Morgunblaðið - 17.08.2010, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 17.08.2010, Blaðsíða 6
6 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2010 - Lifið heil www.lyfja.is 20% afsláttur af Nicotinell IceMint út ágúst í öllum verslunum Lyfju. Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins ® ÍS L E N S K A S IA .I S L Y F 50 97 4 07 .2 01 0 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til nýs sáttafundar í deilu slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna við launa- nefnd sveitarfélaganna, að sögn Sverris Björns Björnssonar, for- manns LSS. Næsta dagsverkfall verður á föstudag. Mjög litlu munaði að samningar næðust fyrir sl. helgi. „Það eru engir fundir núna en ef menn ætla að landa þessu verða þeir auðvitað að vera með einhverjar óformlegar þreifingar,“ segir Sverr- ir. LSS tók þátt í samstarfinu um stöðugleikasáttmála í fyrra en Sverrir Björn segir að í raun hafi það verið gert á röngum forsendum. Slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn hafi talið að svigrúmið væri meira. Svo fór að samningurinn sem náðist við launanefnd sveitarfélag- anna var felldur og er því staða LSS gagnvart stöðugleikasáttmálanum óljós. Það eina sem er ljóst er að samningarnir eru enn lausir eins og hjá fleiri fjölmennum aðildarfélögum í BSRB, t.d. kennurum og BHM. Kjarabætur og kvennahópar BSRB sendi LSS stuðningyfir- lýsingu vegna verkfallsbrota en þar með er þó ekki sagt að sambandið styðji endilega kröfurnar. Að sögn Elínar Bjargar Jónsdóttur, for- manns BSRB, tekur sambandið sem slíkt ekki afstöðu til kjarakrafna ein- stakra sambanda. En gæti launa- hækkun til LSS haft fordæmisgildi? „Það er viðkvæmt þegar stórir karlahópar fá kjarabætur á sama tíma og stórir kvennahópar fá ekki neitt. Það gengur auðvitað ekki,“ segir Elín Björg Jónsdóttir. Engir sáttafundir boðaðir  Sum félög BSRB enn með lausa samninga og óvíst hvort heildarsamningar nást  Kauphækkanir til slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna gætu haft fordæmisgildi Styttist í stórverkfall » Yfirvinnubann gildir nú hjá slökkviliðs- og sjúkraflutn- ingamönnum og þeir hafa skil- að boðtækjum sínum. » Bráðabirgðasamningar stóru heildarsamtakanna og Samtaka atvinnulífsins frá því í fyrra renna út í nóvember. » Verði þá enn stór félög með lausa samninga gæti orð- ið erfitt að gera heildarsamn- inga um kaup og kjör. Sverrir Björn Björnsson Elín Björg Jónsdóttir Allt tiltækt lið Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) var kallað á vettvang vegna elds sem kviknaði í tónlistarhúsinu Hörpu skömmu fyrir klukkan ellefu í gærmorgun. Að sögn Höskuldar Einarssonar, deildarstjóra hjá SHS, voru slökkviliðsmenn frá fyrstu stöð að- eins nokkrar mínútur á staðinn en þá hafði starfsmönnum að mestu tekist að slökkva eldinn með handslökkvitækjum. Mikinn reyk lagði frá Hörpu á meðan eldurinn logaði en talið er að hann hafi kviknað út frá raf- suðuneista sem fór í dúk sem hékk utan á húsinu til vindkælingar. Dúkurinn fuðraði upp á skömmum tíma og eldurinn fór því næst í vinnu- palla úr tré. Talið er að tjón af völdum eldsins sé óverulegt og engum varð meint af. Nokkur ótti greip þó um sig í röðum starfs- manna sem staddir voru uppi í byggingunni á meðan eldurinn logaði. Greiðlega tókst þó að rýma hana. Fyrr í sumar kviknaði einnig eldur í einangrun við anddyri