Morgunblaðið - 09.07.2010, Page 8
8 Íþróttir
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. JÚLÍ 2010
Á VELLINUM
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Íslandsmeistarar FH-inga hoppuðu
upp um tvö sæti og eru komnir í
fjórða sæti Pepsí-deildarinnar eftir
ótrúlega auðveldan sigur á Fröm-
urum í veðurblíðunni í Kaplakrika í
gærkvöld. 4:1 urðu lokatölurnar og
miðað við gang leiksins hefðu meist-
ararnir vel getað landað stærri sigri,
en þeir höfðu undirtökin frá upphafi
til enda.
Dagskipun Heimis Guðjónssonar
þjálfara FH-inga var greinilega sú að
pressa Framara alveg upp að þeirra
eigin vítateig og það verður að segj-
ast eins og er að þetta herbragð
Heimis gekk fullkomlega upp. Fram-
arar áttu í hinu mesta basli enda FH-
ingar feikilega grimmir og voru fljótir
að vinna boltann af Safamýrarpiltum
sem lágu aftarlega á vellinum. Atli
Guðnason gaf FH-ingum tóninn þeg-
ar hann skoraði eftir átta mínútna
leik og Pétur Viðarsson bætti við for-
ystu FH með einu af mörkum sum-
arsins og með þetta veganesti fóru
FH-ingar inn í leikhléið.
Vitandi það að Framarar hafa oft
sýnt seiglu í vonlausri stöðu hleyptu
FH-ingar þeim inn í leikinn þegar
varamaðurinn Almarr Ormarsson
skoraði í byrjun seinni hálfleiks.
Mark sem FH-ingar mótmæltu ákaft
enda vildu þeir meina að brot hefði
átt sér stað rétt áður en Almarr skor-
aði. En markið stóð og landsliðs-
markvörðurinn Gunnleifur Gunn-
leifsson vill vafalaust gleyma því sem
allra fyrst. Hafi Framarar haldið að
Almarr hafi veitt þeim líflínu þá var
Björn Daníel Sverrisson ekki lengi að
kveða Framara í kútinn því nokkrum
mínútum eftir mark Almars skoraði
hann úr aukaspyrnu og eftirleikurinn
var auðveldur fyrir Hafnarfjarð-
arliðið, sem heldur til Hvíta-
Rússlands með gott veganesti.
Þrátt fyrir að vera með 12 stigum
minna en á sama tíma í fyrra eru FH-
ingar hægt og bítandi að nálgast fyrri
styrk. Tveir síðustu leikir liðsins hafa
verið vel leiknir af þeirra hálfu og í
líkingu við FH-liðið sem lék svo vel í
fyrra og undanfarin ár en FH hefur
hampað titlinum í fimm skipti á síð-
ustu sex árum. Bestur í góðri liðs-
heild FH var fyrirliðinn Matthías Vil-
hjálmsson sem var sívinnandi út um
allan völl og Ólafur Páll Snorrason
var líka mjög áberandi en hann hefur
leikið jafnbest í meistaraliðinu í sum-
ar.
Framarar hittu fyrir ofjarla sína og
voru næstbesta liðið allan tímann.
Ótrúleg deyfð var yfir strákunum
hans Todda og liðið ekki í neinni lík-
ingu við það sem sést hefur til þess í
mestallt sumar. Þeir náðu ekki að
svara pressu FH-inga og komust
aldrei út úr varnarskelinni.
Morgunblaðið/Eggert
Góðir Kantmaðurinn Ólafur Páll Snorrason og félagar í FH rúlluðu varnarmanninum Jóni Orra Ólafssyni og félögum í Fram upp á Kaplakrikavelli í gær.
FH að nálgast fyrri styrk
Meistararnir upp um tvö sæti eftir sannfærandi sigur á daufum Frömurum
FH-ingarnir halda til Hvíta-Rússlands með gott veganesti
Kaplakriki, Pepsí-deild karla, 11. um-
ferð, fimmtudag 8. júlí 2010.
Skilyrði: 14 stiga hiti, sól og hægur
vindur. Völlurinn góður.
Skot: FH 18 (8) – Fram 9 (5).
Horn: FH 9 – Fram 9.
