Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Evrópuslagur Sverre Jakobsson ætlar að taka vel á móti Haukunum í kvöld. Mætir þeim sem
leikmaður Grosswallstadt í Þýskalandi. Ekkert vanmat í gangi hjá Þjóðverjunum. 2
íþróttir
Íþróttir
mbl.is
Það verður sannkallaður Íslend-
ingaslagur í Sparkassen-höllinni í
Kiel á morgun þegar Þýskalands-
og Evrópumeistarar Kiel taka á
móti Rhein-Neckar Löwen í
fimmtu umferð riðlakeppni Meist-
aradeildarinnar.
Kiel, sem Alfreð Gíslason þjálfar
og Aron Pálmarsson leikur með, er
með sjö stig í efsta sæti A-riðils en
lærisveinar Guðmundar Þórðar
Guðmundssonar í Rhein-Neckar
Löwen, sem Ólafur Stefánsson, Ró-
bert Gunnarsson og Guðjón Valur
Sigurðsson eru á mála hjá, eru í
öðru sæti einnig með sjö stig en
markatala liðsins er verri sem
munar einu marki.
Þetta verður fyrsta rimma lið-
anna af þremur sem þau eigast við
í á rúmri viku. Á föstudaginn mæt-
ast liðin aftur í Meistaradeildinni
og þá á heimavelli Rhein-Neckar
Löwen og hinn 1. desember eigast
liðin við á sama stað í deildinni.
„Um Kiel þarf ég ekki mikið að
segja. Þetta er topplið í alla staði
og ljóst að hver einasti leikmaður í
okkar liði verður að spila ef við
ætlum okkur að ná fram hag-
stæðum úrslitum,“ segir Guð-
mundur Þórður á vef Rhein-
Neckar Löwen en liðið tapaði
fyrsta leiknum undir hans stjórn
gegn Flensburg á dögunum.
gummih@mbl.is
Fyrsta lota af þremur
Alfreð og Guðmundur eigast við í toppslag í Meistara-
deild Evrópu Kiel og Löwen mætast þrisvar á viku
Hvorki gengur né rekur hjá liði Los Angeles Clippers í
bandaríska NBA-körfuboltanum. Þetta félag, sem lengi
hefur staðið í skugganum af nágrönnum sínum í Lak-
ers-liðinu, hefur aðeins unnið einn af fyrstu þrettán
leikjum sínum í deildinni á þessari leiktíð. Clippers hef-
ur nú tapað átta leikjum í röð og miðað við tilþrifin á
þessari mynd virðast leikmenn liðsins ekki vita hvort
þeir eru að koma eða fara. Myndin er úr síðasta leik
Clippers sem var gegn Indiana Pacers og tapaði Clip-
pers 80:107. kris@mbl.is
Reuters
Áttunda tap LA Clippers í röð
Hlynur Bærings-
son og Jakob Sig-
urðarson áttu
báðir stórleik
þegar lið þeirra
Uppsala sigraði
Örebro á útivelli
99:89 í sænsku
úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í
gærkvöldi. Hlyn-
ur náði tvöfaldri
tvennu en hann skoraði 18 stig og
tók 12 fráköst. Hlynur hefur tekið
flest fráköst að meðaltali í deildinni
eins og fram hefur komið.
Jakob átti ekki síður frábæran
leik og skoraði 19 stig, tók 5 fráköst
og gaf 8 stoðsendingar.
Helgi Már Magnússon reyndist
sínum fyrrum samherjum í Solna
erfiður á sínum gamla heimavelli í
Solnahallen. Helgi skoraði 12 stig
og tók 6 fráköst í sigri Uppsala
72:67. Logi Gunnarsson var mjög
drjúgur fyrir Solna og skoraði 18
stig en það dugði ekki til að þessu
sinni. Sundsvall og Uppsala eru í
4.-5. sæti en Solna í 6.-7. sæti deild-
arinnar. kris@mbl.is
Íslendingarnir
öflugir í
Svíþjóð
Jakob Örn
Sigurðarson
Birgir Leifur
Hafþórsson úr
GKG heldur til
Spánar í dag til
þess að búa sig
undir 2. stig úr-
tökumótsins fyr-
ir Evrópumóta-
röðina í golfi.
Birgir mun leika
í Andalúsíu, á
Arcos Gardens-
vellinum, 26.-29. nóvember. Birgir
mun dvelja á Spáni við æfingar þar
til mótið hefst. Verði Birgir á meðal
þeirra sem komast áfram á 3. og
síðasta stigið, þá hefst það mót ein-
ungis nokkrum dögum síðar. Birgir
á góðar minningar frá Arcos Gar-
dens en þar fór hann á kostum árið
2007 og komst í framhaldinu inn á
mótaröðina. kris@mbl.is
Birgir Leifur
heldur utan
Birgir Leifur
Hafþórsson
Hanna Guðrún Stefánsdóttir er 31 árs gömul og
leikur sem hornamaður í íslenska landsliðinu í
handknattleik sem fer á EM í Danmörku. Hún hef-
ur verið besti leikmaður Íslandsmótsins und-
anfarin tvö ár og þrisvar sinnum alls, og þá var
hún markadrottning á síðasta tímabili. Hanna var
í 20 ára landsliði Íslands sem lék á HM í Kína fyrir
tíu árum.
Hanna er þriðja leikjahæsta landsliðskona Ís-
lands, á eftir Hrafnhildi Skúladóttur og Berglindi
Írisi Hansdóttur, með 92 landsleiki, og hún er líka
sú þriðja markahæsta frá upphafi með 365 mörk, á eftir Hrafnhildi og
Guðríði Guðjónsdóttur.
Hanna hefur leikið allan sinn feril með Haukum þar til hún gekk til liðs
við Stjörnuna fyrir þetta keppnistímabil.
ÚRSLITAKEPPNI EM KVENNA HEFST EFTIR 17 DAGA
Hanna Guðrún Stefánsdóttir
Grótta hafði bet-
ur gegn ÍR í topp-
slagnum í 1. deild
karla í hand-
knattleik í gær-
kvöldi. Seltirn-
ingar sigruðu
26:21 fyrir fram-
an rúmlega þrjú
hundruð áhorf-
endur en heima-
menn voru einnig
yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:11.
Grótta hefur 13 stig á toppi deild-
arinnar en ÍR kemur næst með 11
stig.
Gleðigjafinn Sigurður Eggertsson
og Þórir Jökull Finnbogason voru
markahæstir hjá Gróttu með fimm
mörk hvor en Hjalti Þór Pálmason
og Árni Benedikt Árnason komu
næstir með fjögur hvor. Sigurður
Magnússon var markahæstur Breið-
hyltinga með sex mörk. kris@mbl.is
Grótta
vann ÍR í
toppslagnum
Sigurður
Eggertsson
Úrvalsdeildarlið HK er nú statt í
Volgograd í Rússlandi þar sem liðið
mun leika tvo leiki gegn CH Kaus-
tik í Evrópukeppni bikarhafa í
handknattleik karla. Leikirnir fara
fram í dag og á morgun.
HK hefur komið talsvert á óvart í
N1-deildinni í haust en liðið missti
margra sterka leikmenn úr sínum
röðum. Liðið er nú í öðru sæti deild-
arinnar með 12 stig eftir sex leiki.
Toppliðið Akureyri er með jafn
mörg stig en á leik til góða á Kópa-
vogsliðið.
kris@mbl.is
HK leikur í
Rússlandi