Morgunblaðið - 09.07.2010, Side 4

Morgunblaðið - 09.07.2010, Side 4
4 Íþróttir MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010 KNATTSPYRNA Pepsí-deild karla Úrvalsdeildin, 11. umferð: Breiðablik – Stjarnan.............................. 4:0 Alfreð Finnbogason 47.(víti), 55.(víti), 76., Haukur Baldvinsson 83. Valur – Haukar........................................ 2:2 Ian Jeffs 45., Sigurbjörn Hreiðarsson 74. – Hilmar Geir Eiðsson 25., Arnar Gunn- laugsson 57. ÍBV – Keflavík ......................................... 2:1 Andri Ólafsson 32., Eiður Aron Sigur- björnsson 90. – Magnús Þ. Matthíasson 45. Rautt spjald: Guðjón Árni Antoníusson (Keflavík) 90. Grindavík – Selfoss ................................. 1:1 Grétar Ólafur Hjartarson 23. – Jón Daði Böðvarsson 57. FH – Fram ................................................ 4:1 Atli Guðnason 8., Pétur Viðarsson 30., Björn D. Sverrisson 52., Atli Viðar Björns- son 64. – Almarr Ormarsson 48. Rautt spjald: Kristján Hauksson (Fram) 90. Staðan: Breiðablik 11 7 2 2 26:13 23 ÍBV 11 7 2 2 18:9 23 Keflavík 11 5 4 2 12:11 19 FH 11 5 3 3 20:17 18 Valur 11 4 5 2 19:17 17 Fram 11 4 5 2 18:16 17 Stjarnan 11 3 4 4 20:19 13 KR 10 3 3 4 14:15 12 Fylkir 10 3 3 4 18:20 12 Selfoss 11 2 2 7 13:21 8 Grindavík 11 2 1 8 11:21 7 Haukar 11 0 6 5 12:22 6 1. deild karla KA – Þór ................................................... 0:2 Jóhann Helgi Hannesson 63., 69. Staðan: Leiknir R. 9 6 1 2 15:7 19 Víkingur R. 9 6 1 2 16:9 19 Þór 9 5 3 1 18:9 18 ÍR 10 5 3 2 15:16 18 Fjölnir 9 4 3 2 17:11 15 HK 9 3 3 3 11:12 12 ÍA 9 3 2 4 14:14 11 Fjarðabyggð 9 3 1 5 12:17 10 Þróttur R. 10 3 1 6 12:17 10 KA 9 2 3 4 11:16 9 Njarðvík 9 2 2 5 7:13 8 Grótta 9 1 1 7 10:17 4 2. deild karla Víðir – Víkingur Ó................................... 1:2 Björn B. Vilhjálmsson 48. – Tomasz Luba 88., Þorsteinn Már Ragnarsson 90. Rautt spjald: Gísli Örn Gíslason (Víði) 90. Víkingur Ó 10 8 2 0 27:12 26 BÍ/Bolungarvík 9 6 1 2 18:7 19 Höttur 9 5 1 3 13:10 16 Hvöt 9 4 3 2 15:11 15 Afturelding 9 4 2 3 16:16 14 KS/Leiftur 9 4 2 3 18:19 14 Völsungur 9 3 4 2 13:10 13 Reynir S. 9 3 2 4 22:20 11 Hamar 9 3 1 5 7:19 10 Víðir 10 3 0 7 18:19 9 ÍH 9 2 0 7 6:16 6 KV 9 0 2 7 8:22 2 3. deild karla A KFG – Björninn........................................ 1:0 KFR – Markaregn ....................................2:1 Hvíti riddarinn – Árborg ......................... 0:6 Árborg 8 7 1 0 27:4 22 KFG 8 5 2 1 19:9 17 Álftanes 7 5 0 2 13:12 15 Sindri 7 4 1 2 20:11 13 Markaregn 8 3 0 5 11:15 9 Björninn 8 2 1 5 9:11 7 KFR 8 1 1 6 9:20 4 Hvíti riddarinn 8 1 0 7 9:35 3 3. deild karla B KFK – Berserkir ...................................... 