Morgunblaðið - 17.08.2010, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 17.08.2010, Blaðsíða 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2010 Jakob Fannar Sjóræningjaskip Jón Gnarr borgarstjóri tók í gær fyrsta höggið á ævintýra-minigolfvellinum Fjársjóðsleitinni í Grafarvogi og afhjúpaði nafn sjóræningjaskips sem skírt var í höfuðið á honum. Fyrirsögnin vísar ekki í heimilisbókhald undirritaðrar fremur en heimilisbókhald flestra barnafjöl- skyldna á Íslandi. Hér er vísað í peninga sem urðu afgangs af því að þeim var ekki útdeilt til þeirra sem greiddu fyrir tannlæknakostn- að og áttu rétt á endur- greiðslu árið 2009. Verður nú leitast við að útskýra málið betur. Hið opinbera hefur í meira en ára- tug ekki verið með gildandi samning við tannlækna um endurgreiðslu vegna veittrar tannlæknaþjónustu. Því hefur endurgreiðslu til þeirra sem þjónustunnar njóta og rétt eiga á end- urgreiðslu verið stýrt einhliða frá heilbrigðisráðuneytinu og Sjúkra- tryggingum Íslands (SÍ). Endurgreitt hefur verið skv. gjaldskrá SÍ í lang- flestum tilfellum, nema þegar um er að ræða mjög alvarlega fæðingargalla og/eða mjög alvarlegar afleiðingar slysa. Tannlæknar mega skv. sam- keppnislögum ekki vera með sam- ræmda gjaldskrá og því ómögulegt að segja til um hver munur á gjaldskrá SÍ og tannlækna er. Ljóst er þó, þar sem gjaldskrá SÍ hefur ekki hækkað árum saman í samræmi við almennt verðlag, að mikið ber í milli. Á fjárlögum Alþingis fyrir árið 2009 var ákveðið að veita 1666,4 milljónum króna til að endurgreiða útlagðan tannlækna-og tannrétt- ingakostnað barna og ungmenna til 18 ára aldurs, elli- og örorkulífeyr- isþega auk annarra sem rétt eiga á endurgreiðslu. Heilbrigðisráðu- neytið og SÍ sáu svo um framkvæmd endurgreiðslnanna og settu reglur þar að lútandi. Fyrir árið 2009 tókst þessum stofnunum þannig til, að af 1666,4 milljónum sem til ráðstöfunar voru, voru um 1370 milljónir greidd- ar út, þar af um 550 milljónir til tann- lækninga og forvarna barna og ung- menna til 18 ára aldurs. Afgangurinn er tæpar 300 milljónir. Nú gæti ein- hver sagt að þetta væri vel af sér vik- ið. Fyrirtæki sem fær 1666 milljónir í rekstr- arfé og eyðir ekki nema 1370 milljónum er að standa sig vel. En þannig er málum ekki háttað hér. Kostnaður við tannlæknaþjónustu hefur ekki lækkað. Það eru m.a. barnafjöl- skyldurnar í landinu sem brúa bilið. Alþingismenn ákváðu í fjárlögum fyrir árið 2009 að styrkja þá sem rétt eiga á endurgreiðslu tannlæknakostnaðar, en heilbrigðisráðuneytið og SÍ sáu til þess að tæpar 300 milljónir skiluðu sér ekki til baka í endurgreiðslum. Margar leiðir eru færar til að auka greiðslur til þeirra sem eiga rétt til endurgreiðslu tannlæknakostnaðar. Margítrekað hefur verið bent á að hægt sé að auka endurgreiðsluhlut- fall til barna og ungmenna úr 75% í 100%. Hægt er að hækka endur- greiðslugjaldskrá SÍ (sem staðið hef- ur í stað árum saman), bæði í heild sinni sem og einstaka liði. Einnig er búið að benda á kosti endur- greiðslukerfis sem tíðkast í ná- grannalöndum, þar sem einingaverð er lagt til grundvallar. Eitt er ljóst að það fyrirkomulag, sem nú er við lýði, er gengið sér til húðar. Það er lágmarkskrafa að þeir fjármunir, sem alþingismenn gera ráð fyrir í fjárlögum að greiða ein- staklingum til baka fyrir veitta tann- læknaþjónustu, skili sér í vasa al- mennings, en dagi ekki uppi innan stofnunar ár eftir ár. Svo mikið er víst að breiðu bökin er ekki að finna innan barnafjölskyldna á Íslandi í dag. Eftir Kristínu Heimisdóttur » Svo mikið er víst að breiðu bökin er ekki að finna innan barna- fjölskyldna á Íslandi í dag. Kristín Heimisdóttir Höfundur situr í stjórn Tannlæknafélags Íslands. Var aftur afgangur? Eftir að hafa fylgst með umræðum núver- andi heilbrigðis- ráðherra okkar, sem bæði í ræðu og æði sýnir megnt hatur á ís- lenskum læknum með framferði sínu, þá get ég ekki orða bundist. Ég undirrituð er ein af þeim sem nýta sér þjónustu Landspít- alans. Ég á 16 ára dótt- ur sem er fædd með sjaldgæfan lifr- arsjúkdóm. Þegar dóttir mín fæddist vorum við með frábæran skurðlækni starfandi á sjúkrahúsinu (hann er kominn á aldur) sem skar hana upp og lagaði það sem þurfti þá. Ég heyrði síðar að þessi læknir var svo fær að hann var sífellt að fá tilboð frá erlendum sjúkrahúsum um að taka við góðum stöðum þar. Sem betur fer fyrir dóttur mína, ákvað hann að vera hér á Íslandi. Á þessum tíma var enginn starfandi meltingafæra- sérfræðingur á barnadeildinni og því var framtíðin óljós. Það var svo