Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.10.2010, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2010 Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl. is , Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf. Björninn vann í fyrrakvöld góðan sigur á liði SA Jötna, 6:5, á Íslands- móti karla í íshokkí en liðin mætt- ust í Skautahöllinni á Akureyri. „Þetta var miklu hraðari leikur en um síðustu helgi,“ sagði Gunnar Guðmundsson fyrirliði Bjarn- armanna eftir leikinn. „Við erum með góða breidd og þetta var sigur liðsheildarinnar og gott veganesti fyrir leikinn gegn SR á næsta þriðjudag,“ sagði Gunnar. SA Jötnar náðu forystunni í fyrstu lotu með marki frá Josh Gribben en Trausti Bergmann jafn- aði jafnharðan fyrir Bjarnarmenn, 1:1. Fjör færðist í leikinn í annarri lotu og náðu bæði liðin að skora þrjú mörk. Björninn varð þó alltaf fyrri til að skora en SA Jötnar jöfn- uðu jafnharðan. Staðan var því 4:4 að lokinni annarri lotu. Hart var barist í síðustu lotunni en tæpum fimm mínútum fyrir leikslok tryggði Hjörtur Geir Björnsson sigur Bjarnarins eftir að Róbert Freyr Pálsson hafði átt hörkuskot að marki SA Jötna. Pökkurinn speglaðist af kylfu Hjartar og upp í markhornið og fyrsti sigur Bjarnarins þetta tíma- bilið var staðreynd. Mörk/stoðsendingar SA Jötna: Jón B. Gíslason 2/2, Josh Gribben 1/0, Sigurður Reynisson 1/0, Björn Már Jakobsson 1/0, Orri Blöndal 1/0. Refsimínútur: 24 mínútur. Mörk/stoðsendingar Bjarnarins: Úlfar Jón Andrésson 2/0, Matthías S. Sigurðsson 1/2, Hjörtur G. Björnsson 1/1, Trausti Bergmann 1/0, Brynjar Bergmann 1/0, Gunn- ar Guðmundsson 0/1, Róbert Freyr Pálsson 0/1, Einar Sveinn Guðna- son 0/1. Refsimínútur: 4 mínútur. vs@mbl.is Björninn sótti sigur norður Ljósmynd/Þórir Tryggvason Sókn Andri Steinn Hauksson úr Birninum sækir að marki Akureyringa í leiknum í fyrrakvöld. Reykjavíkurliðið náði að knýja fram sigur. UMFJÖLLUN Skúli Unnar Sveinsson skuli@mbl.is „Það er allt að gerast hjá okkur þess- ar vikurnar og við erum að fara á tvö stórmót erlendis. Annars vegar með tvær stelpur á HM í áhaldafimleikum og hins vegar fjögur lið á EM í hóp- fimleikum,“ sagði Sólveig Jónsdóttir, stjórnarmaður í Fimleikasambandi Íslands, í spjalli við Morgunblaðið í gær, en mikil fimleikasýning var haldin í Garðabæ á laugardaginn þar sem keppendur sýndu listir sínar. Fjórir keppendur unnu sér inn rétt til að keppa á heimsmeist- aramótinu í áhaldafimleikum sem fram fer í Hollandi 16. til 24. október. „Fimleikasambandið gaf út lág- mörk fyrir þetta mót og þær Thelma Rut Hermannsdóttir úr Gerplu og Dominiqua Belányi úr Gróttu náðu þeim og fara og keppa fyrir Íslands hönd í kvennaflokki. Síðan unnu þeir Bjarki Ásgeirsson og Jón Sigurður Gunnarsson úr Ármanni sér einnig rétt til að keppa í karlaflokki, en þeir eru báðir meiddir og því verður eng- inn íslenskur keppandi í karlaflokki að þessu sinni,“ sagði Sólveig. Breytingar á Evrópumótinu Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á Evrópumótinu í hópfim- leikum. „Það hafa alltaf verið fé- lagslið sem keppa á EM en núna eru landsliðin í fyrsta sinn og bæta inn unglingalandsliðum. Þetta var ákveð- ið fyrir ári og við ákváðum hér heima að setja saman unglingalandslið. Karlalandsliðið er sett saman úr tveimur félögum, Ármanni og Gerplu, og þannig væri líka hægt að hafa það með stelpurnar. Það mátti koma með tvö félagslið og það er þannig ennþá, en á næsta móti, eftir tvö ár, verður bara eitt lið frá hverju landi og sambandinu í hverju landi fyrir sig er í sjálfsvald sett hvernig það er skipað. Við gætum til dæmis sent Gerplu sem okkar landslið, eða blandað eins og gert er hjá strákun- um núna,“ segir Sólveig. 