Hamar - 14.07.1950, Side 1
IV. ÁRGANGUR
HAFNARFIRÐl 14. JÚLÍ 1950
17. TÖLUBLAÐ
Tillaga að fjárh agsáætlun Raf-
veifu Hafnarfjai 'ðar fyrir árið
1950 samþykkf í bæjarsfjórn
Hér fer á eftir fjárhagsáætlun Rafveitu Hafnarfjarðar eins og
hún var samþykkt (með 5:3 atkv.) á bæjarstjórnarfundi þriðju-
daginn 11. júlí s.l.
T E K J U R :
Raforkusala kr. 2.070.000,00
Mælaleiga — 58.000,00
Heimtaugagjöld — 60.000,00
Ýmsar tekjur — 2.000,00
kr. 2.190.000,00
G JÖLD:
Rekstur:
Raforkukaup kr. 900.000,00
Skrifstofukostnaður — 162.000,00
Innheimtukostnaður — 51.000,00
Gæzla bæjarkerfis — 49.000,00
Viðlialdskostnaður — 194.000,00
Vextir og bankakostnaður ... — 40.000,00
Opinber gjöld — 12.000,00
Vátryggingar — 12.000,00
Tillag til bæjarsjóðs — 20.000,00
Ýmislegur kostnaður — 5.000,00
— 1.445.000,00
Afborganir lána:
Samningsbundin lán — 53.000,00
Sparisj. Hfj. (70 þús. kr. víxill) — 35.000,00
Rafmagnsv. Rvíkur (ógr. rafo.) — 150.000,00
— 238.000,00
Rannsóknarkostnaður í Krýsuvík ... — 150.000,00
Aukning bæjarkerfis og tækja — 357.000,00
kr. 2.190.000,00
Það er nú fyrst, þegar komið
er fram í júlímánuð að drög að
fjárhagsáætlun Rafveitu Hafnar-
fjarðar eru tekin til umræðu. Að
vísu hefur ekki verið venja að
sérstök áætlun yrði tekin til um-
ræðu í bæjarstjórn og hlyti sam
þykkji hennar, en, Sjálfstæðis-
menn töldu eðlilegt að jafn stórt
fyrirtæki og Rafveitan er hefði
áætlun sem hlotið hefði stað-
festingu bæjarstjórnar til að fara
eftir. í þeim tilgangi báru bæjar-
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
fram eftirfarandi tillögu við
aðra umræðu fjárhagsáætlunar
bæjarins 1949, á bæjarstjórnar-
fundi 12. apríl það ár:
„Bæjarstjórn samþykkir
að fela rafveitustjóra, bæjar
stjóra og bæjarráði að taka
upp samningsumleitanir við
stjórnendur Sogsvirkjunar-
innar og Reykjavíkurbæjar,
um hagkvæmari kaup á raf-
orku til þarfa bæjarins. Jafn
framt samþykkir bæjarstjórn
að láta nú semja fjárhags-
og framkvæmdaáætlun fyrir
Rafveituna fyrir yfirstand-
andi ár og sá háttur verði
framvegis viðhafðiu: í byrj-
un hvers starfsárs. Að samn-
ingu lokinni verði þessi
áætlun lögð fyrir bæjar-
stjórn til samþykktar."
Tillögu þessari var þá vísað
til bæjarráðs en var síðan sam-
þykkt orðrétt á bæjarstjórnar-
fundi 28. júní 1949.
Nú skeður það að rafveitu-
stjóri gerir tillögu að fjárhags-
áætlun fyrir Rafveitu Hafnarfj.
þá tillögu, sem samþykkt var
orðrétt á bæj^rstjórnarfiíndin-
um s.l. þriðjudag, og þessi til-
laga er tilbúin fyrir s.l. áramót.
En ekkert bólaði á því að hún
yrði lögð fyrir bæjarstjórn,
meira að segja var henni ekki
hreyft, þegar fjárhagsáætlun
bæjarins var tekin fyrir. Síðan
kom reikningur Rafveitunnar
fyrir árið 1949 fram til fyrri um-
ræðu og ennþá var tillagan um
fjárhagsáætlunina látin liggja í
salti. Við aðra umræðu um
reikninga Rafveitunnar á bæjar-
stjórnarfundi 13. júní óskaði
Þorleifur Jónsson eftir því að
umræðum þá yrði frestað og
tillagan að fjárhagsáætlun fyrir
Rafveituna tekin til umræðu
jafnframt. Var það því fyrst, að
tillagan að fjárhagsáætlun Raf-
veitunnar fékkst rædd í bæjar-
stjórn, eftir að hún var búin að
liggja tilbúin í 6 mánuði og að
Þorleifur Jónsson gerði kröfu til
þess að samþykktum bæjarstjórn
ar yrði framfylgt í þessu efni.
Hvað vakað hefur fyrir meiri-
hluta bæjarstjórnar með að
draga málið svo mjög er ekki
vitað, því við umræður um til-
löguna að fjárhagsáætluninni
þögðu þeir algerlega að öðru en
því að bæjarstjóri eftir beiðni
Kristjáns Andréssonar las hana
upp.
Þorleifur Jónsson ræddi nokk-
uð um tillöguna að fjárhagsáætl-
uninni, einkum um það sem áætl
að væri til hitarannsókna í
Krýsuvík. Gat hann þess, að
Sjálfstæðismenn hefðu lagt fram
tillögu þess efnis við aðra um-
ræðu um fjárhagsáætlun bæjar-
ins 1949, að ekki yrði varið meira
fé til þessara framkvæmda fyrr
en athugun og áætlun hefði ver-
ið gerð um möguleika og kostn-
að við virkjun gufunnar til fram-
leiðslu á raforku, sem nægði
Hafnarfjarðarbæ og nágrenni.
