Hamar - 13.12.1953, Page 9
HAMAR
9
Fríkirkjan 40 ára
Fríkirkjan hér í bæ er 40 ára
í dag, en hún var vígð 13. des.
1913 og verður messað í kirkj-
unni í dag kl. 5.
Strax og Fríkirkjusöfnuðurinn
var stofnaður hófst hann handa
um að koma sér upp kirkju og
sýndi safnaðarfólk þar geysimik
inn dugnað og samhug með því
að gefa bæði fé og vinnu til
kirkjubyggingarinnar, en Dverg
ur h.f. tók að sér að sjá um
smíði hennar. Kirkjan var strax
raflýst og mun vera fyrsta kirkj-
an hér á landi, sem rafljós kom
í. Þá kom hljóðfæri strax í kirkj-
una. Skipt hefur verið um orgel
í kirkjunni 2—3 sinnum og er
það orgel, sem í henni er nú,
það ófullnægjandi, að safnaðar-
stjórnin hefur huga á að endur-
nýja það og fá nýtt orgel og
mun hún fara að vinna að því
nú á næstunni.
Fyrsti prestur Fríkirkjusafn-
aðarins var séra Ólafur Ólafs-
son, síðan séra Jón Auðuns og
af honum tók núverandi prestur
við, séra Kristinn Stefánsson.
Fyrstu safnaðarstjórn skipuðu:
Jóhannes Reykdal formaður,
Egill Egilsson ritari, Oddur
ívarsson gjaldkeri, Jón Þórðar-
son og Davíð Kristjánsson. —
Stofnendur safnaðarins voru 100
manns úr Hafnarfirði og Garða-
hreppi.
Organistar í kirkjunni hafa
verið: Friðrik Bjarnason fyrstur,
Kristinn Ingvarsson, Gísli Sigur-
geirsson, Salomon Heiðar. Guð-
jón Sigurjónsson og núverandi
organisti, Hjörleifur Zóphonías-
son.
Innan safnaðarins hafa starf-
að tvö félög , Kvennfélagið og
Fræðrafélagið og hafa þau ver-
ið kirkjunni til 'mikils styrktar,
bæði við að búa hana sem bezt
ýmsum gripum og búnaði svo
og ekki sízt við þær gagngerðu
endurbætur, sem fóru fram á
kirkjunni nú fyrir tveimur til
þiernur árum.
A 40 ára afmæli safnaðarins
var hafizt handa um fjársöfnun
til að greiða kostnaðinn, sem
varð við að endurbæta kirkjuna
og varð vel ágengt í þeim efn-
um. Er safnaðarstjórnin mjög
þakklát fyrir þann góða stuðn-
ing, sem kirkjan og söfnuðurinn
naut þá.
Safnaðarstjórn skipa nú: Guð-
jón Magnússon form., Jón Ein-
arsson varaform., Gísli Sigur-
geirsson ritari, Jón Sigurgeirs-
son gjaldkeri og Jón Kristjáns-
son. I varastjórn eru Guðjón
Jónsson og Jóhann Tómasson,
en hann hefur verið lengst allra
í safnaðarstjórninni.
Frá Fegrunarfélaginu
(Framhald af bls. 8)
þeir Stefán Jónsson, Kristinn
Magnússon og Þorvaldur Árna-
son.
Meðlimir félagsins eru nú
260 einstaklingar og 6 fyrirtæki.
Stjórn fegrunarfélagsins skipa
nú: Valgarð Thoroddsen, Krist-
inn Magnússon, Ólafur Elísson,
Júlíus Nýborg, Ásgeir Stefáns-
son, sr. Garðar Þorsteinsson og
Stefán Jónsson.
HAM AR
Næsta blað, sem kemur út verð-
ur jólablaðið og verður það
síðasta blaðið á þessu ári.
Fréttatilkynning frá
Landsbanka íslands
Bætur á sparifé.
Samkvæmt lögum um gengisskrán-
ingu, stóreignaskatt o. fl., nr. 22/
1950, 13. gr., svo og bráðabirgðalög-
um 20. april 1953, á að verja 10
milljónum króna af skatti þeirn, sem
innbeinrtist samkvæmt lögunum til
þess að bæta verðfall, sem orðið hef-
ur á sparifé einstaklinga.
Landsbanka Islands er með fyrr-
greindum lögum falin framkvæmd
þessa máls.
Frestur sá, sem settur var upphaf-
lega til að sækja um bætumar, hefur
nú, skv. ákvörðun viðskiptamálaráðu-
neytisins, verið framlengdur til næstu
áramóta.
Hér á eftir er gerð stutt grein fyr-
ir reglum þeim, er gilda um greiðslu
bóta á sparifé.
Skilyrði bótaréttar.
1) Bótarétt hafa aðeins einstakl-
ingar, sem áttu sparífé í spari-
fjárreikningum innlánsstofnana
eða í verzlunarreikningum fyr-
irtækja á tímabilinu 31. desem-
ber 1941 til 30. júní 1946. —
Innstæður á sparisjóðsávísana-
bókum em bótaskyldar, en hins
vegar greiðast ekki bætur á inn-
stæður í hlaupareikningum og
liliðstæðum reikningum.
