Morgunblaðið - 01.07.2010, Síða 9

Morgunblaðið - 01.07.2010, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010 9 Sértilboð á Hótel Rangá Tvær nætur á verði einnar til 9. júlí. Bókaðu núna! Valið eitt af 100 bestu hótelum í Evrópu af the Sunday Times Hótel Rangá • 851 Hella • Sími 487 5700 • hotelranga@hotelranga.is • www.hotelranga.is Starfsfólk Hótels Heklu er þekkt fyrir hlýlega og góða þjónustu og frábæran mat. Rúmgóður, bjartur matsalurinn tekur allt að 120 manns í sæti. Hér er íslenskt hráefni í hávegum haft í bland við strauma og stefnur evrópskrar matargerðar. Nú er hægt að fá skemmtileg gjafakort á gistingu og mat á Hótel Heklu. Tilvalið fyrir einstaklinga og fyrirtæki, sem tækifærisgjöf. Hótel Hekla er stórkostlegur staður með frábærri aðstöðu fyrir þig. Komdu sjálfum þér og vinum þínum á óvart. Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is „Það er alltaf mjög gaman að sjá þegar skólakrakkar koma hingað, kannski einn eða tveir bekkir saman askvaðandi með látum inn í Perluna, hoppandi um og ryðjast í röðinni eins og barna er siður. Um leið og þau fá hljóðleiðsögutækið í hend- urnar kemur hins vegar algjört hljóð yfir hópinn og má heyra saumnál detta á meðan þau ganga í gegnum safnið,“ segir Ágústa Hreinsdóttir, framkæmdastjóri Sögusafnsins í Perlunni. Sagan gerð aðgengileg Sögusafnið var opnað árið 2002 og sýnir lykilstundir og -persónur Ís- landssögunnar frá landnámi til siða- skipta. „Okkur langaði að geta kynnt sögu landsins á skemmtilegu formi, bæði til að vekja áhuga hjá ungu fólki og eins til að hafa eitthvað að sýna erlendum ferðamönnum. Þjóð- minjasafnið hafði þá verið lokað í töluverðan tíma, og var lokað áfram nokkuð lengi eftir að við opnuðum. Var svo komið að erlendir gestir kvörtuðu raunar yfir að ekki var hægt að finna sýningu um víkingana og menningararfinn okkar,“ segir Ágústa sem rekur Sögusafnið með manni sínum Ernst Backman. „Ernst er iðnhönnuður og við höfð- um unnið saman alveg frá því við kynntumst fyrir 35 árum og rekið auglýsingastofu í sameiningu. Hann hafði lengi átt þann draum að nýta betur menntun sína, en í náminu lærði hann þá afsteyputækni sem við notum til að gera stytturnar í safn- inu.“ Hrukkur kórfélaganna Styttur sögusafnsins greina sig þannig frá vaxmyndasöfnunum frægu úti í heimi að á meðan stytt- urnar t.d. hjá Madame Tussaud eru mótaðar úr vaxi eru kempurnar í sögusafninu steyptar af lifandi Ís- lendingum: „Allar hrukkur, fæðing- arblettir og fílapenslar skila sér, sem er það sem gerir okkar styttur svona raunverulegar,“ útskýrir Ágústa en fyrirmyndirnar að þjóð- hetjum (og skúrkum) koma úr ýms- um áttum. „Til dæmis er öll fjöl- skyldan á safninu og maðurinn var oft ekki mönnum sinnandi á æfing- um hjá Karlakór Reykavíkur því hann gat ekki staðist að virða kór- félaga sína fyrir sér og gera sér í hugarlund hvaða persóna úr sögu þjóðarinnar þeir gætu verið.“ Safnið varð að veruleika þegar Ágústu og Ernst var veittur styrkur frá menntamálaráðuneytinu og Ný- sköpunarsjóði. „Svo var það bara blóð, sviti og tár sem gerði restina,“ segir hún en safnið er í dag al- gjörlega einkarekið og nýtur ekki nokkurra rekstrarstyrkja.“ Gestirnir þakklátir Aðgangseyrir fyrir fullorðna án af- sláttar er 1.500 kr., sem verður að segjast eins og er að bliknar í sam- anburði við mörg söfn og vaxmynda- sýningar erlendis. „Þetta er búið að ganga ágætlega og borga sig hægt og sígandi. Safnið hefur fengið góðar viðtökur og gaman að finna hvað margir eru ofboðslega þakklátir eft- ir komuna og hvað þeim þótti gaman á safninu,“ segir Ágústa og áætlar að um 80% af gestum safnsins séu erlendir ferðamenn, og börn aðein 10% af heildarheimsóknum. Ferðamenn vilja sjá söguna  Bæði heimamenn og erlendir gestir duglegir að sækja Sögusafnið  Safnið nýtur engra rekstrarstyrkja en gengur vel m.a. í krafti góðrar staðsetningar  Byrjuð að selja styttur til útlanda enda taldar fyrsta flokks Morgunblaðið/Jakob Fannar Áhugi „Erlendir gestir kvörtuðu yfir að ekki var hægt að finna sýningu um víkingana,“ segir Ágústa. Ágústa segir þau hjónin hafa ekið vítt og breitt um borgina í leit að hentugu húsnæði undir safnið. Þeim þótti drauma- staðsetningin vera í Perlunni. „Það eru fáir sem gera sér grein fyrir að tankarnir eru all- ir fullir af 90° heitu vatni og gegna mikilvægu hlutverki sem varabirgðir höfuðborgarinnar,“ segir Ágústa. En safnið fékk til leigu hjá Orkuveitunni 400 fer- metra tank. Perlan var óskastaðurinn ekki síst vegna þess mikla fjölda ferðamanna sem leggja þangað leið sína. „Perlan er eitt af þess- um kennileitum borgarinnar sem ferðamennirnir vilja sjá og merkileg bygging fyrir margra hluta sakir. Árlega koma um 600.000 manns í Perluna og af þeim fáum við á bilinu 25 til 30.000 í safnið. Við segjum gest- um okkar alltaf frá hlutverki tankanna sem þeim þykir mjög merkilegt að heyra.“ Besti staðurinn fyrir safn Stytturnar í Sögusafninu hafa vakið athygli út fyrir landsteina og hefur safnið nú þegar afgreitt tvær stórar pantanir til annarra safna á Norðurlöndum. „Í bæði skiptin höfðu for- stöðumenn frá viðkomandi stofnunum heim- sótt safnið og orðið svona hrifnir. Þeir hjá Nordvegen Historiesenter í Avalds- nesi kölluðu sýninguna okkar Rollsinn í persónugerð og pöntuðu sex persónur úr sögu Noregs. Færeyska sögusafnið í Vestmanna pantaði síðan 17 persónur,“ segir Ágústa. „Í tilviki Norðmannanna sendum við þeim myndir af Íslendingum til að velja úr og nota sem fyrirmyndir að t.d. Haraldi hárfagra og Gyðu konu hans, en í tilviki Færeyinganna þá sendu þeir hóp hingað og við gerðum af þeim afsteypur.“ Flytja út norsk stórmenni Ágústa segir það leitt að Sögusafnið hafi ekki ratað inn í framboð fleiri ferðaskrifstofa á landinu. „Hér koma upp undir 8-10 rútur á þeirra vegum daglega þegar mest er á sumrin, en það fer ekkert af því fólki á Sögusafnið enda varla nema 15 mínútna klósettstopp yfirleitt,“ segir hún. „Við fáum mest til okkar af ferðamönnum sem eru á eigin vegum og augljóst að margir koma gagngert til að heimsækja safnið.“ Fleiri mættu staldra við

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.