Hamar - 08.09.1950, Síða 3
HAMAR
3
Framhald af bls. 1.
ráðstöfun á fólksflutningum
á leiðinni Hafnarfjörður-
Reykjavík, með það fyrir
augum, að fólksflutningar á
þessari leið komist aftur í
hendur þess hafnfirzka fél-
ags, sem hafði þá um
margra ára skeið að hálfu
leyti, áður en póst-og síma-
málastjórnin tók þá að sér,
og sem þá þótti sjá vel fyrir
þörfum Hafnfirðinga, og ann
arra í þessu efni, enda verð-
ur að telja, að sú reynsla,
sem hefur fengist af hinum
opinbera rekstri á þessum
fólksflutningum, sé svo
raunaleg og óhagstæð á alla
lund, að ekki beri að vinna
að því, að bæjarsjóður
Hafnarfjarðar taki nú að sér
þessa starfsemi."
Verður nokkuð vikið að tillögu
þessari síðar og sýnt fram á, að
það hafi verið mesti möguleiki til
að endurheimta fyrirtækið inn í
bæinn að starfa á grundvelli
hennar.
Bærinn gerir tilboð.
Eftir að leiðin var auglýst til
umsóknar var sótt um hana af
Hafnarfjarðarbæ meðal annarra
og síðan var fimm manna nefnd
falið að gera tillögur til bæjar-
stjórnar um verðtilboð í eignir
sérleyfisleiðarinnar, sem bók-
færðar voru um 2M millj. króna.
Samþykkt vara tillaga um það, að
ekki væri vert að bjóða, nema
kr. 900 þús. í allar þessar eign-
ir, nema skúra, sem bókfærðir
voru á rúmar 100 þús. kr., svo og
settir aðrir skilmálar, sem að því
miðuðu að auðvelda og tryggja
rekstur sérleyfisleiðarinnar í fram
tíðinni. Þessi tillaga var samþykkt
og send sem tilboð í áður nefnd-
ar eignir, en að minnsta kosti
einn aðili annar gerði miklu
hærra tilboð.
Aðdróttanir Alþýðablaðs Hafnar
fjarðar.
Ut af því, sem gerist eftir þetta
í málinu og einkum af hendi
Björns Ólafssonar ráðherra hef-
ur Alþýðublað Hafnrfjarðar ver-
ið með alls konar dylgjur og að-
dróttanir. Ráðherrann hafi látið
leiðina af hendi við gæðinga sína,
spurt um, hvort hann sé ekki hlut
hafi í fyrirtækinu o. s. frv., allt
í þeim tilgangi að gera tilraun
til að læða því inn hjá fólki, að
hér sé eitthvað óhreint í poka-
horninu. Mun það vera gert til
þess, að fólk komi síður auga á
sannleikann í málinu, þann sann-
leika, að Alþýðuflokksmeirihlut
inn lék hinn auðvirðilegasta
loddaraleik í málinu, allt frá því
að bréfið barst frá póst- og síma-
málastj. og þar til málið var af-
greitt. Meirihlutinn hafði sem
sé engan áhuga fyrir því, að
rekstur þessarar sérleyfisleiðar
kæmist inn í bæinn.
Spurningum svarað.
Alþýðublað Hafnarfjarðar
beinir nokkrum spurningum til
ritstjóra þessa blaðs, að vísu
skipta þær litlu eða engu fyrir,
Aðgerðaleysi afhjúpað--------
gang málsins, en þó skal ekki
gengið fram hjá þeim með öllu.
Það er spurt um hvaða ágrein
ing ég hafi gert við samnefndar-
mann minn Óskar Jónsson, þegar
við ræddum við fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar. Eins og áður er get
ið og Alþýðublaði Hafnarfjarðar
ætti að minnsta kosti að vera
kunnugt, þá \;orum við kosnir ein
vörðungu til að afla upplýsinga,
lengra náði ekki umboð okkar.
