Morgunblaðið - 14.10.2010, Page 33

Morgunblaðið - 14.10.2010, Page 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010 Hans hertogalega hirðfífl,gamli kroppinbakurinnRigoletto, haltraði sl.laugardag aftur upp á íslenzkt óperusvið, 60 árum eftir Ís- landsfrumflutning Þjóðleikshússins, og 20 árum eftir uppsetningu ÍÓ 1990 með sænska barýtoninn Ingv- ar Wixell í titilhlutverki. Þeir vissu hvað þeir gerðu, frum- herjarnir, þegar þeir kusu að opna landsmönnum töfraheim sönghús- anna 1951 með einhverri dæmigerð- ustu ítalskri óperu sem hugsazt get- ur. Fyrsta stórmeistaraverki Verdis, og þurfti ekki aldarafmælis til. Enda er útúrdúrasnauð atburða- rásin áhrifamikil og auðskilin, með venjulegum fyrirvara um sérhæfða rökvísi óperusviðsins. Í þokkabót státa aríur í Rigoletto af óvenjumörgum „smellum“ – líf- seigum sígrænum lagaperlum í anda höfundar, er líkt og söngva- smiðum Broadways síðar meir var umhugað um að sýningargestir gengju raulandi heim með óhreins- andi orma í eyrum: La donna é mo- bile, Caro nome, Bella figlia del l’a- more... Rigoletto er enn meðal tíu kunn- ustu ópera í heimi. Fyrir vikið hætt- ir verkinu til að víkja í vitund hlust- enda fyrir hentugum viðmiðunar- kvarða á frammistöðu flytjenda. Jafnframt virðast álíka gamlir stríðsfákar hér á sögufirrtri öld augans kalla æ meir á „nútímavæð- ingu“ í sviðshönnun, búningum og leiktilburðum, hversu misjafnlega sem til þykir takast. Enda í sjálfu sér jafn fáránlegt að sjá nútíma- klætt söngfólk tjá sig í háróm- antískum tónstíl og ef upphaflega sviðsútlitið annó 1851 birtist við tón- list Verdis útsetta í nútímafram- úrstefnu eða hrynbundnu þunga- rokki. En eftir fyrsta áfallið tók maður að venjast dagfærðu sviðsetning- unni, er lauslega gat minnt á bófa- umgjörð Macbeths um árið. Fyrr en varði gekk dæmið upp, og skræp- óttur útgangur hirðdrósanna, ásamt harðsoðnu mafíuyfirbragði hertoga- gengisins (hins afburðavel syngj- andi karlakórs), afhjúpaði, í snjallri lýsingu og einföldum en skilvirkum sviðsbakgrunni, snautleika flestra persóna í skáldlegri andstöðu við einfeldningslegt sakleysi Gildu og föðurástar Rigolettos til hennar. Hvað einsöngvarana varðar var þessi frumsýning fyrst og fremst kvöld Ólafs Kjartans Sigurðarsonar. Hringjandi öflug barýtonrödd hans stendur nú með fullum blóma og saknaði maður aðeins meiri fjöl- breytni í styrk – þeas. niður á við þegar tilefni gáfust. En leikur hans var sterkur og trúverðugur á móti laufléttri nærveru Þóru Ein- arsdóttur er túlkaði Gildu af inni- leika og fínstilltum þokka, þótt sópr- anröddin hefði að mínum