Morgunblaðið - 01.07.2010, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 2010
11
Farfuglaheimili,
gisting í stúdíóíbúðum.
Kaffihús, krambúð,
markaðstorg, fornbílasýningar
og alla daga eitthvað skemmtilegt.
Ættarmót, starfsmannaferðir,
dömuferðir og herrakvöld.
Gónhóll Eyrarbakka
Upplýsingar í síma 842 2550 og á www.gonholl.is
Forsíðumynd eftir Sigmund úr Fálkanum 1. nóv. 1961
Líklega lang langbesti staðurinn
á Íslandi fyrir hvalaskoðun...
KÍKT
U
Á HV
AL
HEIMSÆKIÐ
BLÍÐU RISANA
Á HÚSAVÍK
SUMARGJÖF
- HVALASKOÐUN -
Gildistími: Maí* & Júní** 2009
* Í brottfarir: 09:45 & 13:15 ** Í brottfarir: 16:45 & 20:15
2 fyrir 1
Þessi miði gildir í hefðbundna hvalaskoðunarferð með GG
á Húsavík samkvæmt tímaáætlun og aðstæðum. Þú framvísar
miðanum í afgreiðslu, greiðir fyrir 1 farþega og færð 2 farmiða.
Njóttu vel og góða skemmtun.
Sumarkveðja,
Starfsfólk GG
í i: Júlí & ág st 2010*
*Í brottfarir 20:15
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
„Það var aldrei markmið okkar, í
sjálfu sér, að verða mjög stórir á
þessum markaði. Aðalmarkmiðið var
bara að veita góða þjónustu á sann-
gjörnu verði,“ segir Þórir Garð-
arsson, sölu- og markaðsstjóri Ice-
land Excursions Allrahanda ehf.
„Þannig aðstæður hafa skapast á
markaðinum að tækifærin hafa verið
til staðar, og við höfum verið nokkuð
góðir að notfæra okkur þau.“
Fyrirtækið verður þrítugt á
þessu ári og hefur frá upphafi verið
að stærstum hluta í eigu fjölskyldna
Þóris og Sigurdórs Sigurðssonar.
„Reksturinn varð til úr sameiningu
tveggja einstaklingsfyrirtækja, en
við félagarnir, báðir ættaðir frá Flat-
eyri við Önundarfjörð, byrjuðum
okkar rúturekstur fyrir vestan og
ákváðum eftir nærri 10 ár í rekstri að
sameina þessi tvö litlu fyrirtæki í eitt
til að vera ekki sjálfir jafnbundnir við
starfsemina,“ segir Þórir. „En síðan
þá hefur umfangið stækkað og
stækkað.“
Alhliða ferðaþjónusta
Allrahanda hefur á þessum þremur
áratugum breyst úr rútubílafyr-
irtæki yfir í alhliða ferðaþjónustufyr-
irtæki. „Síðustu 13 árin höfum við
einkum sérhæft okkur í að búa til og
selja dagsferðir fyrir erlenda ferða-
menn á Íslandi,“ útskýrir Þórir.
„Fyrirtækið er með tæplega 50 bíla
flota og eru starfsmenn um 100 á
sumrin en milli 60 og 70 að vetri til.“
Reksturinn hefur verið í stöð-
ugum og öruggum vexti allt frá
fyrsta degi. Þórir segir fyrirtækið
hafa notið góðs af þeirri fjölgun
ferðamanna sem orðið hefur síðustu
áratugi. „Við byrjum síðan að hasla
okkur völl á dagsferðamarkaðinum
1997, enda höfðum við komið auga á
að þar var gott sóknarfæri til staðar.
Á þeim tíma var aðeins eitt fyrirtæki
á þeim markaði og vantaði alla ný-
sköpun og vöruþróun,“ útskýrir
hann. „Við hófum að kynna nýjar
ferðir, bæði styttri og lengri og sam-
settar á ýmsa vegu. Nú er svo komið
að 50 mismunandi dagsferðir eru í
boði, frá hálfum þriðja tíma upp í 16
klukkustunda langferðir, og farþega-
fjöldinn er á milli 70-80.000 á ári.“
Þórir segir að nýsköp-
unarvinnan skýri m.a. hversu mikil
starfsemin er hjá Allrahanda yfir
vetrarmánuðina. „Hér áður fyrr var
algengt að væri bara sumarvertíð
sem stóð þá í einhverjar 8-10 vikur,
en fjaraði síðan út. Eftir mikla vinnu
og markaðssetningu höfum við náð
að lengja ferðatímabilið verulega og
veltan yfir vetrarmánuðina er miklu
meiri en áður, sem aftur gerir okkur
kleift að hafa fleira fólk í vinnu allt
árið.“
Mikið í markaðsstarfið
En viðskiptin gerast ekki af sjálfu
sér og fyrirtækið fjárfestir mikið í
markaðsstarfi og þá einkum erlendis.
„Okkar markaðssetning er að mörgu
leyti hefðbundin. Við tökum þátt í
mörgum samstarfsverkefnum með
ferðaþjónustufyrirtækjum og aðilum
erlendis, og hleypur kostnaðurinn á
tugum milljóna,“ segir Þórir sem
sjálfur kveðst vera erlendis 100 daga
á ári að jafnaði í markaðsferðum.
