Morgunblaðið - 30.09.2010, Blaðsíða 12
Morgunblaðið/Jakob Fannar
SkjárGolf „Það er sífellt meiri áhugi á golfíþróttinni hér og okkur fannst vanta
ítarlega umfjöllun um golfið sem áhugasamir geta nálgast á einum stað.“
Þ
etta er búið að vera í bí-
gerð í þónokkurn tíma.
Ég kom með þessa hug-
mynd til hennar Sigríðar
Margrétar Oddsdóttur,
framkvæmdastjóra Skjásins, og hún
tók mjög vel í þetta,“ segir Hilmar
Björnsson, yfirmaður hinnar ný-
stofnuðu sjónvarpsstöðvar, Skjár
golf.
„Við fórum svo í það að spyrjast
fyrir, gera kannanir og annað slíkt
til að fá tilfinningu fyrir því hvort
grundvöllur væri til þess að reka
slíka stöð hér á landi. Það er sífellt
meiri áhugi á golfíþróttinni hér og
okkur fannst vanta ítarlega umfjöll-
un um golfið sem áhugasamir geta
nálgast á einum stað.“
Og Hilmar varð ekki fyrir von-
briðgum með viðtökurnar.
„Við renndum svolítið blint í sjó-
inn með þetta en viðtökurnar hafa
farið fram úr björtustu vonum. Við
buðum upp á foráskrift og þar
skráðu sig strax tæplega þúsund
manns.“
Áskriftin kostar 2.890 á mánuði
og bindi áskrifendur sig í eitt ár
fylgja því margskonar fríðindi.
„Fastir áskrifendur okkar fá með-
al annars ferðaávísanir upp í golf-
ferðir erlendis, 40% afslætti á völl-
unum hér heima og 40% fleiri kúlur
þegar skotið er úr fötu í Básum svo
fátt eitt sé nefnt,“ segir Hilmar.
„Í apríl á næsta ári byrjum við
svo að sýna kynningarmyndbönd
um fjölda glæsilegra golfvalla víðs-
vegar um landið til að áhorfendur
fái að kynnast fjölbreytileika á völl-
unum hér heima. Gegn sýningu á
þessum myndböndum gefa viðkom-
andi vellir svo áskrifendum okkar
40% afslátt þegar þeir vilja spila á
völlunum.“
Fjölbreytt dagskrá
Hilmar segir stöðina komna til að
vera og byrjunarvikan er ekki af
verri endanum.
„Þetta verður bara veisla,“ segir
Hilmar um Ryder-bikarkeppnina
sem hefst á morgun.
„Ryder-bikarinn er haldinn annað
hvert ár og er hátíð fyrir alla golf-
áhugamenn. Við sýnum auðvitað
beint frá keppninni allan tímann.“
Auk allra helstu golfmótanna
verður fréttaþátturinn Golfing
World sýndur alla virka daga þar
sem hægt er að fylgjast með öllu
sem er að gerast í golfheiminum.
Sýnd verða viðtöl við bestu kylfinga
heims auk þess sem áhorfendur fá
að sjá allt það sem gerist á bak við
tjöldin á stærstu golfmótunum.
„Við erum jafnframt með myndir
frá sögufrægum mótum, sýnum frá
Junior Ryder-bikarnum, þar sem
unglingar keppa í stað atvinnu-
manna, og svona mætti lengi telja.
Næsta sumar erum við svo að sjálf-
sögðu opin fyrir spennandi íslenskri
dagskrárgerð,“ segir Hilmar.
„Við höfum svo fengið til liðs við
okkur landslið lýsenda, þá Úlfar
Jónsson, Þorsteinn Hallgrímsson og
Edwin Rögnvaldsson sem koma til
með að lýsa keppnum hjá okkur og
svo bætast fleiri við í
þann hóp þegar líða tek-
ur á. Viðbrögðin benda
allavega til þess að við séum
komin til að vera.“
birta@mbl.is
Skjár golf, ný sjónvarps-
stöð helguð golfi, hóf
útsendingar síðastliðinn
mánudag. Sýnt verður
beint frá öllum helstu
stórmótum í íþróttinni
auk ýmissa fræðslu- og
skemmtiþátta um golf.
Reuters
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Helstu mótin í beinni á Skjá golfi
1.-3. október - Ryder-bikarinn
7.-10. október - Alfred Dunhill Links Championship
16.-17. október - Portugal Masters
19.-20. október - Grand Slam of Golf
23.-24. október - Castello Masters
30.-31. október - Andalucia Masters
4.-7. nóvember - World Golf Championship - HSBC
11.-14. nóvember - JBwere Masters
20.-21. nóvember - Hong Kong Open
25.-28. nóvember - Dubai World Championship
PGA Tour byrjar 6. janúar 2011.
Þetta verður
mikil veisla
Kylfingur Tiger Wo-
ods kemur örugg-
lega til að vera
fastur gestur í út-
sendingum hinnar
nýju golfstöðvar.
REUTERS