smekk mátt sýna meiri þéttleika. Fyrir sjá- öldrin var leikur hennar aftur á móti ósvikið augnayndi allt til enda. Skortur á þéttleika hrjáði að mínu viti enn frekar Jóhann Friðgeir, er virtist hafa fórnað flestu fyrir belj- andi kraft á óhóflegu titri, fyrir utan að renna sér fulloft upp í tóninn og lafa stundum í hæðinni. Það kom þó sízt niður á undirtektum; lútsterkir hátíðnitónar hafa ávallt reynzt fljót- virkasta aðferð söngvara til að kalla fram klapp. Hins vegar var sjón- leikur hans furðulipur og í sér- kennilegri mótsögn við einhæfan þokulúðurinn. Það var engin spurn- ing að Jóhann var hverflyndi her- toginn af Mantovu. Hlutverk morðingjasystkinanna Sparafucile og Maddalenu voru dá- vel skipuð þeim Jóhanni Smára Sævarssyni og Sesselju Kristjáns- dóttur. Sérstaklega var einstæð mezzo-altrödd Sesselju (aldrei þessu vant sveipuð eggjandi leð- urflík við hæfi Folterkeller- drottninga á Reeperbahn!) meðal höfuðgersema kvöldsins. Smærri einsöngshlutverkin voru og í góðum höndum, og þó að hljómsveitin næði ekki alltaf 100% saman við söngv- arana í tíma – slíkt væri nærri því einsdæmi á frumsýningarkvöldi – þá var spilamennskan kattþjál og í fínu styrkjafnvægi. Þökk sé víðast góðum einsöng, fagmannlegri spilamennsku – og ekki sízt fjaðurstæltum karlakór, er skartaði þvílíkri nákvæmni að Norð- urkórverskir gæsagangsdátar hefðu guggnað við samanburð – var sýn- ingin í heild vel heppnuð. Hress, hröð og markviss skemmtun fyrir jafnt meiri sem minni óperufíkla á öld augans. Stríðsfáksópera á öld augans Úr Rigoletto „Hress, hröð og markviss skemmtun fyrir jafnt meiri sem minni óperufíkla á öld augans,“ segir meðal annars í umsögninni. Íslenzka óperan Ópera bbbbn Verdi: Rigoletto (1851); ópera við söng- rit eftir Piave úr skáldsögu Victors Hugo. Ólafur Kjartan Sigurðarson (Rigoletto), Þóra Einarsdóttir (Gilda), Jóhann Friðgeir Valdimarsson (hertog- inn), Jóhann Smári Sævarsson (Spa- rafucile), Sesselja Kristjánsdóttir (Maddalena), Bergþór Pálsson (Monte- rone). Smærri hlutverk: Bylgja Dís Gunnarsdóttir, Ágúst Ólafsson, Hlöðver Sigurðsson og Bragi Jónsson. Leik- stjórn: Stefán Baldursson. Leikmynd: Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir. Bún- ingar og lýsing: Filippía Elísdóttir og Páll Ragnarsson. Kór og hljómsveit Ís- lenzku óperunnar undir stjórn Daníels Bjarnasonar. Laugardaginn 9. október kl. 20. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Ámethlýum nýliðnumoktóbersunnudegi hljóm-uðu í fyrsta sinn samanátján af 26 Sálmum á nýrri öld eftir Aðalstein Ásberg Sig- urðsson rithöfund og tónlistarmann- inn Sigurð Flosason. Ekki aðeins við góða aðsókn, heldur einnig við sann- kallaðar kjöraðstæður. Í fyrsta lagi myndaði turnendi kirkjunnar fullkomna ómgjörð um svífandi a cappellasöng tíumenninga Scholae cantorum (6 kvenna, 4 karla; því miður ónafngreind í tón- leikaskrá) í heimahagvanri meðferð stjórnandans. Raunar var svo listi- lega spilað á vandmeðfarna ómvist Hallgrímskirkju að verkin virtust nánast frumhugsuð fyrir Skóla- vörðumusterið. Þar á ofan nutu þau úrvalsgæða fremsta kammerkórs landsins og reyndasta kórstjóra okk- ar af miðkynslóð, enda var túlkun öll fallin til að upphefja kostina og fegra hitt í fyrirmyndaranda jákvæðrar listrænnar blekkingar, svo vart mátti á milli sjá hvort vægi þyngra efniviður eða meðferð. Sálmalögin voru framan af einföld og áferðarslétt við hæfi almennra kirkjukóra að sögn höfunda. Í lág- stemmdri en heiðtærri túlkun SC birtust þau oft sem tímalaus blanda af þjóðlögum, dægurballöðum og barnagælum, þó endingargildið komi etv. betur í ljós síðar í lakari flutningi. Þótt lítið færi fyrir sjálf- stæðri raddfærslu, héldu hómófón- ískar og oftast strófískar [sama tón- list við hvert vísuorð] tónsetningar Sigurðar fullri athygli á aðgengilegu dúr-moll hljómferli. Nútíminn minnti á sig endrum og eins með vægum ómstreitum svo kalla mætti n.k. léttkrómaða lotningarsöngva með sænsk/skandínavískum blæ. En í síðasta hluta kvað við flókn- ari og djarfari tón. Djasshljómar urðu meira áberandi og streitur hvassari, án þess þó að raska heild- arsvipnum af yfirvegaðri ró. Áfram féllu lag- og hljómferli það vel að hrynjandi og inntaki textans að hvort hefði getað verið undan sínum síamstvíbura. Kæmi vart á óvart ef sálmarnir næðu fljótt vinsældum í hérlendum guðshúsum, og ekkert nema hið bezta mál ef yrði á kostnað slökustu popplummnanna. Sálmaljóð Aðalsteins Ásbergs voru í samræmi við kröfur tímans: gegnsæ og borðleggjandi. Þó bók- menntagúrúar verði að skera nánar úr, sýndist mér viðeigandi nálgun hans við ýmis kirkjuleg tilefni – brúðkaup, skírn, fermingu, útför, páska o.fl. – undantekningalítið blátt áfram og tilgerðarlaus. Eins og tón- listin. Léttkrómaðir lotningarsöngvar Hallgrímskirkja Kórtónleikarbbbbn 18 sálmar eftir Aðalstein Ásberg Sig- urðsson og Sigurð Flosason. Schola cantorum; stjórnandi Hörður Áskels- son. Sunnudaginn 10. október kl. 16. RÍKARÐUR Ö. PÁLSSON TÓNLIST Morgunblaðið/Árni Sæberg Aðalsteinn og Sigurður „Kæmi vart á óvart ef sálmarnir næðu fljótt vin- sældum í hérlendum guðshúsum.