Hamar - 24.12.1952, Síða 6
6
HAMAR
HAMAR
ÚTGEFANDI: Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Páll V. Daníelsson.
(Síniar 9228 - 9394).
AFGREIÐSLA í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29.
HAMAR kemur út annan livern mánudag.
PRENTAÐ í PRENTSMIÐJU IIAFNARFJARÐAR H.F.
Gamlar minningar
>0000000<»Z>00000000000000000000000<^^
Sjólfstæðisfélaganna verður í Góðtemplara-
húsinu sunnudaginn 28. desember kl. 4 e. h.
Aðgöngumiðar verða seldir á sama stað kl.
1 e. h.
SKEMMTINEFNDIN
>00000<>t>00000000000000000^^ 000000000000
SKAK
Sunnudaginn 14. desember s. 1. tefldi skákmeistari Norðurlanda,
Baldur Möller, fjöltefli við 16 Hafnfirzka skákmenn, og urðu úrslit
þau, að Baldur vann 10, tapaði fyrir 5, þeim Sig. T. Sigurðssyni,
Jóni Pálssyni, Aðalsteini Knudsen, Þóri Sæmundssyni og Trausta
Þórðarsyni, og gerði eitt jafntefli, við Guðjón Illugason. Ekki náði
Baldur eins góðum árangri og Friðrik, er hann tefldi hér 16. nóv.
s. 1., enda er tæplega við því að búast, þar sem Baldur er nýkominn
af spítala eftir miklar aðgerðir, og er ekki enn búinn að ná sér
fvllilega.
Ilér með er vakin athygli á því, að Guðjón M. Sigurðsson skák-
meistari T. R. 1952 teflir „klukkuskák" við 10 beztu skákmenn T. II.
„annan jóladag" i Alþýðuhúsinu, og hefst kl. 1,30 e. h. stundvíslega.
Skák sú, sem hér fer á eftir var tefld á skákmóti Köbenhavns
Skakforening, veturinn 1945—1946, Móti þessu var aldrei lokið, enda
var þá hálfgert „hemaðarástand" í Danmörku. Samkomuhúsum var
lokað kl. 10 á kvöldin, enda óku sporvagnar ekki lengur framan af
vetrinum. Með livitt leikur okkar gamalkunni meistari Baldur Möller,
en með svart leikur einn efnUegasti yngri skákmanna Dana, sem
var þá aðeins 17 ára, og varð efstur í sínum riðli, 1. flokks, á Norð-
urlandaskákmótinu sumarið 1946.
SKAK NR. IV.
Hvítt: Baldur Möller
Svart: Palle Ravn
Slavneskvörn.
i. d4 d5 Nú gæti hvítur fengið þráte
2. c4 c6 lætur sér það ekki nægja.
3. Rc3 dxc4 19. DxDb6 RxDb6
4. e4 b5 20. Rc7f Kf7
Rétt er í þessari stiiðu að leika 21. RxH RxR
e5, enda má hvítur þá tæpast 22. Hxa7 Rb6
bjóða mannfórn þá, sem Aljechin
þó leyfði sér í einvíginu við Euwe
1937. Eftir b5 verður fómin mögu
leg (sbr. B. M.—Jens Enevoldsen
í Buenos Aires 1939).
5. a4 e5
6. axb5! exd4
7. Bxc4! Bb4!
Þessi leið er hörkulegri, en und-
anhaldsleið.in, sem J. E. valdi í
fyrrnefndri skák, Be6.
' 8. Rf3 dxRc3
9. Bxf7J Ke7
10. Db3 cxb2f
11. DxBb4J KxBf7
12. Bxb2----------
Hvítur hefur látið mann og aðeins
fengið eitt peð fyrir, en kóngs-
staða svarts er ákaflega óhæg.
12. - - Re7
13. b6! Rd7!
Gagnslaust er fyrir hvítan að leika
14. b7 vegna Bxb7 og Hb8.
14. Db3j Ke8
15. Rg5 Hf8
Mátinu varð að bjarga, en til þess
nægði ekki Dxb6?, vegna 16. Df7 J
og Re6 mátj
16. Re6 Dxb6
17. Rxg7j Kd8
18. Re6j Ke8
Það er sjaldgæft, að hrókað sé svo
langt frammi í tafli sem hér!
23. 0-0 Be6
Nú vár leiktíminn á þrotum og
skákin var aldrei tefld frekar, en
fljótséð er, að svartur fær ekki
varizt, þótt hann eigi „manni
meira“, tvo riddara gegn hrók og
tveim peðum. Til dæmis um á-
framhald má taka: 24. Ba3!, He8;
25. f4!, Bc4; 26. Hcl, Bb5; 27.
f5, Rc4; 28. HxR!, BxH; 29. e5,
og svartur missir riddarann og
hvítur vinnur síðan með tveim
peðum meira, þó ósamlitir bjsk-
upar séu eftir (29.------, Bd5; 30.
f6, Ke6!; 31. HxRJ, HxH; 32.
f6xH, Kd7; 33. Kf2, Bf7; 34. Ke3,
Ke6; 35. Kf4 og síðan ráða g og
h-peð hvíts úrslitum.
