Morgunblaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.10.2010, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. OKTÓBER 2010 VIÐTAL Kristján Jónsson kris@mbl.is FH tapaði naumlega, 30:31, gegn Stjörnunni í N1-deild kvenna í hand- knattleik á laugardaginn. FH hafnaði í 6. sæti deildarinnar á síðustu leiktíð og Morgunblaðið sló á þráðinn til Ragn- hildar Rósu Guðmundsdóttur og spurði hana hvort FH liðið væri í fram- för. „Já og nei. Fyrirfram hefði þótt já- kvætt skref fyrir okkur að ná þessum úrslitum í Garðabæ. Eftir að hafa spil- að leikinn þá er ég svekkt að hafa ekki náð öllum stigunum. Það voru gríð- arlegar sveiflur í þessum leik og við byrjuðum í rauninni ekki leikinn fyrr en í seinni hálfleik. Við vorum eins og bjánar í upphafi leiks og lentum 2:7 undir eftir tíu mínútur. Við byrjuðum að spila vörn í síðari hálfleik og þá fylgdi markvarslan í kjölfarið. Okkur tókst þá að saxa jafnt og þétt á for- skotið en við fengum ekki tækifæri til þess að jafna leikinn áður en tíminn rann út. Við hefðum þurft mínútu í við- bót,“ sagði Ragnhildur og hún segir FH tefla fram svipuðu liði og á síðustu leiktíð, undir stjórn föður hennar, Guð- mundar Karlssonar. Úrslitakeppnin markmiðið „Við höfum sett okkur markmið fyr- ir veturinn sem er að hanga í efri hlut- anum. Það komast fjögur lið í úr- slitakeppnina og það hlýtur að vera markmiðið hjá flestum liðunum að vera í þeim hópi. Það eru ekki miklar breytingar hjá okkur á milli ára og við höldum nánast sama leikmannahóp. Hind Hannesdóttir hefur bæst við hópinn en að öðru leyti erum við nán- ast einungis með uppaldar stelpur. Við ættum því að geta haldið áfram okkar uppbyggingarstarfi og erum að byggja á okkar fólki,“ útskýrði Ragnhildur og hún segir botninn hafa dottið úr leik FH á síðustu leiktíð. „Ég var nokkuð sátt við okkar frammistöðu framan af vetri en við töpuðum afar mikilvægum leik gegn Fylki og misstum þar af leið- andi af 5. sætinu. Ef hann hefði unnist þá gæti ég sagt að ég væri sátt við nið- urstöðuna á síðasta tímabili. Við eigum leik gegn Fylki um næstu helgi og það verður fjögurra stiga leikur,“ benti Ragnhildur á en FH vann HK í fyrsta leik sínum á tímabilinu. Fram og Valur í baráttunni Ragnhildur segist sjá fyrir sér tveggja liða baráttu um titilinn. „Mér sýnist að baráttan um titlana verði á milli Vals og Fram. Eins og staðan er í dag sé ég ekki neitt lið komast nálægt þeim. Það kæmi mér á óvart ef önnur lið tækju mörg stig af þeim og deildin verður sennilega þrískipt. Á hinum endanum verða líklega ÍR og Grótta sem munu væntanlega eiga erfitt í vet- ur. Þarna á milli má svo búast við þétt- um pakka margra liða og það verður mikil barátta um 3. og 4. sæti sem gefa sæti í úrslitakeppninni. Ég held að það verði mörg lið í þeirri baráttu,“ sagði Ragnhildur sem lék með landsliðinu um tíma en hefur ekki verið valin síð- ustu tvö ár þrátt fyrir að hafa raðað inn mörkunum í deildinni. „Ég hef ekki verið valin síðustu tvö árin en ég gef kost á mér eins og áður. Ég spilaði með öllum yngri landsliðunum og með A- landsliðinu á sínum tíma. Ég spilaði með landsliðinu skömmu eftir að Júl- íus tók við en hef einfaldlega ekki verið valin síðan. Það er að sjálfsögðu mark- miðið að komast í landsliðshópinn sem fer á EM í desember. Þetta er spenn- andi verkefni og það hljóta allir leik- menn að vilja taka þátt í því. Það er hins vegar Júlíus sem velur liðið og hann velur þær sem hann telur bestar hverju sinni,“ sagði Ragnhildur við Morgunblaðið. Stórsigrar hjá Val og Fylki Íslandsmeistararar Vals lögðu Hauka, 32:16, á laugardag. Eins og töl- urnar gefa til kynna voru yfirburðir meistaranna miklir en staðan í leikhléi var, 14:6. Fylkir vann stærri sigur en Árbæjarliðið rótburstaði ÍR, 40:14. Þórunn Friðriksdóttir var atkvæða- mest í liði Hauka en hún skoraði 6 mörk. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir fór mikinn í liði Vals en hún skoraði 12 mörk og næst kom Ágústa Edda Björnsdóttir með 6 mörk. Í Árbænum burstaði Fylkir nýliða ÍR, 40:14. Sunna Jónsdóttir skoraði 9 mörk fyrir Fylki og Sunna María Ein- arsdóttir 8. Hjá ÍR skoruðu þær Guð- rún Ágústa og Sif Jónsdóttir 4 mörk hvor. Stella Sigurðardóttir skoraði 12 mörk fyrir Fram sem vann stórsigur gegn HK í gær á útivelli. Lokatölur 41:14. „Erum að byggja á okkar fólki“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Stórskytta Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir þrumar hér að marki Stjörn- unnar í leiknum á laugardaginn. FH-ingurinn stefnir á að komast í landsliðið.  Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir segir að FH eigi eftir að láta að sér kveða Hannes Jón Jónsson var hetja Hannover-Burgdorf þegar liðið vann óvæntan sigur á Gummersbach í þýsku 1. deildinni í handbolta á laugardaginn. Strák- arnir hans Arons Kristjánssonar fögnuðu sigri, 30:29, og skoraði Hannes Jón sigurmarkið úr vítakasti á lokasekúndum leiksins. Hannes skoraði fjögur mörk í leiknum, Ásgeir Örn Hallgrímsson 3 en Vignir Svav- arsson náði ekki að skora en átti góðan leik í vörninni. Þetta var annar sigur Hannover-Burgdorf í sjö leikj- um í deildinni. „Við erum hrikalega ánægðir með þennan sigur. Við undirbjuggum okkur vel andlega fyrir leikinn og stemningin í höllinni var hreint mögnuð. Lið mitt barðist frábærlega,“ sagði Aron Kristjánsson í viðtali við þýska netmiðilinn handball-world en hann tók við þjálfun Hannover-Burgdorf í sumar. gummih@mbl.is Sigurmark hjá Hannesi Jóni Hannes Jón Jónsson Björninn og SA Víkingar léku á laugardag á Íslandsmótinu í ís- hokkí. Leiknum lauk með sigri Víkinga sem gerðu 5 mörk gegn 3 mörkum Bjarnarmanna. SA Víkingar eru því enn ósigr- aðir á Íslandsmótinu. Þrátt fyrir sóknir á báða bóga voru það Víkingarnir sem nýttu sín tækifæri betur til að byrja með í fyrstu lotunni. Andri Freyr Sverrisson kom þeim yfir og Andri Már Mikaelsson bætti við öðru áður en Matthías S. Sigurðsson minnkaði muninn fyrir Björninn rétt fyrir lok fyrstu lotu. Önnur lotan rétt eins og sú fyrsta var mjög fjörug. Mörg marktækifæri litu dagsins ljós og það voru Bjarnarmenn sem riðu á vaðið með tveimur mörkum og komu sér yfir í leiknum, 3:2. En Víkingarnir gáfust ekki upp og á síðustu tveimur mínútum lotunnar náðu þeir að setja tvö mörk og staðan því 3:4. Strax í upphafi 3. lotu juku SA Víkingar forystuna með marki frá Rúnari F. Rúnarssyni og þar við sat þrátt fyrir marktækifæri á báða bóga. SA Víkingar lögðu Björninn Rúnar Freyr Rúnarsson Knattspyrnumaðurinn PéturGeorg Markan er genginn í raðir Víkings frá Fjölni. Pétur skrif- aði undir þriggja ára samning við Víking um helgina en sem kunnugt er sigraði liðið í 1. deildinni í sumar. Pét- ur er með þessu að snúa til baka í heimahagana, en hann lék með Vík- ing í yngri flokkum félagsins. Á síð- ustu leiktíð kom hann við sögu í 24 leikjum Fjölnismanna í deild og bikar og skoraði í þeim 12 mörk en tímabil- ið 2009 lék hann með Valsmönnum þar sem hann skoraði 3 mörk í 15 leikjum liðsins í deildinni.    