„Það hefur líka haft mikið að segja
hversu vel við höfum komið okkur
fyrir á netinu, m.a. með fullkomnu
bókunarkerfi sem skapar nýja mögu-
leika fyrir endursöluaðila um leið og
það eykur möguleika þeirra sem
bóka til að ferðast á eigin vegum.“
Fleiri ferðast sjálfstætt
Þórir bendir einmitt á að hegð-
unarmynstur neytenda hafi breyst
mjög mikið á ekki lengri tíma en síð-
ustu 10 árum. „Þróunin hefur m.a.
verið sú að færast frá skipulögðum
hópferðum þar sem allt er innifalið
og gestirnir leiddir alla leið, yfir í það
sem kalla má „do it yourself“-
ferðamennsku þar sem ferðamað-
urinn skipuleggur og setur saman
sína ferð sjálfur.“
Sjálfstæðar ferðir af því tagi
segir Þórir að geti hjálpað fólki að
spara eða sníða ferðina algjörlega að
sínum þörfum og óskum. „En hafa
þarf í huga að í svokölluðum alferð-
um njóta ferðamenn mjög víðrar
neytendatryggingar svo líkja má við
að vera bæði með belti og axlabönd.
Það er gott að ferðalangar hafi það
alltaf bak við eyrað að út um allan
heim eru menn að selja ferðaþjón-
ustu sem síðan reynist ekki standa
undir nafni.“
50 ólíkar dagsferðir
fyrir 80.000 farþega
Gullni hringurinn langvinsælasta dagsferðin hjá ferðamönnum Huga þarf að
gæðum og öryggi í íslenskri ferðaþjónustu og bregðast við óvönduðum rekstri
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Aukning „Eftir mikla vinnu og markaðssetningu höfum við náð að lengja
ferðatímabilið verulega,“ segir Þórir Garðarson um reksturinn.
Þórir hefur af því áhyggjur að
óvandaður ferðaþjónusturekstur
fái að viðgangast. „Svo virðist
sem á krepputímum spretti upp
alls kyns ný fyrirtæki og sum
þeirra því miður á vegum aðila
sem hafa ekki þekkinguna sem
þarf til að veita þjónustu af því
öryggi og þeim gæðum sem við
viljum að ferðamenn á landinu
okkar upplifi,“ segir hann. „Ég
hef sérstakar áhyggjur af því að
ferðamenn geti lent í slysum
vegna slakra öryggiskrafna, og
slæmt að opinberir aðilar virðast
nær mátt- og úrræðalausir þegar
kemur að því að stemma stigu
við starfsemi sem er í algjöru
ólagi og jafnvel leyfislaus.“
Til mikils er að vinna að ekki
verði kastað rýrð á orðspor
ferðamannaiðnaðarins enda, eins
og Þórir bendir á, aflaði þessi
geiri atvinnulífsins gjaldeyri fyr-
ir um og yfir 150 milljarða á
liðnu ári. „Ákveðin vakning hef-
ur átt sér stað um mikilvægi
ferðaþjónustu fyrir bæði at-
vinnulífið og gjaldeyristekjur
þjóðarbúsins. Áhrifanna gætir
líka víðar og er skemmst að
minnast fundar verslunarmanna
í miðbænum á dögunum þegar
þeim var hætt að lítast á hvað
verslanir voru tómar vegna rösk-
unar á flugsamgöngum. Kom þá í
ljós hvað ferðmenn voru mik-
ilvægir viðskiptavinir,“ segir
Þórir og bætir glettinn við: „Ég
man hér áður fyrr þegar ég var
spurður hvað ég gerði, að ég
svaraði að ég ynni við ferðaþjón-
ustu. Þá var oft spurt að bragði
hvað ég gerði þá annað til að sjá
mér farborða. Ég fæ ekki svo-
leiðis spurningar lengur.“
Þarf að vakta gæðin
Þrátt fyrir heimskreppu og eldgosahrinu segir Þórir að reksturinn hafi
haldið ágætum dampi. „Stöðug aukning hefur verið milli ára þessi síðustu
átta ár. Það hægði aðeins á undanfarnar sex vikur en framtíðarbókanir
benda til þess að góð aukning verði það sem eftir er af árinu,“ útskýrir
hann.
Engar sérstakar breytingar má greina í smekk ferðamanna og vöxt-
urinn nokkuð jafn í öllum gerðum dagsferða sem spanna allt frá hefð-
bundnum rútuferðum með leiðsögumönnum yfir í ísklifur, jeppaferðir,
köfunarævintýri og þeysireið á snjósleðum. „Aukningin er þó af ein-
hverjum sökum minnst í ferðum um Suðurland, þ.e. austur fyrir Hvols-
völl. Erfitt er að segja til um með vissu hvort það er út af hræðslu við ösku
eða eitthvað annað.“
Gullni hringurinn svokallaði er og verður langvinsælasta ferðin. „Gam-
an er að nefna að þegar við byrjuðum var aðeins eitt annað fyrirtæki með
ferðir til Þingvalla, Gullfoss og Geysis og fór þá þrisvar í viku yfir vet-
urinn. Nú er svo komið að bæði við og stærsti samkeppnisaðlinn förum
tvær ferðir á dag yfir veturinn og þrjár ferðir á dag yfir sumarið.“
Stefnir í gott sumar