Morgunblaðið - 09.07.2010, Side 7
Íþróttir 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
„Þetta átti að vera leikurinn þar sem við næð-
um að snúa gengi okkar við og við erum auð-
vitað mjög ósáttir við að ná ekki sigri. Leik-
urinn var hins vegar opinn þannig að ég skil
vel að Valsmenn séu ósáttir líka. Við vorum
sprækir í dag, lögðum okkur fram og ég held
að við séum komnir í gang núna,“ sagði Gunn-
ar Ormslev Ásgeirsson sem átti góðan leik
fyrir Hauka í jafnteflinu við Val í gær.
Gunnar átti frábæran sprett fram vinstri
kantinn seint í leiknum og nældi í vítaspyrnu
en Arnar Gunnlaugsson nýtti hana ekki.
„Arnar er náttúrlega þrælörugg skytta og
19 af hverjum 20 spyrnum hefðu farið inn. Ég
þarf bara að taka fleiri svona spretti,“ sagði
Gunnar léttur.
Leikmenn Hauka höfðu gert veðmál við
þjálfarateymið sem fól í sér
að fyrsti sigur liðsins kæmi
í einhverri af síðustu þrem-
ur umferðum. Það tókst
ekki og þeir þurfa því að
þreyta sjósund auk þess að
fá rassskellingu þó þeir
verðskuldi ekkert nema
klapp á bakið fyrir frammi-
stöðuna í gær.
„Liðsstjórinn fær að rass-
skella okkur eftir þetta. Ég
held samt að hann muni meiða sig meira en
við því þetta eru ansi margar flengingar fyrir
einn mann. Við förum svo oft í ísbað eftir æf-
ingar þannig að sjósund ætti ekki að gera okk-
ur mein,“ sagði Gunnar. sindris@mbl.is
Liðsstjórinn fær að rassskella okkur
Gunnar Ormslev
Ásgeirsson
„Við vorum bara ekki nógu góðir í dag, frá
fyrstu mínútu. Þetta var ekki sanngjarnt
jafntefli og Haukar voru bara betri í dag,“
sagði Valsmaðurinn Ian Jeffs hreinskilinn í
samtali við Morgunblaðið í gær eftir jafntefli
Vals og Hauka í Pepsídeildinni.
„Við sýndum samt karakter með því að
jafna tvisvar því það er alltaf erfitt að lenda
undir, en við vorum langt frá okkar besta.
Menn voru ekki nægilega grimmir og mættu
ekki til leiks, ef svo má segja, fyrr en eftir
þrjátíu mínútur. Fyrsti hálftíminn var sá lé-
legasti hjá okkur í sumar,“ sagði Jeffs.
Valsmenn hafa nú aðeins náð í þrjú stig í
síðustu fjórum umferðum og misstu til að
mynda niður tveggja marka forystu gegn
Fram á mánudaginn. Jeffs segir það þó ekki
hafa setið í mönnum.
„Ég held að við höfum
gleymt þeim leik bara
strax daginn eftir og við
undirbjuggum okkur vel í
vikunni,“ sagði Jeffs.
Hann vildi heldur ekki
meina að um vanmat af
hálfu Vals hefði verið að
ræða: „Haukarnir komu
okkur ekki á óvart og hafa
sýnt það í síðustu leikjum að þeir geta alveg
spilað í deild þeirra bestu. Sjálfstraustið er
orðið meira hjá þeim og þeir spiluðu mjög fín-
an fótbolta í fyrri hálfleiknum, en við gáfum
þeim líka bara allt of mikinn tíma til þess.“
sindris@mbl.is
„Haukar voru bara betri í dag“
Ian Jeffs
0:1 25. Haukar léku laglega ámilli sín áður en Arnar
Gunnlaugsson vippaði boltanum
snilldarlega yfir vörn Vals á Hilmar
Geir Eiðsson sem skoraði af öryggi
einn gegn Kjartani markverði.
1:1 45. Arnar Sveinn Geirssonátti flottan sprett fram
hægri kantinn og sendi svo fasta
sendingu inn í markteiginn þar sem
Ian Jeffs renndi sér fyrir boltann og
spyrnti honum í stöng og inn.
