Framsóknarblaðið


Framsóknarblaðið - 19.04.1968, Blaðsíða 4

Framsóknarblaðið - 19.04.1968, Blaðsíða 4
4 FRAMSÖKNARBLAÐiÐ Nýkomið: „LACONIXE" veggklæðningar, 4x9 og 4x8 fet, verð frá 500 krónum platan. Loftflísar, hvítar og litaðar. TRÉVERK S. F. Sími 2228. Ný sending fermingarfata næstu daga. — Verðið mjög hagstætt. Kaupfélag Vesfmannaeyja TIL FERMINGARGJAFA: Dömu. og herraúr. — Undirfatnaður kvenna. Dömuveski, — Pennasett, — herraveski o. m. fl. Kaupfélag Vesfmannaeyja TIL FISKVERKENDA: Til sölu allskonar vélar og áhöld, umbúðir, tómar tu,nnur. — Hagstæðir greiðsluskilmálar. Upplýsingar gefa: Guðni B. Guðnason og Pólmi Sigurðsson. F KÉTTIR Síðustu daga hefur afli verið góður hér við Eyjar. Sérstaklega i afa netabátar aflað vel, komizt yfir 60 lestir í róðri. Þá hafa troll- bátar fengið sæmilegan afla, þó ekki hafi verið um nein uppgrip að ræða. Hins vegar hefur lítið veiðst í þorsknót á þessari vertíð. Trillurnar hafa fiskað vel síðustu dagana. Einn bezti afladagurinn var í fyrradag, en þá bárust hér á land á annað þúsund lestir. I morgun var aflamagn á vertíð inni hjá hæstu bátum sem hér seg ir: tonn. Sæbjörg ...................... 947 Huginn ....................... 794 Andvari VE ................... 657 Stígandi ................... 614 Ófeigur ...................... 557 Lundi ........................ 544 Bergur ....................... 528 Júlía ........................ 508 Knattspyrnan. Undanfarið hafa knattspyrnu- menn okkar æft vel. Um páskana léku A og B lið ÍBV. A-lið sigraði 3:1. Um næstu helgi er fyrirhug- að að 1. flokkur Víkings komi hing að og leiki æfingarleik við 1. deild ar lið ÍBV. Virðast leikmenn okkar þegar vera komnir í góða æfingu og vænta menn góðs af þeim í hönd farandi baráttu. Frd Vdtnsveitunni: í vetur hefur verið unnið að fjár öflun og undirbúningi varðandi framkvæmdir við vatnsveituna á komandi sumri. Áætlanir gera ráð fyrir framkvæmdum fyrir allt að 56 milljónir króna. Standa vonir til, að verkið þurfi ekki að tefj- ast vegna fjárskorts, þó enn sé of snemmt að fullyrða um það. Menn frá NKT voru hér á ferð í fyrra mánuði og munu áætlanir þeirra standast um framleiðslu neðansjávarleiðslunnar. Verður hún væntanlega löggð í júlí í sum- ar. Nýlega var mölin í dæluhúsið á Landeyjasandi flutt á staðinn, tæki færið notað þegar frost var og því ökufært um sandinn. Framundan eru svo framkvæmd ir hjá Skansinum, þar sem leiðsl- an kemur í land, gröftur í innsigl- ingunni o. s. frv. Þá er fyrirhugað að halda áfram vatnslögninni um bæinn og einn- ig byrjun á vatnsgeyminum. Gjald skrá og reglugerð fyrir vatnsveit- una hefur verið samþykkt ein- róma í bæjarstjórn og er hún til staðfestingar í viðkomandi ráðu- neyti. Tónlcihdr........... Framhald af 1. síðu. á síðustu stundu, og hafi þeir þökk fyrir komuna. Seinni hluti tónleikanna var vin- sæl óperulög. Meðal annars: „Báts söngur“ úr óperunni „Ævintýri Hoffmanns" eftir J. Offenbach, og „Bróðir þú“ úr óperunni „Leður- blakan“ eftir Joh. Strauss. Einsöng í því lagi söng Reynir Guðsteins- son. Kórir.n fékk afbragðs undirtekt- ir, enda mun það mál manna, að hann sé í stöðugri framför undir stjórn okkar snjalla tónlistarmanns