Hamar - 17.11.1950, Side 1
IV. ÁRGANGUR
HAFNARFIRÐI17. NÓV. 1950
25. TÖLUBLAÐ
IÐNÞING
Bæj arreikningarnir og
ISLENDINGA
Iðnþing íslendinga, sem er
það 12. var haldið í Alþýðuhús-
inu í Hafnarfirði dagana 4.-9.
nóv. s. I.
Forseti Landssambands iðnað-
armanna, Helgi H. Eiríksson
setti þingið. Bauð hann þingfull-
trúa og gesti velkomna til þings-
ins og gat þess m. a. í ávarpi
sínu, að útlit væri fyrir að iðn-
aðarmenn þyrftu jafnvel í enn
stærri mæli en aðrar stéttir þjóð-
félagsins að herða að sér mittis-
ólina. Það væri því fyrst og
fremst hlutverk þingsins að
reyna að finna haldgóðar og
skynsamlegar leiðir til að bjarga
iðnaðinum frá stórfelldu hruni,
og tryggja fótfestu hans í þeim
erfiðleikum, sem framundan
væru.
Helgi Hannesson bæjarstjóri
bauð þingið velkomið til Hafn-
arfjarðar og árnaði því allra
heilla í störfum sínum. Gat hann
þess m. a. að málefni þingsins
AFSLÁTTUR
FARGJALDA
Eins og frá var skýrt í síðasta
tbl. Hamars hafa skólanemendur
verið að vinna að því að fá afslátt
af fargjöldum með strætisvögn-
unum. Þeir hafa þegar fengið
loforð fyrir nokkurri lækkun hjá
sérleyfishöfum og sendu bæjar-
stjórn bréf um málið þann 6. nóv.
s. 1. þar sem þeir fara fram á, að
bærinn taki þátt í því að lækka
fargjöldin og fari þess á leit við
hlutaðeigandi yfirvöld, að þau
felli sérleyfisgjaldið af farmiðum
skólanema niður. Einnig er í bréf
inu farið fram á, að bæjarstjórnin
hlutist til um það að ræða við
sérleyfishafann um málið.
Bæjarráð samþykkti að fela
bæjarstjóra að leita samkomu-
lags við sérleyfishafa um málið.
Þótt þessi liður væri ekki til
afgreiðslu á síðasta bæjarstjórn-
arfundi var hann lesinn upp og
ræddur nokkuð. Kom það skýrt
fram, að bæjarráð hafði tekið
þessari málaleitan með velvild
og að ætlunin væri sú, að láta
nemendur ekki tapa neinu við
það, þótt málið væri nánar at-
hugað, heldur skyldi aðstoð bæj-
arins gilda frá 1. okt. s. 1. Þess
er því að vænta að fljótt og vel
verði fyrir málinu greitt.
snerti ekki eingöngu iðnaðar-
menn heldur alla þjóðina.
Aðalforseti þingsins var kos-
inn Guðjón Magnússon, formað-
ur Iðnaðarmannafél. í Hafnar-
firði. Varaforsetar voru kjörnir
Guðm. H. Guðmundsson hús-
gagnasm.m., Rvík og Magnús
Kjartansson málaram., Hafnarf.
Þegar aðalforseti tók við fund
arstjórn ávarpaði hann þingið og
bauð fulltrúana velkomna til
Hafnarfjarðar og afhenti forseta
Landssambands iðnðarmanna á-
letraða, vandaða og fagra fund-
arbjöllu úr silfri sem gjöf til sam-
bandsins frá Iðnaðarmannafélag-
inu í Hafnarfirði.
Ritarar þingsins voru kjörnir:
Ársæll Sigurðsson húsasm.m.,
Rvík og Vigfús L. Friðriksson
ljósmyndasm.m., Akureyri.
Skipað var í fastar nefndir
þingsins og málefnum dagskrár
vísað til þeirra.
Mál þau, sem stjórn Lands-
sambands iðnaðarmanna lagði
fyrir þingið voru: 1. Upptaka
nýrra félaga. 2. Frumvarp til laga
um iðnskóla. 3. Iðnaðarbanki 4.
Endurskoðun á lögum um iðju
og iðnað. 5. Utvegun efnis og
áhalda. 6. Gjaldeyris- og innflutn
ingsmál. 7. Útgáfa handbóka. 8.
Iðnkeppni. 9. Nýjar iðngreinar.
10. Skýrsla frá norræna iðnþing-
inu.
Eftirtalin félög gengu í sam-
bandið: Iðnaðarmannafélag
Höfðakaupstaðar, Skipasmiðafé-
lag Hafnarfjarðar, Bifvélavirkja-
félag Hafnarf jarðar og Rafvirkja-
félag Hafnarfjarðar.
Þau mál, sem að framan er
getið voru tekin til ítarlegrar
meðferðar í nefndum og á þing-
fundum svo og ýms fleiri mál,
sem fram komu. Voru ályktanir
gerðar í ýmsum málum. M. a.
voru kosnar nefndir til að eiga
viðræður við Fjárhagsráð og
Fjárveitinganefnd Alþingis um
málefni iðnaðarmanna.
Meðal annarra ályktana, sem
samþykktar voru á þinginu og e.
t. v. verður getið síðar, var samþ.
tillaga um að gefa út- og inn-
flutningsverzlunina frjálsa og
losa sem fyrst um öll höft í gjald-
eyris- og innflutningsmálum eftir
því, sem við verður komið og að
greiðsla fyrir útflutningsvörur
fari fram þegar að lokinni afskip-
un.
