Hamar - 24.02.1950, Page 1
Nýr ritsljóri
Aðalfundur Fél. vörubílaeigenda
Frá aðalfundi Magna
Með útkomu síðasta tbl. Aþbl.
Hafnarfjarðar hafa orðið rit-
stjóraskipti að blaðinu. Þykir nú
ekki lengur nauðsynlegt, þegar
kosningum er lokið að nota
nafn Óskars Jónss. til skrauts.
Lætur Óskar nokkur orð frá sér
fara í tilefni af þessari breyt-
ingu og segir m. a.
•>Ég vona að blaðið haldi
áfram að vera fyrst og fremst
blað Alþýðuflokksins í Hafn-
arfirði — blað Hafnfirðinga,
«
Þarna skýtur upp sama kollin-
um og alltítt gerist hjá komm-
únistum, þegar þeir kalla sjálfa
sig íslenzku þjóðina, það má
helzt ekki kalla aðra Hafnfirð-
inga en Alþýðuflokkinn. Virð-
ist ennþá vera ríkjandi sú stefna
Alþýðuflokksins hér í bæ, að
pólitískir andstæðingar flokksins
eigi að vera útlagar í sínu eigin
bæjarfélagi. Slíkar óskir fylgja
Alþýðublaði Hafnarfjarðar frá
fyrrv. ritstjóra þess og við þeim
er gleypt af núverandi ritstjóra
og lofað að feta í troðin fótspor
fvrirrennarans. Verður gaman
að fvlgjast með, hvort nýi rit-
stjórinn heldur hinni gefnu Knu.
Félag vörubílaeigenda í Hafn-
arfirði hélt aðalfund sinn sunnu-
daginn 19. febr. s. 1. í Vörubíla-
stöðinni. A fundinum gerðist
eftirfarandi:
1. Formaður fél. gaf skýrslu
um starfið á síðasta ári.
2. Þórður B. Þórðars. las upp
reikninga félagsins og voru þeir
samþykkti'r.
3. Stjórnarkosning. í stjórn
voru kosnir: Formaður Þorsteinn
Auðunsson og var hann endur-
kosinn. Ritari Kristján Bene-
diktsson. Gjaldk. Bergur Bjama-
son, sem var endurkosinn. Vara-
formaður Guðjón Gíslason og
meðstjórnandi var endurkosinn
Jóhannes Ag. Magnússon. Vara-
menn í stjóm voru kosnir Jó-
hann.Vilhjálmsson og Gísli Guð-
mundsson.
Kristján Steingrímsson, sem
hefur verið ritari félagsins í 15
ár baðst eindregið undan endur-
kosningu og sömuleiðis Guðm.
Ág. Jónsson, sem var varaform.
félagsins.
4. Þá kom fram á fundinum
tillaga, sem var samþykkt með
20 atkv. gegn 5, og er hún svo-
hljóðandi:
Afli Hafnarfj arðarbáta
Hér á eftir fér skýrsla um afla Hafnarfjarðarbáta eins og
hann var 20. febr. s. 1. Vel getur verið að einhverjti skakki í
tölunum um aflamagnið, en það mun þó ekki vera stórvægilegt.
Bátanöfn RóSar- Aflamagn lifrannagn
Línubátar: fjöldi í kg. í lítrum
Ágústa 3 9940 756
Ásdís 17 62570 4493
Bjarnarey 1650
Björg 14 77445 5779
Draupnir 18 89030 6821
Dröfn 20 99420 7454
Eggert Ólafsson .... 14 81400 6094
Fiskaklettur 14 63860 4716
Fram 2 14810 1216
Guðbjörg 19 91020 6811
Hafbjörg 18 98040 7651
Plafdís 10 48630 3411
Hafnfirðingur 12 42940 3168
Heimir 10 45530 2958.
Illugi 24 133840 9628
ísleifur . . : .. 19 85245 6087
Jón Magnússon ...... 19 94150 6665
Morgunstjarnan .... 18 67880 4643
Stefnir 10 62580 4270
Sævar 16 55980 4421
Von 21 98810 7097
Vörður 21 111560 8039
,,í langan tíma hefur ríkt
alvarlegt ástand í atvinnu-
málum Hafnfirzkra vörubíl-
stjóra, þrátt fyrir það þótt
þeim hafi frekar fækkað en
fjölgað síðustu árin.
Vegna þessa hefur Félag
vörubílaeigenda snúið sér
til bæjarstjórnar Hafnarfj.
með ósk um að fjölgað yrði
bílum í vinnu hjá bænum,
en bæjarráð svarað á þann
veg að það sæi eigi mögu-
leika á því að fjölga bílum
í vinnu á vegum bæjarins
frá því sem nú er, en hins
vegar ef ekki rætist úr með
vinnu samþykki bæjarráð
að taka málið fyrir á ný
með tilliti til athugunar á
möguleikum fyrir því, að
skipt verði vinnu vörubíla
hjá bænum.
Með tilliti til svars bæj-
arráðs svo og þess að á
sama tíma sem hjá bænum
vinna 9 vörubílar (Hafnar-
gerð meðtalin) er mun
stærri hópur vörubíla at-
vinnulaus en allt fé til
greiðslu á vinnu hjá bænum'
er tekið í útsvörum af bæjar-
búum. Þá er bæði eðlilegt
cg sjálfsagt að fram komi
kröfur frá vörubílaeigendum
um að allri vinnu á vegum
bæjarins verði skipt og
þannig reynt að draga úr
sárustu áhrifum atvinnuleys
is vörubílaeigenda.
