Morgunblaðið - 09.07.2010, Side 6
6 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Á VELLINUM
Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
Stinningskaldinn í Grindavík spilaði
rullu þegar Selfoss kom í heimsókn í
gærkvöldi því það var eins og liðin
hefðu aldrei spilað í vindi. Heima-
menn byrjuðu með vindinn í bakið og
fengu mark en sama gerðist eftir hlé
svo liðin fengu sitt stigið hvort eftir
1:1 jafntefli.
Grindvíkingar sóttu án afláts til að
byrja með og fengu mörg færi áður
en Grétar Ólafur Hjartarson skoraði.
Það dugði hinsvegar til að ræsa Sel-
fyssinga sem fóru að brjótast inn í
leikinn. Með vindinn í bakið hófu
gestirnir að sækja stífar og fengu
smjörþef af marki þegar þrumuskot
Guðmundar Þórarinssonar small í
slánni. Þeir uppskáru síðan mark en
eins og í fyrri hálfleik dugði það til að
koma Grindvíkingum aðeins í gang
en mörkin létu á sér standa.
Grindvíkingar voru mjög sprækir í
byrjun með vandaðar sóknir sem
skiluðu færum en það þurfti Grétar
Ólaf til að sýna þeim hvernig á að
skora. Fram að því hafði hann verið
seigur við að fóðra Gilles í framlín-
unni. Orri Freyr Hjaltalín var líka
kominn í vörnina og stóð sig betur
þar en hann hefur gert sem miðju-
maður og náði að halda Sævari Þór
Gíslasyni, hinum skæða framherja
Selfoss, vel niðri.
„Ég segi svona bara allt þokkalegt
um þennan leik,“ sagði Orri Freyr,
fyrirliði Grindavíkur, eftir leikinn.
„Við áttum að vera búnir að gera út
um leikinn eftir fyrstu þrjátíu mín-
úturnar en því miður náðum við ekki
öðru marki til að drepa leikinn og það
er alltaf hættulegt að spila gegn
svona roki og Selfoss bara refsaði
okkur.“
Fyrirliðinn lék nú í vörninni en
hefur að undanförnu oftar spilað á
miðjunni. „Mér er nokkuð sama hvar
ég spila á vellinum, þetta er allt sama
baslið,“ bætti Orri Freyr við. „Við lít-
um á þennan leik í dag sem tapaðan
því við þurftum þrjú stig. Við eigum
næsta leik gegn Stjörnunni og það er
líka feikilega mikilvægur leikur en þá
þýðir ekkert að vera að spila vel en fá
ekkert út úr því – það verður að fara
að taka einhver stig. Við höfum spil-
að þokkalega í síðustu leikjum og
vorum óheppnir á móti KR í síðasta
leik en við áttum klárlega að vinna
þennan leik í dag. Ég taldi einhver
sjö eða átta dauðafæri í fyrri hálfleik
og þau hljóta að fara að verða að
mörkum.“
Selfyssingar voru ekki viðbúnir í
byrjun og guldu fyrir það, tóku þá
loks við sér en voru ekki nógu beittir
í sóknum sínum, svo hægir að Grind-
víkingum tókst að stilla upp vörninni.
Sitt stigið hvort í rokinu
Grindvíkingar náðu að halda einu stigi í kaflaskiptum leik gegn Selfossi,
sem fékk stig eftir sex leikja bið Liðin eftir sem áður hlið við hlið í botnslag
Ljósmynd/Víkurfréttir
Hættulegur Gilles Mbang Ondo Grindvíkingur brunar í átt að marki Selfoss en Guðmundur Þórarinsson og Agnar Bragi Magnússon eru til varnar.
Sævar Þór Gíslason, fyrirliði Sel-
foss, var ekki sáttur við það hvern-
ig hans menn byrjuðu gegn Grinda-
vík í gærkvöldi en þó sáttur við
framhaldið. „Við vorum bara ekki
ennþá komnir til Grindavíkur svo
þetta var erfitt í fyrri hálfleik. Ég
veit ekki hvort menn voru farnir að
bíða eftir því að komast í seinni
hálfleik og hafa þá vindinn í bakið
en það er hreinlega ekkert auðveld-
ara. Við vöknuðum samt aðeins í
lok fyrri hálfleiks en svo var seinni
hálfleikur alger einstefna hjá okk-
ur og við vorum í raun klaufar að
gera ekki út um leikinn. Það var þá
klaufaleg rang-
staða en svo var
líka tekið af okk-
ur mark sýnist
mér, við getum
skoðað það betur
í sjónvarpinu
seinna. Við erum
pínu svekktir
með að gera ekki
út um leikinn og
taka stigin þrjú
því við vorum betra liðið í heildina.
Stigið var samt kærkomið því ég
held að flestir séu búnir að afskrifa
okkur. Í síðasta leik okkar gegn
Breiðabliki var allt á uppleið en í
þessum leik var að duga eða drep-
ast, það getur verið að þess vegna
hafi verið einhver spenningur í
mannskapnum en við erum komnir
með stig eftir þennan leik og ætlum
að halda áfram að safna þeim. Auð-
vitað er alltaf hægt að tala um
reynsluleysi og skýla sér á bak við
það en þetta er ævintýri og enginn
uppgefinn í okkar hóp. Mórallinn
og samstaðan er alveg frábær en ef
við mætum ekki í réttum gír fer
ekki vel. Þetta er þó upp á við og
menn að komast í takt,“ sagði Sæv-
ar Þór. ste@mbl.is
Klaufar að gera ekki út um leikinn
Sævar Þór
Gíslason
1:0 23. Páll Guðmundsson gafupp hægri kantinn á Grét-
ar Ólaf Hjartarson. Þegar hann var
rétt kominn inn í vítateig kom Jó-
hann Ólafur Sigurðsson markvörð-
ur á móti en Grétar vippaði bolt-
anum yfir hann í autt markið.