1:2 57. Hilmar Geir og ArnarGunnlaugsson léku sín á
milli áður en Arnar sneri laglega á
varnarmann og skoraði með hnit-
miðuðu skoti frá vítateigslínunni.
2:2 74. Martin Pedersen tókaukaspyrnu tæpum metra
frá vítateigslínu, hægra megin við
vítateigsbogann. Hann skaut í
vinstri markstöngina og þaðan barst
boltinn til Viktors Unnars sem kom
honum inn á markteiginn þar sem
Sigurbjörn Hreiðarsson skoraði
með skoti af stuttu færi.
Gunnar Ormslev Ásgeirsson
nældi í vítaspyrnu fyrir Hauka á 82.
mínútu. Gunnar hafði átt frábæran
sprett fram vinstri kantinn en Stef-
án Eggertsson braut svo á honum
innan vítateigs. Arnar Gunn-
laugsson tók spyrnuna en öllum að
óvörum skaut hann boltanum rétt
yfir vinstra markhornið.
I Gul spjöld:Atli Sveinn (Val) 72. (brot),
Hilmar Geir (Haukum) 87. (brot).
I Rauð spjöld: Enginn.
MMM
Enginn.
MM
Enginn.
M
Ian Jeffs (Val)
Arnar Sveinn Geirsson (Val)
Amir Mehica (Haukum)
Gunnar O. Ásgeirsson (Haukum)
Guðmundur Viðar Mete (Haukum)
Guðjón Pétur Lýðsson (Haukum)
Arnar Gunnlaugsson (Haukum)
Hilmar Rafn Emilsson (Haukum)
Haukur Páll Sigurðsson og
Danni König, samherjar hjá Val,
skullu illa saman með höfuðin seint í
fyrri hálfleiknum. Haukur Páll varð
í kjölfarið að fara af leikvelli og hann
var svo fluttur á sjúkrahús til að-
hlynningar. Ekki er vitað hve lengi
hann verður frá af þessum sökum.
Reynir Leósson gat ekki leikið
með Valsmönnum í gær vegna
meiðsla. Meiðslin eru þó smávægi-
leg og hann ætti að vera klár í slag-
inn í næstu umferð að sögn Gunn-
laugs Jónssonar, þjálfara Vals.
Arnar Gunnlaugsson skoraði sitt
70. mark í efstu deild hér á landi
þegar hann kom Haukum í 2:1. Arn-
ar er aðeins 14. leikmaðurinn frá
upphafi sem nær að skora sjö tugi
marka. Hann hefði hins vegar getað
bætt 71. markinu við úr víti.
Morgunblaðið gefur leikmönnum
einkunn fyrir frammistöðu sína.
Eitt M fyrir góðan leik, tvö M fyrir
mjög góðan leik og þrjú M fyrir frá-
bæran leik.
Dómarar fá líka einkunn fyrir
frammistöðu sína, frá 1 til 6.
Þetta gerðist
á Hlíðarenda
Á VELLINUM
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Eftir að hafa fylgst með oft á tíðum
frábærri frammistöðu Hauka gegn
sterku liði Vals á sameiginlegum
heimavelli liðanna í Pepsi-deild
karla í knattspyrnu í gær er mér fyr-
irmunað að skilja hvers vegna í
ósköpunum Haukar hafa enn ekki
„slysast“ til að vinna leik í sumar.
Þess í stað hafa þeir nú gert heil 6
jafntefli að loknum fyrri helmingi Ís-
landsmótsins eftir að hafa komist
upp í úrvalsdeild síðastliðið haust.
Ekki ber að skilja þennan inngang
sem svo að Haukar hafi haft algjöra
yfirburði gegn Valsmönnum í gær.
Þeir voru mun sterkari aðilinn í fyrri
hálfleiknum og nýttu sér vel furðu-
legan sljóleika Hlíðarendapilta sem
virtust stundum ekki átta sig á að
þeir væru mættir í vinnuna, en í
seinni hálfleiknum var jafnræði með
liðunum. Ég fullyrði samt að hefðu
Haukar spilað þó ekki væri nema
helming leikja sinna hingað til af
jafnmiklum krafti og í gær þá væru
þeir svo sannarlega komnir með sinn
fyrsta sigur í Pepsi-deildinni. Hann
er hins vegar ekki kominn. Andri
Marteinsson þjálfari kennir skorti á
einbeitingu hjá leikmönnum um.
