Morgunblaðið - 17.08.2010, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.08.2010, Blaðsíða 10
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2010 10 Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir annaei@mbl.is Reiðhjólið nýtur vaxandivinsælda sem fararskjótiog fer þeim sífellt fjölg-andi sem hjóla í og úr vinnu eða nýta sér þennan vist- og heilsuvæna ferðamáta til annarra ferða. Margir bætast t.a.m. í raðir hjólreiðamanna þegar Átakið hjólað í vinnuna stendur yfir og hefur þátt- takendum fjölgað ár frá ári sl. sjö ár. Nú síðast tóku 9.411 manns þátt og halda margir þeirra áfram að hjóla, a.m.k. yfir sumartímann, þegar þeir eru einu sinni komnir af stað. Ekki átta hins vegar allir hjól- reiðamenn sig á að þeim er heimilt að hjóla á götunni og gætir raunar nokkurs miskilning, jafnvel í sam- göngunefnd Alþingis fyrir nokkrum árum, um að bannað sé að hjóla á götunni. „Hjól eru hvergi í heiminum bönnuð í almennri umferð,“ segir Árni Davíðsson formaður Landsam- taka hjólreiðamanna. „Hjólreiðar eru þó stundum bannaðar á hrað- brautum og við sérstakar aðstæður eins og í Hvalfjarðargöngunum.“ Að öðru leyti hafa reiðhjól sama rétt á götum og bílar, ólíkt því sem gildir um gangstéttar og göngustíga. Þar eru hjólreiðamenn á undan- þáguheimild, sem heimilar ferðir þeirra svo framarlega sem þeir taka tillit til gangandi vegfarenda. Verða að vera sýnilegir „Reiðhjól er skilgreint sem öku- tæki í umferðarlögum og í grunninn lýtur það sömu lögum og bílar gera,“ segir Einar Magnús Magnússon upplýsingafulltrúi Umferðarstofu. Ekki treysti sér hins vegar allir til að hjóla á götunum, þótt það sé í mörgum tilfellum betra og jafnvel öruggara ef það er gert rétt svo ekki sé talað um að farið er hraðar yfir. Bæði Árni og Einar nýta sér götur, ekki síður en göngustíga, til að komast sinna ferða á hjólinu og segja það misskilning að íslenskir ökumenn sé tillitslausir gagnvart hjólreiðamönnum. Flestir víki vel til hliðar og sýni hjólandi umferð fullan skilning. „Ég held að það sé mikil- vægt að bílstjórar og hjólreiðamenn setji sig hvorir í spor annarra því annað getur boðið hættunni heim,“ segir Einar. Hjólreiðamenn verði t.d. að passa sig að vera sýnilegir. „Ákveðin mistök, sem sumir gera, er að hjóla of nálægt gangstéttarbrúninni og hverfa jafnvel inn á bílastæði við hvert tækifæri. Þetta getur hins vegar skapað hættu í hvert skipti sem maður þarf að koma inn á ak- reinina aftur,“ segir Árni. Til að hjólreiðamenn séu sýnilegir eigi þeir að hjóla um 0,5-1 m frá gangstéttar- brúninni, um 1 m hægra megin við umferðarstraum. „Það á þó ekki heldur að hjóla þannig að maður skapi óþarfa tafir, til dæmis með því að vera á miðri ak- rein á Kringlumýrarbraut þegar vel má vera nær kantinum,“ segir Ein- ar. Almennt séu hjólreiðamenn í víkjandi stöðu á götunum, þ.e. séu þannig staðsettir á akreininni að ökumenn geti sveigt framhjá þeim. Í undantekningartilvikum tekur hjól- reiðamaður sér þó ríkjandi stöðu. Á miðri akrein eða þar um bil og á það t.d. við þegar akreinin er of mjó til að sveigja megi hættulítið framhjá, eða þegar hjóla á yfir gatnamót. „Það er alltaf hætta á að ökumaður sveigi í veg fyrir mann við gatnamót sé maður í víkjandi stöðu,“ segir Árni. „Bílstjóri er nefnilega búinn að gleyma hjólreiðamanni sem er úti í kanti um leið og hann er kominn upp að hlið hans.“ „Ég tala nú ekki um ef viðkomandi er að tala í farsímann um leið,“ bætir Einar við. Sama gild- ir þegar hjólað er um hringtorg. Þar á hjólreiðamaður líka að taka sér ríkjandi stöðu svo hann sjáist sem best. Hjólreiðamenn þurfa þó líka að sýna tillitsemi, t.d. þegar farið er yf- ir gangbraut. „Þar á hjólandi umferð ekki að fara hraðar yfir en gangandi, því ökumenn eiga ekki von á meiri hraða á þeim sem fara þar yfir og þeir verða að geta treyst því,“ segir Einar. Skortir víða samfellu Sömu umferðarreglur gilda um hjólreiðamenn og aðra ökumenn og t.a.m. á aldrei að hjóla á móti um- ferð. „Í umferðalögum er talað um að fótgangandi vegfarendur gangi á móti umferð, en það á ekki við um hjólreiðamenn. Þeir