Hamar - 25.08.1952, Page 1
Getur Brunabótafélagið
lækkað iðgjöldin ennþá
meira en fram kemur
* í tilboðinu?
Eins og frá hefur verið skýrt
hér í blaðinu hefur Brunabóta-
félag Islands boðið bænum all-
verulega lækkun á brunabótaið-
gjöldum í bænum og var slíkt
tilboð frá félaginu tekið til með-
ferðar á fundi í bæjarráði 19.
maí s. 1. að forstjóra Brunabóta-
félagsins, Stefáni Jóh. Stefáns-
syni, viðstöddum. Um þetta mál
mun lítið hafa verið rætt
síðan, heldur hefur það legið
í salti ef svo mætti að orði kom-
ast.
Iðgjaldalækkun samkvæmt til
boði þessu er mjög mikil frá
því sem áður var en ekki er
blaðinu kunnugt um, að athug-
un hafi verið látin fara fram á
því hversu hagkvæmt þetta til-
boð er fyrir bæjarbúa, en að
sjálfsögðu hlýtur það að vera
gert áður en að því er gengið.
Akureyringar vilja meiri
lækkun.
Aður en Hafnarfjarðarbæ
hafði verið gert þetta tilboð var
Akureyrarbæ gert svipað tilboð
um iðgjaldalækkun og var það
tekið fyrir í bæjarráði Akureyr-
ar fyrir nokkru og urðu niður-
stöður þær, að bærinn krefst
frekari lækkunar iðgjaldanna,
hlutdeildar í ágóða Brunabóta-
félagsins af brunatryggingum
á Akureyri og fleiri breytinga.
Forstjóri Brunabótafélagsins
mætti á þessum fundi bæjarráðs
Akureyrar og taldi sig fúsan til
að taka tillögur bæjarráðsins til
athugunar og skrifa því um mál
ið síðar.
Má búast við frekari lækkun?
Eins og fram kemur í frétt-
um af málum þessum á Akur-
eyri virðist Brunabótafélagið
vera til viðtals um frekari lækk-
un brunaiðgjaldanna en fram
kemur í tilboði þessu og mætti
því gera ráð fyrir, að félagið
yrði viðmælanlegt á þeim grund
velli, ef til samninga kemur um
brunaiðgjöldin hér í bæ. Er því
nauðsynlegt að fylgjast vel með
þessum málum og reyna að fá
fram sem mesta leiðréttingu á
hinum gífurlegu háu brunaið-
gjöldum, sem bæjarbúar verða
að greiða.
Ekki hugur fyrir fullri réttarbót.
En AB-menn hér í bæ vilja
á engan hátt stíga sporið til fulls
(Framhald á bls. 3)
Atvinnumáliii tekin til umræðu
á Hlíiarfundi
Föstudaginn 15. þ. m. var
haldinn fundur í Verkamanna-
félaginu Hlíf um atvinnumálin
hér í bæ, enda hefur verið um
talsvert atvinnuleysi að ræða að
undanförnu. Urðu allmiklar um-
ræður um það ástand, sem nú
ríkir og nauðsyn þess að úr því
verði bætt. I því sambandi
komu fram eftirfarandi tillögur,
sem báðar voru samþykktar:
Askorun á bæjarstjómina.
„Þar sem ástand í atvinnumál
um hefur verið þannig hér í
bænurn það sem af er þessu ári,
að. margir verkamenn hafa haft
mjög litla vinnu, og nú er svo
komið, um háannatíma ársins,
að mikið atvinnuleysi er ríkjandi
meðal fjölda verkamanna, sem
hefir aðallega skapast við það
að togararnir hættu að landa
afla sínum hér í landi, en engri
annarri vinnu er að að hverfa,
telur fundurinn alveg óviðun-
andi að slíkt ástand sé látið við-
gangast af hálfu hins opinbera,
og krefst þess að bæjarstjórn
beiti áhrifum sínum við ríkis-
stjórnina að tafarlaust verði
bætt úr því ranglæti, sem verka-
menn verða fyrir, að ganga at-
vinnulausir um hásumartímann
fyrir illa stjórn og óhæft skipu-
lag á afurðasölumálunum.
