Morgunblaðið - 04.10.2010, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. OKTÓBER 2010
„4 stig úr fyrstu tveimur leikjunum er sterk byrjun í
Meistaradeildinni, en við erum með báða fætur á
jörðinni,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðs-
þjálfari í handknattleik og tiltölulega nýráðinn þjálf-
ari þýska stórliðsins Rhein-Neckar Löwen í samtali
við Handball-World á laugardag. Löwen vann þá
fjögurra marka sigur á slóvensku meisturunum í
Celje, 32:28, í A-riðli Meistaradeildar Evrópu og
fylgdi þar með eftir góðum útisigri á Barcelona í
fyrstu umferð.
„Við vissum að við yrðum að sýna okkar besta til
að innbyrða sigur hérna í Celje. Þetta er ekki síst að
þakka öflugri vörn og því hve þolinmóðir menn voru
í sóknarleiknum. Ég er hæstánægður með þennan
sigur því þetta eru tvö „stór“
stig,“ sagði Guðmundur.
Ólafur Stefánsson skoraði tvö
marka Löwen í leiknum en Ró-
bert Gunnarsson komst ekki á
blað. Guðjón Valur Sigurðsson
lék ekki vegna meiðsla.
Í sama riðli mættust einnig
Kiel og Barcelona en Evr-
ópumeistararnir, undir stjórn
Alfreðs Gíslasonar, urðu að
sætta sig við jafntefli, 28:28. Ar-
on Pálmarsson skoraði eitt marka Kiel í leiknum en
það stefnir í harða baráttu í A-riðlinum.
Í Danmörku áttust við tveir Íslendingar í leik A
og svissneska liðsins Kadetten í C-riðli, undir
öruggu eftirliti Kjartans Steinbach sem var eftirl
maður á vegum handknattleikssambands Evrópu
Björgvin Páll Gústavsson er sem kunnugt er mar
vörður Kadetten og átti stóran þátt í því að liðið
næði að lokum 30:30 jafntefli eftir ótrúlega end-
urkomu. AaB var nefnilega fjórum mörkum yfir
þegar um þrjár mínútur voru til leiksloka, en Ing
mundi Ingimundarsyni og félögum tókst að glutr
niður forskotinu. Ingimundur sinnti að venju varn
arvinnu en skoraði einnig eitt mark í leiknum.
Bæði lið töpuðu í fyrstu umferð og eru þau því
neðst í C-riðli með eitt stig hvort. sindris@mbl.is
Guðmundur ánægður með tvö „stór“ stig
Guðmundur Þ.
Guðmundsson
Íslandsmeistarar
Vals áttu ekki í
neinum vand-
ræðum með að
leggja nýliða
Gróttu að velli í
fyrstu umferð
N1-deildar
kvenna í hand-
knattleik en hún
fór fram um
helgina. Meist-
ararnir sýndu að þeir hafa mörg
tromp á hendi og skiptu mörkunum
43 bróðurlega á milli sín. Línu-
mennirnir Anna Úrsúla Guðmunds-
dóttir og Hildigunnur Einarsdóttir
voru þó markahæstar með sjö mörk
hvor.
Efnilegust og markahæst
Efnilegasti leikmaður síðustu
leiktíðar í N1-deildinni, Sunna
Jónsdóttir, var markahæst hjá
Fylki þegar Árbæingar unnu ÍBV,
33:26. Sunna skoraði níu mörk í
leiknum og Elín Helga Jónsdóttir
átta. Fylkiskonur urðu í 5. sæti á
síðustu leiktíð en þeim er spáð sæti
ofar að þessu sinni.
Mest spenna var í leik FH og HK
sem áttust við í Hafnarfirðinum.
Lítið bar á milli liðanna í spá þjálf-
ara og forráðamanna fyrir leiktíð-
ina en þeim var spáð 5. og 6. sæti.
HK var yfir í leiknum með fjórum
mörkum, 11:7, eftir fyrri hálfleik-
inn en í þeim seinni náðu FH-ingar
að snúa taflinu við og vinna fjög-
urra marka sigur, 24:20. Hin tæp-
lega 18 ára gamla Steinunn Snorra-
dóttir var markahæst hjá FH með 8
mörk en Brynja Magnúsdóttir skor-
aði fimm fyrir HK. sindris@mbl.is
Meistarar
Vals flugu
strax í gang
Anna Úrsúla
Guðmundsdóttir
því, liðið varð Íslandsmeistari í fjórða flokki og stelp-
urnar eru flestar enn í unglingaflokki en við ætlum að
fara alla leið með þær,“ sagði Einar eftir leikinn við
Fram á laugardaginn.
