflun verði haldið áfram og eiginfjárþörf þeirra metin. Samhliða eiginfjárkröfunni fór eftirlitið fram á það við bankana að þeir sýndu fram á styrk með því að koma sér upp sérstökum viðbragðs- sjóðum. Þeir sjóðir eru nokkuð rýrir, en hjálpa vissulega til gerist þeirra þörf. Hvorki Arnór né Gunnar vildu nefna hugsanlegan kostnað banka- kerfisins í krónum talið, né heldur hvaða banka- stofnanir yrðu fyrir mestum skakkaföllum. Stjórn- völdum sé í lófa lagið að takmarka það tjón. Gylfi Magnússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, tjáði Morgunblaðinu það í aðdraganda úrskurðar Hæstaréttar að það kynni að verða óhjákvæmilegt að ríkið kæmi bönkunum til aðstoðar yrði dómurinn þeim sérlega óhagstæður. Hann vildi þó ekki gefa sér að svo yrði. Stór hluti eiginfjár bankanna er hugsanlega undir, og þeim því mikið kappsmál að tryggja sér sem hagfelldasta niðurstöðu. Útspil Seðlabankans og FME nú í gær veitir þeim stuðning í þeirri við- leitni sinni að koma í veg fyrir að miðað verði við samningsvexti gengistryggðra lánasaminga. Þar sem tilmælin eru ekki lagalega bindandi stendur bönkunum sú leið opin að láta reyna á einstök mál fyrir dómstólum, telji þeir hag sínum betur borgið þannig. Gunnar segir þetta sjálfsagðan rétt fjár- málafyrirtækja og að Fjármálaeftirlitið ætlaði sér ekki að hafa þann rétt af þeim. Segja ríkið geta takmarkað áhættu með réttum viðbrögðum Morgunblaðið/Eggert Einbeittir Arnór Sighvatsson og Gunnar And- ersen leggja áherslu á að viðhalda stöðugleika.  Fylgi fjármálafyrirtæki tilmælum SÍ og FME viðhaldi það stöðugleika kerfisins og tryggi almannahagsmuni FRÉTTASKÝRING Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Það er ekki hlutverk Seðlabanka Íslands að velta því fyrir sér hvað skuldurum kann að finnast um til- mæli bankans og Fjármálaeftirlitsins sem kynnt voru á blaðamannafundi í gær. Þetta kom fram í máli Arnórs Sighvatssonar, aðstoðarseðla- bankastjóra, sem kynnti sameiginleg tilmæli stofn- ananna tveggja ásamt Gunnari Andersen, forstjóra FME. Arnór sagði jafnframt að meirihluti fólks væri ekki í hópi þeirra sem eru með gengistryggðar skuldbindingar, en sá hópur kæmi til með að bera kostnaðinn af því ef einn hópur „fengi gjöf“. Þar var hann að vísa til þeirrar stöðu sem upp kæmi væru samningsvextir notaðir við útreikning endur- greiðslu þeirra sem eru með gengistryggð lán. Fylgdu fjármálafyrirtæki tilmælunum (um að miða við vexti Seðlabankans) myndi það tryggja stöðug- leika þeirra, sem væri í þágu almannahags. Gunnar sagði Fjármálaeftirlitið hafa gert þá kröfu til bankanna í fyrra, við mat á viðskiptaáætl- Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðla- bankastjóri, sagði á blaðamanna- fundi í Seðlabankanum í gær að ekki mætti túlka sameiginlega yf- irlýsingu bankans og Fjármálaeft- irlits sem fyrirmæli til fjármálafyr- irtækja og viðskiptavina þeirra. Stofnanirnar tvær geta ekki gripið til sérstakra úrræða, sé ekki farið að tilmælunum, en Arnór og Gunn- ar Andersen, forstjóri FME, lögðu á það áherslu að yrði ekki farið að til- mælunum ríkti enn mikil óvissa, og hún væri engum í hag. Þeir hafa trú á því að málsaðilar átti sig á því. Þeim sé annars frjálst að semja sín á milli um ásættanlega niðurstöðu. einarorn@mbl.is Morgunblaðið/Ómar Leiðbeinandi Þeir sem ekki fara að tilmælum sæta ekki viðurlögum. „Tilmæli, en