Hamar - 01.12.1950, Síða 4
4
HAMAR
Kvennadeild Slysavarnafélags
íslands í Hafnarfirði
heldur hátíðlegt 20 ára afmæli sitt laugardag-
inn 9. des. 1950 í Goodtemplarahúsinu. — Hefst
með sameiginlegri kaffidrykkju kl. 8 e. h. stund-
víslega.
Skemmtiatriði:
Söguleg sýning
Kórsöngur
Dans
Áskriftalistar liggja frammi hjá frú Rannveigu Vigfúsdóttur
sími 9290, frú Arndísi Kjartansdóttur sími 9789, frú Frið-
rikku Eyjólfsdóttur sími 9573, frú Sólveigu Eyjólfsdóttur
sími 9754. — Konur eru beðnar að skrifa sig á fyrir mið-
vikudagskvöld 6. des. sökum þess að húsrúm er mjög tak-
markað.
Afmælisnefndin
Árshá tið
Sjálfstæðisfélaganna verður í Sjjálfstæðishúsinu laugar-
daginn 2. desember kl. 8,30.
Sameiginleg kaffidrykkja.
Ávarp (Ingólfur Flygenring)
Ræða (Jónas Rafnar alþ.m.)
Söngur
Upplestur (Brynjólfur Jóhannesson)
Dans (Róbert og Svavar leika)
Aðgöngumiðar seldir í Sjálfstæðishúsinu á laugardag
kl. 5-7.
Sjálfstæðisfólk, fjölmennið.
Jólakauptíðin er haEin
ÁLFAFELL hefir þegar hafið jólasöluna. — Jólaarkir,
jólakort í mjög fjölbreyttu úrvali. Loftskraut.
ALFAFELL er ávallt fyrst með nýjungarnar. Tístuleik-
föngin, babydúkkurnar og plasticskipin fáið
þér í ÁLFAFELLI
- Slysavarna-
deildin
Framh. af bls. 1
Konurnar hafa verið fúsar til
fjáröflunar, enda hefur þeim
verið vel tekið af Hafnfirðingum
og verður svo vonandi einnig í
framtíðinni, því ennþá er mikið
verk að vinna til að auka öryggi
svo að minni hætta verði á slys-
um og bæta allan útbúnað til að
geta bjargað, þegar fólk lendir í
hættu.
Hafnarfjarðarbær er sjómanna
bær, sjómannsstarfið á því mörgu
öðru fremur hugi kvenna hér í
bæ, enda hafa þær sýnt það í
verki, að þær skilja vel hvað
gera þarf til að draga úr þeirri
hættu, sem sjómennskunni fylgir.
Það eru áreiðanlega margir, sem
vilja leggja þeim lið í störfúm
þeirra, þó að oft sé af litlu að
taka, en margt smátt gerir eitt
stórt.
Það er enginn vafi, að hugir
allra Hafnfirðinga svo og margra
annarra leita til Kvennadeildar-
innar með þakklæti fyrir vel unn-
in og fórnfús störf og beztu ósk-
um að henni megi vegna vel í
framtíðinni.
-----•-----
Rafmagns-
hækkun samþ.
Á bæjarstjórnarfundi miðviku-
daginn 29. nóv. s.l. var samþykkt
ný gjaldskrá fyrir Rafveituna.
Hún tekur gildi við næsta aflest-
ur svo að það rafmagn, sem eytt
hefur verið í nóv.-mánuði verður
að greiðast samkv. nýju gjald-
skránni. Tillaga kom fram um,
að hækkunin yrði ekki látin verka
aftur fyrir sig, þannig að raf-
magnsnotkun í nóv. yrði greidd
samkv. eldri gjaldskránni, en hún
var felld.
Nætursími
9468
Bifreiðastöð
Hafnarfjarðar
Haf nf irðingar!
Skrifstofa okkar, Strandgötu
31 í Hafnarfirði annast alls-
kona tryggingar svo sem:
sjótryggingar
brunatryggingar
innbústryggingar
bifreiðatryggingar
farangurstryggingar
vatnsskaðatryggingar
rekstursstöðvunartryggingar
innbrotsþjófnaðartryggingar
jarðskjálftatryggingar
flugvélatryggingar
farþegatryggingar
stríðstryggingar
ferðatryggingar
glertryggingar
Óhöppin gera ekki boð á
undan sér. Trygging er
nauðsynleg. Gleymið ekki
að vátryggja.
•
Skrifstofutími kl. 9—12 og
1—5. Laugardaga kl. 9—12.
Sími 9960.
Almennar Tryggingar h. f.
Föt og fegurð
Allar konur vilja vera vel búnar. Sumar hafa til að
bera meðfædda fegurðartilfinningu og aðrar verja til
þess miklu fé. Hvorugt er þó einhlítt, því að val á fatnaði
og snyrtimeðulum þarf fyrst og fremst haldgóða undir-
stöðuþekkingu á litum, litasamstæðum, línum, formum
og öðrum þeim atriðum, sem mynda fagra heild. Tízkan
er breytileg og mismunandi gerðir og tegundir fatnaðar
og fegurðarmeðala hæfa ólíku fólki. Hlutverk bókar þess-
arar er að leiðbeina konum við val á fatnaði, benda á
snið, sem hæfa vexti þeirra, litasamstæður, sem fara vel
við litarhátt þeirra og þannig að auðvelda þeim að þroska
smekk sinn í klæðabúnaði. Fjöldi mynda eru í bókinni,
sem geta verið fyrirmyndir, þegar valin eru snið á kjóla,
kápur og annan kvenfatnað.
Annar hluti bókarinnar fjallar svo um fegrun og
val fegrunarmeðala. Eru þar margar hagnýtar leiðbein-
ingar um andlitssnyrtingu, hirðingu á hári og höndum
og um hvað annað sem lítur að kvenlegri fegrun. Bók
þessi er ekki einungis ætluð þeim, sem gera sér far um
að tolla í tískunni, heldur öllum konum, sem hafa þá
eðlilegu tilhneigingu að vilja vera vel búnar og nota
fegurðarmeðöl af smekkvísi.
Bókfellsúlgáfan
Lúðrasveit Hafnarf jarðar
heldur næstkomandi sunnudag kl. 2 í G.T.-húsinu glæsilega
HLUTAVELTU
á boðstólum margt ágætra muna. - Engin núlL ósvikið happdrætti. - Að-
gangur 1 kr. - Kl. 1,30 leikur lúðrasveitin við G.T.-húsið. - Á meðan hluta-
veltán stendur, dynjandi músík, margar hljómsveitir.
i