1:2 Vængir Júpíters – Ægir ...........................0:1 Berserkir 7 6 1 0 18:4 19 Ægir 7 3 2 2 17:17 11 KFS 6 3 1 2 22:18 10 KFK 6 2 2 2 15:11 8 Þróttur V. 5 2 1 2 14:9 7 Vængir Júpíters 7 2 1 4 10:17 7 Afríka 6 0 0 6 6:26 0 3. deild karla C KB – Augnablik ........................................ 7:0 Ýmir – Léttir............................................. 4:2 KB 7 5 0 2 21:5 15 Tindastóll 6 5 0 1 20:4 15 Skallagr. 6 3 2 1 12:11 11 Ýmir 7 2 3 2 16:19 9 Léttir 7 2 2 3 16:18 8 Grundarfjörður 6 1 1 4 7:19 4 Augnablik 7 1 0 6 13:29 3 3. deild karla D Magni – Dalvík/Reynir .............................1:2 Dalvík/Reynir 7 6 1 0 23:4 19 Leiknir F. 6 3 2 1 14:8 11 Einherji 6 3 0 3 12:12 9 Draupnir 6 2 1 3 14:19 7 Magni 6 2 1 3 8:13 7 Huginn 5 2 0 3 9:7 6 Samherjar 6 0 1 5 4:21 1 1. deild kvenna A Álftanes – Þróttur R. ............................... 0:8 Staðan: Þróttur R 8 8 0 0 49:4 24 Keflavík 6 5 0 1 27:6 15 HK/Víkingur 6 4 0 2 10:7 12 Tindast./Neisti 6 2 0 4 6:8 6 Völsungur 6 2 0 4 9:12 6 Draupnir 6 1 0 5 3:38 3 Álftanes 6 0 0 6 5:34 0 Laugardalsvöllur, forkeppni Evr- ópudeildar UEFA, 1. umferð, síðari leik- ur, fimmtudag 8. júlí 2010. Skilyrði: Hægviðri, glaðasólskin og 16 stiga hiti. Völlurinn flottur. Skot: Fylkir 9 (5) – Torpedo 12 (7). Horn: Fylkir 6 – Torpedo 7. Lið Fylkis: (4-5-1) Mark: Andrew Bazi. Vörn: Kjartan Ágúst Breiðdal (Tómas Þorsteinsson 70.), Kristján Valdimars- son, Þórir Hannesson, Andri Þór Jóns- son. Miðja: Jóhann Þórhallsson, Ás- geir Börkur Ásgeirsson, Ásgeir Örn Arnþórsson (Andri Hermannsson 84.), Albert Brynjar Ingason (Friðrik Ingi Þráinsson 70.), Andrés Már Jóhann- esson. Sókn: Pape Mamadou Faye. Lið Torpedo: (4-4-2) Mark: Vladimir Bushma. Vörn: Júri Ostroukh, Valeri Karshakevich, Sergei Kontsevoi, Ant- on Brusnikin (Artem Solovei 75.). Miðja: Andrei Kazarin (Dimitry Hintav 83.), Aleksei Martinets, Artur Levitski, Aleksei Kozlov. Sókn: Denis Karolik (Ilya Aleksievich 68.), Ígor Krivobok. Dómari: Slavko Vincic, Slóveníu – 4. Áhorfendur: 658.  Torpedo áfram, 6:1 samanlagt. Fylkir – Torpedo Zhodino 1:3 Á VELLINUM Ívar Benediktsson iben@mbl.is Fylkismenn léku eflaust einn af sínum betri leikjum í sumar þegar þeir mættu Torpedo Zhodino frá Hvíta- Rússlandi öðru sinni í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA í knattspyrnu á Laugardalsvelli. Það dugði ekki til því það voru gestirnir sem skoruðu þrjú mörk gegn aðeins einu frá leikmönnum Fylkis. Árbæj- arliðið er þar með fallið úr keppni en staða þess fyrir leikinn í gær var veik eftir 3:0 tap ytra í síðustu viku. Þrátt fyrir vonlitla stöðu gerðu leik- menn Fylkis hvað þeir gátu til að rétta af kúrsinn eftir tapið í Hvíta- Rússlandi. Nokkrar breytingar voru á hefðbundinni uppstillingu Fylkisliðs- ins. Ólafur Stígsson, Valur Fannar Gíslason og Ingimundur Níels Ósk- arsson voru til að mynda ekki í leik- mannahópnum að þessu sinni og Fjal- ar Þorgeirsson markvörður sat á meðal varamanna. Ástralinn Andrew