Morgunblaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 1
MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2010
íþróttir
Golf og Zeppelin Guðmundur Ágúst landsliðskylfingur hlustar á Led Zeppelin og pantar sér
ávallt sama skyndibitann á KFC. Hinn 18 ára gamli klúbbmeistari GR ætlar sér stóra hluti. 7
Íþróttir
mbl.is
Ingvar Þór Jónsson, leikmaður SA
og landsliðsfyrirliði í íshokkíi, er
handleggsbrotinn og þarf að taka
sér hvíld frá ísnum næsta mán-
uðinn eða svo. Ingvar meiddist í
leik með SA Víkingum gegn Birn-
inum á dögunum og tjáði Morg-
unblaðinu að framhandleggsbein
væri brotið.
„Mér er sagt að þetta sé alveg
hreint brot og beinin hafi ekki
færst úr stað. Brotið grær því af
sjálfu sér og vonandi verður þetta
fljótt að lagast. Ég reikna með að
geta spilað aftur eftir þrjár til
fjórar vikur. Það var nú ekkert
merkilegt sem gerðist. Ég lenti
bara í smásamstuði og sneri upp á
höndina. Þetta virðist hafa verið
eitthvað klaufalegt hjá mér,“ sagði
Ingvar í samtali við Morgunblaðið.
kris@mbl.is
Landsliðsfyrir-
liðinn hand-
leggsbrotnaði
Ótrúleg sig-
urganga læri-
sveina Dags Sig-
urðssonar hjá
Füchse Berlín
virðist engan
enda ætla að taka
en liðið vann í
gær sjöunda sig-
urinn í röð og er
með fullt hús
stiga á toppi
þýsku búndeslígunnar í handknatt-
leik. Í gær var það Grosswallstadt
sem mátti þola tap gegn Berl-
ínarrefunum svokölluðu, 27:24, eft-
ir jafnan leik þar sem gestirnir frá
Grosswallstadt voru 23:22 yfir þeg-
ar sex mínútur lifðu leiks en þá tók
Dagur leikhlé sem svínvirkaði.
Füchse Berlín er með tveggja
stiga forskot á toppnum en fast á
hæla liðsins koma þrjú öflug lið;
Kiel, Hamburg og Rhein-Neckar
Löwen. Næsti heimaleikur Dags og
félaga er einmitt gegn Löwen. Bob
Hanning, framkvæmdastjóri
Füchse Berlín, vonast til að fyrir
þann leik verði hægt að koma fyrir
aukaáhorfendapöllum en liðið hef-
ur heillað Berlínarbúa og leikið fyr-
ir fullri höll í síðustu leikjum. 9.000
manns mættu í gær í Max-
Schmeling-Halle sem getur með
aukapöllum rúmað 10.000 manns,
en ef fram heldur sem horfir mun
það duga skammt.
Alexander Petersson skoraði 3
mörk fyrir Füchse Berlín og Sverre
Jakobsson lék vel í vörn gestanna.
sindris@mbl.is
Sveinar Dags
„sprengja“
höllina sína
Dagur
Sigurðsson
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
„Það er rosalega mikill hugur í okk-
ur. Við erum vel einbeittir og stað-
ráðnir í að vinna leikinn. Við ætlum
ekki að sleppa þessu gullna tæki-
færi til að komast á stórmót,“ sagði
Bjarni Þór Viðarsson, fyrirliði U21
ára landsliðsins í knattspyrnu, við
Morgunblaðið í gær.
Það er mikið í húfi hjá Bjarna og
samherjum hans í kvöld því þeir
mæta Skotum í síðari viðureign
þjóðanna í umspili um sæti í úr-
slitakeppni Evrópumótsins en ís-
lenskt karlalandsliðið hefur aldrei
komist á stórmót og því er til ansi
mikils að vinna.
„Það er ekki inni í myndinni að
við ætlum reyna að verja forskotið.
Við spilum til sig-
urs. Við kannski
sækjum ekki eins
og brjálæðingar
en markmiðið er
að vinna og
draumurinn væri
að setja á þá
mark fljótlega í
leiknum. Skot-
arnir þurfa að
koma aðeins
framar á völlinn en ég held samt að
þeir bíði eftir því hvað við gerum
eins og í fyrri leiknum. Þeir eru
ekki með menn sem taka af skarið
heldur fara þeir þetta á liðsheild-
inni.“
Íslensku strákarnir æfðu í gær-
kvöld á Easter Road sem er heima-
völlur Hibernian en flautað verður
til leiks í Edinborg í kvöld klukkan
18.45 að íslenskum tíma.