“ 568 8000 – borgarleikhus.is – midasala@borgarleikhus.is Gauragangur (Stóra svið) Fim 14/10 kl. 20:00 10.k Fim 4/11 kl. 20:00 12.k Fim 18/11 kl. 20:00 14.k Fim 21/10 kl. 20:00 11.k Lau 13/11 kl. 20:00 13.k Sun 28/11 kl. 20:00 15.k Fös 29/10 kl. 20:00 aukas Mið 17/11 kl. 20:00 Ný auka Sýningum lýkur í nóvember Harry og Heimir (Litla sviðið) Fös 15/10 kl. 19:00 8.k Fös 22/10 kl. 19:00 11.k Fim 28/10 kl. 20:00 14.k Lau 16/10 kl. 19:00 9.k Lau 23/10 kl. 19:00 12.k Lau 30/10 kl. 19:00 15.k Lau 16/10 kl. 22:00 10.k Sun 24/10 kl. 20:00 13.k Sun 31/10 kl. 20:00 16.k Allra síðustu sýningar í Rvk. Sýnt á Akureyri í nóv. Enron (Stóra svið) Fös 15/10 kl. 20:00 7.K Fim 28/10 kl. 20:00 11.k Lau 20/11 kl. 20:00 15.k Lau 16/10 kl. 20:00 8.k Lau 30/10 kl. 20:00 12.k Fim 25/11 kl. 20:00 16.k Fös 22/10 kl. 20:00 9.k Lau 6/11 kl. 20:00 13.k Lau 27/11 kl. 20:00 17.k Lau 23/10 kl. 20:00 10.k Fös 12/11 kl. 20:00 14.k Heitast leikritið í heiminum í dag Fólkið í kjallaranum (Nýja svið) Fös 15/10 kl. 20:00 2.k Sun 24/10 kl. 20:00 7.k Sun 7/11 kl. 20:00 13.k Lau 16/10 kl. 19:00 3.k Þri 26/10 kl. 20:00 aukas Fös 12/11 kl. 19:00 14.k Lau 16/10 kl. 22:00 aukas Fim 28/10 kl. 20:00 8.k Fös 12/11 kl. 22:00 15.k Sun 17/10 kl. 20:00 4.k Lau 30/10 kl. 19:00 9.k Sun 14/11 kl. 20:00 16.k Þri 19/10 kl. 20:00 aukas Lau 30/10 kl. 22:00 aukas Lau 20/11 kl. 19:00 17.k Mið 20/10 kl. 20:00 5.k Sun 31/10 kl. 20:00 10.k Lau 20/11 kl. 22:00 18.k Fös 22/10 kl. 19:00 Aukas Mið 3/11 kl. 20:00 11.k Sun 21/11 kl. 20:00 19.k Lau 23/10 kl. 19:00 6.k Lau 6/11 kl. 19:00 12.k Lau 23/10 kl. 22:00 aukas Lau 6/11 kl. 22:00 aukas Ath: Ekki er hleypt inn í salinn eftir að sýning er hafin! Horn á höfði (Litla svið) Lau 16/10 kl. 13:00 aukas Lau 23/10 kl. 13:00 8.k Lau 30/10 kl. 13:00 10.k Sun 17/10 kl. 14:00 7.k Sun 24/10 kl. 14:00 9.k Sun 31/10 kl. 14:00 11.k Gríman: Barnasýning ársins 2010! Orð skulu standa (Litla svið) Þri 19/10 kl. 20:00 Þri 26/10 kl. 20:00 Einstakur útvarpsþáttur, einstök leikhúsupplifun Gauragangur - „HHHH Hörkustuð“ IÞ.Mbl ÞJÓÐLEIKHÚSI SÍMI: 551 1200 • WWW.LEIKHUSID.IS Ð Gerpla (Stóra sviðið) Fim 21/10 kl. 20:00 Lau 13/11 kl. 20:00 Fös 3/12 kl. 20:00 Fös 29/10 kl. 20:00 Fim 18/11 kl. 20:00 Aukas. Fim 4/11 kl. 20:00 Fös 26/11 kl. 20:00 Missið ekki af þessari frábæru sýningu! Sýningum lýkur fyrir jól. Fíasól (Kúlan) Lau 16/10 kl. 13:00 Sun 24/10 kl. 15:00 Sun 7/11 kl. 13:00 Lau 16/10 kl. 15:00 Lau 30/10 kl. 13:00 Sun 7/11 kl. 15:00 Sun 17/10 kl. 13:00 Lau 30/10 kl. 15:00 Lau 13/11 kl. 13:00 Sun 17/10 kl. 15:00 Sun 31/10 kl. 13:00 Lau 13/11 kl. 15:00 Lau 23/10 kl. 13:00 Sun 31/10 kl. 15:00 Sun 14/11 kl. 13:00 Lau 23/10 kl. 15:00 Lau 6/11 kl. 13:00 