Morgunblaðið - 14.10.2010, Qupperneq 32
32 MENNINGFréttir
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010
Í kvöld, fimmtudagskvöld,
verður dagskrá helguð ljóða-
söngvum Jóns Hlöðvers Ás-
kelssonar tónskálds í Hömrum,
minni sal menningarhússins
Hofs á Akureyri.
Marrét Bóasdóttir sópran og
Daníel Þorsteinsson píanóleik-
ari flytja sönvana.
Á dsgskrá eru tólf söngvar
úr Vísum um drauminn eftir
Þorgeir Sveinbjarnarson, auk
laga við ljóð eftir Ólaf Hauk Símonarson, Sverri
Pálsson, Jón Bjarman, Sigurð Ingólfsson og
Snorra Hjartarson.
Dagskráin í Hömrum hefst kl. 20 og er aðgang-
ur ókeypis fyrir 20 ára og yngri.
Tónlist
Flytja ljóðasöngva
eftir Jón Hlöðver
Jón Hlöðver
Áskelsson
Sýning Piu Rakelar Sverris-
dóttur, Graphic landscapes,
verður opnuð í Listasal Mos-
fellsbæjar á morgun, föstudag,
klukkan 16.00.
Verkin eru unnin út frá gler-
myndaröð, innblásinni af ís-
lensku vetrarlandslagi. Þau
eru grafísk endurtekning á
pappír og önnur efni, og einnig
er unnið með rými sýning-
arsalarins.
Listasalur Mosfellsbæjar í Kjarna, Þverholti 2,
er fjölnotasalur sem hefur verið starfræktur í
Bókasafni Mosfellsbæjar síðustu fimm ár. Sýn-
ingar eru opnar á opnunartíma safnsins.
Sýning Piu Rakelar stendur til 6. nóvember.
Myndlist
Pia Rakel sýnir
í Mosfellsbæ
Hluti verks eftir
Piu Rakel.
Kínó klúbburinn og Listasafn
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu
bjóða á laugardaginn 16. októ-
ber, milli klukkan 13 og 16, upp
á námskeið í gerð kvikmynda
án myndavélar. Námskeiðið er
fyrir börn á aldrinum átta til
fimmtán ára. Námskeiðið er
ókeypis og komast tuttugu
þátttakendur að. Foreldrar eru
hvattir til að koma með og taka
þátt.
Nemendur læra að búa til handunnar myndir
og eru ýmsar aðferðir við að vinna beint á filmuna,
svo sem að lita, bleikja, stimpla, klóra og líma.
Geta nemendur tekið með sér verkfæri á borð við
svampa, stimpla, pensla og málningu.
Námskeið
Kvikmyndagerð
án myndavélar
Hafnarhúsið við
Tryggvagötu.
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
„Mér finnst þetta líkast því sem það komi
fram í dagsljósið áður óbirt ljóð eftir einhver
góðskáldanna,“ segir Jónas Ingimundarson
píanóleikari um nýuppgötvuð sönglög eftir
Árna Thorsteinsson, sem eru ýmist áður
óflutt eða ókunn tónlistarunnendum samtím-
ans.
Á tónleikum í Salnum annað kvöld verður
þess minnst að 140 ár verða þá liðin frá fæð-
ingu Árna (1870-1962), eins ástsælasta tón-
skálds þjóðarinnar. Á tónleikunum flytja Jón-
as og söngvararnir Gunnar Guðbjörnsson og
Ólafur Kjartan Sigurðarson um tuttugu söng-
lög Árna. Þar á meðal verða kunnar perlur á
borð við Nótt, Enn ertu fögur sem forðum,
Dalvísur og Rósin. Jafnframt flytja þeir 12 af
þessum óþekktu lögum. Óhætt er að fullyrða
að sá fundur sé stórmerkilegur, enda um að
ræða fullsköpuð verk eftir Árna, við ljóð
kunnra skálda, sem líklegt er að eigi eftir að
rata í úrvalsflokk íslenskra sönglaga.
Merkur fundur óútgefinna sönglaga
Nýverið komu afkomendur Árna Thor-
steinssonar kassa með handritum hans til
Tónlistarsafns Íslands í Kópavogi. Í kass-
anum voru, auk áður útgefins efnis, hátt í níu-
tíu óþekkt eða áður óútgefin verk, einsöngs-
og kóralög. Jónas Ingimundarson hefur valið
þessi tólf úr bunkanum.
„Ef ég hef ekki heyrt þessi lög áður, býst
ég ekki við að margir hafi heyrt þau,“ segir
Jónas en á liðnum árum hefur hann verið öt-
ull við flutning íslenskra sönglaga með fjölda
söngvara. „Þessara laga er getið í ævisögu
Árna, Hörpu minninganna, ég hef hinsvegar
ekki rekist á þau fyrr.“
Jónas segist ekki hafa tölu á þeim verkum
Árna sem komu nú í leitirnar en það hefði ekki
verið hægt að flytja þau öll á einum tónleikum.
„Það réð valinu að lögin hentuðu þeim Gunn-
ari og Ólafi Kjartani. En þessi lög eru algjörar
perlur,“ segir Jónas og leikur nokkur þeirra
fyrir blaðamann sem getur staðfest þau orð.
„Lög Árna eru mjög söngvin, þau eru yf-
irleitt samin út frá hans rödd en hann söng
fyrsta bassa; þetta eru karlmannleg lög, safarík
tónlist. Þau eru bæði rómantísk og dramatísk,“
segir hann. „Hlustaðu bara á Rósina. Þótt það
séu fáir tónar þá kafrekur hann naglann í einu
höggi. Maður heldur niðri í sér andanum á
meðan. Hann er eins og ljósmyndari sem hittir
á augnablikið, þetta er svo tær tilfinning.