48 keppendur til Svíþjóðar Það er fjölmennur hópur sem fer til Svíþjóðar því tólf eru í hverju liði, þannig að 48 fimleikamenn keppa þar auk þess sem þjálfarar og aðrir skella sér að sjálfsögðu með. Kvennalið Gerplu hefur gert það gott á þessum mótum og varð í öðru sæti á síðustu tveimur Evr- ópumótum. „Það er líka keppt í blönduðum hópum, karlar og konur saman, en við erum ekki með þannig hóp núna. Unglingaliðið okkar er skipað stelpum á aldrinum 13 til 18 ára og er þetta í fyrsta sinn sem slíkt landslið er sent og það sama á við um karlana, það er í fyrsta sinn sem sent er karlalandslið á EM,“ sagði Sól- veig. Tvisvar sinni áður hefur verið sent jafnfjölmennt lið til keppni í hópfim- leikum. „Það var árið 2007 sem við sendum fjögur lið á Norðurlanda- mótið og þá vann Gerpla. Þá voru tvö blönduð lið og á síðasta Evrópumóti var Ármann með blandað lið og varð í fjórða sæti. Við höfum hins vegar aldrei farið með svona ungar stelpur áður á stórmót í hópfimleikum,“ seg- ir Sólveig. Fjölmenna til Svíþjóðar  Fjögur íslensk lið fara á Evrópumótið í hópfimleikum  Karlalið í fyrsta skipti  Tvær íslenskar stúlkur keppa á HM í áhaldafimleikum í Hollandi Morgunblaðið/Golli Hópfimleikar Selfoss er eitt fjögurra íslenskra liða sem keppa á EM í Svíþjóð og hér leika Selfossstúlkurnar listir sínar í Garðabæ á laugardag. Morgunblaðið/Golli Áhaldafimleikar Dominiqua Belányi keppir fyrir Íslands hönd á HM í Hol- landi síðar í þessum mánuði, ásamt Thelmu Rut Hermannsdóttur. ÁsmundurArnarsson skrifaði um helgina undir nýjan samning við Fjölni um að þjálfa karlalið fé- lagsins í knatt- spyrnu næstu þrjú árin. Ás- mundur hefur verið við stjórnvölinn hjá Grafarvogsfélaginu í sex ár og undir hans stjórn komst það í efstu deild í fyrsta skipti og lék þar 2008 og 2009. Þá spilaði það til úrslita í bikarkeppninni tvö ár í röð, 2007 og 2008. Fjölnir hafnaði í fjórða sæti 1. deildar á nýliðnu tímabili og var að- eins þremur stigum á eftir Þór og Leikni R. sem enduðu í öðru og þriðja sæti.    Guðmundur Benediktsson erhættur störfum sem þjálfari knattspyrnuliðs Selfoss sem féll úr úrvalsdeildinni í haust. Guðmundur tók við Selfyssingum fyrir ári síðan og samdi til tveggja ára en þeir nýttu sér uppsagnarákvæði í samn- ingnum að tímabilinu loknu.    Elfar FreyrHelgason, miðvörður úr Ís- landsmeistaraliði Breiðabliks í knattspyrnu, fer til reynslu til norska úrvals- deildarfélagsins Lilleström síðar í þessum mánuði. Elfar staðfesti þetta í útvarpsþættinum Fótbolt- i.net á X-inu á laugardaginn. Hann fer til Noregs að loknum leikjum 21- árs landsliða Íslands og Skotlands.    Nýliðar Þórs í Pepsideild karla íknattspyrnu hafa þegar fengið öflugan liðsstyrk fyrir næstu leiktíð. Srdjan Rajkovic, markvörður úr Fjarðabyggð, hefur samið við Ak- ureyrarfélagið en hann hefur síð- ustu ellefu ár leikið með Fjarða- byggð og þótt einn besti markvörður 1. deildar undanfarin ár. Hann er auk þess leikjahæsti leikmaður Fjarðabyggðar frá upp- hafi. Fjarðabyggð féll sem kunnugt er niður í 2. deild á dögunum sem hefur eflaust haft áhrif á að hinn 34 ára gamli Serbi ákvað að flytja sig um set.    Davíð Jónsson úr KR sigraðiKára Mímisson úr KR í úr- slitaleik í meistaraflokki karla á fyrsta stigamóti tímabilsins í borð- tennis sem fram fór í TBR-húsinu á laugardaginn. Magnús K. Magn- ússon og Daði Freyr Guðmundsson úr Víkingi urðu í 3.-4. sæti. Eyrún Elíasdóttir úr Víkingi sigraði í 1. flokki kvenna, Gunnar Snorri Ragn- arsson úr KR í 1. flokki karla og Pétur Ó. Stephensen úr Víkingi í eldri flokki karla. Fólk sport@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.