Morgunblaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.11.2010, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 2. NÓVEMBER 2010 Kristján Jónsson kris@mbl.is Keflvíkingar hafa ekki byrjað leiktíðina vel í Iceland Express deildinni í körfuknattleik karla í haust og hafa tapað þremur leikjum af fimm. Sú staðreynd er að einhverju leyti til komin af því að Bandaríkjamaðurinn Valent- ino Maxwell gat ekki leikið vegna hnémeiðsla. Hann mætti þó til leiks gegn KR í síðustu um- ferð og skoraði 21 stig. Þar sem Keflvíkingar ákváðu að bíða eftir því að hann yrði leikfær, frekar en að senda hann heim, bendir það til þess að hér sé um öfl- ugan leikmann að ræða. Serbinn Lazar Trif- unovic byrjaði frábærlega í sínum fyrsta leik og skoraði 26 stig gegn KR og tók 10 fráköst. Þetta bendir til þess að Keflvíkingar séu í svip- uðum málum og í fyrra varðandi gæði erlendra leikmanna. Verði það raunin má nánast gera ráð fyrir Keflvíkingum í toppbaráttunni, þrátt fyrir að þeir hafi tapað nokkrum stigum í upphafi deildarinnar. Á meðan mörg önnur lið hafa þurft að ganga í gegnum miklar breytingar í sínum leikmannahópum þá er leikmanna- kjarninn sá sami í Keflavík. Sverrir Þór Sverr- isson er reyndar hættur körfuknattleiksiðkun en hann var í stóru hlutverki hjá liðinu í úr- slitakeppninni. Að öðru leyti er um sömu lyk- ilmennina að ræða og undanfarin ár. Gunnar Einarsson, Hörður Axel Vilhjálmsson, Jón Nordal Hafsteinsson og Sigurður Þor- steinsson munu mynda hryggjarsúluna í lið- inu. Í sumar var talið líklegt að Sigurður og Hörður Axel myndu hverfa á braut og reyna fyrir sér erlendis en úr því varð ekki. Hörður Axel er leikmaður sem getur gert gæfumuninn fyrir Keflavík. Hann hefur mikla hæfileika og hefur margsinnis sýnt hvað í hon- um býr. Gallinn er bara sá að hann hefur nán- ast aldrei gert það þegar mest er undir og við slíkar aðstæður á hann eftir að sanna sig. Hörður hefur nú aldeilis menn í kringum sig í Keflavík til að læra af. Morgunblaðið/hag Þjálfarinn Guðjón Skúlason á langa sögu að baki í körfuboltanum í Keflavík. Sami kjarni leikmanna í Keflavík Keflavík tefldi fram öflugum er-lendum leikmönnum á síðustu leiktíð, þeim Draelon Burns og Urule Igbavboa, en þeir eru báðir horfnir á braut. Burns varð fyrir meiðslum í úrslitakeppninni og Nick Bradford hafði félagaskipti úr Njarðvík yfir Keflavík og lék með í úrslitarimmunni gegn Snæfelli.    Einn reyndastileikmaður Keflavíkur, Sverrir Þór Sverrisson, er hættur en hann hefur lengi þótt vera í hópi öfl- ugustu varn- armanna deild- arinnar. Davíð Þór Jónsson er einnig hættur, Guðmundur Auðunn Gunnarsson fór til FSu og Almar Guðbrandsson færði sig yfir til Grindavíkur. Við þetta má bæta að leikstjórnandinn Arnar Freyr Jóns- son gekk aftur í raðir Keflvíkinga frá Grindavík að loknu síðasta tíma- bili. Hann staldraði hins vegar stutt við í þetta skiptið og hélt til Dan- merkur í ágúst.    Tveir íslenskir leikmenn bættustvið leikmannahóp Keflavíkur. Sigmar Logi Björnsson kom frá Tindastóli og Halldór Örn Hall- dórsson snýr aftur úr meiðslum.    Keflavík mun aftur tefla framtveimur erlendum leik- mönnum. Annars vegar er það Bandaríkjamaðurinn Valentino Maxwell en hann hefur lítið leikið með enn sem komið er vegna hné- meiðsla. Hins vegar er um að ræða Serbann Lazar Trifunovic sem er nýkominn í bítlabæinn. Trifunovic er 207 cm og mun væntanlega láta finna fyrir sér undir körfunni en Maxwell er öllu liprari og getur leik- ið hvort heldur er sem bakvörður eða framherji.    Guðjón Skúla-son stýrir Keflavíkurliðinu og gerði það einn- ig í fyrra. Guðjón tók við fyrir rúmi ári af hinum sig- ursæla Sigurði Ingimundarsyni sem þjálfaði Keflavíkurliðið árum saman. Guðjón fór með Keflavík alla leið í úrslit Ís- landsmótsins en þar tapaði liðið fyrir Snæfelli. Guðjón hafði áður þjálfað Keflavíkur í eitt ár og gerði það ásamt Fal Harðarsyni tímabilið 2003-2004. Þeir félagar vörðu þá Ís- landsmeistaratitil félagsins. Guðjón átti afar farsælan leikmannaferil og lék átján leiktíðir með Keflavík og eina með Grindavík. KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Keflvíkingar eru lítið í því að flækja hlutina þegar kemur að markmiða- setningu og