Hamar - 24.12.1952, Blaðsíða 7
HAMAR
7
Landnámskona
(Framhald af bls. 5)
fjögrarúðugluggi í bakgaflinn,
gólfið lagt í baðstofu og gang-
inn og upp var risinn snotur bær
sem Kristín kallaði hús og leyfði
engum í sín eyru að kalla ann-
að. Þá færði hún heim rúm-
stæði og lítið borð setti hún und
ir baðstofugluggann. Olíuvél
kom hún með og setti hana á
kassa í ganginum, sem nú var
kallað eldhús. Annar kassi reis
þar upp á endann með leirtaui.
Þar var einnig pottur, ketill og
kaffikanna með öllu tilheyrandi
og svo flutti hún inn og ný land-
námskona hafði tekið sér ból-
festu í Hafnarfirði.
Kristín var föst í þeim ásetn-
ingi sínum að búa að sínu. Lifa
af því sem tvær hendur gætu
aflað. Ekki var hún margskipt-
in en góður nágranni. En það
fundu allir þar sem hún fór,
var kona sem ekki lét þoka sér
um fet, og þar sem hún sat,
sat kona sem með sjálfri sór
fann að sætið var fullskipað og
hugðist ekki víkja fyrir neinum.
Kom þetta m. a. fram í því er
nú skal greina. Kristín var kona
kirkjuirækin og var alla tíð í
þjóðkirkjusöfnuðinum, samt sótti
hún allar messur í Fríkirkjunni.
í hvorri kirkjunni sem hún var,
x &
sat hún ætíð í sama sætinu. En
væri einhver kominn í sætið á
undan henni, sem ekki bar oft
við, þá stjakaði hún við þeim
manni eða konu og hætti ekki
fyrr en sá hafði þokað um set.
Ekki hafði hún orð um þetta,
en allir viku fyrir ytni hennar.
Kristín tók upp sálmabók sína
og söng í kirkjunni mikilli röddu
en jafnaðarlegast var hún hálf-
tóni eða heiltóni neðar en söng-
fólkið, en hún söng samt. Ekki
sparaði hún að fara til prests
þess er þjónaði og þakka honum
fvrir að embætti loknu, og
fannst gárungunum að hún riðj-
ast helst til fast um og höfðu
það í skimpingum, að við þessa
eða hina messuna hefði Kristín
Asbjarnar verið nærri búin að
stíga niður af sér svuntuna eða
pilsið.
Alltaf fór Kristín til altaris,
þegar sú þjónusta var um hönd
höfð í þjóðkirkjunni. Kom hún
þá ætíð til mín og bað mig að
hnýta á sig slifsið. Vildi hún
vera vel til höfð þá, er hún
gengi til guðs borðs. Einnig bað
hún mig um ilmvatn í barminn.
Þóttist hún þá vera reiðubúin
að ganga til heilagrar kvöldmál-
tíðar með hverjum og einum.
Um þá prestana, séra Árna
Björnsson og séra Olaf Olafs-
son, hafði hún þessi ummæli
eitt sinn: „Séra Árni er ágætur
guðsprestur, en séra Olafur er
ágætur veraldarprestur“.
Þegar Kristín hafði búið noklc
ur ár í bænum sínum, húsinu
sínu, eins og því hefur verið
lýst hér að framan, þóttist hún
mega til með að stækka það
svolítið, enda vera þess um-
komin. Fékk hún þá enn föður
minn sér til hjálpar. Lét hún
byggja eldhús við gaflinn á
gamla bænum. Kom þá hurð á
vegginn þar sem glugginn hafði
áður verið. Þá kom líka lítit
kolaeldavél í eldhúsið. En
gluggi se.ttur á norðurvegg, svo
ekki væru niðamyrkur í gang-
inum.
Hús Kristínar stóð sem næst
þar sem nú er Vitastígur 6 B
og bjó hún þar ein til dauða-
dags.
Margt fleira væri hægt að
segja frá Kristínu, en hér verð-
ur staðar numið.
Gisli Sigurðsson
Gleðileg jól! $ i 1
Farsælt nýár! ! t 11
Soffía og Halldóra í i 1 i
'V. i í
fl
Gleðileg jól! 11 X >1
Farsælt nýár! I í 1 $ í i II
\ i
Fimleikafélag Hafnmfjarðar óskar öll-
um\félögum sínum og velunnurum
gleðilegra jóla
og farsæls nýárs með þakklæti fyrir líðandi ár.
Gleðileg jól!