Skýringar eftir Baldur Möller.
E. Þ. M.
(Framhalcl af bls. 5)
upp og bárum upp erindið, en
ekki var að tala um að kaup-
hækkun fengist. Nú var efst í
okkur Jóni að fara heim og
vinna ekki en endirinn varð samt
sá, að við unnum með hinum
fram eftir nóttu. Er við komum
á vinnustað morguninn eftir
skellti verkstjórinn því á okkur
að peijar eins og við Jón, sem
ætluðum að sprengja upp kaup-
ið fengju enga vinnu hér fram-
vegis. Y7ið urðum því að labba
heim er aðrir byrjuðu að vinna.
En sagan er ekki öll enn, og að
lokum fengum við Jón kaup-
hækkunina. Rétt eftir að þetta
skeði kom liingað stórt gufu-
skip er „Tejo“ hét, að sækja það
sem til var af verkuðum fiski.
Bryde átti hér verkaðan fisk,
sem átti að fara í sama skip.
Jón heitinn Mathiesen var verk-
stjóri, en var alveg mannalaus.
Bauð hann því okkur og öðrum
tveimur mönnum 25 aura um
tímann, til að róa uppskipunar-
skipunum á milli og losa úti.
Skipað var út í tveimur stöðum
frá Vídalínsútgerðinni, við Bryd
esbryggju og Egilsensbryggju,
er var suður undir Hamri. Nú
vildi svo til að á öðrum degi er
skipað var út, að skip er fór
hlaðið fiski frá Egilsensbryggju
lenti á gömlum bryggjubúkka
út á leirunni og sat þar fast. Ut-
fall var og fór skipið fljótt að
hallast. Öll skip voru ýmist á
leið út, eða lágu við skipslilið
full, því þetta var á kaffitíma
hjá þeim dönsku. Eina skipið
sem í landi var, var það sem
við Jón vorum á. Mathiesen
vildi Ijá okkur og skipið til að
losa fiskinn úr skipinu, sem nú
var farið að hallast ískyggilega
mikið á búkkanum. En við Jón
vorum ekki ánægðir með þetta,
heldur settum upp að fá vinnu
það sem eftir var haustsins þeg-
ar unnið væri, fyrir 25 aura um
tímann, þó aðrir ynnu fyrir 20
aura. Að Jiessu gekk Blöndal og
efndi. En vinna fór minnkandi
og ekki var Vídalínsfélagið hér
lengur en þetta ár.
Eitt af því sem mér er minn-
isstætt frá þessu sumri er J)að,
að mér — sem ekki gat stundað
sjó vegna sjóveiki, var treyst til
að leiðbeina skipi hér inn f jörð-
inn. En nú skal ég segja ykkur
hvernig það atvikaðist að ég
varð „lóðs“.
Þetta sumar var mikið um
skipakomur hingað, bæði segl-
og gufuskip. Einn morgun er ég
var að ganga til vinnunnar, sé
ég tvö skip út á ,Hrauninu‘ út af
Hvaleyrarhöfða með Jóðsfána
uppi. Þegar ég kem vestur að
Linnetsbryggju, eru þeir þar við
bát og ætla að fara að setja nið-
ur, Gísli Jónsson lóðs og Einar
Jóhannesson. Ég set bátinn nið-
ur með Joeim, og Gísli fær mig
ti! að koma út með J>eim. Það
var svolítið sunnan kul og stóð
þ>ví beint út fjörðinn. Var því
'strax mastrað og siglt út. Er
við komum út fyrir Fiskaklett,
sjáum við hvar Joriðja seglskip-
ið kemur fyrir Melhöfða og
siglir suður. Það er líka með
lóðsflaggi. Fyrsta skipið er við
komum að var lítil „Foranagter“
skonnorta ensk, hét hún ,Crabic‘
og hafði komið áður til Fjarðar-
ins. Mr. Ward átti hana. en
hann var þá hér og keypti svo-
kallaðan labrafisk. Gísli lét Ein-
ar fara upp í skonnortuna, og
átti hann að leiðbeina henni inn.
Nú var haldið að næsta skipi.
Það var dönsk skonnorta frá
Bodö og hét Sverdrup hlaðin á
þriðja hundrað smálestum af
kolum til Vídalínsfélagsins. Við
lögðum að hlið skipsins en fór-
um ekki upp og bað Gísli það
að bíða, meðan við vorum að
vita hvað þriðja skipið vildi. En
nú fór sjósóttin að ásækja mig
og Ægir fékk sinn skatt meðan
við héldum að þriðja skipinu.