þess háttar í körfubolt- anum. Nálgun þeirra á slík atriði er afskaplega einföld. Þar á bæ vilja menn vinna titla, hafa ekki áhuga á öðru og þora að lýsa því yfir. „Ég held að það séu alltaf sömu markmiðin í Keflavík og það er að vinna allt sem er í boði. Við förum í alla leiki til þess að vinna þá og ekk- ert annað. Það liggur við að fólk í Keflavík verði fúlt ef það kemur bara einn titill í hús,“ sagði miðherj- inn Sigurður Þorsteinsson þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til hans. Hugarfarið er greinilega hið sama hjá Keflvíkingum og verið hefur í gegnum tíðina. Að sögn Sigurðar eru heldur ekki miklar breytingar á leikstíl liðsins. Hafa spilað lengi saman „Leikur Keflavíkurliðsins breytist lítið. Menn þurfa að hlaupa eins mik- ið og þeir geta og taka snögg skot. Þannig hefur Keflavík spilað í gegn- um árin,“ benti Sigurður á og segir litlar breytingar á leikmannahópn- um hjálpa liðinu. „Við þekkjumst mjög vel enda spilað lengi saman. Það er mjög fínt og ætti að hjálpa mjög mikið myndi ég halda. Mér líst bara mjög vel á tímabilið. Við byrj- uðum í smáströggli en erum að laga það.“ Öflugir útlendingar Sigurði líst vel á erlendu leik- mennina tvo en ekki er komin mikil reynsla á þá. Valentino Maxwell er nýbyrjaður að spila eftir hnémeiðsli og Lazar Trifunovic er nýkominn til félagsins. „Maxwell átti flottan leik gegn KR á föstudaginn og hann er að koma til. Hann er mjög flottur leikmaður sem getur bæði skotið og keyrt upp að körfunni. Hann gerir flestallt sem þarf að gera. Lazar er einnig flottur. Hann er svipaður og ég á hæð og er sterkur en einnig mjög duglegur. Við erum líka með Jón Nordal og erum því vel settir með hávaxna menn. Ef einhver meiðist þá fylgir því ekki eitthvert vesen. Við þurftum að bæta við okk- ur erlendum leikmanni í fyrra vegna meiðsla nokkurra leikmanna. Það er nóg af mönnum hjá okkur í öllum stöðum og við þurfum ekki að kvarta yfir því í vetur.“ Jöfn og skemmtileg deild Sigurður segist reikna með því að deildin verði jöfn og skemmtileg. Honum finnst margt benda til þess að toppbaráttan muni þróast á svip- aðan hátt og í fyrra þegar mörg lið blönduðu sér í þá baráttu. „Þetta er miklu skemmtilegra en þegar eitt eða tvö lið stinga af. Við sjáum á árangri Hamars að það eru einnig breytingar í gangi. Það er bara skemmtilegt fyrir körfuboltann þótt mér hafi ekki þótt gaman að tapa fyrir þeim.“ Talandi um breytingar þá er upp- eldisfélag Sigurðar, KFÍ, aftur kom- ið í efstu deild. Sigurður er uppalinn á Ísafirði og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með KFÍ. „Ég er bú- inn að bíða lengi eftir því að fá að mæta þeim frá því ég fór til Kefla- víkur. Þetta verður í fyrsta skipti sem ég lendi í því og ég er mjög spenntur fyrir þeim leikjum og þá sérstaklega leiknum fyrir vestan. Ég þekki alveg Jakann og stemninguna þar. Ég var á öðru ári í meist- araflokki þegar KFÍ féll síðast 2006 og lék einnig með þeim í 1. deildinni árið eftir,“ sagði „Ísafjarðartröllið“ Sigurður Þorsteinsson. Einföld markmiðasetning  Litlar breytingar á leikmannahópi Keflavíkur  Svipaðar áherslur og áður  Sigurður Þorsteinsson bíður spenntur eftir því að mæta KFÍ í vetur Ljósmynd/Skúli Sigurðsson Öflugur Sigurður Þorsteinsson er kraftmikill leikmaður og hér reyna tveir Stjörnumenn að halda aftur af honum undir körfunni. Andri Þór Skúlason 17 ára Miðherji (2,00 m) Elentínus Margeirsson 33 ára Framherji (1,95 m) Gunnar Einarsson 33 ára Bakvörður (1,85 m) Gunnar Stefánsson 31 árs Bakvörður (1,85 m) Hafliði Már Brynjarsson 17 ára Bakvörður (1,85 m) Halldór Halldórsson 26 ára Miðherji (2,00 m) Hörður Axel Vilhjálmsson 22 ára Bakvörður (1,94 m) Jón Nordal Hafsteinsson 29 ára Framherji (1,98 m) Ragnar Gerald Albertsson 17 ára Bakvörður (1,95 m) Sigmar Logi Björnsson 20 ára Bakvörður (1,83 m) Sigurður G. Þorsteinsson 22 ára Miðherji (2,05 m) Sigurður V. Guðmundsson 18 ára Bakvörður (1,75 m) Sævar Freyr Eyjólfsson 17 ára Framherji (1,88 m) Þröstur Leó Jóhannsson 21 árs Framherji (1,94 m) Valentino Maxwell 25 ára Framherji (1,93 m) Lazar Trifunovic 23 ára Miðherji (207 m) Leikmannahópurinn KEFLAVÍK VETURINN 2010-2011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.