Framsóknarblaðið - 20.01.1965, Qupperneq 3
FRAMSÖKNARBLAÐIÐ
3
þá miklu, livort heinrir vanda-
sama starf verður stutt eða tálm-
að af hálfu ríkisvaldsins.
Kreppusvipur í góðærinu.
Þrátt fyrir gott árferði og upp
gripaafia úr sjó eiga atvinnu-
vegir þjóðarinnar í vök að verj-
ast. Málgögn ríkisstjórnarinnar
eru í þessu sambandi farin að
tala um of miklar kröfur á hend
ur atvinnuvegunum, og meina
auðvitað, að kaupið sé of hátt.
Samt er það lægra hér en í ná-
grannalöndunum. Meinsemdin
mun vera, eins og víða annars
staðar í þjóðfélaginu, ofboðsleg
verðbólgujrróun síðustu ára. Þar
á íhaldsstjórnin stóra sök á.
Miklar gengislækkanir, geysileg
skattheimta og okurvaxtapólitík
verka á sviði verðbólgunnar eins
og olía á eld. Slík fyrirbrigði eru
einmitt hornsteinar og hag-
stjórnartæki viðreisnarstjórnar-
innar, sem reynast ekki betur en
svo, að jafnvel sjávarútvegurinn,
sem jók framleiðsluverðmæti
sitt á s. ]. ári um 20%, á í svo
miklurn erfiðleikum, að hann
þarf stuðning af hálfu ríkisins.
Stjórnarstefnan, sem verkar
þannig á atvinnuvegina að þeir
bera kreppusvip á rnesta góðær-
istímum, sem komið hafa, er
röng og skaðleg og því betra því
fyrr, sem húa er úr sögunni.
Lýðveidið 20 óra.
Á s. ]. ári átti okkar endur-
reista lýðveldi tuttugu ára af-
mæli. Því er gott að minnast
Jress, að íslenzku þjóðinni hefur
fyrr og síðar vegnað bezt, er hún
var frjáls og óháð öðrum Jjjóð-
um. Ný tækni verkar eins og
töfrasproti á auðlindir lands og
sjávar, en Jrær voru löngum að
miklu leyti lokaðar, enda var
landið talið liarðbýlt og þjóðin
fátæk. Orka og auðlegð, sem
lengi hefur blundað í skauti ís-
lenzkrar náttúru eru og verða
nýttar í þágu fólksins í landinu.
Þar er af miklu að taka ög ein-
mitt vegna Jress geta íslendingar
horft björtum augum til kom-
andi daga. Velmegun allra lands
ins barna er ekki órafjarlægt
takmark, ef vel er stjórnað.
.Ma
TILKYNNING
FRÁ SKATTSTOFUNNI.
Allir þeir, sem fengið hafa hluta af launum sínum
greiddan með sparimerkjum, verða að sýna spari-
merkjabækur sínar á Skattstofunni eigi síðar en 20.
Þ-m. u!Í$dH
Skattstjórinn.
Herbergi óskast.
fyrir f jóra reglusama sjómenn.
Siguröur Bjarnason, Svanhól.
Aðvörun.
Vegna skemmda, sem orðið hal'a á vegakerfi kaupstaðarins ut-
an bæjarins, sem ekki er hægt að lagfæra í bili, eru bifreiðaeigend-
ur aðvaraðir Um að aka Jressa vegi með varúð.
Bœjarstjóri.
1 %
Verzlunin er flull í Hiðstr. 11
venzlunin
Sími 1134.
Iðnaðarmenn, Veslmannaeyjum
Iðnaðarmannafélagið heldur árshátíð sína í Sam-
komuhúsinu, laugardaginn 23. janúar n. k. — Hefst kl.
7 e. h.
Stjórnin.
Vantar húsnæði
fyrir starfsfólk í vetur.
FISKIÐJAN.
Verkafólk.
Það verkafólk, sem ætlar að vinna hjá frystihúsunum í vetur,
er beðið að láta skrá sig hjá viðkomandi verkstöðvum.
I
Frystihúsin í Vestmannaeyjum.
* ~ •*—**- — —------ - iim-iin nni—«mfii^ rw~
Nr. 1/1965.
TILKYNNING
Verðlagsnefnd hefur ákveðið eftirfarandi hámarksvarð á fiski
í smásölu, og er söluskattur innifalinn í verðinu:
Nýr þorskur, slægður:
Með haus, pr. kg.................. Kr. 5,30
Hausaður, pr. kg.................... — 6,60
Ný ýsa, slægð:
Með haus, pr. kg.................. Kr. 7,20
Hausuð, pr. kg...................... — 9,00
Ekki má selja fiskinn dýrari, þótt liann sé Jrverskorinn í stykki.
Nýr fiskur, flakaður án þunnilda:
Þorskur, pr. kg................... Kr. 13,70
Ýsa, pr. kg......................... — 17,00
Fiskfars, pr. kg.................... — 17,50
Reykjavík, 13. janúar 1965.
VERÐLAGSSTJÓRINN
Aðalfundur
Framsóknarfélags Vestmannaeyja verður haldinn næst-
komandi sunnudag 24. janúar, að Strandvegi 42 og
hefst kl. 20,30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Umræður um bæjarmál.
STJÖRNIN.