Það gat því ekki orðið um neinn
ágreining að ræða, því báðir voru
sammála um það, að afla eins
góðra upplýsinga og kosbir var á.
Verður því að segja, að þessi
spurning Alþ.bl. Hfj. sé í alla
staði mjög barnaleg, svo að ekki
sé meira sagt, enda mun hún vera
til orðin í algjöru málefnalegu
ördeyði eins og allar hinar.
Önnur spurningin, er um það,
hvort ég hafi talið heppilegt af
bæjarstjórn að senda hærra til-
boð í vagnana en gert var. Það
er talað um tilboð í vagnana, sem
mun vera af misgáningi því slíkt
tilboð væri ekki gert heldur í
eignirnar allar, nema áður
nefnda skúra. Sú nefnd, sem að
því vann að gera tillögur til bæj-
arráðs um tilboð, starfaði á þeim
grundvelli að búið var að sam-
þykkja að gera slíkt tilboð, það
var því ekki um það að ræða að
taka ákvörðun um það, hvort
gera ætti tilboð eða ekld, en hins
vegar mun það hafa verið Ósk-
ari Jónssyni fullkomnlega ljóst
að mitt álit var það, að^bærinn
ætti ekki að taka að sér rekst-
ur leiðarinnar. En hvað tillög-
una um tilboðið snerti þá var
álit mitt, að ekki mætti hærra
fara, enda hefur það komið á dag
inn síðar að vafasamt er að bær-
inn hafi getað staðið við tilboð
sitt vegna fjárhagsörðuleika eftir
því, sem fjárhagsafkoma hans
hefur verið nú í sumar.
Söluverð eignarinnar.
Söluverð vagnanna var um
1,2 millj. að því viðbættu, að
kaupendur verða að greiða vara-
hluta, verkstæðisáhöld, skúra o.
fl. þar fyrir utan. Verður því ekki
ofsagt að tilboð og söluverð hafi
verið um 60—70% hærra en til-
boð Hafnarfjarðarbæjar.
Um það, hvort Björn Ólafsson
sé hluthafi í fyrirtækinu er hægt
að hugga Alþýðublað Hafnar-
fjarðar með því, að svo er ekld,
enda munu aðrir en Sjálfstæðis-
menn vera vanari að selja sjálf-
um sér eignir, sem þeir hafa í
bili umráð yfir.
Það sem Hamar hefur haft
fram að færa í þessu máli er að
skýra lesendum blaðsins frá
gangi þess og sýna fram á í
hvaða ófremdarástandi það var.
Þáttur ráðherrans.
Þáttur Björns Ólafssonar ráð-
herra í máli þessu er sá, að hann
er að losa ríkið við fyrirtæki, sem
tapar svo gífurlega að hundruð-
um króna skiptir á dag og verð-
ur daglegur halli um kr. 1500,00
ef vextir og afskriftir eru tekn-
ar með. Var nú ekki skylda ráð-
herrans að taka í taumana og
spara þessi ástæðulausu ríkisút-
gjöld? Og bar Birni Ólafssyni
ekki, líka sem ráðherra, að
vinna að því að tapið yrði sem
minnst með því að selja eignirn-
ar sem hæstu verði? Átti liaim
að bæta ofan á allt annað 5—600
þús. kr. tapi með því að selja
þeim sem lægra bauð vagnana?
Nei. Slík meðferð á opinberu fé
getur sómt Alþýðuflokksmanni í
ráðherrastól en ekki Sjálfstæðis-
manni. Björn Ólafsson verður
því ekki lastaður í þessu máli,
heldur hefur hann haldið á því
með prýði með tilliti til afkomu
ríkissjóðs.
Raunhæfur grundvöllur.