Martins Hunger. Söngurinn var fágaður, en þó þróttmikill þegar á reyndi. Að baki slíkra tónleika er mikið og fórnfúst starf. Kórfélagar hafa fórnað frístundum sínum og ef- laust hafa einhverjir fórnað dýr- mætum vinnutíma. En mest hvílir á stjórnandanum. Martin Hunger hefur sýnt það með starfi sínu hér, að hann er af- burða tónlistarmaður. í þessu sam- bandi vil ég benda fólki á, að það ætti ekki að láta sig muna um 5— 10 mínútur í lok hverrar messu í Landakirkju, heldur ætti það að sitja kyrrt í sætum sínum og hlusta á orgelleik Martins, sem hann miðl ar okkur hvern sunnudag. Eg vona að mér fyrirgefist þessi útúrdúr. Að síðustu vil ég þakka fyrir þessa tónleika, söngstjóra, einleik- urum ,einsöngvara og kórfélögum. Beztu þakkir fyrir þessa hátíð- arstund. J. B. Jýninj Nyndfístdrshólans Laugardaginn fyrir páska opn aði Myndlistarskólinn sýningu á verkum eldri nemenda sinna. Skólinn hefur að undanförnu feng ið inni í ófullgerðu húsnæði Fé- lagsheimilisins við Heiðarveg. Þetta mun vera 14. starfsár skól ans. Skólastjóri er Páll Steingríms son, en kennarar auk hans eru Magnús Á. Árnason listmálari og Sigurfinnur Sigurfinnsson teikni- kennari. Magnús kenndi aðallega eldri nemendum, en þeir Páll og Sigurfinnur barna- og unglinga- deild. Að þessari sýningu stóð eldri deild skólans. í þessa deild voru innritaðir 23 nemendur, en 18 af þeim eiga myndir á sýningunni. Nokkur olíumálverk voru á sýn- ingunni, og er þetta fyrsti vetur- inn, sem kennd er meðferð olíulita. Annars eru flestar myndirnar blý- ants- og krítarmyndir. Ekki er réttmætt að koma með neinn samanburð, því sumir nem- endur hafa verið í skólanum nokkra vetur, aðrir eru byrjendur. Kennararnir, Páll og Sigurfinnur, eiga þarna margar góðar myndir, og sennilega á Finnur beztu mynd ir sýningarinnar. Ef nefna á ein- hver nöfn í sambandi við góðar myndir þá detta mér í hug hjónin Elín og Ólafur Sigurðsson, Sædís Hansen og Guðjón Ólafsson. Mér finnst það nokkur galli á sýningunni, að myndirnar voru ekki nógu vel merktar. Flestar voru með skammstöfunum, en hvergi var hægt að sjá fullt nafn listamannsins. Skólastjórinn bauð gesti vel- komna með stuttu ávarpi. Auk Páls sagði Magnús Á. Árna- son nokkur orð. Magnús sagði m. a., að sér skildist að bæjarstjórn ætlaði að taka þetta húsnæði af skólanum. Fannst Magnúsi óskilj- anlegt, að þessu húsnæði væri bet- ur varið á annan hátt. Þessu er til að svara, að þegar Vestmannaeyjakaupstaður yfirtók þessa húseign þá fylgdu því nokkr ar kvaðir, sem einmitt snerta hús- næði það, sem Myndlistarskólinn hefur haft til afnota. Frá þessum samningi kemst bær inn ekki, en auðvitað verður að sjá Myndlistarskólanum fyrir húsnæði eins og öðrum menningarfélögum. Þetta er mál, sem þarf að leysa fyrir næsta starfsár skólans. Eg vil svo þakka skólanum, kenn urum og nemendum fyrir starfsem ina. Með þessari starfsemi hefur bæzt við nýr þáttur í tómstunda- starfi bæjarbúa. KAUPIÐ TÍMANN - LESIÐ TÍMANN. Umboðsmaður: Sveinn Magnússon, sími 1555. J. B.

x

Framsóknarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Framsóknarblaðið
https://timarit.is/publication/795

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.