Árni er einn af okkar allra merkistu söng-
lagahöfundum, maður sem þeir yngri geta bor-
ið sig saman við. Hann var ekki tónskáld að at-
vinnu en hafði „þetta eitthvað“ sem skilur á
milli þess að vera og vera ekki.
Þessi „nýju“ lög bera öll höfundareinkenni
Árna og eru alls ekki síðri en þau sem hafa
þegar verið gefin út, alls ekki,“ segir Jónas.
Textarnir við sönglögin eru sumir eftir Stein-
grím Thorsteinsson, frænda Árna, en líka eftir
Hannes Hafstein, Þorstein Erlingsson, Jónas
Hallgrímsson og fleiri. Eitt er baráttusöngur í
tilefni af afmæli góðtemplarahreyfingarinnar.
„Það ber að vinna að því að koma öllum lög-
unum hans Árna saman í bók, þessum áður út-
gefnu og þeim „nýju“,“ segir Jónas.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Flytja sönglög Árna Jónas Ingimundarson píanóleikari og söngvararnir Gunnar Guðbjörnsson, tenór, og Ólafur Kjartan Sigurðarson baritónn.
„Þessi „nýju“ lög bera öll
höfundareinkenni Árna“
Tólf áður óútgefin sönglög Árna Thorsteinssonar flutt á tónleikum á morgun
Í París er deilt um yfirlitssýningu á
verkum bandaríska ljósmyndarans
Larrys Clarks, sem var opnuð í sam-
tímasafninu þar í borg um liðna
helgi. Ljósmyndir Clarks sýna iðu-
lega unglinga sem elskast, drekka
áfengi og neyta fíkniefna, en yfirvöld
safnsins hafa sett aldurstakmark á
sýninguna þannig að ungmenni und-
ir 18 ára aldri fá ekki aðgang.
Larry Clark öðlaðist frægð á átt-
unda áratugnum fyrir bækurnar
Tulsa og Teenage Lust, og hefur
haldið áfram allar götur síðan að
mynda unglinga – kvikmyndin Kids
sem hann leikstýrði árið 1995 kallaði
líka á afar sterk viðbrögð, en þar er
fjallað um kynlíf unglinga á opin-
skáan hátt.
Clark hefur kallað aldurstak-
markið „árás á æskuna“ og yfirvöld
listasafna Parísarborgar hafa verið
harðlega ganrýnd fyrir sjálfsrit-
skoðun. Frönsku mannréttinda-
samtökin segja bannið merki um aft-
urhaldssemi. Sýningarstjóri við
safnið var ósátt við ákvörðunina og
segir í samtali við Guardian að ljós-
myndir Clarks hafi ekkert með
„hugsanlegt klám eða barnagirnd að
gera“.
Clark segir heimskulegt að ung-
lingar fái ekki að sjá myndir af jafn-
öldrum sínum, myndir sem þau geta
öll séð á netinu hvort sem er.
Bannaðar
yngri en
18 ára
Aldurstakmark á
sýningu Clarks
Listamaðurinn Larry Clark á hluta
sjálfsmyndar frá 1973.
Ég ætla að klára
stúdentinn og fara
svo í eitthvert leiklistarnám
34
»
Á næsta ári verð-
ur frumflutt áður
óþekkt kórverk
eftir breska tón-
skáldið Ralph
Vaughan Willi-
ams (1872-1958),
eitt kunnasta tón-
skáld Breta.
Verkið, sem tek-
ur um 45 mínútur
í flutningi og
nefnist A Cambridge Mass, kom í
leitirnar í bókasafni Cambridge-
háskóla. Stjórnandinn Alan Tongue,
sem fann nóturnar, segist í samtali
við BBC hafa áttað sig samstundis á
því að þarna væri um merkilegt verk
að ræða. Verkið, sem er fyrir ein-
söngvara, tvöfaldan kór og hljóm-
sveit, samdi Williams þegar hann
var 26 ára gamall.
Frumflytja kór-
verk eftir Vaug-
han Williams
Ralph Vaughan
Williams
Á morgun eru 140 ár liðin frá
fæðingu Árna Thorsteinssonar
tónskáld og verður þess
minnst á tónleikum Jónasar
Ingimundarsonar, Ólafs Kjart-
ans Sigurðarsonar og Gunnars
Guðbjörnssonar í Salnum ann-
að kvöld. Mörg sönglaga Árna
eru meðal þeirra dáðustu í ís-
lenskum söngvasöfnum.
Faðir tónskáldsins var Árni
Thorsteinsson landfógeti,
bróðir Steingríms skálds. Árni
yngri varð stúdent 1890, sigldi
þá til Hafnar og las lög en hætti því þar sem söng-
listin kallaði. Í Höfn lærði hann að syngja og var í
danska stúdentakórnum. Árni lærði síðan ljós-
myndaiðn í Kaupmannahöfn og opnaði árið 1897
stofu í Reykjavík sem hann rak í 21 ár. Síðar starf-
aði hann fyrir tryggingafélag og í Landsbankanum.
Árni var farinn að semja sönglög fyrir aldamótin.
Hefti með lögum hans kom út 1907, og nutu lögin
mikillar hylli. Árið 1921 kom út annað hefti, fyrir
karlakóra. Öll ljóðin í heftunum eru á íslensku og
þýsku. Upp úr 1920 virðist Árni hafa dregið úr tón-
smíðum. Hann var um tíma gagnrýnandi Morgun-
blaðsins.
Var vinsæll höfundur
sönglaga
140 ÁR FRÁ FÆÐINGU TÓNSKÁLDSINS
Árni Thorsteinsson
tónskáld.