Morgunblaðið - 01.07.2010, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 01.07.2010, Qupperneq 5
Mörgum hefur þótt Seðlabankinn svifa- seinn í vaxtalækkun- um frá hruni efna- hagslífsins haustið 2008. Vextir bankans standa nú í 8%. Seðlabankinn hefur fært ýmis rök fyrir ástæðu þess að vextir hafa ekki lækkað meira en raun bera vitni. Ein röksemd Seðlabankans hefur verið sú að raunstýrivextir hafi verið neikvæð- ir eða í kringum núllið frá hruninu. Þetta hafa síðan ýmsir gripið á lofti og haft eftir Seðlabankanum, þ.m.t. ýmsir álitsgjafar, ráðherrar og þingmenn. Seðlabankinn tók upp á því eftir efnahagshrunið að leggja aðaláherslu á 12 mánaða sögulega verðbólgu við vaxta- ákvarðanir sínar en ekki eigin spár um verðbólgu næstu missera eins og áður. Hugsanlega er þetta í fyrsta skipti í sögunni sem pen- ingastefna seðlabanka er byggð á sögulegri verðbólgu en ekki vænt- ingum um verðbólgu. En gott og vel, á umbrotatímum er um að gera að kanna nýjar leiðir. En við skulum samt skoða betur hvernig raunstýrivextir hafa verið að þróast út frá þessu nýja vaxta- ákvörðunartæki Seðlabankans og hvort raunstýrivextir hafi í raun og veru verið neikvæðir. Myndin sýnir annars vegar upp- safnaða raunávöxtun frá hausti 2008, og hins vegar 12 mánaða hlaupandi raunstýrivexti frá sama tímabili. Raunstýrivextir eru hér mældir með því að draga uppsafn- aða mánaðarlega verðbólgu frá uppsöfnuðum virkum vöxtum Seðlabankans, mælt hér sem með- altal stýri- og innlánsvaxta Seðla- bankans, yfir gefið tímabil. Þannig hefur fjárfestir sem hef- ur fengið nafnvexti í bankakerfinu nálægt virkum vöxtum Seðlabank- ans, sem á líklega við um flesta stærri fjárfesta og stofnanafjár- festa, fengið um 6,8% uppsafnaða raunávöxtun frá hausti 2008, eða á aðeins 21 mánaðar tímabili. Nafn- ávöxtun tímabilsins fyrir þennan fjárfesti hefur verið rúmlega 23%. Jafnframt sýnir brotna línan mögulega þróun næstu 3 mánuði miðað við að Seðlabankinn lækki vexti um 0,5% á vaxtafundi sínum í ágúst og að verðbólga næstu 3 mánuði verði samtals 0,6% (sem er nokkuð hærra en greiningaraðilar eru að horfa fram á næstu mán- uði). Hvort sem verðbólga verður eitthvað meiri eða minni en það, breytir það ekki þeirri staðreynd að Seðlabankinn hefur aukið pen- ingalegt aðhald töluvert síðustu mánuði og stefnir í að svo verði áfram nema til komi verulegar vaxtalækkanir. Uppsöfnuð raun- ávöxtun fyrir fyrrnefndan fjárfesti stefnir því í að verða rúmlega 8% frá hruni. Það gefur augaleið hverjum sem á horfir að við þessa gífurlega háu raunvexti eru litlar líkur á að fjármagn leiti í nokkuð annað en ríkisskuldabréf og inn- lán. Spár Seðlabankans sjálfs gera ráð fyrir að 12 mánaða verðbólga verði í byrjun næsta árs um 2,5%. Vonandi fer Seðlabankinn aftur að horfa fram á veginn við vaxta- ákvarðanir og lætur eiga sig hér eftir að horfa eingöngu í baksýnis- spegilinn. Gísli Hauksson er hagfræðingur og Agnar Tómas Möller er verkfræð- ingur og starfa þeir hjá GAM Ma- nagement hf. sem rekur m.a. GAMMA verðbréfasjóðina. » Það gefur augaleið hverjum sem á horfir að við þessa gífurlega háu raunvexti eru litlar líkur á að fjármagn leiti í nokkuð annað en ríkis- skuldabréf og innlán. Agnar Tómas MöllerGísli Hauksson Baksýnisspegillinn og vaxtaákvarðanir Eftir Gísla Hauksson og Agnar Tómas Möller 10,0% 8,0% 6,0% 4,0% 2,0% 0,0% -2,0% -4,0% Uppsöfnuð raunávöxtun 12 mánaða raunvextir Sep. ‘08 Nóv. ‘08 Jan. ‘09 Mars ‘09 Maí ‘09 Júlí ‘09 Sep. ‘09 Nóv. ‘09 Jan. ‘10 Mars ‘10 Maí ‘10 Júlí ‘10 Sep. ‘10 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 Viðskipti 5 • Til sölu/leigu þessi glæsilega 4.400 fm skrifstofubygging (Heildar- byggingin) á besta stað í Reykjavík. Auðveld kaup og möguleiki á mjög góðri 30 ára fjármögnun fyrir allt að 80% kaupverðs. Lang- tímaleiga kemur til greina. Hentar sérstaklega vel sem t.d. höfuð- stöðvar öflugs fyrirtækis eða stofnunar. • Nánari lýsing: Húsið er allt laust til sölu eða langtímaleigu frá og með 15.09.2010. Hluti hússins til afhendingar strax. Í húsinu hafa verið aðalskrifstofur Olís, lögmannstofur og fl. Tvær lyftur ganga frá bílakjallara og upp á allar hæðir. Húsið er álklætt að utan og við- haldsfrítt. Húsið er staðsett á útsýnisstað í hæðinni fyrir ofan Sunda- höfn og stendur stakt á sérlóð. Góð aðkoma og mikið auglýsingar- gildi. • Hver hæð er ca 550 fm brúttó og hægt að nýta í einu eða tvennu lagi. Tveir inngangar eru á hverja hæð. ATH. að á 7. hæð eru mötu- neyti og eldhús með borðsal/veislusal sem hægt er að stækka/minnka eftir þörfum. • Húsið er á sjö hæðum og skiptist þannig að í kjallara er bílakjallari með stæðum fyrir 30 bíla. Fyrir utan húsið er glæsileg og malbikuð lóð með yfir 80 bílastæða fyrir starfsfólk og gesti. Á götuhæð er fal- leg og björt hæð sem er tvískipt þ.e. báðum megin við aðalinngang í húsið að framanverðu. Stórir gluggar og góð lofthæð. Hentar sér- lega vel undir skrifstofur, sýningarsali og margt fleira. • 2.-6. hæð eru fullinnréttaðar og glæsilegar skrifstofur með opnum vin-nurýmum, lokuðum skrifstofum, eldhúskrókar og snyrtingar á hverri hæð og í báðum endum hæðanna. Frábært útsýni er af hæð- unum til allra átta, til sjávar, til fjalla og víða. Á efstu hæð (7. hæð) er mötuneyti, eldhús og opnir borð-veislusalir. Frábært útsýni. Stórar svalir. • Innréttingar og frágangur allur er 1. flokks, parket og flísar eru á gólfum. SUNDAGARÐAR 2 Til sölu eða leigu öll eignin Kirkjuhvoll - Upplýsingar veitir Karl í síma 892 0160, karl@kirkjuhvoll.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.