Með tilliti til þess, sem að
framan segir, telur fundurinn
það ekki á neinn hátt réttlætan-
(Framháld á bls. 3)
Yaii<Kyii á bættri st jóirii
n R>a\jai‘viiiiiiiinii
Á það hefur oft verið bent hér
í blaðinu, að nauðsynlegt væri
að bæta um stjórnina á bæjar-
vinnunni, þar sem hún væri svo
óhagkvæm, að verklegar fram-
kvæmdir yrðu miklu dýrari en
þær þyrftu að vera. Enda hef-
ur það ekki farið fram hjá bæj-
arbúum, þegar þeir hafa átt tök
á því að fylgjast með einstökum
smáverkum á vegum bæjarins
þá virðast þau hafa orðið óeðli-
lega dýr. Má sem dæmi nefna
það litla, sem byrjað var að rífa
fyrir húsmæðraskólanum, að
það skyldi kosta á þeim tíma
kr. 106 þús. eða gott íbúðar-
verð.
KR íslandsmeist-
ari í utanhúss
handknattleik
karla
Dagana 16. til 19. ágúst fór
íslandsmeistaramót í handknatt-
leik (utanhúss) karla í meistara-
flokki, fram hér í bæ. Mótið var
haldið í Engidal og sá ÍBH um
það en framkvæmdastjórnina
skipuðu: Jón Magnússon form.,
Jón Egilsson og Ólafur Thordar
sen. Þátttakendur í mótinu voru:
ÍBH, Hafnarfirði, KR, Valur,
Víkingur og Þróttur öll úr Rvík.
Leikar fóru þannig; Þróttur
—Valur 2:8, KR — ÍBH 11:8,
Þróttur — Víkingur 12:18, Val-
ur — KR 5:7, ÍBH — Víkingur
13:13, Þróttur — KR 1:15, Valur
— ÍBH 4:13, KR — Víkingur
8:2, Þróttur — ÍBH 4:12 og Val-
ur —• Víkingur 8:8. íslandsmeist
arar 1952 í handknattleik karla
varð því KR með 8 stig, nr.
2 var ÍBH með 5 stig, nr. 3
Víkingur með 4 stig, nr. 4 Val-
ur með 3 stig og nr. 5 Þróttur
með ekkert stig. Dómarar móts-
ins voru Hannes Sigurðsson og
Haukur Bjarnason.
Þetta er fimmta árið, sem ís-
landsmeistaramót er haldið í
þessari grein og hafa íslands-
meistarar verið sem hér segir:
Ármann árin 1948 og 1949,
Fram 1950, Valur 1951 og svo
KR í ár.
Tekinn til athugunar.
Meðal annars, sem nefnd sú,
er skipuð var til að athuga
rekstur bæjarfyrirtækja og bæj-
arstofnana, athugaði var þessi
liður fjárhagsáætlunarinnar en
hann hefur jafnan verið stærsti
liðurinn. Er þar meðal annars
bent á, að undanfarin ár hafi
verið tveir verkstjórar í bæjar-
vinnunni og að hvor þeirra fyr-
ir sig hafi sinn flokksstjóra. það
hefur því verið unnið í tveimur
flokkum. Síðustu árin hefur
verið unnið að lagningu nýrrar
vatnsveitu og hefur að sjálf-
sögðu þurft verkstjóra yfir
þeirri vinnu og var annar verk-
stjóri bæjarins þar en hinn í
bæjarvinnunni. En nú er þetta
á annan veg, þar sem fram-
kvæmdum við vatnsveituna er
lokið. Benti nefndin á í því sam
bandi, að athugandi væri, þeg-
ar vinna þessi færðist inn í bæ-
inn, hvort nauðsynlegt væri að
hafa tvo aðalveirkstjóra. Væri
það einkum með tilliti til hagnýt
ingar þess vinnuvélakosts, sem
bærinn hefði á að skipa, því
nauðsynlegt væri að hann hag-
nýttist sem bezt, svo að aukin
afköst við notkun hans yrðu til
að gera verkin sem ódýrust fyr-
ir bæinn.