eiga að hjóla eins og þeir væru á bíl,“ segir Árni. Skipulagsyfirvöld hafa verið dugleg að beina hjólandi umferð yfir á göngustíga og segir Árni nokkur vandamál myndast við þá blönduðu umferð sem þar fer um. „Gatnakerf- ið er í sjálfu sér það sem hentar best fyrir hjólreiðar. Það er jú hannað fyrir ökutæki og ákveðinn hraða“. Göngustígarnir gefist þó ágætlega þar sem útsýni er gott. „Vandinn er hins vegar sá að margir blindir stað- Hjólreiðamenn verða að vera sýnilegir Reiðhjól hafa sama rétt á götum og bílar og ber hjólreiðafólki því að fylgja sömu um- ferðarreglum. Þeir Einar Magnús Magnússon og Árni Davíðsson þekkja þær vel. Morgunblaðið/Eggert Að sjást Endurskinsvesti eins og Einar er í eykur sýnileika hans. Gatnakerfið er í sjálfu sér það sem hentar best fyrir hjólreiðar. Fyrir þá sem stunda jóga og/eða hugleiðslu er áhugavert að skoða vef- síðuna Jaisiyaram.com. Eftir þrjú ár og 108 daga af mantra-hugleiðslu í einangrun ákvað Swami Balendu að ferðast um heim- inn með bróður sínum Yashendu Gos- wami og dreifa hinni jákvæðu orku sem hann upplifði í einangruninni um heiminn. Hann vill ekki verða gúrú eða meistari einhvers, hann vill að- eins vera vinur og deila ástinni, en hann heldur fyrirlestra og námskeið um hugðarefni sín. Á síðunni má finna margar góðar undirsíður um hinar ýmsu hug- leiðsluaðferðir og jógaafbrigði. Til dæmis eru upplýsingar um hvað mantra er og chakra. Balendu er líka græðari og fjallar um einhverskonar þagnar-meðferðir og hljóðmeðferðir á síðunni auk margs annars. Hann heldur líka úti bloggi þar sem hann segir frá ferðum sínum og lífi og skrifar um allt milli himins og jarðar, t.d. fjallar ein nýleg færsla um klæðaburð ferðamanna á Indlandi og hvað það getur þýtt að sýna of mikið hold. Þessi síða hefur upp á mjög margt að bjóða fyrir þá sem hafa áhuga á andlegri íhugun og jóga. Vefsíðan www.jaisiyaram.com Bræður Swami Balendu og Yashendu Goswami stunda jóga og íhugun. Dreifir ást um heiminn HREYFING OG ÚTIVIST Stór hluti af þeim sem ætla að hlaupa í Reykjavíkurmaraþoninu næstkom- andi laugardag eru að hlaupa til góðs. Vinir og ættingjar þeirra hafa líklega ekki farið varhluta af því á Facebook eða í tölvupóstum þar sem hlaup- ararnir láta vita hvaða góða málefni þeir ætla að hlaupa fyrir og hvernig má styrkja það. Ef þú hefur ekki fengið slíkan hvatn- ingarpóst er lítið mál að fara inn á vef- síðuna Hlaupastyrkur.is. Þar má hafa upp á þeim sem hlaupa til góðs, sjá hvað þeir ætla að hlaupa langt, fyrir hvaða félag og hvernig má styrkja þá. Endilega styrkið þessi góðu málefni sem mörgþúsund manns hlaupa fyrir á laugardaginn. Endilega … … heitið á hlaupara Reykjavíkurmaraþon Hlaupið til góðs. Á vefsíðu RunnersWorld má finna fimm ástæður fyrir því af hverju þú ættir að fara út að hlaupa með hundinum þínum frekar en manneskju. 1. Manneskjur hafa ekki dillandi skott. Þegar þú ert við það að gefast upp getur hundurinn minnt þig á að það að hlaupa ætti að vera skemmtilegt. Afslappað og fjörugt skap hans er hvetjandi. 2. Það er betra en að tengjast yfir skál af fóðri. Þér finnst gaman að hlaupa og hundar eru hlauparar í eðli sínu. Það gæti komið þér á óvart hvað þú færð mikið út úr því að deila þessu áhugamáli með hundinum. 3. Þeir hafa ekki áhyggjur af neinu. Mannlegir hlaupa- félagar geta hugsað of mikið um hversu mörgum kalóríum þeir eru að brenna og um stöðuna á GPS-tækinu, en hund- urinn minnir þig á að besta æfingin er að hlaupa frjáls. 4. Þeir samþykkja ekki afsakanir þínar. Þegar þeir byrja að dilla skottinu er erfitt að segja nei. Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem æfa með hundi eru líklegri til að halda sig við efnið heldur en þeir sem æfa einir eða með annarri manneskju. 5. Þreyttur hundur er góður hundur. Þreyttu hundinn og þegar þið komið heim er hann líklegri til að dotta við fætur þér en að ráðast á póstmanninn eða naga nýju Nike-skóna þína. Hlaup Reuters Hundahlaup Það er hvetjandi að hlaupa úti með voffa. Hundur besti hlaupafélaginn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.