Framh. á bls. 4
hugleiðingar um þá
Ingólfur Flygenring
Ingólfur Flygenring tók sæti
á Alþingi 7. þ. m. í veikindafor-
föllum Þorsteins Þorsteinssonar
sýslum. Eins og bæjarbúum er
kunnugt þá var Ingólfur Flygen-
ring í framboði fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn hér í bæ við síðustu
kosningar og vann flokkurinn
með hann í broddi fylkingar
glæsilegan kosningasigur.
----•-----
Aðalfundur
fulltrúa-
ráðsins
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálf-
stæðisfélaganna var haldinn s.l.
mánudag. Fóru fram venjuleg
aðalfundarstörf auk þess, sem
ýms fleiri mál voru rædd.
Fráfarandi formaður fulltrúa-
ráðsins, Bjarni Snæbjörnsson
baðst eindregið undan endur-
kosningu og var Ingólfur Flygenr
ing kosinn formaður. Meðstjórn-
endur voru kosnir. Frú Ingibjörg
Ogmundsdóttir, Guðlaugur B.
Þórðarson, Ólafur Tr. Einarsson
og Þorvarður Þorvarðarson.
----------•-----
Jólatré
A síðasta bæjarstjórnarfundi
var eftirfarandi bókun í fundar-
gerðum bæjarráðs samþykkt:
„Samþykkt að leggja til við bæj-
arstjórn að heimila bæjarstjóra
að setja upp jólatré í bænum með
svipuðum hætti og s. 1. ár.“
Á bæjarstjórnarfundi þriðju-
daginn 7. nóv. s. 1. voru reikning-
ar bæjarsjóðs Hafnarfjarðar, Bæj
arbíós, Hafnarsjóðs og Bæjarút-
gerðarinnar fyrir árið 1949 tekn-
ir til síðari umræðu. Talsverð-
ar umræður urðu um reikning-
ana, einkum bæjarsjóðsins og
voru þeir síðan samþykktir með
5 samhljóða atkv. þ. e. atkv. full-
trúa Alþýðuflokksins, aðrir bæj-
arfulltrúar sátu hjá við atkvæða-
greiðsluna.
Lesendum blaðsins til glöggv-
unar birtast hér reikningar bæj-
arsjóðsins, þ. e. efnahagsreikn-
ingur, rekstrarreikningur og
reikningur yfir eignabreytingar
á árinu. Þessir reikningar eru
þannig, að nauðsynlegt er að at-
huga þá samtímis til að geta gert
sér nokkra hugmynd um afkomu
og efnahag bæjarsjóðsins. Að
vísu fylgja reikningunum nánari
sundurliðanir ýmissa liða og verð
ur farið nánar út í suma þeirra
hér í blaðinu bæði nú og síðar,
þegar tilefni gefst til þess. Hins
vegar verður ekki hægt að birta
neitt úr reikningum hinna ein-
stöku bæjarstofnana nú en það
verður e. t. v. gert síðar.
EFNAHAGSREIKNINGUR BÆJARSJÓÐS HAFNARFJARÐAR ÁRIÐ 1949
EIGNIR:
Sjóður 1/1. 1949 1.143.747.07
Minkun 1949 . ■ - 337.931.59 kr. 805.815.48
Útistandandi bæjargjöld 1/1. 1949 . . . . kr. 796.920.68
Aukning 1949 • - 538.823.75 - 1.335.744.43
Skuldunautar 1/1. 1949 . . kr. 397.647.72
Aukning 1949 ■ 125.990.94 - 523.638.66
Efnisreikningur 1/1. 1949 97.000.00
Minkun 1949 • - 39.016.86 - 57.983.14
Oarðbæraí eignir 1/1. 1949 . kr. 1.231.500.00
Minkun 1949 .. - 47.133.00 - 1.184.367.00
Arðbærar eignir 1/1. 1949 . kr. 6.413.685.91
Aukning 1949 .. - 2.406.603.81 - 8.820.289.72
Skulda og hlutabréf Útistandandi kröfur 1/1. 1949 . kr. 287.890.20 - 519.440.21
Aukning 1949 . - 14.134.69 - 302.024.89
Aðrar eignir 1/1. 1949 . kr. 163.793.01
Minkun 1949 • - 26.919.93 - 136.873.08
Sundlaugasjóður 1/1. 1949 . kr. 0.00
Aukning 1949 34.928.10 — 34.928.10
kr. 13.721.104.71
SKULDIR:
Pearl Assurance Co. Ltd. 1/1. 1949 . . . kr. 207.764.99
Minkun 1949 . - 5.611.93 kr. 202.153.06
Lánadrottnar 1/1. 1949 . kr. 25.249.51
Aukning 1949 . - 455.195.16 — 480.444.67
Víxill v/Síldarverksmiðju 1/1. 1949 . kr. 400.000.00
Minkun 1949 . - 100.000.00 - 300.000.00
Víxlar v/Vatnsveitu 1/1. 1949 . kr. 0.00
Aukning 1949 . - 600.000.00 - 600.000.00
Lán v/Krísuvíkur 1/1. 1949 . kr. 0.00
Aukning 1949 . - 500.000.00 - 500.000.00
Sundlaugarsjóður 1/1. 1949 0.00
Aukning 1949 .. . - 34.928.10 — 34.928.10
Eignir umfram skuldir 1/1. 1949 . .. kr. 10.418.610.30
Mism. skv. rekstrarreikningi .. 1.184.968.58 - 11.603.578.88
kr. 13.721.104.71
Framh. á bls. 3