Sá grundvöllur, sem Þorleif-
ur Jónsson lagði með tillögu
sinni í þessu máli og birt er hér
að framan var tvímælalaust sá,
ÁLFAFELL
mun á þessu hausti, eins
og undanfarið, kappkosta að hafa á boðstólum hlýjan og
skjólgóðan fatnað fyrir börn og unglinga.
ÁLFAFELL
Sími 9430
sem var b ezt hægt að vinna
á til að fá fyrirtækið inn í bæinn.
Það var miklu auðveldara fyrir
bæjaryfirvöldin að vinna að því
með oddi og egg, að Á. B. H.,
sem var reynt að því að annast
þennan rekstur með prýði og
sem var eini aðilinn í bænum,
sem var þess megnugur að taka
við rekstrinum þar sem hann
hafði verkstæði fyrir hendi og
ennfremur töluverð húsakynni,
að það fengi sérleyfisleiðina aft-
ur að einhverju eða öllu leyti.
Því það var allt annað að koma
fram, sem milliliður heldur en
beinn aðili í þessu máli.
Það raunhæfasta, sem var gert
í málinu var tillaga Þorleifs Jóns
sonar og það raunhæfasta, sem
hægt var að gera var að vinna á
grundvelli hennar.
Blekkingar Alþijðuflokksins.
En Alþýðuflokkurinn kaus
ekki að fara neina raunhæfa leið.
Hann valdi sér bægslaganginn
og stóru orðin til að sýnast en
vildi undir niðri ekkert það gera,
sem yrði til þess að koma fyrir-
tækinu í bæinn. Alþýðuflokkur-
inn var hræddur við þennan þjóð
nýtingaróskapnað sinn og afneit-
aði honum hið innra með sér,
þótt ekki væri kjarkur til að gera
það í heyranda hljóði. Enda
var það vitað, að bærinn hafði
engin efni á að kaupa vagnana
og leggja í annan koshiað, sem
af því leiddi að taka að sér rekst-
ur leiðarinnar og það hefur kom-
ið betur í Ijós síðar að fjárhags-
geta bæjarins er langt frá því að
vera nógu sterk til að standa und-
ir þeim framkvæmdum, sem þeg-
ar hefur verið ráðist í, hvað þá
að hægt sé að leggja í nýjar fjár-
frekar framkvændir.
Formaður bæjarráðs talaði
ekki við ráðherra.
Það fer heldur ekki hjá því,
að Alþýðuflokksmeirihlutinn
hefði reynt að vinna eitthvað að
málinu, ef hann hefði haft áhuga
á því.
En staðreyndin er sú að for-
maður bæjarráðs og þingmaður
þessa bæjar lagði ekki á sig það
ómak að tala við þann ráðherra,
sem með málið hafði að gera,
Bjöm Ólafsson.
Hvers vegna gerði hann það
ekld?
Til hvers er hann formaður
bæjarráðs og tekur laun fyrir,
ef hann á ekki að leggja fram lið
sitt í jafn stórum málum og hér
var um að ræða? Var það aðeins
fyrirsláttur hjá formanni bæjar-
ráðs, þegar hann gat þess að e.
t. v. væri hægt að ráða atvinnu-
lausa vörabilstjóra að fyrirtæk-
inu ef bærinn fengi það? Hafði
hann ekki svo mikinn áhuga fyrir
að leysa vandkvæði bílstjóranna,
að hann gæfi sér tíma til að ræða
við ráðherra? Og til hvers er
Emil Jónsson þingmaður þessa
bæjar, ef það varðar hann engu,
hvort fyrirtæki, sem 15 til 20
manns geta haft lífsframfæri sitt
af kemur í bæinn eða ekki? Eða
Framh. á bls. 4
RUBILENE
ER RÉTTA
SMURNINP'....
FYRIR HÆG
DIESELVÉLAR
RUBILENE SMURNINGSOLIAN
er framleidd úr beztu þekkjanlegum efnum og
uppfyllir alla kosti fyrir
DIESELVÉLAR NÚTÍMANS