ekki fyrirmæli“ Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is Samtök fjármálafyrirtækja hvetja stjórnvöld til að flýta því eins og auð- ið er að eyða óvissunni sem enn ríkir eftir tilmæli Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins sem kynnt voru í gær. Sú óvissa sé til komin vegna þess að ekki sé ljóst hvaða lánasam- ingar falla undir dóm Hæstaréttar um ólögmæti gengistryggingar lána, sem féll um miðjan júní. Samtökin leggja áherslu á það að dómstólar komist að niðurstöðu sem fyrst, og að stjórnvöld ættu jafnvel að íhuga það hvort lagasetning gæti flýtt því ferli. En þó óvissa ríki ennþá um hvaða lánasamningar það eru sem falla undir tilmælin, fagna samtökin því að þó hafi verið skorið úr um hvernig eigi að endurreikna þau lán sem dómurinn nær til. Þau segjast jafnframt harma þá erfiðu stöðu sem margir viðskiptavina aðildarfyr- irtækja kunna að vera í vegna geng- istryggðra lána og þeirrar rétt- aróvissu sem um þau ríkir. Gylfi Magnússon, efnahags- og við- skiptaráðherra, sagði á blaðamanna- fundi í gær að úrskurður dómstóla gæti jafnvel legið fyrir í haust. Talsmenn stóru viðskiptabank- anna vildu lítið um málið segja, en vænta má tilkynninga frá þeim á allra næstu dögum. Þar sem þeir eru aðilar að Samtökum fjármálafyr- irtækja má vænta þess að þær verði svipaðar þeirri sem samtökin sendu frá sér í gær. Vilja skoða lagasetningu til að flýta dómsúrskurði  Hvetja til þess að dómsúrskurður fáist sem fyrst  Harma þá aðstöðu sem við- skiptavinir með gengistryggð lán eru margir hverjir í  Viðskiptabankar þöglir Morgunblaðið/Kristinn Liggur á Samtök fjármálafyrirtækja vilja að það verði skoðað á næstu dögum með hvaða hætti sé hægt að flýta niðurstöðu dómstóla um lán. Tekjuhæsti fimmtungur banda- rísku þjóðarinnar greiddi 68,9% af öllum sköttum til alríkisins árið 2007. Þessi 20% þjóðarinnar öfluðu hins vegar um 55,9% tekna fyrir skatt. Kemur þetta fram á vefsíðu endurskoðunarskrifstofu banda- ríska þingsins. Tekjulægstu 20% Bandaríkja- manna afla samtals um 4% af heild- artekjum, en greiða hins vegar að- eins 0,8% af skatttekjum alríkisins. Þau 60%, sem liggja á milli öfg- anna tvennra, öfluðu því um 40,1% tekna fyrir skatt, en greiddu um 30,3% af þeim skatti sem alríkið innheimtir á ári hverju. bjarni@mbl.is Ríkir greiða mest til ríkisins Slitastjórn Kaupþings getur ekki tekið afstöðu til krafna sem kynnu að berast nú, eftir að kröfulýsingar- frestur er runninn út. Greint var frá því í Morgunblaðinu í gær að lántak- endur, sem gerðu upp gengistryggð lán sín við bankana fyrir fall þeirra, gætu átt þess kost að gera kröfu í þrotabúin á grundvelli þess að geng- isþróun lánanna hafi verið þeim óhagstæð. Nýlegur dómur Hæsta- réttar um ólögmæti gengistrygg- ingarákvæða gerði þetta kleift. Slitastjórnin segir að þeir sem telji sig eiga kröfu á þessum forsendum geti látið á það reyna að lýsa henni, þá fyrst verði tekin afstaða. einarorn@mbl.is Skilanefnd tekur ekki afstöðu Morgunblaðið/Ómar Kaupþing Slitastjórn hins fallna banka tjáir sig ekki um kröfur. Þeir sem telja sig eiga kröfu láti á það reyna Oddi – umhverfisvottuð prentsmiðja. Höfðabakka 7, 110 Reykjavík, sími 515 5000, www.oddi.is Viðskiptablað Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100, netfang vidsk@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.