Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 19.04.1968, Side 1

Framsóknarblaðið - 19.04.1968, Side 1
31. árgangur. Vestmannaeyjum, 19 apríl 1968. 3. tölublað Dr. Kristján Eldjárn Dr. Kristján Eldjárn Þórarinsson er fæddur 6. desember 1916 að Tjörn í Svarfaðardal, sonur hjónanna Sigrúnar Sigurhjartardóttur og Þórarins Kristjánssonar Eldjárns bónda á Tjörn. Kristján tók stúdents- próf frá Menntaskóla Akureyrar árið 1936, stundaði síðan nám við Kaup. mannahafnarháskóla ogl auk mag. art. prófi við Hásk. íslands í íslenzkum fræðum árið 1944. Árið 1957 varði hann doktorsritgerð um kuml og haug- fé við Háskóla íslands. Hann hóf störf við Þjóðminjasafn íslands árið 1944 og var skipaður Þjóðminjavörður 1. des. 1947. Hann hefur auk doktorsritgerðarinnar skrifað mikið um sérgrein sína, þar á meðal nokkr- ar bækur. Þá er dr. Kristján kunnur útvarps- og sjónvarpsmaður. Dr. Kristján Eldjárn er kvæntur Kristínu Ingólfsdóttur frá ísafirði. Forsetakosningarnar fara fram 30 .júní n. k. Dr. Gunnar Thoroddsen Dr. Gunnar Thoroddsen er fæddur 29. desember 1910 í Reykjavík, sonur Sigurðar Thoroddsen verkfræðings og konu hans Maríu Kristínar Claessens. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1929 og tók lögfræðipróf við Háskóla íslands 1934, stundaði síðan nám í refsirétti erlendis. Settur prófessor í lögum við Háskóla íslands 1942 og gegndi því embætti til 1950. Dr. Gunnar var borgarstjóri í Reykjavík frá 1947 til 1960. Sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn sem þingmaður Snæfellinga 1934—1937 og 1942—1949, síðan sem þingmaður Reykjavíkur þar til hann varð sendiherra í Kaupmannahöfn. Fjármálaráðherra frá 1959—1964. — Hann var lengi bæjarfulltrúi í Reykjavík og hefur auk þess gegnt mörg- um trúnaðarstörfum. Hann varði doktorsritgerð um æruna 1. febrúar s. 1. Dr. Gunnar er kvæntur Völu Ásgeirsdóttur, forseta íslands. Tónleikar Samkór Vestmannaeyja hélt tvenna tónleika í Samkomuhúsinu á páskadag. Stjórnandi kórsins er Martin Hunger, undirleik önnuðust dr. Rób&rt A. Ottósson og Þorkell Sigurbjörnsson. Þeir léku einnig saman á píanó í sönghléi. Einsöngv ari með kórnum var Reynir Guð- steinsson. Sú venja hefur skapazt á undan förnum árum, að boðið sé upp á tónleika á páskadag. Dagurinn er vel valinn, þar sem hann er einn af þeim fáu dögum, sem fólk er ekki upptekið við vinnu. Fyrst á söngskránni voru tvö lög eftir okkar kæia tónskáld Oddgeir Kristjánsson, og fór vel á því. Þá var fluttur ljóðaflokkurinn „Lieb- eslieder" (Ástarljóð) eftir Johann- es Brahms. Ljóðin voru þýdd fyr- ir Samkór Vestmannaeyja af Þor- steini Valdimarssyni skáldi, og er þetta frumflutningur ljóðanna. Það er ekki á allra færi að þýða slík ljóð, svo vel fari, en Þorsteini hefur tekizt þetta. Þýðingin er á kjarngóðu alþýðumáli og fellur vel að lögunum. Eg er viss um, að þetta verk verður vinsælt, til þess benda und- irtektir áheyrer.da, sem flestir munu hafa heyrt lögin í fyrsta skipti. í sönghléi léku þeir saman á píanó dr. Róbert A. Ottósson og Þorkell Sigurbjörnsson . Það er mjög ánægjulegt að fá slíka listamenn til að aðstoða við slíka tónleika. Ekki mátti miklu muna, að þetta tækist vegna slæmra samgangna. En þaö tókst Framhald á 4. síðu.

x

Framsóknarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.