Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 3
VIÐTAL Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Við vitum nærri ekkert um þetta lið og rennum þar af leiðandi nokkuð blint í sjóinn,“ sagði Stella Sigurð- ardóttir, handknattleikskona hjá Fram, spurð um viðureignirnar tvær við Podatkova frá Úkraínu í 3. um- ferð Evrópukeppni bikarhafa. Báðir leikirnir fara fram hér á landi. Sá fyrri klukkan 19 í dag en sá síðari klukkan 16 á morgun. Stella segir stuðning áhorfenda mikilvægan. „Við ætlum okkur að komast í næstu umferð og ljúka þar með árinu með Fram án taps, bæði í deild og Evr- ópukeppni,“ sagði Stella. „Við höfum frétt að lið Podatkova er skipað frekar ungum leik- mönnum. Það kemur bara allt í ljós þegar leikurinn hefst hvernig þetta lið er. Við munum búa okkur vel undir leikina sem eru okkur mik- ilvægir því við erum ákveðnar í að fara áfram í næstu umferð keppn- innar,“ segir Stella og bætir við að þátttakan Í Evrópukeppninni skipti miklu. Hún er ákveðið krydd í til- veruna. „Bæði hafa leikirnir verið fá- ir í deildinni hér heima það sem af er, auk þess sem við fáum ekki mikið út úr sumum leikjunum þar sem mikill getumunur er á milli okkar og margra liðanna.“ Fram komst áfram úr annarri um- ferð eftir að hafa lagt svissneska lið- ið Brühl í tveimur viðureignum ytra. Stella segir miklu máli skipta að fá tækifæri til að spila báða leikina við Podatkova hér á landi. Einnig skipti stuðningur áhorfenda miklu. „Ég vil skora á alla handbolta- áhugamenn að mæta á leikina og styðja við bakið á okkur,“ segir Stella en leikmenn Framliðsins fjár- magna hluta af kostnaðinum við þátttökuna í Evrópukeppninni. Þess vegna skiptir hver króna sem kemur í kassann í aðgangseyri miklu máli. „Við höfum selt ýmiskonar varning í haust og í vetur til að fjármagna þátttöku okkar. Síðan stóðum við fyrir kvennakvöldi um síðustu helgi í samvinnu við stjórnina. Allt til að safna peningum til að greiða kostnað vegna Evrópukeppninnar. Við erum alveg til í að halda áfram að safna því okkur langar að ná lengra í keppn- inni,“ segir Stella sem samhliða spilamennskunni hjá Fram er einnig í íslenska landsliðinu sem hefur und- irbúning fyrir lokakeppni Evr- ópumótsins á mánudaginn. Fyrir leikinn í kvöld, sem hefst klukkan 19, í íþróttahúsi Fram við Safamýri stendur félagið fyrir fjöl- skyldu-grillveislu þar sem boði verða hamborgarar og gos gegn vægu gjaldi. Hægt verður að kaupa aðgöngumiða sem gildir á báða leik- ina á kr. 1.500. Morgunblaðið/Ómar Hörkuleikir Stella Sigurðardóttir og samherjar í Fram freista þess að slá úkra- ínska liðið út í tveimur leikjum í Safamýrinni um helgina.  Fram tekur á móti Podatkova Ætlum okkur að fara lengra ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010 Þriðjudaginn 23. nóvember 2010 kl. 9:00 – 16:00 Íþ ró tt a- og Ó ly m pí us am ba n d Ís la n ds Lyfjamisnotkun og íþróttir Háskóli Íslands í samstarfi við Lyfjaeftirlit ÍSÍ stendur fyrir málþingi um lyfjamisnotkun og íþróttir. Málþingið er hluti af námskeiði á vegum 5. árs nema í klínískri lyfjafræði við HÍ. Meðal þess sem fjallað verður um er lyfjamisnotkun í íþróttum, náttúruefni og fæðubótarefni auk notkunar vefjaaukandi efna og stera. Málþingið fer fram í Háskóla Íslands við Stakkahlíð, í salnum Bratta. Aðgangur er ókeypis og málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir Dagskrá og frekari upplýsingar má finna á www.isi.is Landssamtök eldri kylfinga Aðalfundur LEK verður haldinn í golfskála Keilis (GK) Steinholti 1, 220 Hafnarfirði sunnudaginn 28. nóvember 2010. kl. 14:30 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum samtakanna. 