Jón Arnór Stef-ánsson skor- aði 5 stig fyrir Granada þegar liðið tapaði fyrir Barcelona á heimavelli, 85:78, í spænsku úrvals- deildinni í körfu- knattleik í gær. Jón Arnór lék í 32 mínútur og hitti úr tveimur af 5 tveggja skotum sínum og einu af tveimur vítaskotum sem hann tók. Jón Arnór og félagar hafa þar með tapað fyrstu tveimur leikjum sínum í deildinni en liðið veitti Börsungum harða keppni í leiknum.    ÞjóðverjinnMartin Kay- mer hefur heldur betur átt gott ár á golfvellinum en Kaymer sigraði á Alfred Dunhill- meistaramótinu sem lauk á St. Andrews í. Kay- mer hefur þá sigrað á þremur mótum í röð sem er nánast með ólíkindum með hliðsjón af þeirri samkeppni sem ríkir í heimi atvinnukylfinga. Kaymer sigraði á PGA-meistaramótinu, KLM mótinu í Hollandi og nú á Alfred Dun- hill-mótinu. Alfred Dunhill-mótið er hluti af Evrópumótaröðinni og er fremur óvenjulegt að því leyti að ekki er leikið á einum og sama vellinum í mótinu. Kaymer lék samtals á 17 höggum undir pari og lét sig ekki muna um að leika lokahringinn á 6 undir pari. Kaymer var höggi á und- an Englendingnum Danny Willet en Englendingar áttu sex fulltrúa á topp tíu í mótinu.    Magnús Gunnarsson skoraði 18stig, gaf 4 stoðsendingar og tók 5 fráköst í 89:59 sigri Åbyhøj gegn BK Amager í dönsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik um helgina. Arnar Freyr Jónsson lék ekki með Åbyhøj vegna meiðsla.    Axel Kárason skoraði 24 stig fyrirVærløse í tapleik gegn Bakken Bears á útivelli í dönsku úrvalsdeild- inni í körfuknattleik. Bakken skoraði 87 stig gegn 64 stigum Værløse. Guðni Valentínusson lék ekki með Bakken vegna meiðsla. Fólk folk@mbl.is Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, hefur fengið „fljúgandi start“ sem þjálfari þýska liðsins Rhein-Neckar Lö- wen eftir að hann tók óvænt við stöðunni þar seint í síðasta mánuði. Liðið hefur unnið alla fimm leiki sína undir stjórn Guðmundar en þar af eru þrír leikir í A-riðli Meistaradeildar Evrópu, þar sem Löwen vann í gær fimmtán marka sigur á franska liðinu Chambéry, 37:22. Róbert Gunnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Löwen og Ólafur Stefánsson tvö, en Guðjón Valur Sigurðsson er enn að jafna sig á meiðslum. Löwen er með sigrinum efst í hinum sterka A-riðli eftir þrjár umferðir. Læri- sveinar Alfreðs Gíslasonar í Kiel fylgja hins vegar fast á hæla Löwen með 5 stig eftir þrjár umferðir en Kiel vann pólsku meist- arana í Vive Targi Kielce, sem leika undir stjórn pólska landsliðsþjálfarans Bogdan Wenta, 33:29. Aron Pálmarsson var á meðal markaskor- ara Kiel en hann skoraði þrjú mörk í leikn- um. Svíinn Marcus Ahlm var markahæstur með sex mörk. Ingimundur og félagar ekki enn unnið Varnartröllið Ingimundur Ingimundarson var ekki á meðal markaskorara hjá danska liðinu AaB sem tapaði stórt fyrir Pick Szeged í Ungverjalandi í C-riðli, 37:28. AaB á því enn eftir að landa sínum fyrsta sigri og situr á botni riðilsins. sindris@mbl.is „Fljúgandi start“ hjá Guðmundi  Sigurganga Guðmundar með RN-Löwen enn óflekkuð eftir 15 marka sigur  Liðið hefur unnið alla fimm leikina undir stjórn landsliðsþjálfarans Góð byrjun Guðmundur Guðmundsson hefur byrjað vel sem þjálfari stórliðsins RN-Löwen.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.