Morgunblaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 14.10.2010, Blaðsíða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 14. OKTÓBER 2010 Gleðisveitin FM Belfast vinnur baki brotnu þessa dagana að annarri breið- skífu sinni og hefur sent frá sér eitt lag af þeirri skífu, „Vertigo“. Hljómsveitin hef- ur verið iðin við tónleikahald á árinu, svo vægt sé til orða tekið: 70 tónleikar og 30 tónlistarhátíðir. FM Belfast heldur tónleika á Air- waves á sunnudaginn, 17. október, kl. 23, á skemmtistaðnum Nasa við Austurvöll. FM Belfast sendir frá sér lag og spilar á Nasa Live Project nefnist myndbands- og ljósmyndabloggsíða en á henni get- ur hver sem er hlaðið inn mynd- böndum eða ljósmyndum með því að nota farsíma sinn eða senda póst á live@liveproject.is. Mun efnið þá birtast á síðunni. Fyrsta tilrauna- útsending vefjarins, Live Project: Airwaves fer fram í dag og er hún hluti af Airwaves, eins og nafnið ber með sér. Hátíðargestir geta því deilt myndefni með öðrum. Upplifun Airwaves- gesta á Live Project Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Það verður að segjast eins og er að frændur okkar Danir eru ekki barnanna bestir þegar kemur að því að berja saman nothæfri tónlist. Þess vegna sperrir maður eyrun enn frekar upp þegar maður fréttir af einhverju gæðabandinu þaðan. Og það er gaman að segja frá því að eitt helsta gæðaband landsins verður á Airwaves þetta árið, Oh No Ono frá Álaborg. Síðasta plata þeirra, Eggs, býr yfir draumkenndu, sýruskotnu flæði og var hiklaust með merkilegri plötum síðasta árs. „Við erum að túra úti um allt um þessar mundir. Við náum að lifa af þessu, rétt svo,“ segir Aske Zidore, gítarleikari og söngvari sveit- arinnar. „Stundum þurfum við að redda okkur peningum með einhverjum heilalausum störfum. En við erum líka að standsetja útgáfu í Kaup- mannahöfn og opna hljóðver. Þannig að við reynum að hafa hliðarverk- efnin í tónlist. Það er það eina sem okkur langar til að gera. Búa til tón- list.“ Hálfpartinn súrrealískt Eggs er, eins og áður segir, líkt og tónlist úr einhverjum handanheimi. Og Aske tekur undir draumalík- inguna. „Að gera plötuna var svolítið eins og að vera í draumi. Við vorum al- gerlega einangraðir, unnum sleitu- laust að plötunni í marga mánuði og vorum í okkar eigin heimi. Við sáum hvorki fjölskyldu né vini og að hlusta á plötuna í dag fyrir mig er skrítið. Það er hálfpartinn súrrealískt.“ Blaðamaður nefnir plötu Captain Beefheart, Trout Mask Replica, sem var unnin við samskonar aðstæður og ber sömuleiðis með sér ókenni- lega handanheims áru. „Veistu, þú ert ekki fyrsti mað- urinn sem bendir mér á þetta,“ svar- ar Aske að bragði. „Ég verð að fara að festa mér þessa plötu …“ Sveitin ber ennfremur með sér áru gengis, liðsmennirnir eru eins og bræður, og Aske segir að fyrir átta árum hafi þeir tekið mjög meðvitaða ákvörðun um að taka þetta alla leið. „Við ákváðum að vanda okkur við að semja almennileg lög og beinlínis láta drauma okkar í tónlistinni ræt- ast. Við settum upp mjög strangt æf- ingaplan t.a.m. og já … það hefur myndast mikil bræðrastemning í bandinu í gegnum þetta allt.“ Eins og í draumi Bræður „Það hefur myndast mikil bræðrastemning í bandinu í gegnum þetta allt.