Lið FH: (4-3-3) Mark: Gunnleifur
Gunnleifsson. Vörn: Guðmundur
Sævarsson, Pétur Viðarsson, Tommy
Nielsen (Freyr Bjarnason 75.), Hjört-
ur Logi Valgarðsson. Miðja: Björn
Sverrisson, Bjarki Gunnlaugsson
(Hafþór Þrastarson 80.), Matthías
Vilhjálmsson. Sókn: Ólafur Páll
Snorrason, Atli Viðar Björnsson, Atli
Guðnason (Einar Ingvarsson 85.).
Lið Fram: (4-5-1) Mark: Hannes Þór
Halldórsson. Vörn: Samuel Tillen,
Hlynur Atli Magnússon (Daði Guð-
mundsson 46.), Kristján Hauksson,
Jón Orri Ólafsson. Miðja: Kristinn
Ingi Halldórsson, Halldór Hermann
Jónsson, Jón Gunnar Eysteinsson,
Ívar Björnsson (Almarr Ormarsson
46.), Josep Tillen. Sókn: Hjálmar
Þórarinsson.
Dómari: Valgeir Valgeirsson – 2.
Áhorfendur: 1.587.
FH – Fram 4:1
Ef taka á eitthvað eitt úr leik FH-inga í gær-
kvöldi sem var breytt frá fyrri leikjum var það
helst öryggið fyrir framan markið. Liðinu hef-
ur gengið illa að gera út um leiki og mörg góð
færi farið í súginn. Heimir Guðjónsson, þjálfari
FH, var að vonum mjög ánægður í leikslok
með leik sinna manna og ekki síst að þeir hafi
fundið sig fyrir framan mark andstæðinganna
að nýju.
„Þessi leikur var mjög góður af hálfu FH.
Leikmenn mínir spiluðu vel megnið af leiknum
og liðið vann sanngjarnan sigur. En þó svo
leikurinn í dag hafi verið góður má ekki
gleyma því að í júnímánuði, kannski fyrir utan
síðari hálfleik í leiknum á móti Stjörnunni, höf-
um við leikið mjög vel. Helst var, að við vorum
klaufar uppvið mark andstæðingana. Sökum
þess tókst okkur ekki að klára leikina eins og
við vildum. En við gerðum það í dag.“
Þrátt fyrir að deildin í ár
sé mjög jöfn var FH fimm
stigum á eftir toppliðunum.
Heimir segir að leikurinn
gegn Fram hafi verið mik-
ilvægari en ella fyrir þær
sakir. „Við vissum að ef
þessi leikur tapaðist og liðin
fyrir ofan okkur ynnu sína
leiki þá væri bilið á milli
okkar komið í átta stig. Því
verður ekki neitað að það er
ansi væn brekka. Því var mjög gott að vinna
þennan leik og koma okkur aðeins ofar í töfl-
una.“
Næsti leikur FH er í Evrópukeppninni gegn
Bate frá Hvíta-Rússlandi. Heimir segir sig-
urinn í gær fínt veganesti sem þeir taki með
sér í langt ferðalagið. andri@mbl.is
Fundu sig fyrir framan markið
Heimir
Guðjónsson
„Liðið lék eins og tölurnar segja til um,“
sagði Þorvaldur Örlygsson, þjálfari Fram,
þurr á manninn eftir tapleikinn gegn FH í
gærkvöldi. Spurður um hvað það var í leik
liðsins sem hafi farið úrskeiðis sagði Þor-
valdur: „Við fengum mörk á okkur og skor-
uðum ekki mörk. Það er bara einföld skýr-
ing. Við vorum bara ekki nógu góðir í dag.“
Óhætt er að taka undir skýringu Þorvald-
ar á tapinu, en hugsanlega hægt að greina
hana betur. Þorvaldur gerði fjórar breyt-
ingar á byrjunarliðinu frá síðasta leik, þar af
eina vegna leikbanns leikmanns. Spurður
hvort þessar miklu breytingar á skipan liðs-
ins hafi ruglað leikmenn í ríminu svaraði
Þorvaldur: „Greinilega.“ Hann bætti síðar
við að leikmenn hafi einfaldlega verið seinni
til í öllum aðgerðum, það sé svo einfalt og lið-
ið hafi ekki átt neitt meira skilið en það fékk.