Réttilega bent á.
Það er einmitt þetta atriði,
sem hefur verið þannig í fram-
kvæmd hér í bænum, að til stór-
tjóns hefur verið fyrir bæjarbúa.
Bærinn á mjög ófullkominn
vinnuvélakost og hefur vélun-
um verið skipt milli vinnuflokk-
anna og svo hefur lítið eða
ekkert samstarf verið á milli
þeirra. Þannig hafa ýms verk
verið unnin á frumstæðasta hátt
enda þótt bærinn hefði vél til
að vinna þau,. af því viðkom-
andi vél var hjá þeim flokki,
sem ekki vann verkið, stundum
í notkun, stundum e. t. v. ekki.
Hefur það jafnvel sézt, að á-
mokstursvél hafi verið látin
moka á einn eða tvo bíla, þegar
það langt var að keyra, að hún
hefði haft undan að moka á
miklu fleiri bíla. Þannig má
nefna margt, sem lagfæra þyrfti
til að Bæjarbúar fengju meiri
framkvæmdir fyrir fé sitt en nú
er og skilyrði þeirra til að lifa í
þessum bæ bötnuðu.
Tillögur Sjálfstæðismanna.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðís-
manna hafa þráfaldlega borið
fram tillögur um bætta stjórn á
þessum málum en á það hefur
AB-flokkurinn hér í bæ ekki
mátt heyra minnst, enda virðist
það hafa verið hugur þeirra AB-
manna öðru fremur að sjá
nokkrum taumliprum flokks-
gæðingum farborða. Hvað það
kostaði bæjarfélagið og bæjar-
búa hefur verið aukaatriði. Það
hefur því ekki mátt ráða einn
dugandi verkstjóra til að sjá um
framkvæmdir í bæjarvinnunni,
heldur talið nauðsynlegt að
burðast með tvo menn í því
einsmannsstarfi.
Bæjarvinnan sem atvinnuaukn-
ing.
Á liðinn, sem að framan hefur
verið nefndur, er jafnan bent
sem lið til aukinnar vinnu í bæn
um og er það rétt, svo langt sem
það nær. Á það er aftur minna
minnst og lítið eða ekkert athug
að, hvernig vinnunni er hagað,
með tilliti til þess, að sem mest-
ur hluti fari í vinnulaun til
verkamanna og jafnframt að
framkvæmdirnar verði sem
mestar. En það er einmitt mjög
þýðingarmikið atriði að hafa
það í huga, þegar erfitt er um
vinnu, að vinnustundirnar verði
sem flestar. Nefndin leit lítillega
á þessa hlið málsins. Á árinu
1950 var eytt til byggingar nýju
vatnsveitunnar og bæjarvinn-
unnar kr. 2.278,569.42 og skipt-
ist það þannig: Nýja vatnsveit-
an kr. 1.372.608.65 og vinnan
(Framhald á bls. 3).
Sérfræðingur í barna-
sjúkdómum opnar lækn-
ingastofu hér í bæ.
Kristjana Helgadóttir barna-
læknir hefur opnað lækninga-
stofu hér í bæ að Strandgötu 7
og hefur hún viðtalstíma mánu-
daga og föstudaga kl. 5—6.
Það er til mikils hagræðis fyr-
ir bæjarbúa, að sérfræðingur í
þessari grein settist að hér í bæn
um, því miklir erfiðleikar, tíma-
töf og kostnaður er fyrir fólk
að leita í þessum efnum til
Reykjavíkur.