“ Oh No Ono leikur á Sódómu í kvöld kl. 23 Erlendur gestur Oh No Ono Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is Þeir kalla þetta „tsjill-bylgjuna“, poppfræðingarnir, tónlistarstefnu sem Panda Bear (Animal Collective) ýtti úr vör með hinni frábæru Per- son Pitch árið 2007. Fleiri nafn- kunnir „slakir“ listamenn eru t.a.m. Ariel Pink og sá sem er hér til um- fjöllunar, Toro Y Moi, en hann mun troða upp á Aiwaves á morgun. Toro Y Moi, eða Chazwick Bun- dick eins og mamma hans þekkir hann, hóf að vinna tónlist sína inni í svefnherberginu sínu en túrar nú um velli víða. Hvernig er tónlistin að leggja sig að tónleikaprógrammi? „Við erum þrír í bandinu,“ segir „Chaz“ hæglætislega, og tónar rödd hans ágætlega við letilega tónlistina. „Þetta var pínu snúið að útsetja þetta fyrir band. En það gekk upp fyrir rest. Á tónleikum erum við há- værari og til muna aðgangsharðari en heyra má á plötunum.“ Hann segir að hann hafi ekki gert sér neinar hugmyndir um árangur eða frægð vegna þessa stúss síns, en hann fagni því að geta komið tónlist- inni til „fólksins“. „Eins og með svo marga er það ástin á tónlist sem rekur mig áfram. Svo einfalt er það.“ „Hæ, hvernig hefurðu það …“ Slakur Toro Y Moi Toro Y Moi leikur á Venue á morgun kl. 23.30 Erlendur gestur Toro Y Moi Þeir sem ekki gátu keypt sér passa á Airwaves, eða hreinlega náðu því ekki, þurfa ekki að sitja heima og brynna músum því boðið er upp á fjölda tónleika utan tónleikastað- anna. Í dag mun hin goðsagna- kennda hljómsveit S.H. Draumur t.d. troða upp í Havaríi kl. 16 og Benni Hemm Hemm kl. 19, svo fátt eitt sé nefnt. Þá verður einnig spil- að í Eymundsson Austurstræti, Hemma & Valda, Bar 11 og Kaffi- barnum, svo nokkrir staðir séu nefndir. Ítarlega „off-venue“ dag- skrá má finna á icelandairwaves.is. S.H. Draumur og Benni Hemm Hemm í Havaríi „GEÐVEIKISLEGA FYNDIN“ - SHAWN EDWARDS, FOX-TV Frábær gamanmynd frá þeim sömu og færðu okkur “40 Year old Virgin” og “Anchorman” FRÁ LEIKSTJÓRA MEET THE PARENTS 7 Steve Carrell og Paul Rudd fara á kostum ásamt Zach Galifianakis sem sló eftirminnilega í gegn í “The Hangover” SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI BEN AFFLECK LEIKUR BANKARÆNINGJA Í SINNI BESTU MYND TIL ÞESSA HHHH „ÞESSI LÆTUR KLÁRLEGA SJÁ SIG Á ÓSKARNUM Á NÆSTA ÁRI.“ - T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHHHH “ÞETTA ER EINFALDLEGA BESTA MYNDIN SEM ÉG HEF SÉÐ Á ÁRINU” - Leonard Maltin HHHH “EF ÞAÐ ER TIL MYND SEM ÞÚ VERÐUR AÐ SJÁ, ÞÁ ER ÞAÐ ÞESSI” - Boxoffice Magazine HHHH “THE TOWN ER ÞRILLER EINS OG ÞEIR GERAST BESTIR OG RÚMLEGA ÞAД - Wall Street Journal SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK Dýrin eru mætt....og þau eru ekki ánægð! Bráð- skemmtileg grínmynd fyrir alla fjölskylduna HHH - D.H. EMPIRE SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG KEFLAVÍK BESTA SKEMMTUNIN WALL STREET 2 kl.8-10:30 L EAT PRAY LOVE kl.8 L SOLOMON KANE kl. 10:30 16 / SELFOSSI FURRY VENGEANCE kl.6 L THE TOWN kl.8 -10:30 16 ALGJÖR SVEPPI OG... kl.6 L DINNER FOR SCHMUCKS kl.8-10:10 L / AKUREYRI THE TOWN kl.6-8-10-10:40 16 FURRY VENGEANCE kl.8 L THE TOWN kl.8-10:40 VIP GOING THE DISTANCE kl.8:30 L DINNER FOR SCHMUCKS kl.6-8:15-10:30 7 ALGJÖRSVEPPIOG... kl.63D L SOLOMON KANE kl.8:15-10:40 16 THE GHOST WRITER kl.10:40 12 SOLOMON KANE kl.5:50 VIP / ÁLFABAKKA A DISAPPEARIN NUMBER kl.6 Leikrit í beinni útsendingu L THE TOWN kl.8-10:10-10:40 16 FURRY VENGEANCE kl.6 L GOINGTHEDISTANCE kl.8 L ALGJÖRSVEPPIOG... kl.63D L STEP UP 3 - 3D kl.83D 7 INCEPTION kl. 10:10 12 / KRINGLUNNI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.