Tilbúnar í uppbygginguna
„Stelpurnar eru tilbúnar í þessa uppbyggingu, æfa
vel og sinna þessu vel svo ég er bjartsýnn. Félagið
tók ákvörðunina. Við höfum verið í þessari uppbygg-
ingu í karlaflokki með smá styrkingum en það vantar
kvennamegin og við ætlum að fara í það. Við erum
enn að skoða hvort við fáum útlending eða einhverjar
reyndar, það skýrist á næstu vikum,“ bætti Einar við
en var samt ekki ánægður með að tapa. „Við vissum
alveg hvernig þessi leikur gæti þróast og við buðum
upp á hraða í dag sem við réðum ekkert við sjálfar en
á móti Fram má ekki spila svona hratt.“
Læt ekki valta yfir mig
„Ég læt ekki valta yfir mig í hverjum einasta leik
og við tökum á þessu, erum með nýtt lið og þol-
inmóðar, sem er allt sem þarf, það er ekkert hægt að
hætta núna í fyrsta leik,“ sagði Þórunn Friðriks-
dóttir, sem skoraði 8 af 11 mörkum Hauka í leiknum.
„Við hættum aldrei, sem er jákvætt, en hvort við vor-
um smeykar við leikinn eða stressaðar veit ég ekki.
Þetta var fyrsti leikur okkar í mótinu og við erum til-
búnar í það, þetta var líka fyrsta skrefið í að búa til
nýtt lið. Við vitum alveg hvernig Fram-liðið spilar,
með sterka vörn og snöggar, við vissum það fyr-
irfram svo þetta snerist meira um hvernig við myn
um spila, en það gekk ekki í dag. Þetta ætti að her
okkar lið, við ætlum ekki að láta koma svona fram
okkur aftur.“
Felum ekki okkar markmið
Annað hljóð var í leikmönnum Fram. „Markmið
okkar er að vera í efsta sætinu og við erum ekkert
vanar að fela markmiðin okkar og gott að fleiri ha
trú á okkur en við sjálfar,“ sagði Karen Knútsdótt
sem skoraði 6 mörk fyrir Fram.
Safamýrarliðinu var spáð sigri í deildinni af þjál
urum og forráðamönnum deildarinnar en það varð
samt að lúta í gras gegn Val í síðasta leik. „Við vor
ekki sáttar með okkur í seinasta leiknum gegn Va
ýmislegt sem við þurftum að bæta og við náðum a
gera það með því að vera fastar fyrir í vörninni og
fljótar fram, því við vorum of hægar í leiknum við
Val. Ég held að Guðríður þjálfari hafi létt okkur u
þrjú kíló eftir þann leik.“
Karen þekkir vel að vera í hlutverkinu að tapa
stórt því hið frábæra lið Fram var fyrir nokkrum á
um ungt og óreynt en hefur heldur betur spjarað s
Karen sagðist ekkert hafa spáð í það í leiknum. „V
hugsuðum bara um okkar sjálfar og okkar leik. Vi
vorum ekki margar með í sumar en erum nú með
breiðari hóp svo það var gott að fá hann í gang, sp
kerfin og allt það.“
Morgunblaðið/G
Erfitt Einar Jónsson, þjálfari Hauka, og ungu stúlkurnar hans í Hafnarfjarðarliðinu eiga erfiðan vetur fyrir höndum en stefna á að byggja upp gott lið.
Haukar í nýju hlutverki
Framkonur gáfu ekkert eftir í 38:11 sigri á Haukum Uppbygging nýs liðs
Hauka hafin Ungar stúlkur ætla ekki að láta stórt tap slá sig út af laginu
Á VELLINUM
Stefán Stefánsson
ste@mbl.is
Langt er síðan Haukakonur hafa verið í þessu hlut-
verki – að láta valta yfir sig með 27 marka mun eins
og gerðist á laugardaginn í fyrstu umferð Íslands-
móts kvenna í handknattleik. Fram vann þá leik lið-
anna með gífurlegum yfirburðum, 38:11.