Tillaga í þessu máli var sam-
þykkt af bæjarstjórn 28. júní
1949 og er hún svo hljóðandi:
„Bæjarstjórn samþykkir
að fela rafveitustjóra að
gera áætlun um kostnað við
virkjun gufu úr borholum í
Seltúni í Krýsuvík, til fram-
leiðslu raforku, er fullnægi
rafmagnsþörf Hafnarfjarðar
Hæsfu úfsvarsgjaldendur
BÓKAHAPPÐRÆTTI
Heimdallur og S.U.S. hafa
efnt til bókahappdrættis og
er vinningurinn glæsilegt
heimilisbókasafn ásamt
bókaskáp og er verðmætið
kr. 10.000,00. Dregið verður
8. ágúst og kostar miðinn
aðeins kr. 2,00. Miðarnir fást
hér í bæ í Bókabúð Böðvars,
Verzl, Einars Þqrgilssonar
h.f. og skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins.
Sala á efni úr
bæjarlandinu
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
var eftirfarandi bókun bæjarráðs
samþykkt:
„Samþykkt að leggja til við
bæjarstjórn, að greitt skuli fyrir
efni úr bæjarlandinu fyrst um
sinn þannig:
Fyrir bílhlass, miðað við 2—3
tonn kr. 20,00 fyrir vikur og
Kleifarvatnssand, fyrir annað
efni kr. 10 bílhlass 2—3 tonn.
-----•------
65 ára
Stúkan Morgunstjarnan nr. 11,
Ilafnarfirði verður 65 ára 2. ág.
n.k. Verður nánar sagt frá henni
hér í blaðinu síðar.
og nágrennis, og sé sú áætl-
un grundvölluð á þeirri
reynslu, er þegar hefir feng-
izt við jarðboranir á þessum
stað. Verði áætlunargerð
þessari flýtt svo sem verða
má."
Þorleifur gat þess að síðan
væri liðið eitt ár og ekkert bólaði
á kostnaðaráætlun samkvæmt
tillögunni, heldur væri rannsókn
urtum haldið áfram og trúin á
því að þær gæfu góða raun
væri samkv. reikningum Rafveit-
unnar ekki meiri en svo að
ástæða þætti til þess að afskrifa
þennan kostnað um 33% á ári.
Virðist hér vera ætt áfram í
algjörri blindni og væri full
ástæða til þess að stinga við fót-
um áður en lengra er haldið
og athuga vel, hvort gufuvirkj-
un í Krýsuvík yrði ekki til þéss
að að stórhækka raforkukaup
bæjarbúa.
Samkvæmt útsvarsskrá Hafn-
arfjarðar, sem lögð var fram 5.
þ. m. bera þessir gjaldendur
útsvar kr. 10 þúsund og hærra:
Bæjarútgerð Hfj. kr. 133.005,00
Einar Þorgilsson
& Co. h.f......- 71.845,00
Venus h.f........- 65.270,00
Raftækjaverks. h.f. — 57.500,00
Dvergur h.f......— 32.860,00
Vélsmiðja Hfj. .. - 28.045,00
Árni Þorsteinsson — 27.580,00
Kaupfél. Hafnf. . - 24.705,00
íshús Hfj. h.f. .. - 22.670,00
Þorsteinn Eyjólfss. — 22.335,00
Verzl. E. Þorgilss. — 20.775,00
Ól. H. Jónsson .. — 20.125,00
Stebbabúð h.f. .. — 20.085,00
Sveiírir Magnúss. — 19.950,00
Sigurj. Einarsson — 19.655,00
Sviði h.f...........- 19.210,00
F. Hansen (dbú) — 18.690,00
Valdimar S. Long — 18.680,00
Benedikt Ögm.s. — 18.180,00
Fiskur h.f..........- 18.170,00
Þórarinn B Egilss. — 17.475,00
Júlíus Sigurðsson — 16.970,00
Frost h.f...........- 15.955,00
Guðjón Jónsson . — 15.560,00
Þorst. Einarsson . — 15.400,00
Hrafna Flóki h.f. — 15.105,00
B. M. Sæberg .. — 14.930,00
Ásg. G. Stefánsson — 14.730,00
Guðm. Þ. Magn. - 14.660,00
Ásmundur Jónss. — 13.830,00
Málningarstofan . — 13.490,00
Jón Gíslas. útgm. — 12.860,00
I Friðjón Guðl.s. .. — 12.580,00
| Ing. Flygenring . — 12.405,00
Emil Jónsson .... — 12.315,00
Loftur Bjarnason — 11.965,00
Krist. Kristjánsson — 11.795,00
Magnús Guðm.s. — 11.710,00
Dröfn h.f........- 11.510,00
Einar Einarsson . — 11.500,00
Vífill h.f......... - 11.430,00
Vélsm. Klettur h.f. — 11.315,00
Jökull h.f.......- 11.005,00
Stefán Jónsson .. — 10.885,00
Ársæll Kr. Jónsson — 10.865,00
Bjarni Snæbjörnss. — 10.830,00
Jón Mathiesen .. — 10.560,00
Gunnl. Stefánsson — 10.450,00
Lýsi éc Mjöl h.f. . — 10.415,00
Árni Sigurðsson . — 10.385,00
Ólafur Tr. Einarss — 10.315,00
HAMAR
Vegna sumarleyfa kemur
Hamar ekki út aftur fyrr en
föstudaginn 11. ágúst.