Bazi tók stöðu Fjalars í markinu. Ung- ir leikmenn fengu tækifærið og sumir nýttu það vel, aðrir síður og nokkrir til viðbótar komu inn á sem varamenn. Leikmenn Fylkis byrjuðu leikinn af krafti á iðjagrænum Laugardalsvell- inum í blíðviðrinu. Hvít-Rússarnir voru hinsvegar skeinuhættir og áttu sína spretti fram- an af leik án þess þó að veruleg hætti skapaðist upp við mark Fylkismanna. Ísinn var brotinn á 32. mínútu þegar Pape Mamadou Faye kom Fylki yfir þegar hann skoraði úr vítaspyrnu. Hún var dæmd eftir að fótunum var sópað undan Andrési Má Jóhannssyni, besta manni Fylkis í leiknum. Eftir markið reyndu leikmenn Fylkis að láta kné fylgja kviði og bæta við marki en vantaði herslumuninn. Óþarfa tap hjá Fylki  Ódýr mörk tryggðu FC Torpedo sigur  Fylkir er úr leik Búið Tómas Þorsteinsson, leikmaður F Víðir Sigurðsson vs@mbl.is KR-ingar voru ekki í teljandi vand- ræðum með að tryggja sér sæti í 2. umferð Evrópudeildar UEFA í gær- kvöld. Þeir gerðu þá jafntefli, 2:2, við Glentoran í Belfast þrátt fyrir að vera manni færri í 35 mínútur eftir að Skúli Jón Friðgeirsson fékk rauða spjaldið. KR vann fyrri leikinn, 3:0, og því 5:2 samanlagt, og mætir Karpaty Lviv frá Úkraínu í 2. umferð. Jimmy Callacher kom Glentoran yf- ir á 22. mínútu með skalla af markteig eftir fyrirgjöf frá vinstri. Kjartan Henry Finnbogason jafnaði fyrir KR mínútu fyrir hlé, stýrði þá boltanum í netið eftir að Björgólfur Takefusa skaut að marki uppúr aukaspyrnu, 1:1. KR náði forystunni á 54. mínútu. Björgólfur átti skot, markvörðurinn varði en boltinn fór af Johnny Black varnarmanni Glentoran og í netið, 1:2. Strax í sókn fékk Glentoran víta- spyrnu og Skúli Jón Friðgeirsson rauða spjaldið fyrir brotið. Gary Ha- milton jafnaði úr spyrnunni, 2:2. En manni fleiri náðu leikmenn Glentoran ekki að knýja fram sigur og Lars Ivar Moldskred varði mark KR nokkrum sinnum mjög vel seinni hluta leiksins. Glentoran hefði þurft að vinna með fjórum mörkum til að fara áfram og það var aldrei inni í myndinni. „Nei, í rauninni ekki, en þeir skoruðu þó mark snemma og staðan var 1:0 í nokkurn tíma. Við vorum full- varnarsinnaðir í fyrri hálfleiknum, gerðum oft mikið af því að spyrna boltanum fram í stað þess að halda honum. En eftir að Kjartan jafnaði í lok hálfleiksins vorum við með öll tök á þessu,“ sagði Logi Ólafsson þjálfari KR við Morgunblaðið eftir leikinn. „Eftir að við náðum forystunni var þetta síðan aldrei spurning. Þeir jöfn- uðu reyndar strax og við misstum Skúla útaf með rautt spjald, en eftir Í loftinu Björgólfur Takefusa sóknarmaður KR-inga í baráttu við Sean Ward, leikma Höfðum öll  Skúli Jón rekinn af velli í Belfast  Mann við Glentoran  KR mætir Karpaty Lviv frá Víðir Sigurðsson vs@mbl.is KR-ingar taka á móti úkraínska lið- inu Karpaty Lviv í 2. umferð Evr- ópudeildar UEFA á