tónlistarhússins. Eldur í Hörpu í annað sinn Ljósmynd / Tómas Helgi Hjörtur J. Guðmundsson hjorturjg@mbl.is Vatn flæddi inn í kjallara íslenska sendiherrabústaðarins í Kaupmannahöfn í gær og var hann allur undirlagður af vatni. Mikil rigningaveður hafa verið að undanförnu á Sjálandi í Danmörku sem m.a. hafa valdið flóðum á ákveðnum stöðum í borginni, en sendiherrabústaðurinn er að Fuglebakkevej á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn. „Við notuðum gærdaginn í að ausa kjallarann. En það varð ekkert tjón af því og okkur varð ekkert meint af. Þetta hafa sennilega verið tæplega þúsund lítrar sem við tókum úr honum,“ sagði Sturla Sigurjónsson sendiherra. Engar tilkynningar Engar tilkynningar hafa borist sendiráðinu frá Íslend- ingum búsettum í Kaupmannahöfn eða annars staðar í Danmörku vegna flóðanna að sögn Sturlu. Hann sagðist reikna með því að þeir sem hefðu lent í einhverju vegna þeirra hefðu einfaldlega afgreitt sín mál sjálfir og ekki þurft á aðstoð sendiráðsins að halda. „Þá hefur ekki verið um að ræða neitt lífshættulegt eða stórtjón. Þetta er helst fólk sem er með hús og þá kjall- ara. En fólk gengur þá bara í málið og hefur samband við sitt tryggingafélag, allt eftir aðstæðum.“ Flæddi hjá sendiherranum Flóð Vatn flæddi inn í kjallara íslenska sendiherrabú- staðarins í Kaupmannahöfn um helgina.  Kjallari sendiherrabústað- arins í Kaupmannahöfn á floti Kristján Arason hefur verið ráð- inn yfirmaður söludeildar N1. Hermann Guðmundsson, forstjóri N1, segir hlut- verk Kristjáns vera að stýra sókn fyrirtæk- isins á fyrir- tækjamarkaði. „Við erum með einhverja tugi manna sem sinna fyrirtækj- unum í landinu með bæði elds- neyti og alls konar varning sem við seljum. Þetta er nýtt starf sem kemur til af því að hjá okkur er að hætta Guðjón Auðunsson, fram- kvæmdastjóri fyrirtækjasviðs, og við það tilefni ákváðum við að sameina hjá okkur sölusviðin, neytendasvið og fyrirtækjasvið, undir hatti eins framkvæmda- stjóra sem heitir Ingunn Sveins- dóttir,“ segir Hermann. Hann seg- ir fyrirtækið því hafa leitað að leiðtoga sameiginlegrar söludeild- ar fyrirtækisins og ráðið Kristján Arason í það verkefni. Kristján hefur störf í næstu viku en hann hefur starfað hjá Capacent Íslandi samhliða því að sinna ákveðnum verkefnum fyrir íþróttafélagið FH. „Síðan störfum hans lauk hjá Kaupþingi hefur hann starfað hjá Capacent sem ráðgjafi en störf hans fyrir FH eru aukastörf, svona helgar- og kvöldvinna,“ seg- ir Hermann. Kristján Arason yfir til N1 Kristján Arason Ráðinn yfirmaður nýrrar söludeildar Lyfjasala á fyrri helmingi þessa árs er heldur minni en á sama tíma í fyrra. Á fyrri helmingi ársins seld- ust 82,1 milljón skilgreindir dag- skammtar lyfja (DDD) samanborið við 83,1 milljón á sama tímabili í fyrra. Samdrátturinn nemur 1,2%. Í frétt frá Lyfjastofnun kemur fram að verðmæti sölunnar var 13,0 milljarðar kr. en tæpir 12,9 millj- arðar á fyrri helmingi 2009 og hef- ur kostnaður því aukist um 1,2% milli tímabila, reiknað á smásölu- verði með virðisaukaskatti. Sala í stærsta lyfjaflokknum, hjarta- og æðasjúkdómalyfjum, dróst saman um 9,5% reiknað í dagskömmtum fyrstu sex mánuði þessa árs miðað við sama tímabil í fyrra. Heildarsala lyfja allt árið 2009 nam 26,1 milljarði kr. Lyfjasala dregst saman milli ára

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.