Hún sé ekki nægilega mikil allar 90
mínúturnar. Þetta er klisja sem mik-
ið er hins vegar til í. Haukar hefðu
alla vega átt að geta nýtt sér það
betur að komast tvívegis yfir í leikn-
um. Í bæði skiptin var það fyrir til-
stilli töfranna sem guð almáttugur
kom fyrir í fótum Arnars Gunn-
laugssonar. Hvort einhver seiðkerl-
ing var á ferð á Hlíðarenda í gær
veit ég ekkert um en svo fór hins
vegar að töfrar Arnars brugðust á
ögurstund undir lok leiksins, þegar
hann brenndi af vítaspyrnu. Hann
sagði þetta vera í annað skiptið á
ferlinum sem vítaspyrna hans færi
forgörðum. Fleiri áttu góðan leik fyr-
ir Hauka í gær, t.d. Guðjón Pétur
Lýðsson sem barðist vel á miðjunni
og átti hættuleg skot, og bakvörð-
urinn Gunnar Ormslev Ásgeirsson
sem steig ekki feilspor á sínum
gamla heimavelli.
Þó Valsmenn geti prísað sig sæla
að hafa náð í stig úr leiknum miðað
við allt þá gengu 22 leikmenn hnípnir
af Vodafonevellinum í gær. Valur
hefur nú aðeins náð í 3 stig úr síðustu
fjórum leikjum í deildinni og liðið átti
ekki meira skilið í gær.
Það hefur því heldur fjarað undan
lærisveinum Gunnlaugs Jónssonar
sem hófu Íslandsmótið af góðum
krafti og voru um tíma á toppi deild-
arinnar. Eins og þeir spiluðu í gær
má jafnvel segja að þeir séu heillum
horfnir. Barátta manna var lítil og
spilið ekki nándar nærri eins gott og
það hefur verið á stundum í sumar.
Núna eru Valsmenn orðnir sex stig-
um á eftir toppliði Blika og hafa feng-
ið á sig tvö mörk í hverjum leik síð-
ustu þriggja umferða.
Morgunblaðið/Jakob Fannar
Rétt framhjá Arnar Sveinn Geirsson og Amir Mehica eru hér á lofti en skot Arnars fór rétt framhjá markinu. Kristján Ómar Björnsson er til varnar.
Hví hafa þeir aldrei unnið?
Haukar gerðu enn eitt jafnteflið þrátt fyrir góðan leik gegn Val Valsmenn
heillum horfnir eftir góða byrjun Töfrar Arnars brugðust á ögurstund
Vodafonevöllurinn að Hlíðarenda,
Pepsi-deild karla, 11. umferð,
fimmtudag 8. júlí 2010.
Skilyrði: Sólskin og gola. Völlurinn
flottur.
Skot: Valur 13 (7) – Haukar 8 (4).
Horn: Valur 7 – Haukar 3.
Lið Vals: (4-3-3) Mark: Kjartan
Sturluson. Vörn: Stefán Jóhann Egg-
ertsson, Atli Sveinn Þórarinsson,
Martin Pedersen, Greg Ross. Miðja:
Rúnar Már Sigurjónsson, Haukur Páll
Sigurðsson (Sigurbjörn Hreiðarsson
43.), Ian Jeffs. Sókn: Arnar Sveinn
Geirsson, Danni König (Viktor Unnar
Illugason 73.), Jón Vilhelm Ákason
(Guðmundur S. Hafsteinsson 60.).
Lið Hauka: (4-5-1) Mark: Amir Me-
hica. Vörn: Gunnar Ormslev Ásgeirs-
son, Daníel Einarsson, Guðmundur
Viðar Mete, Úlfar Hrafn Pálsson (Pét-
ur Örn Gíslason 70.). Miðja: Hilmar
Geir Eiðsson, Kristján Ómar Björns-
son, Arnar Gunnlaugsson, Guðjón
Pétur Lýðsson, Ásgeir Þór Ingólfs-
son. Sókn: Hilmar Rafn Emilsson.
Dómari: Einar Örn Daníelsson – 5.
Áhorfendur: 1.027.
Valur – Haukar 2:2