Stark vonast eftir stuðningi
Billy Stark, þjálfari skoska liðs-
ins, vonast eftir góðum stuðningi á
heimavelli en Stark telur að varn-
arlínan sé helsti veikleiki Íslands.
„Íslendingar spiluðu virkilega vel
í síðustu viku og við gátum ekki
gert hluti með boltann sem við er-
um færir um. Núna erum við betur
búnir undir það að mæta þeim og
það á okkar heimavelli. Aftasta
varnarlína þeirra er ekki sú besta
og við þurfum að láta reyna á hana í
leiknum,“ segir Billy Stark, þjálfari
U21 ára landsliðs Skota, í viðtali við
skoska blaðið Scotsman en Skotar
taka á móti Íslendingum í síðari
umspili þjóðanna um laust sæti í úr-
slitakeppni EM í Edinborg í kvöld.
Stark vonast eftir dyggum stuðn-
ingi Skota á leiknum sem fram fer á
heimavelli Hibernian, Easter Road,
en 7.200 manns voru á fyrri leiknum
á Laugardalsvellinum í síðustu viku
þar sem Íslendingar fögnuðu 2:1
sigri.
„Við viljum að strákarnir okkar
öðlist hvatningu frá stemningunni
sem vonandi verður á leiknum. Úr-
slitin úr fyrri leiknum þýða að ef
það verður markalaust jafntefli
þegar langt er liðið á leikinn fara ís-
lensku leikmennirnir að hugsa um
að ef þeir fá á sig mark eru þeir úr
leik. Á þessum tímapunkti gætu
áhorfendur á okkar bandi skipt
sköpum með því að hvetja liðið til
dáða. Við munum gefa allt í leik-
inn,“ segir Stark.
„Gullið tækifæri“
Bjarni Viðarsson, fyrirliði U21 árs landsliðs Íslands, segir að mikill hugur sé
í leikmönnum fyrir síðari leikinn gegn Skotum sem fram fer í Edinborg í kvöld
Bjarni
Viðarsson
Rúrik Gíslason
er orðinn leik-
fær og verður
með íslenska
U21 ára landslið-
inu í kvöld þegar
það mætir Skot-
um í síðara um-
spili þjóðanna
um laust sæti í
úrslitakeppni
Evrópumótsins
sem haldin verður í Danmörku
næsta sumar.
Rúrik gat ekki verið með í fyrri
leiknum á fimmtudagskvöldið
vegna meiðsla en hann hefur hrist
þau af sér og verður örugglega í
byrjunarliðinu í kvöld. Leikurinn
fer fram á Easter Road, heimavelli
Hiberninan, í Edinborg en Íslend-
ingar höfðu sem kunnugt er betur
í fyrri leiknum, 2:1, þar sem þeir
Jóhann Berg Guðmundsson og Al-
marr Ormarsson gerðu mörk Ís-
lands.
Haraldur er enn meiddur
Markvörðurinn Haraldur
Björnsson hefur hins vegar ekki
náð sér af meiðslum sem urðu til
þess að hann gat ekki verið með í
fyrri leiknum. Arnar Darri Pét-
ursson tók sæti Haraldar í byrj-
unarliðinu og hann mun verja
mark Íslands í kvöld. Grindvíking-
urinn Óskar Pétursson var kall-
aður inn í landsliðshópinn og verð-
ur varamarkvörður í stað Þórðar
Ingasonar sem var í því hlutverki
á fimmtudagkvöldið.
Eyjólfur Sverrisson landsliðs-
þjálfari þarf að gera breytingar á
liði sínu þar sem þeir Skúli Jón
Friðgeirsson og Hólmar Örn Eyj-
ólfsson taka út leikbann en báðir
fengu þeir að líta gula spjaldið í
fyrri rimmunni. gummih@mbl.is
Rúrik klár
í slaginn
Rúrik
Gíslason
Ægir Þór Steinarsson, leikstjórnandi Fjölnis, flýgur hér
í átt að körfu Stjörnunnar í Ásgarði í Garðabæ í gær. Til-
þrif Ægis dugðu ekki til og Stjarnan hafði betur. Þrír
leikir fór fram í úrvalsdeild karla í körfubolta í gær.
Hamar vann óvæntan sigur gegn KR og í Grindvík áttu
heimamenn í miklu basli með nýliða KFÍ frá Ísafirði. »2
Morgunblaðið/Ómar
Flott tilþrif hjá leikstjórnanda Fjölnis