Morgunblaðið - 14.10.2010, Side 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Það eru ekki nema um tvöár síðan ég byrjaði aðprjóna að ráði en ég ámömmu sem er rosaleg
prjónakona þannig að ég get feng-
ið hugmyndirnar og hún útfærir
þær svo með mér, því hún er svo
mikill snillingur,“ segir Anna
María Ingþórsdóttir prjónakona á
Akureyri.
Peysujakkar sem Anna María
hannar og prjónar hafa vakið at-
hygli sem og annað sem hún hefur
gert.
„Ætli það sé ekki eitt og hálft
ár síðan að ég fékk hugmynd að
peysujakkanum. Mig langaði til að
gera eitthvað öðruvísi en þetta
hefðbundna íslenska lopapeysu-
mynstur og ákvað að setja
mynstrið í miðjuna á peysunni.
Það kom svona vel út að það var
haldið áfram og nú hef ég gert
nokkrar útfærslur. Ég teikna
mynstrin upp og mamma útfærir
þau. Sniðið á peysunum er einfalt
en kemur svona flott út vegna
mynstursins, þetta eru góðar
peysur til að draga fram línurnar,
hafa mitti,“ segir Anna María.
Komst ekki leiðar sinnar
Þegar Anna María fór í fyrsta
peysujakkanum, sem hún gerði, út
úr húsi komst hún varla leiðar
sinnar vegna áhuga annarra.
„Um leið og ég mætti í fyrstu
peysunni út kom fólk og talaði við
mig, þetta vakti ótrúlega athygli.
Fyrst var ég bara að gera peysu
handa mér en svo fór þetta út í
það að vekja svo mikla athygli að
það er einn og einn sem leggur
inn pöntun. Það hafa komið fyr-
irspurnir um hvort ég vilji vera í
einhverjum hönnunarbúðum en við
höfum ágætt að gera í þessu
heima eins og er og ákváðum að
halda því áfram þannig. En það er
gaman þegar einhverjir sýna því
áhuga sem maður er að gera,“
segir Anna María sem er mennt-
aður viðskiptafræðingur og er í
fullri vinnu hjá Intrum auk þess
að vera þriggja barna móðir.
„Prjónið er áhugamálið og ég
prjóna þegar tími vinnst til, það er
ágætt þegar maður situr fyrir
framan sjónvarpið að vera með
eitthvað í höndunum. Annars er
Langaði í óhefð-
bundna lopapeysu
„Saumaklúbbarnir í dag eru farnir að standa undir nafni, þeir snúast mikið um
það að prjóna, minna um það að borða,“ segir prjónakonan Anna María Ing-
þórsdóttir sem slappar ekki af nema með prjóna í hönd. Anna María hannar og
prjónar peysujakka sem hafa vakið athygli enda draga þeir fram mittislínuna og
eru ekki með hinu hefðbundna lopapeysumynstri.
Fyrsta peysan „Gráa peysan er sú
peysa sem er búin að vekja mesta
athygli. Hún sker sig úr af því
mynstrið er ekki yfir axlirnar eins
og á þessum dæmigerðu íslensku
lopapeysum.“
Tvær hugmyndir „Ég gerði fyrst stutta gráa jakkann. Þá var hugmyndin að
gera lopapeysu sem gæti líka gengið sem jakki í vinnuna. Grænu peysuna
gerði ég svo í vor. Ég sá þennan rosalega græna lit út í búð og þurfti að gera
eitthvað úr honum og til varð þessi peysa.“
mamma ótrúleg, hún hefur prjón-
að í tugi ára og er mjög fljót með
eina peysu, hún er aðalprjónavélin
og svo er ein vinkona hennar
stundum með henni í þessu.“
Óskað eftir strákabindi í
fótboltalitunum
Anna María er ekki bara að
prjóna jakkapeysur heldur má sjá
á Facebook-síðu hennar prjóna-
bindi, húfur og fleira sem hún hef-
ur prjónað á eiginmann sinn og
börn.