Það á sér hinsvegar skýringar og enginn ræddi um
afsakanir því helstu ef ekki allir máttarstólpar liðsins
eru farnir og nú er ungum stúlkum hent langt út í
djúpu laugina. Þetta hafa mörg félög gert í gegnum
tíðina, til dæmis bikarmeistarar Fram fyrir nokkrum
árum, og ef þolinmæði félagsins, stuðningsfólks og
aðstandenda er sannarlega fyrir hendi má búast við
að uppbyggingin skili sér fyrr eða síðar.
Lykilmenn farnir og meðalaldur 19 ár
Blóðtaka Hauka er mikil. Hanna G. Stefánsdóttir,
Ester Óskarsdóttir, Ramune Pekarskyte, Erna Þrá-
insdóttir, Nína Arnfinnsdóttir, Heiða Ingólfsdóttir
markmaður og fleiri eru horfnar á braut svo að með-
alaldur liðsins er 19 ár.
Haukar reikna með að uppbyggingin taki 3 ár og
hafa leikmenn skrifað undir samning fyrir þann tíma.
Einar Jónsson þjálfari segir að allir stefni að sama
marki. „Við ætlum að gera þetta lið að því sem býr í
N1-DEILD KVENNA
Fram - Haukar 38:11
Gangur leiksins: 2:0, 4:1, 11:2, 21:3, 21:4,
21:5, 25:5, 28:7, 30:10, 33:11, 38:11,
Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 10/2,
Karen Knútsdóttir 6, Guðrún Hálfdáns-
dóttir 5, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 5,
Marthe Sördal 4, Pavla Navarilova 3, Ásta
Gunnarsdóttir 2, Hildur Þorgeirsdóttir 1,
Anna Guðmundsdóttir 1, María Karlsd. 1/1.
Varin skot: Írís Björk Símonardóttir 15 (3),
Hildur Gunnarsdóttir 2 (1).
Utan vallar: 2 mínútur.
Mörk Hauka: Þórunn Friðriksdóttir 8/6,
Sandra Sif Sigurjónsdóttir 2, Þórdís Helga-
dóttir 1.
Varin skot: Bryndís Jónsdóttir 16 (4).
Utan vallar: Aldrei.
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guð-
jónsson. Áhorfendur: Um 80.
Fylkir – ÍBV 33:26
Mörk Fylkis: Sunna Jónsdóttir 9, Elín
Helga Jónsdóttir 8, Sunna María Einars-
dóttir 4, Áslaug Gunnarsdóttir 3, Arna Val-
gerður Erlingsdóttir 3, Natalý Sæunn Val-
encia 2, Lilja Gylfadóttir 2, Sigríður
Hauksdóttir 1, Tinna S. Traustadóttir 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk ÍBV: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 8,
Guðbjörg Guðmundsdóttir 5, Ester Ósk-
arsdóttir 4, Renata Horvath 3, Rakel
Hlynsdóttir 2, Sigríður Lára 2, Anita Elías-
dóttir 1, Drífa Þorvaldsdóttir 1.
Utan vallar: 8 mínútur.
FH – HK 24:20
Mörk FH: Steinunn Snorradóttir 8, Ragn-
hildur Guðmundsdóttir 4, Birna Helgadótt-
ir 3, Gunnur Sveinsdóttir 3, Arnheiður
Guðmundsdóttir 3, Sigrún Gilsdóttir 2,
Kristjana Þorradóttir 1. Utan vallar: 2 mín.
Mörk HK: Brynja Magnúsdóttir 5, Elísa
Viðarsdóttir 4, Elín Anna Baldursdóttir 3,
Elva B. Arnarsdóttir 3, Harpa Baldurs-
dóttir 2, Tinna Rögnvaldsdóttir 2, Valgerð-
ur Ýr Þorsteinsdóttir 1. Utan vallar: 0 mín.
Valur – Grótta 43:17
Mörk Vals: Anna Úrsúla Guðmundsdóttir
7, Hildigunnur Einarsdóttir 7, Kristín Guð-
mundsdóttir 6, Arndís María Erlingsdóttir
6, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 5, Karólína
B. Gunnarsdóttir 4, Íris Ásta Pétursdóttir
4, Ágústa Edda Björnsdóttir 2, Kolbrún
Franklín 2. Utan vallar: 8 mínútur.
Mörk Gróttu: Tinna Laxdal Gautadóttir 6,
Steinunn Kristín Jóhannsdóttir 5, Eva
Björk Davíðsdóttir, Ásrún Lilja Birgisdótt-
ir 1, Helga Þórunn Óttarsdóttir 1, Sóley
Arnarsdóttir 1. Utan vallar: 8 mínútur.
HANDBOLTI