Sun 14/11 kl. 15:00 Sun 24/10 kl. 13:00 Lau 6/11 kl. 15:00 50 sýningar fyrir fullu húsi á síðasta leikári! Hænuungarnir (Kassinn) Fös 15/10 kl. 20:00 Fim 28/10 kl. 20:00 Fös 5/11 kl. 20:00 Lau 16/10 kl. 20:00 Fös 29/10 kl. 20:00 Lau 6/11 kl. 20:00 Fim 21/10 kl. 20:00 Aukas. Lau 30/10 kl. 20:00 Fim 11/11 kl. 20:00 Fös 22/10 kl. 20:00 Sun 31/10 kl. 20:00 Fös 12/11 kl. 20:00 Lau 23/10 kl. 20:00 Fim 4/11 kl. 20:00 Lau 13/11 kl. 20:00 5 stjörnur Fbl. 5 stjörnur Mbl. Íslandsklukkan (Stóra sviðið) Sun 17/10 kl. 19:00 Mið 3/11 kl. 19:00 Aukas. Fim 25/11 kl. 19:00 Aukas. Sun 24/10 kl. 19:00 Sun 7/11 kl. 19:00 Lau 11/12 kl. 19:00 Aukas. Þri 26/10 kl. 19:00 Mið 10/11 kl. 19:00 Sun 12/12 kl. 19:00 Aukas. Mið 27/10 kl. 19:00 Sun 14/11 kl. 19:00 Fim 28/10 kl. 19:00 Mið 24/11 kl. 19:00 Aukas. Leikhúsveisla sem allir verða að upplifa! Sýningarnar hefjast kl. 19:00 Finnski hesturinn (Stóra sviðið) Fös 15/10 kl. 20:00 Frumsýn. Lau 30/10 kl. 20:00 4. sýn. Fim 11/11 kl. 20:00 8. sýn. Lau 16/10 kl. 20:00 2. sýn. Sun 31/10 kl. 20:00 5. sýn. Fös 12/11 kl. 20:00 Fös 22/10 kl. 20:00 aukas. Fös 5/11 kl. 20:00 6. sýn. Fös 19/11 kl. 20:00 Lau 23/10 kl. 20:00 3. sýn. Lau 6/11 kl. 20:00 7. sýn. Lau 20/11 kl. 20:00 Bráðfyndið og snargeggjað verk! Tryggið ykkur miða Leikfélag Akureyrar Miðasölusími: 4 600 200, netfang: midasala@leikfelag.is Rocky Horror (Hamraborg) Fös 15/10 kl. 20:00 10.sýn Fös 22/10 kl. 23:00 Aukas Fös 12/11 kl. 20:00 16.sýn Lau 16/10 kl. 20:00 11.sýn Sun 24/10 kl. 20:00 14.sýn Lau 13/11 kl. 20:00 17.sýn Sun 17/10 kl. 20:00 12.sýn Lau 6/11 kl. 15:00 Aukas Lau 13/11 kl. 23:00 Aukas Fös 22/10 kl. 20:00 13.sýn Lau 6/11 kl. 20:00 15.sýn Sýningin er ekki við hæfi barna Þögli þjónninn (Rýmið) Fim 14/10 kl. 20:00 2.k.sýn Lau 23/10 kl. 20:00 6.k.sýn Sun 31/10 kl. 20:00 10.k.sýn Lau 16/10 kl. 16:00 3.k.sýn Lau 23/10 kl. 22:00 7.k.sýn Fim 4/11 kl. 20:00 11.k.sýn Mið 20/10 kl. 20:00 4.k.sýn Fim 28/10 kl. 20:00 8.k.sýn Fös 5/11 kl. 20:00 12. k.sýn Fim 21/10 kl. 20:00 5.k.sýn Fös 29/10 kl. 20:00 9.k.sýn Algjör Sveppi - dagur í lífi stráks (Samkomuhúsið) Lau 16/10 kl. 13:00 6.sýn Sun 17/10 kl. 20:00 8.sýn Lau 23/10 kl. 16:00 10.sýn Lau 16/10 kl. 16:00 7.sýn Lau 23/10 kl. 13:00 9.sýn Sýningum lýkur í október Harrý og Heimir (Samkomuhúsið) Fös 5/11 kl. 19:00 1.sýn Fös 12/11 kl. 19:00 5.sýn Lau 20/11 kl. 19:00 9.sýn Fös 5/11 kl. 22:00 2.sýn Fös 12/11 kl. 22:00 6.sýn Lau 20/11 kl. 22:00 10.sýn Lau 6/11 kl. 19:00 3. sýn Fös 19/11 kl. 19:00 7.sýn Lau 6/11 kl. 22:00 4.sýn Fös 19/11 kl. 22:00 8.sýn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.