Fcirsælt nýár!
Þökkum viðskiptin á líðandi ári.
Prentsmiðja Hafnarfj^rðar h.f.
Verkamannctfélagið Hlíf
Gleðileg jól!
Farsælt nýár!
Þvottahúsið Fríða
HAMAR
Gleðileg jól!
Farsælt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin
á líðandi ári,
Húsgagnav.st. Kirkjuv. 18 ý ^
Hannes H. Sigurjónsson '' 'v
......:..............i I
11
Gleðileg jól!
ósfeftr öllum
HftfnfírÖin0um 09
öðrum (esendum
sÍDum
gleði(egri) jóla
09 9mfuríks
bmftndi nrs.
Garðarsbúð
JOLAMYAPIB
Hafnai*f|arðai*bío
Jólamynd Hafnarfjarðar Bíós
er fjörug og skemmtileg dans-
og söngvamynd í litum, frá 20th
Century Fox og Technicolor.
Með aðalhlutverk fara hin
fræga dansmær Betty Grable og
gamanleikarinn Dan Dailey,
sem eru kvikmyndahúsgestum
vel kunn.
Söguþráðurinn er um fagra
dansmær, Bonny (Betty Grable),
og eiginmann hennar, Skid (Dan
Dailey), störf þeirra á sviði list-
arinnar. Dansmærin heillar alla
með danssnilld sinni, en eigin-
maðurinn með liinni frábæru
kímnigáfu. Lífið virðist leika
við þessum ungu og hamingju-
sömu hjónum, þegar Bakkus ber
að dyrum hjá þeim.
Skid á erfitt með að neita sér
um vín og veldur það honum
miklum erfiðleikum í starfi hans
og hjónabandi. Myndin lýsir á
hugnæman hátt baráttu Bonny
fyrir því að Skid geti haldið á-
frarn á braut listarinnar og að
hjónaband þeirra megi vera far-
sælt.
En þrátt fyrir alla erfiðleika
endar myndin vel eins og vera
ber.
Jólamynd barnanna er syrpa
af teiknimyndum, þar á meðal
„Kötturinn og músin“.
Óþarft er að fara mörgum
orðum um þær, því öllum er
kunnugt um, hversu mikilla vin-
sælda Walt Disney teiknimynd-
irnar njóta meðal barnanna.
Hæjarbío
Jólamyndin í Bæjarbíói er
Heillandi líf og segir hún frá
ungum manni, Brooks (Bing
Crosby), og hestinum hans.
Hann á ekki annars kostar en að
velja á milli hestsins og unnust-
unnar og valdi hann hestinn.
En þessi atburður leiðir til
þess að Brooks vinnur hug ann-
arrar stúlku og verður endir
myndarinnar eins góður og á
verður kosið.
Barnamyndin verður Einu
sinni var, sem er fjögur ævin-
týri. Það fyrsta er um „barna-
sirkus“, annað er um Lísu litlu,
en liún er aðeins brúða á dag-
inn en dansmær á nóttunni og
kemst þá í alls konar ævintvri.
Þriðja ævintýrið segir frá litl-
um dreng, sem smíðar sér bíl
og tekur þátt í kappakstri á hon-
um og vinnur sigur. Þá er síð-
asta ævintýrið um jólasveininn,
sem er að leggja af stað með
sleðann sinn fullhlaðinn af alls-
konar jólagjöfum. En á aðfanga-
dag kemur það óhapp fyrir að
hesturinn hans veikist, svo að
hann komst hvergi og börnin
biðu gjafanna. Þá kemur uglan
til hjálpar og leysir vandann,
svo að gjafirnar komast til skila
í tæka tíð.
1 Nr. 14/1952. |
| TILKYNNING |
jjj Fjárhagsráð hefur ákveðið eftirfarandi hámarksverð á jjj
jij benzíni og hráolíu: jjj
jjj 1. Benzín hver lítri kr. 1.70
jjj 2. Hráolía hver lítri kr. 0.75
jjj Að öðru leyti haldast ákvæði tilkynningar nr. 10/1952 jjj
jjj frá 31. maí 1952.
Reykjavík, 20 desember 1952.
Verðlagssknfstofan.
GSH GSH
Gömlu dansarnir
verða í Góðtemplarahúsinu í Hafnarfirði annan í jólum
kl. 9 e. h.
Aðgöngumiðar ó sama stað frá kl. 1 e. h.
G S H-klúbburinn
(Styrktarsjóða Góðtemplara, Sjómannafélags og Hlífar)