fimmtudaginn kemur, 15. júlí, á KR-vellinum. Þetta varð ljóst um leið og þeir höfðu sleg- ið norður-írska liðið Glentoran út í Belfast gærkvöld en Karpaty sat hjá í fyrstu umferð keppninnar. Seinni leikur liðanna fer fram í Úkraínu fimmtudaginn 22. júlí. Karpaty endaði í fimmta sæti úkraínsku A-deildarinnar í fyrra, á eftir Shakhtar, Dynamo Kiev, Me- talist og Dnipro. Liðið er frá Lviv, sögulegri borg vestast í landinu, rétt við pólsku landamærin, en þar búa um 735 þúsund manns og hún er metin besta borg Úkraínu hvað lífs- skilyrði varðar, ásamt því að vera ein helsta menningarmiðstöð landsins. Fræg borg í sögu Póllands Lviv tilheyrði Póllandi fram að síðari heimsstyrjöldinni þegar Sov- étmenn lögðu hana undir sig. Í borg- inni, sem þá hét Lwów, var háður fyrsti knattspyrnuleikur í Póllandi árið 1894, þar var stofnað fyrsta at- vinnuknattspyrnulið Póllands árið 1903 og þar var pólska knattspyrnu- sambandið stofnað árið 1911. Keppnistímabilið í Úkraínu er að hefjast og Karpaty mætir Dnipro í fyrstu umferðinni á laugardaginn. Karpaty hefur fengið til sín fimm nýja leikmenn fyrir komandi leiktíð, m.a. tvo Brasilíumenn, miðjumann- inn Nenu og varnarmanninn Danilo Avelar. Liðið er m.a. með tvo Serba, Nígeríumann, Eista og þriðja Bras- ilíumanninn í sínum röðum. Karpaty leikur á Ukraina Stadium í Lviv, 28 þúsund manna leikvangi sem var opnaður árið 1963, sama ár og félagið var stofnað. Í borginni er nú verið að reisa nýjan leikvang vegna úrslitakeppni EM sem verður haldin í Úkraínu og Póllandi árið 2012. Karpaty hefur aldrei unnið titla í Úkraínu en varð sovéskur bikar- meistari árið 1969. Þá lék liðið í B- deild í Sovétríkjunum en fór upp árið eftir og var þar í sjö ár. Frá stofnun úkraínsku deildakeppninnar árið 1991 hefur liðið leikið í A-deildinni, að tveimur árum undanskilum, og best náð þriðja sæti árið 1998. Karpaty tekur nú þátt í Evrópu- keppni í þriðja sinn og í fyrsta sinn í ellefu ár. Síðast var liðið slegið út síðsumars 1999 af Helsingborg frá Svíþjóð í vítaspyrnukeppni eftir að liðin skildu jöfn, 1:1, í báðum leikj- unum. Leiftur fór til Úkraínu og Skagamenn til Kiev Þetta verður í annað sinn sem ís- lenskt lið leikur í Úkraínu í Evr- ópukeppni. Leiftur mætti Vorskla Poltava í Intertotokeppninni 1998 og vann fyrri leikinn í Ólafsfirði, 1:0. Úkraínumönnunum var dæmdur sigur þar sem Ólafsfirðingum láðist að skrá einn leikmann á leikskýrslu. Vorskla vann svo seinni leikinn, 3:0. Skagamenn fóru reyndar á sömu slóðir árið 1975 og léku við Dynamo Kiev, eitt besta lið Evrópu á þeim ár- um, en þá var Úkraína hluti Sov- étríkjanna. Dynamo vann 2:0 á möl- inni á Melavellinum og 3:0 í Kiev. KR-ingar heim- sækja leikstað á EM 2012  Mæta Karpaty Lviv næst  Úkra- ínskt lið í sögufrægri pólskri borg

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.