Þorvaldur tók þó fram
að eitt tap væri ekki
heimsendir, og þó svo það
hafi verið stórt þýði það
ekki, að erfiðara verði að
rífa menn upp. „Nú tekur
við næsta æfing og næsti
leikur. Hvort sem menn
vinna eða ekki tekur það
sama við. Menn verða að
taka því þegar á móti
blæs. Og maður getur
ekki notið þess að sigra án þess að tapa ann-
að slagið.“
Að öðru leyti sagði Þorvaldur, að áfram
myndi hann hugsa um sitt lið en ekki önnur.
Fyrri umferðinni sé lokið og menn verði bara
að bíða og „sjá hvernig veður skipast í lofti í
þeirri síðari.“ andri@mbl.is
„Vorum bara ekki nógu góðir“
Þorvaldur
Örlygsson
1:0 8. Matthías Vilhjálmssonátti fallega stungusend-
ingu inn fyrir vörn Framara á Atla
Guðnason sem skoraði af miklu ör-
yggi framhjá Hannesi Þór Hall-
dórssyni markverði Safamýrarliðs-
ins.
2:0 30. Eftir hornspyrnuÓlafs Páls Snorrasonar
barst boltinn til Péturs Viðars-
sonar sem tók hann niður og skor-
aði með stórglæsilegu skoti efst í
markhornið. Eitt af mörkum sum-
arsins.
2:1 48. Eftir atgang í vítateigFH biðu FH-ingar eftir því
að fá dæmda aukaspyrnu en fengu
ekki. Boltinn féll fyrir fætur Al-
mars Ormarssonar sem skoraði
með skoti sem fór á milli fóta Gunn-
leifs landsliðsmarkvarðar.
3:1 52. Björn Daníel Sverr-isson skoraði með skoti í
stöng og inn beint úr aukaspyrnu
rétt utan vítateigsins. Annað mark
Björns Daníels í Pepsí-deildinni.
4:1 77. Guðmundur Sæv-arsson átti góða sendingu
inn á markteiginn. Þar kom Atli
Viðar Björnsson aðvífandi og skor-
aði af stuttu færi.
I Gul spjöld:Tommy (FH) 44. (brot),
Bjarki (FH) 56. (brot), Jón Orri
(Fram) 86. (brot), Matthías (FH)
90. (brot),
I Rauð spjöld: Kristján (Fram) 90.(brot).
MMM
Enginn.
MM
Matthías Vilhjálmsson (FH).
M
Guðmundur Sævarsson (FH)
Pétur Viðarsson (FH)
Tommy Nielsen (FH)
Hjörtur Logi Valgarðsson (FH)
Bjarki Gunnlaugsson (FH)
Ólafur Páll Snorrason (FH)
Atli Viðar Björnsson (FH)
Halldór Hermann Jónsson (Fram)
Samuel Lee Tillen (Fram)
Jón Guðni Fjóluson leikmaðurinn
sterki í liði Fram tók út leikbann,
fyrri leikinn af tveimur. Nú er hinn
miðvörðurinn, Kristján Hauksson,
einnig kominn í bann.
Framarar hafa ekki riðið feitum
hesti frá leikjum sínum gegn FH-
ingum í Kaplakrika en í sex síðustu
leikjum liðanna í Krikanum hafa
Framarar aðeins náð að innbyrða
eitt stig. Liðin gerðu 3:3 jafntefli
sumarið 2007.
Fulltrúi frá hvítrússneska liðinu
BATE Borisov var á leiknum í
Kaplakrika í gærkvöld en liðið
mætir FH-ingum í 1. umferð for-
keppni Meistaradeildarinnar og fer
fyrri leikurinn fram í Hvíta-
Rússlandi í næstu viku.
Atli Viðar Björnsson skoraði sitt
fimmta mark í Pepsí-deildinni í
sumar þegar hann skoraði fjórða
mark Íslandsmeistaranna. Atli
fagnaði markinu vel og innilega
enda búinn að fara illa með mörg
góð marktækifæri í síðustu leikjum
liðsins.
Þetta gerðist
í Kaplakrika