Því samþ. fundur haldinn
í Fél. vörubílaeigenda að
skora eindregið á bæjar-
stjórn Hafnarfjarðar að taka
nú þegar upp skiptingu á
állri vinnu vörubíla á veg-
um bæjarsjóðs, hafnarsjóðs
og rafveitu, milli vörubíla-
eigenda í Félagi vörubíla-
eigenda."
40 atvinnulausir
Samkv. þeirri atvinnuleysis- ■
skráningu, sem fram fór 6. og 7.1
þ. m. eru alls 40 menn atvinnu-1
lausir. Skiptast þeir þannig: 18
unglingar 14—18 ára, 7 verka-
menn 19—63 ára, þar af 3 giftir,
með 6 börn á framfæri. 4 sjó-
menn, er bíða eftir plássi, 2;
þeirra eru giftir með 3 börn á j
framfæri, og 11 bílstjórar, 10
þeirra eru giftir með 18 börn á i
framfæri.
Málfundafél. „Magni“ hélt að-
alfund sinn mánud. 20. febr. s. I.
í Sjálfstæðishúsinu.
Formaður félagsins, Kristinn
J. Magnússon flutti skýrslu um
starfsemi félagsins síðastliðið ár.
Gat hann þess m. a., að fundir
hefðu ferið fáir, enda fundar-
sókn svo léleg, að það varð ekki
fundarfært stundum, þegar boð-
að var til fundar. Þá las formað-
ur frásögn um Jónsmessuhátíð-
ina, sem haldin var 21. ág., eða
mun seinna en venjulega.
Gjaldkeri félagsins Stefán Sig-
urðsson las upp reikninga Hellis
gerðissjóðs, félagssj. og Bjarna
riddarasjóðs. Höfðu þeir verið
endurskoðaðir og voru samþ.
samhljóða.
Garðvörður, Ingvar Gunnars-
son gaf ítarlega skýrslu um starf-
ið í Hellisgerði og hvernig það
miðaði áfram. Gat hann þess að
tíðarfar s. 1. vor hefði verið mjög
erfitt og staðið gróðrinum mjög
fyrir þrifum. Vegna tíðarfarsins
var garðurinn opnaður í
seinna lagi, en þó varð gesta-
koma í hann með mesta móti,
bæði af erl. og innl. gestum.
Sú nýlunda var tekin upp að
garðurinn var hafður opinn til
kl. 10 á kvöldin þá daga, sem
veð,ur var gott.
Að lokum ræddi garðvörður
um nauðsyn þess að koma upp
gróðurhúsi fyrir Gerðið, því það
húsnæði, sem notast hefði verið
við væri algerlega ófullnægj-
andi, enda svo úr sér gengið að
það mundi ekki geta staðið leng-
ur. Til að koma því máli í fram-
kvæmd þyrfti nokkurt fé og
meira en Hellisgerði hefði yfir
að ráða, en þar fyrir yrði að
hefjast handa í því málí ættí
þessi skemmtigarður Hafnfirð-
inga ekki að líða tjón af.
Voru fundarmenn mjög á eínu
máli um þá nauðsyn, að byggja
gróðurhús og var ákveðið að at-
huga um möguleika á því og
hefja framkvæmdir í þeirri von
að úr rættist fjárhagslega á
einhvern hátt.
Miklar og fjörugar umræður
urðu um félagslífið og einkum
það sem að málfundastarfsem-
inni laut, en henni hefur farið
hrakandi með hverju ári nú um
skeið. Var mikill áhugi ríkjandi
fyrir því að hefja þá starfsemi
til fornar frægðar.
Þá fóru fram kosningar. Oll
stjórnin var endurkosin en hana
skipa: Kristinn J. Magnússon
formaður, Jónas Bjarnason rit-
ari og Stefán Sigurðsson gjald-
keri. í varastjórn voru kosnir:
Stefán Júlíusson, Guðmundur
Gissurarson og Ingólfur Flygen-
ring.
í garðráð voru kosnir: Ingvar
Gunnarsson og Guðm. Einarss.
báðir endurkjörnir.
Endurskoðendur voru kosnir
Adolf Björnsson og Ólafur Þ.
Kristjánsson. Til vara Þorleifur
Jónsson.
Þá var kosið í málfundaráð, en
samþykkt var að stofna það sam-
kvæmt tillögu frá Bjarna Snæ-
björnssyni og hlutu kosningu
Stefán Júlíuss. og Páll Daníelss.
Þá var skýrt frá því að kvik-
mynd sú, sem „Magni“ hefur
látið taka væri að verða tilbúin,
en ekki var hægt að sýna hana
á fundinum eins og ætlað var
vegna forfalla myndatökumanns
ins.
Höfnin er ennþá
A bæjarstjórnarfundi, sem
haldinn var þriðjud. 21. febr. s.
1. var til umræðu fundargerð
hafnarnefndar. Hafði verið rætt
um áframhald hafnarbyggingar-
innar, en fé til þeirra fram-
kvæmda er nú með öllu þrotið.
Lagði liafnarnefnd til við bæjar-
stjórn að fengnar yrðu að láni
kr. 200 þúsund til bráðabirgða
til að geta haldið vinnunni á-
fram. Samþykkti bæjarstjórn að
verða við tillögu hafnarnefndar
og var bæjarstjóra veitt heimild
komin í fjárþrol
til að taka lán í þessu skyni.
Það er ekki rúm til að ræða
hafnarmálið ítarlega að þessn
sinni og mun það verða gert bet-
ur á næstunni. En í ráði mun
vera að fá dýpkunarskip til að
grafa upp innan við garðinn og
nota þann uppgröft til að fylla
upp og þétta botninn undir garð
inn. Verkstjórinn við hafnargerð-
ina hefur sent hafnarnefnd ítar-
lega skýrslu um framgang verks-
ins, og gefst e. t. v. tækifæri til
að skvra frá henni nánar síðar.