2. Önnur mál. Kaffiveitingar að loknum aðalfundarstörfum. Nánari upplýsingar og fundargöng má nálgast á www.lek.is Stjórnin. Íslenskt skíða-fólk á aldr- inum 15-19 ára tekur nú þátt í Fismótum í Nor- egi. Keppt var í stórsvigi í gær og einnig er stór- svig á dag- skránni í dag. María Guðmundsdóttir náði best- um árangri íslensku keppendanna þegar hún hafnaði í 24. sæti í kvennaflokki. Þrjár höfnuðu á svip- uðum slóðum, Katrín Kristjáns- dóttir í 56. sæti, Freydís Halla Ein- arsdóttir í 58. sæti og Fanney Guðmundsdóttir 59. sæti. Helga María Vilhjálmsdóttir varð í 78. sæti og Erla Ásgeirsdóttir í 88. sæti. Um 140 keppendur tóku þátt í kvennaflokki.    Í karlaflokki stóð Jón Gauti Ást-valdsson sig best íslensku strákanna en hann hafnaði í 28. sæti. Sturla Snær Snorrason kom skammt á eftir í 32. sæti. Róbert Ingi Tómasson varð í 53. sæti. Um 120 keppendur tóku þátt í karla- flokki.    Körfuknatt-leiksdóm- arinn Sigmundur Már Herberts- son er á ferð og flugi þessa dag- ana. Eins og fram hefur komið mun Sigmundur dæma leik TTT Riga og USO Mondeville í Lett- landi hinn 24. nóvember. Sigmund- ur mun í kjölfarið fara utan á ný og dæma í Belgíu 30. nóvember. Um er að ræða leik Antwerpen Giants frá Belgíu og Enterprice BC Dy- namo Moskvu frá Rússlandi í áskorendakeppni Evrópu. Sig- mundur dæmir aftur í Belgíu 1. desember og þá í Evrópukeppni bikarhafa í kvennaflokki. Leikurinn er á milli Lotto Young Cats frá Belgíu og ESB Lille Metropole frá Frakklandi. Fólk sport@mbl.is Ragna Ingólfsdóttir féll í gær út í 16- manna úrslitum Norwegian Inter- national, alþjóðlega badmintonmóts- ins í Noregi, þegar hún beið lægri hlut fyrir Chloe Magee frá Írlandi í odda- lotu. Ragna byrjaði betur og vann fyrstu lotuna 22:20 eftir framlengingu. Mag- ee sneri blaðinu heldur betur við í annarri lotu og vann af öryggi, 21:9, og svo oddalotuna 21:15. Magee var metin sjöunda sterkust á mótinu en Rögnu var ekki raðað fyr- irfram á meðal átta sterkustu. Fyrr um daginn vann Ragna sigur á Sanya Herzig frá Sviss í 1. umferð keppninnar. Ragna vann 21:12 og sú svissneska þurfti síðan að hætta keppni. Kári Gunnarsson og Atli Jóhann- esson kepptu í tvíliðaleik karla í gær og töpuðu fyrir Filip Myhren og Adi- tya Putra frá Svíþjóð, 19:21 og 12:21. Rakel Jóhannesdóttir og Snjólaug Jóhannsdóttir kepptu í tvíliðaleik kvenna og töpuðu fyrir Miu Sejr Niel- sen og Söru Thygesen frá Danmörku, 12:21 og 15:21. vs@mbl.is Ragna féll í oddalotu maður handknattleiksdeildar Hauka, við Morgun- blaðið en hann fer með stuðningsmannaliði Hauk- anna. Frítt á seinni leikinn á Ásvöllum Síðari leikur Hauka og Grosswallstadt verður á Ásvöllum á laugardaginn eftir viku og verður frítt á leikinn í boði Rio Tinto Alcan. „Ég á von á kjaft- fullu húsi þegar við tökum á móti Þjóðverjunum,“ sagði Valdimar. Íslandsmeistararnir fóru út með sitt sterkasta lið að varnarjaxlinum Gunnari Berg Viktorssyni undanskildum sem á við meiðsli að stríða. Haukar slógu út Conversano frá Ítalíu í síðustu umferð með tveimur sigrum á Ásvöllum. gummih@mbl.is í Grosswallstadt Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson segir ekki útilokað að hann spili með Hoffenheim í dag en þá sækir liðið Frank- furt heim í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu. „Þetta lítur miklu betra út í dag og batinn hefur verið skjót- ari en ég reiknaði með. Ég mun alla vega fara með liðinu til Frankfurt og það kemur síðan í ljós á morgun (í dag) hvort ég get spilað eða ekki. Ætli séu ekki helmingslíkur á að ég geti spilað,“ sagði Gylfi Þór við Morgunblaðið í gær. Meiðsli í ökkla tóku sig upp hjá Gylfa í leiknum við Freib- urg um síðustu helgi og gat hann ekki tekið þátt í lands- leiknum gegn Ísrael á miðvikudagskvöldið vegna þeirra. Læknir sem skoðaði myndir af ökklanum mat það svo í fyrstu að Gylfi yrði frá í nokkrar vikur en Gylfi sagði við Morg- unblaðið að læknirinn hefði skipt um skoðun eftir að hafa þreifað á ökklanum og skoðað hann betur. gummih@mbl.is Gylfi gæti spilað gegn Frankfurt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.