einn af sérfræðingum deildarinnar sem tók sig til og fór að lesa sér til um þetta einstaka tilfelli. Hann hjálpaði mér að finna greinar og kenndi mér reyndar á Internetið á sínum tíma, til að við gætum í sameiningu lært um sjúkdóminn. Þannig unnum við í nokkur ár eða þangað til við fengum frábæran meltingafærasérfræðing á sjúkrahúsið fyrir um það bil tíu ár- um. Hann sá svo um hana þar til á þessu ári, þegar honum bauðst yf- irlæknisstaða í Bandaríkjunum. Við fengum þá þriðja lækninn sem við erum enn að kynnast. Þetta öryggi sem við höfum búið við í tíu ár er samt horfið. Hin yfirgripsmikla þekking sem fyrrverandi læknir dóttir minnar hefur er farin úr landi. Við búum svo vel hér á landi að sérfræðingarnir okkar þurfa að fara erlendis í sérnám. Þaðan koma þeir með mikla þekkingu á sjúkdómum sem við jafnvel höfum aldrei séð hér- lendis og eru því í standi til að bregð- ast við ef/þegar þarf. Þeir hafa líka mikið net sambanda sem nýtist þeim við greiningar og með- ferðir á íslenskum sjúklingum. Þetta er sérstaklega gott fyrir okkur sem erum að kljást við sjaldgæfa sjúkdóma og ég hefði haldið að þetta gagnist öllum Íslendingum sem þurfa að fara á sjúkra- hús, því að vinna þeirra erlendis hefur örugg- lega einnig gert þá fær- ari í algengari sjúk- dómum. Ég er yfir mig hrifin af íslenskum læknum (og reyndar eru hjúkr- unarfræðingarnir og sjúkraliðar líka í miklu uppáhaldi hjá mér) og ég hef samanburðinn. Vegna þess að dóttir mín mun þurfa að fara í ígræðslu í framtíðinni, þá höfum við þurft að vera í sambandi við erlenda lækna. Þar til í fyrra var TR með ígræðslu- samning við Ríkisspítalann í Dan- mörk og þangað höfum við farið nokkrum sinnum. En í öll skiptin höfum við farið frá þeim með súrt bragð í munninum. Ekki nóg með að okkur hafi fundist okkar íslenski sérfræðingur mun betur að sér í sambandi við heilsu hennar, þá var hroki þeirra yfirgengilegur. Stór hluti af samtölum okkar voru á þeim nótum að þeir gerðu lítið úr íslensk- um læknum og heilbrigðiskerfi okk- ar Íslendinga og ég sat á móti og hélt uppi vörnum fyrir okkar frábæru barnadeild. Það fór meiri tími í þetta en að ræða ástandið á dóttur minni. Þeir vildu að við kæmum til Dan- merkur á 6 mánaða fresti því að okk- ar læknum væri ekki treystandi til að sjá um einfalt eftirlit á barninu. Það kom alls ekki til greina, hvorki af okkur hálfu né spítalans. Nú er TR með ígræðslusamning við Sví- þjóð og staðan hjá okkur er þannig að við fáum núna fyrirmæli frá Sví- unum um lyfjagjafir og eftirlit, í gegnum nýja lækninn okkar. Þegar dóttir mín fæddist voru fáir starfandi barnalæknar á barnadeild- inni. Það hefur batnað mikið, en ástandið er þannig að ég óttast mikið að við séum að fara til baka í mun verra ástand. Við þurfum að hlúa að læknastéttinni. Við erum með gríð- arlega vel menntaða lækna hér og við þurfum á þekkingu þeirra að halda. Við erum nefnilega að missa fjölskyldur úr landi vegna þess að þekking á sjúkdómum barna þeirra er ekki til staðar á spítalanum. Ég vil ekki vakna upp við þá mar- tröð að eftir nokkur ár verði ég að tala ensku á spítalanum vegna þess að okkar frábæru íslensku læknar vilja ekki koma hingað til að starfa á sjúkrahúsi þar sem sumar deildir eru víst svo illa tækjum búnar að þeir tala um að þetta sé eins og að fara 30 ár aftur í tímann að koma hér til starfa. Við þurfum líka ráðherra sem virðir störf þeirra og sér að þekking þeirra er mikill sparnaður fyrir íslenska ríkið. Ef við ætlum að fara að senda alla sjúklinga með erf- iða sjúkdóma í eftirlit og meðferðir erlendis hlýtur það að kosta ríkið meira en að halda hér uppi sjúkra- húsi sem laðar að sérmenntaða ís- lenska lækna. Ég heyri um allt of mörg dæmi þess að læknar sem hafa verið í sérnámi erlendis vilji alls ekki koma hingað heim. Það er þó ekki bara vegna hrunsins, heldur líka vegna ástands spítalans. Það er komið nóg af sparnaði og nú þarf að fara að byggja spítalann upp aftur þannig að við getum verið stolt af honum og að læknarnir okkar vilji starfa hér vegna þess að aðstaða og kjör séu svipuð og erlendis. Þannig er staðan ekki í dag og þetta auð- sýnda hatur núverandi ráðherra er ekki til að bæta ástandið. Eftir Önnu Maríu Þorkelsdóttur »Ég vil ekki vakna upp við þá martröð að eftir nokkur ár verði ég að tala ensku á spít- alanum vegna þess að okkar frábæru íslensku læknar vilja ekki koma hingað til að starfa … Anna María Þorkelsdóttir Höfundur er foreldri langveiks barns. Íslenskir læknar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.