„Ég hef hannað eina peysu á
karlinn sem hefur vakið ágæta at-
hygli og ég er líka alltaf að gera
eitthvað á krakkana. Ég var til
dæmis að prjóna bindi á strákana
mína, annar þeirra sérpantaði
bindi í fótboltalitunum sínum,
svörtu og rauðu. Ég er alltaf með
einhverjar hugmyndir á teikni-
borðinu,“ segir Anna María. Hún
hefur alla tíð haft gaman af því að
gera eitthvað á sjálfa sig. „Ég hef
líka aðeins verið í því að sauma,
var í því að sauma kjóla á mig
með ákveðnu mitti, ég er eitthvað
Vefsíða Handverks og hönnunar er
áhugaverð fyrir þá sem hafa áhuga
á að fylgjast með því sem hug-
myndaríkir og hagir Íslendingar eru
að gera. Handverk og hönnun er
sjálfseignarstofnun og er markmið
hennar m.a. að stuðla að eflingu
handverks, hönnunar og listiðnaðar
og auka gæðavitund á þessu sviði
og að vera sameiginlegur vett-
vangur þeirra sem starfa að hand-
verki, hönnun og listiðnaði.
Á vefsíðunni er margt að sjá, þar
er listamaður mánaðarins valinn og
var listamaður septembermánaðar
Rita Freyja Bach. Á síðunni eru
fréttir af því sem er að gerast í
heimi handverks og hönnunar, sýn-
ingaryfirlit, upplýsingar um hvar
hægt er að fara á námskeið og
margt annað. Skemmtilegastur er
þó gagnabankinn þar sem má sjá
þá listamenn sem eru á skrá hjá fé-
laginu og hvað þeir eru að gera.
Þar er hægt að rekast á margt
sniðugt.
Dagana 28. október til 1. nóv-
ember stendur Handverk og hönn-
un fyrir stórri sýningu á íslensku
handverki, listiðnaði og hönnun í
Ráðhúsi Reykjavíkur. Hægt er að
skoða kynningu á öllum þátttak-
endum sýningarinnar, sextíu og
einum, á vefsíðunni.
Vefsíðan www.handverkoghonnun.is
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Handverk Þetta myndarfólk mátti sjá á sýningu Handverks og hönnunar 2006.
Hugmyndaríkir og hagir
Louis James Young, Ojibway-
frumbyggi frá Manitoba, mun halda
fyrirlestur í Háskóla Íslands á vegum
Félags þjóðfræðinga á Íslandi í dag kl.
17.30. Erindið fer fram í Gimli, stofu
102.
Louis mun m.a. fjalla um fyrstu
kynni Kristófers Kólumbusar af frum-
byggjum, hvaðan hugtakið „indian“
kann að vera upprunið, hvaðan „and-
inn“ kemur og hvert hann fer, auk
þess að fjalla um samskipti okkar við
Móður jörð. Í dag starfar Louis við The
All Nations Traditional Healing Centre
í Manitoba. Þar aðstoðar hann frum-
byggja sem urðu fyrir ofbeldi í heima-
vistarskólum sem voru reknir af kana-
díska ríkinu og kaþólsku kirkjunni.
Endilega …
… farið á fyrirlestur frumbyggja
Frumbyggjar Fyrirlestur um frumbyggja fer fram í Háskóla Íslands í dag.
Það er mjög algengt að rekast á
ítalska rétti sem eru sagðir vera að
hætti veiðimannsins eða alla cacca-
iatora en þar er yfirleitt um að ræða
rétti sem eru eldaðir með krydd-
jurtum í einhvern tíma. Hér er upp-
skrift að kjúklingarétt í þessum dúr.
1 kjúklingur, skorinn í 10 bita
1 laukur, saxaður
3 hvítlauksgeirar, fínsaxaðir
1 lárviðarlauf
Uppskriftin
Kjúklingur
að hætti veiði-
mannsins