Framsóknarblaðið - 19.04.1968, Blaðsíða 3
FRAMSÓKNARBLAÐIÐ
3
TILKYNNING
Öll liagaganga sauðfénaðar er stranglega bönnuð
utan girðinga á Heimey, eftir 20. apríl ár hvert, sam-
kvæmt fjallskilareglugerð kaupstaðarins.
Stranglega mun gengið eftir að bessu verði hlýtt,
af öllum, er hér eiga hlut að máli.
Vestmannaeyjum, 15. 4. 1968.
FJALLSKILANEFND.
TILKYNNING
um
/
1
V estmannaeyj um
1968
Ákveðið er að innheimta aðstöðugjöld í Vestmanna-
eyjum á árinu 1968 samkvæmt heimild í III. kafla laga
nr. 51/1964 um tekjustofna sveitarfélaga og reglugerð
nr. 81/1962 um aðstöðugjöld. Hefur bæjarstjórn Vest-
mannaeyja ákveðið eftirfarandi gjaldstiga:
1. Af rekstri fiskiskipa og flugvéla ...... 0,5% j
2. Af fiskiðnaði hverskonar og vinnslu sjávarafurða 1,0%
3. Af öðrum iðnrekstri .................... 1,5% |
4. Af umboðs- og heildverzlun ............. 1,0% j
5. Af byggingavöruverzlun ................. 1,0%
6. Af matvöruverzlun ...................... 1,0% j
7. Af vefnaðarvöruverzlun ................. 1,5% j
8. Af veiðarfæra- og saltverzlun .......... 1,0%
9. Af öðrum atvinnurekstri ................ 2,0% j
Þeir, sem ekki eru framtalsskyldir til tekju. og eigna
skatts, en eru aðstöðugjaldsskyldir, þurfa að senda
Skattstofunni sérstakt framtal til aðstöðugjalds innan
tveggja vikna frá birtingu þessarar auglýsingar.
Þeir, sem margþætta atvinnu reka, þannig að út-
gjöld þeirra teljist til fleiri en eins gjaldflokks skv. of-
angreindri gjaldskrá, þurfa að senda fullnægjandi grein-
argerð um, hvað af útgjöldunum tilheyrir hverjum ein-
stökum gjaldflokki, sbr. 7. grein reglugerðarinnar. Fram-
angreind gögn ber að senda til skattstjóra innan tveggja
vikna frá dagsetningu auglýsingar þessarar. Að öðrum
kosti verður aðstöðugjald, svo og skipting í gjaldflokka,
áætlað eða aðilum gert að greiða aðstöðugjald af öllum
útgjöldum skv. þeim gjaldflokki, sem hæstur er.
Tekið skal fram, að hafi gjaldendur sótt um og feng-
ið frest umfram þau tímatakmörk, sem auglýsing þessi
gerir ráð fyrir, gildir sá frestur einnig um skil á framan-
greindum gögnum varðandi aðstöðugjald.
Vestmannaeyjum 26. marz 1968.
SKATTSTJÓRI.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð við
andlát og jarðarför konu minnar og móður,
STEINUNNAR JÓNSDÓTTUR,
Brekastig 28, Vestmannaeyjum.
Fyrir hönd vandamanna,
Björn Jakobsson, Guðrún Björnsdóttir.
H. F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Aðalfundur.
Aðalfundur H. f. Eimskipafélags fslands verður
haldinn I fundarsalnum í húsi félagsins í Reykjavík,
föstudaginn 24. maí 1968, kl. 13,30.
Dagskrá samkvæmt 13. grein samþykkta félags-
ins.
Tiilögur til breytinga á samþykktum félagsins,
samkvæmt niðurlagi ákvæða 15. greinar sam-
þykktanna (ef tillögur koma fram).
Aðgöngumiðar að fundinum verða aflientir hlut-
höfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu fé-
lagsins, Reykjavík 21. — 22. maí.
Reykjavík, 8. apríl 1968.
STJÓRNIN.
ATVINNUREKENDUR
Munið að halda eftir af laun-
um starfsmanna yðar til greiðslu á
útsvarsskuldum þeirra.
Athugið, að kaupgreiðendur bera
ábyrgð á gjöldum starfsmanna
sem eigin gjöldum, ef þeir vanrækja
að halda eftir af launum þeirra og
má heimta þau með lögtaki, ef þörf
krefur.
ÚTSVARSINNHEIMTAN
VESTMANNAEYJJUM
Frá Barnaskólanum
Öll börn fædd árið 1961 komi til innritunar í skólann mánudag-
inn 6. maí, á eftirtöldum tímum:
Kl. 1 e. h., börn fædd í janúar til apríl.
Kl. 2 e. h., börn fædd í maí til ágúst.
Kl. 3 e. h., börn fædd í september til desember.
Geti barn af einhverjum ástæðum ekki komið til innritunar, ber
aðstandendum þess að tilkynna ástæður og innrita það eigi að
síður.
SKÓLASTJÓRI