1:1 57. Horn Guðmundar Þór-arinssonar frá hægri, bolt-
inn sveif í stóran boga að vinstri
stönginni þar sem Jón Daði Böðv-
arsson skallaði í markið. Auðun
Helgason varnarmaður Grindvík-
inga reyndi að koma boltanum frá
markinu en náði bara að skalla upp í
þaknetið.
I Gul spjöld:Jósef (Grindavík) 61. (brot).
I Rauð spjöld: Enginn.
MMM
Enginn.
MM
Enginn.
M
Auðun Helgason (Grindavík)
Orri Freyr Hjaltalín (Grindavík)
Jósef K. Jósefsson (Grindavík)
Grétar Ó. Hjartarson (Grindavík)
Gilles Mbang Ondo (Grindavík)
Agnar Bragi Magnússon (Selfossi)
Ingólfur Þórarinsson (Selfossi)
Guðmundur Þórarinsson (Selfossi)
Jón Daði Böðvarsson (Selfossi)
Jón Guðbrandsson (Selfossi)
Stefán R. Guðlaugsson (Selfossi)
Grindvíkingar áttu fjögur ágæt
færi áður en þeim tókst að skora á
23. mínútu.
Selfyssingurinn Guðmundur
Þórarinsson átti þrumuskot úr
aukaspyrnu sem small í slánni og
eftir darraðardans kom Selfoss
boltanum í markið en það stóð ekki
vegna rangstöðu.
Jónas Þórhallsson varaformaður
knattspyrnudeildar Grindavíkur
mætti í ljósblárri peysu á leik sinna
manna gegn Selfossi því hann
mundi eftir því að hafa verið í henni
í báðum sigurleikjum Grindvíkinga.
Þegar lið er í botnsæti er allt tínt til.
Jónas sagði eftir leikinn að það væri
þó ekki gat á peysunni eftir leikinn
og taldi líklega en ekki að hann
mætti aftur á leik í henni.
Jón Daði Böðvarsson skoraði
marki Selfoss í 1:1 jafntefli gegn
Grindavík í gærkvöldi en hafði
meiri áhuga á að ræða hvernig liðið
stóð sig. „Ég er sáttur en líka ósátt-
ur því við vorum hreinlega ekki
mættir í fyrri hálfleikinn og höfum
engin efni á því, við verðum að vera
góðir í níutíu mínútur en ekki bara í
seinni hálfleik, sem mér fannst
reyndar mjög góður hjá okkur. Við
fáum þó stig út úr þessum leik, sem
er mikilvægt og betra en ekki neitt.
Þetta hefur ekki dottið með okkur
og við verðum bara að halda áfram
að safna stigum því það er mikið
eftir af mótinu. Við ætlum ekki að
detta aftur í tapleiki, ekki bara
vinna einn og tapa svo næsta,“ sagði
Jón Daði eftir leikinn.
Morgunblaðið gefur leikmönnum
einkunn fyrir frammistöðu sína.
Eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir
mjög góðan leik og þrjú M fyrir frá-
bæran leik.
Dómarar fá líka einkunn fyrir
frammistöðu sína, frá 1 til 6.
Þetta gerðist
í Grindavík
Grindavíkurvöllur, Pepsi-deild karla,
11. umferð, fimmtudag 8. júlí 2010.
Skilyrði: Norðaustan stinningskaldi,
þurrt og sól. Hiti um 13 stig.
Skot: Grindavík 11 (6) – Selfoss
8(5).
Horn: Grindavík 3 – Selfoss 6.
Lið Grindavíkur: (4-4-2) Mark:
Rúnar Þór Daníelsson. Vörn: Loic
Mbang Ondo, Auðun Helgason, Orri
Freyr Hjaltalín, Jósef Kristinn Jós-
efsson. Miðja: Scott Ramsay (Alex-
ander Magnússon 83.), Jóhann
Helgason, Matthías Örn Friðriksson,
Páll Guðmundsson (Óli Baldur
Bjarnason 61.). Sókn: Gilles Mbang
Ondo, Grétar Ólafur Hjartarson.
Lið Selfoss: (4-4-2) Mark: Jóhann
Ólafur Sigurðsson. Vörn: Stefán
Ragnar Guðlaugsson, Kjartan Sig-
urðsson, Agnar Bragi Magnússon,
Guðmundur Þórarinsson. Miðja:
Ingólfur Þórarinsson (Arilíus Mar-
teinsson 71.), Jón Guðbrandsson
(Andri Freyr Björnsson 83.), Einar
Ottó Antonsson, Jón Daði Böðv-
arsson. Sókn: Sævar Þór Gíslason,
Davíð Birgisson.
Dómari: Erlendur Eiríksson - 4.
Áhorfendur: 778.
Grindavík – Selfoss 1:1