2) Bætur greiðast á heildarsparí-
fjáreign hvers aðila í árslok
1941, svo framarlega sem heild-
arsparifjáreign hans 30. júní
1946 er að minnsta kosti jafn-
há heildarupphæðinni á fyrri
tímamörkunum. En sé heildar-
spariféð lægra 30. júní 1946 en
það var í árslok 1941, þá eru
bæturnar miðaðar við lægri
upphæðina.
3) Ekki eru greiddar bætur á heild-
arsparifjáreign, sem var lægrí en
kr. 200.00 á öðru hvom tíma-
bilinu eða þeim báðum,.
4) Skilyrði bóta er, að sjtaríféð hafi
verið talið fram til skatts á tíma-
bilinu, sem hér um ræðir. Þetta
skilyrði nær þó ekki til spari-
fjáreiganda, sem vom yngri en
16 ára í lok júnimánaðar 1946.
5) Bótarétt hefur aðeins sparifjár-
eigandi sjálfur á liinu umrædda
tímabili eða ef hann er látinn,
lögerfingi hans.
6) Bótakröfu skal lýst í síðasta lagi
hinn 31. des. 1953, að viðlögð-
um kröfumissi ,til þeirrar inn-
lánsstofnunar (verzlunarfyrir-
tækis), þar sem innstæða var á
mörkunum, 31. desember 1941
og (eða) 30. júní 1946.
Umsóknareyðublöð fást í öllum
sparisjóðsdeildum bankanna, spari-
sjóðum og innlánsdeildum samvinnu-
félaga. Sérstök athygli skal vakin á
því, að hver umsækjandi skal útfylla
eitt umsóknareyðublað fyrir hverja
innlánsstofnun (verzlunarfyrirtæki),
þar sem hann átti innstæðu eða inn-
stæður, sem hann óskar eftir að komi
til greina við úthlutun bóta.
Að öðru leyti vísast til leiðbeining-
anna á umsóknareyðublaðinu.
Heimilt er að greiða bætur þessar
í ríkisskuldabréfum.
Eftir lok kröfulýsingarfrestsins verð
ur tilkynnt, hvenær bótagreiðslur
hefjast og hvar þær verða inntar af
hendi.
Landsbanki íslands.
Kuldnulpur
á börn og fullorðna,
ódýrar.
Skcmman
Sími 9455.
Kristullsvörur
mikið úrval, jji •
aðeins eitt og tvö stykki af hverri tegund. jji
Stebbabúð
Jólabazar. - Strandgötu 39.
Undtrfntnaður
Náttkjólnr
úr Nylon — Rayon — Prjónasilki
f Sokkabandabelti
Lady \ siankbelti
tBrjósthöld
Skemmait
HAFNARFIRÐI* SÍMI:94S5
Það bezta verður ávallt ódýrast!
Hvað vantar (
í hátíðamatinn? j
IH
Meira og glæsilegra vörnúrval 1
en nokkru sinni fyrr.
í hótíðamatinn:
Svínakótelettur, svínasteik, nautakjöt, buff, gullasch, ;j;
hamflettar rjúpur, alikálfakjöt, hangikjöt.
Á kvöldborðið:
Álegg, alls konar, salöt, harðfiskur o. m. fl.
Nýir óvextir:
Appelsínur, epli, vínber, grape fruit, mandarinur, jjj
cítrónur, hnetur.
Þurrkaðir óvextir:
Sveskjur, epli, bl. ávextir, perur, ferskjur o. fl.
Niðursoðnir óvextir:
Perur, kirsuber, ferskjur, plómur, jarðarber, apri- jjj
kósur. jjj
í jólabaksturinn:
Cocosmjöl, Möndlur, Succat, Flórsykur, Súkkulaði, jjj
Syróp, Sulta, Hveiti, Strásykur, Puntsykur, Jurta- jp
feiti, Smjörlíki, Púðursykur, Vanillesykur, Vanille- jjj
stengur, Bökunardropar, Gerduft, Hjartasalt, Carde- jjj
mommur, Cacao, Kanill, Negull, Engifer og margt fl. lij
Jólavörur:
Blómkál, Aspas, Grænar baunir, Gulrætur, Rauð- jjj
beður, Blandað grænmeti, Sandv. Spreed. Salad jji
Cream, Mayonnaise, Pickles, Hindberjasaft, Tomat- jjj
sósa, Bovril, Oxo, Svið, Rækjur, Barnamjöl og margt jjj
fleira.
Koníektkassar, mikið úrval.
Öl, gosdrykkir. Spil, margar tegundir.
Kerti: íslenzk og dönsk.
Jólahangikjötið auðvitað fró STEBBABÚÐ.
GERIÐ JÓLAPÖNTUN YÐAR SEM FYRST
Pantið í tíma. Pantið í síma 9291 og 9991.
$tebbftbijð b.f. (
Linnetstíg 2.
Fjölbreytt úrval af jólagjöfum.
Verzlun Berg:þórn Ijborg
Sími 9252.
Nöiigrmenii!
Karlakórinn „Þrestir" óskar eftir nokkrum söngmönnum.
Upplýsingar í síma 9393.