Þriðja skipið var skonnort-
brigg með saltfarm og átti að
fara til Reykjavíkur. Hélt skip-
stjórinn að Hafnarfjörður væri
Reykjavík, vegna skipakomunn-
ar. Vildi hann fá lóðs til Reykja-
víkur, og varð úr að Gísli fór
með honum en sigldi áður þann
ig að ég átti auðvelt með að
ná Sverdrup sem ég átti að
fylgja inn. Góður spölur var að
hinu skipinu er Gísli sleppti
mér. Ég leysti utan af fram-
seglinu, mastrið stóð uppi, setti
í spritið og kom fyrir fokku, en
stýrði svo með ári.
Mér gekk vel að ná Sverdrup,
ganga frá seglum og festa bát-
inn við skipið. Meðan ég var
að þessu kveið ég mest fyrir
sjósótt, bjóst við að skipstjóra
mundi ekki þykja lóðsinn burð-
ugur ef hann væri með sjósótt
í ládeyðunni. Er ég kom til skip-
stjóra spurði hann mig hvort ég
væri lóðs, ég sagðist ekki vera
það, en jafnframt að ég væri
velkunnugur leiðinni inn, og nú
tækjum við fyrst slag suður.
Fjórum sinnum þurfti að ,venda‘
áður en inn á leguna var komið,
og talsvert fann ég til mín, þeg-
ar ég kallaði að láta akkerið fara,
náttúrlega skipaði ég J>að á
dönsku, og eins þegar venda
þurfti. Skipstjóri bauð mér vín,
en ég þáði ekki og gjalda Jnirfti
ég Ægir fórn, er ég réri í land,
en það gerði ekki mikið til, þar
sem Jreir dönsku sáu það ekki.
Ég fékk góða Jróknun hjá
Gísla fyrir lóðsunina, en skipið
risti 14/á fet, var með 280 lestir
af kolum og mig minnir að lóðs-
gjald væri þá kr. 2.00 á hvert
dýptarfet.
Þegar maður fer að hugsa um
liðna tímann þá rifjast margt
upp. Þetta sumar vaj- það líka,
að ég fór 3 ferðir gangandi til
Reykjavíkur sama daginn fyrir
Vídalínsfélagið. Það sem ég
flutti voru bréf og seinast aðeins
eitt bréf og smásendingu er
Jjurfti að komast í póst með
skipi, er fór til útlanda þá um
kvöldið. Ég fór fyrstu feiðina
eftir að ég hafði drukkið morg-
unkaffið — j>á var enginn kaffi-
tími gefinn, en hver og einn
drakk kaffið ]>ar sem hann \'ar
staddur, Jiegar honum hafði ver-
ið fært ]>að að jieiman, þá voru
heldur engir kaffibrúsar til að
halda því heitu, — og úr sein-
ustu ferðinni kom ég um 8 leyt-
ið. I J>essum ferðum hef ég ])ví
verið 8—9 stundir í tímavinnu
og fengið fyrir allar ferðirnar
kr. 1.60—1.80. Það Jrætti lítið nú
fyrir 3 Reykjavíkurferðir. Ann-
ars var vani þá að borga kr. 2.00
fvrir ferð til Reykjavíkur.
MESSUR
UM JOLO
Hafna rfja rðark irk ja:
Aðfangadag; Aftansöngur kl.
6.
Jóladag: Messa kl. 2.
Gamlárskvöld: Aftansömiur
kl. 6.
Nýársdag: Messa kl. 5.
I Fríkirkjunni:
Aðfangadag: Aftansöngur kl.
8,30.
Jóladag; Messa kl. 2.
Annan jóladag: Barnaguðs-
þjónusta kl. 2.
Gamlársdag: Aftansöngur kl.
8,30.
Nýársdag: Messa kl. 2. Séra
Guðbrandur þjörnsson, fýrrv.
prófastur, prédikar.
Jólaiag;naðiir
Jólafagnaður Sjálfstæðisfélag-
anna verður í Góðtemplarahús-
inu sunnudaginn 28. des. kl. 4.
Aðgöngumiðar verða seldir á
sama stað frá kl. 1 e. h.
Árshátíð
Árshátíð F. U. S. Stefnis verð-
ur í Sjálfstæðishúsinu annan
jóladag kl. 8,30 e. h. Y7erða J>ar
ýms skemmtiatriði.
Aðgöngumiðar verða seldir
sama dag í Sjálfstæðisliúsinu kl.
4-7 e. h.
Gömlu dansarnir
G. S. H.-khúbburinn heldur
gömlu dansana í Góðtemplara-
húsinu annan í jólum kl. 9 og
verða aðgöngumiðar seldir á
sama stað frá kl. 7.