Morgunblaðið - 20.11.2010, Blaðsíða 2
VIÐTAL
Guðmundur Hilmarsson
gummih@mbl.is
Íslands- og bikarmeistarar Hauka í
handknattleik verða í eldlínunni í
Evrópukeppninni í dag en þá mæta
þeir þýska liðinu Grosswallstadt í
fyrri rimmunni í 32-liða úrslitum
EHF-keppninnar. Síðari leikurinn
verður á Ásvöllum um næstu helgi.
Landsliðsmaðurinn Sverre Jak-
obsson leikur með þýska liðinu og
þetta verður í þriðja sinn sem hann
mætir löndum sínum í Evrópukeppni.
Varnarjaxlinn mikli var í liði Gum-
mersbach þegar það mætti Reykja-
víkurliðunum Fram og Val fyrir
nokkrum árum í Meistaradeildinni.
Morgunblaðið sló á þráðinn til
Sverre í gær og spurði út í rimmuna
við Íslandsmeistarana.
„Það er mikil spenna hjá okkur fyr-
ir þessu verkefni og ég er sérstaklega
spenntur að fá að mæta löndum mín-
um. Við eigum í smá basli vegna
meiðsla. Skytturnar báðar vinstra
megin geta ekki verið með og það
veikir okkur eitthvað en það duga
engar afsakanir. Það koma bara aðrir
í staðinn,“ sagði Sverre.
Enginn sem heldur að
við völtum yfir Haukana
Þið lítið ekkert á að það sé forms-
atriði fyrir ykkur að vinna Haukana á
ykkar heimavelli?
„Ég get alveg lofað þér því að það
verður ekkert vanmat í gangi hjá
okkur. Við brenndum okkur á því í
bikarnum þegar við féllum úr leik
fyrir liði úr 2. deildinni. Ég myndi
segja að það lið sé ámóta sterkt og
Haukarnir en eftir á að hyggja þá var
vanmat í gangi hjá okkur og það
kann aldrei góðri lukku að stýra. Við
vorum alla vega það lélegir að við
töpuðum þeim leik sem var mikið
reiðarslag. Brennir þú þig einu sinni
þá er ekkert gaman að gera það aftur
og ég trúi ekki öðru en að menn mæti
100% einbeittir í þennan leik á móti
Haukunum. Það er enginn hjá okkur
sem heldur að við séum að fara að
valta yfir Haukana. Við berum virð-
ingu fyrir þeim og við erum þannig
lið að við getum á góðum degi unnið
hvaða lið sem er en á móti getum við
tapað fyrir öllum liðum,“ sagði Sverre
en lið Grosswallstadt er í 10. sæti
þýsku Bundesligunnar, hefur unnið
sex leiki og tapað sex.
Hefði verið hræddari að mæta
Haukum fyrir 2-3 árum
Hefur verið leitað til þín um veita
upplýsingar um Haukaliðið?
„Já, það hefur verið gert. Ég hef
reynt að afla mér upplýsinga um
Haukaliðið hjá hinum og þessum að-
Sverre Jakobsson, leikmaður Grosswallstadt, spenntur að
mæta Haukunum Ekkert vanmat og virðing borin fyrir Haukum
ilum og svo hef ég fengið senda DVD-
diska með leikjum Hauka. Við erum
því flestir með það nokkuð á hreinu
hvernig Haukarnir spila og leggja
upp sína leiki. Maður sér að ákveðin
endurnýjun hefur átt sér stað hjá
Haukunum og ég hefði verið mun
hræddari við Haukaliðið fyrir tveim-
ur til þremur árum. Engu að síður þá
búum við okkur undir erfiðan leik.
Haukarnir hafa engu að tapa. Það
eru strákar í liðinu sem vilja sanna
sig og gera okkur lífið eins leitt og
þeir geta. Svona leikir eru hættulegir
en það yrði gífurlegt áfall ef við
myndum tapa þessu einvígi. Þetta
verður að vinnast með einhverjum
hætti,“ sagði Sverre sem er spenntur
að koma til Íslands um næstu helgi.
„Það er verst að ná ekki einum heil-
um degi til að fara með strákana og
sýna þeim landið okkar fallega en við
þurfum því miður að halda heim á
leið strax á sunnudagsmorgun.“
Ánægður hjá Grosswallstadt
Sverre, sem 33 ára gamall, hefur
verið í herbúðum Grosswallstadt frá
því í ágúst í fyrra og það er ekkert
fararsnið á honum.
„Ég á þetta tímabil og næsta eftir
af samningnum en í honum er ákvæði
um að ég geti bætt enn einu ári við
hann. Grosswallstadt bauð mér samn-
ing til 2013 en ég var ekki tilbúinn að
binda mig nema til 2012 og sjá svo til.
Ég er virkilega ánægður hjá félaginu.
Okkur fjölskyldunni líður vel hér og
ég hef lítinn áhuga á því að færa mig
um set nema eitthvað gríðarlega
spennandi komi upp á. Mitt hlutverk í
liðinu er það sama og í landsliðinu,
það er er binda vörnina saman og það
hefur bara gengið vel.“
Morgunblaðið/Golli
Sterkur Haukarnir mega eiga von á því að Sverre Jakobsson, leikmaður Gross-
wallstadt, fari um þá hörðum höndum í leiknum í Þýskalandi í kvöld.
„Gífurlegt áfall að
tapa þessu einvígi“
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. NÓVEMBER 2010
Grétar Rafn Steinsson gæti spilað sinn 100. leik
fyrir Bolton um helgina þegar liðið fær Newcastle í
heimsókn í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
dag. Með sigri kemst Bolton í 22 stig eða jafnmörg
og Manchester City.
Bæði lið hafa spilað mjög vel það sem af er tíma-
bilinu, Bolton er í 5. sæti með 19 stig og Newcastle
með 18 stig í 8. sæti. Mikið hefur verið talað um
fjárhagsvandræði Bolton undanfarna daga en leik-
menn liðsins virðast ekki láta slíka umræðu á sig
fá. Grétar Rafn Steinsson var í banni í síðasta leik
en ef Owen Coyle ákveður að breyta liðinu sem
vann Wolves 3:2 og spila Grétari verður þetta hans
100. leikur fyrir félagið. Grétar kom til liðsins árið
2008 frá AZ Alkmaar.
Þetta verður ekki bara áhugaverður leikur fyrir
Grétar ef hann spilar heldur er
fyrrverandi hetja og fyrirliði
Bolton, Kevin Nolan að koma
aftur á Reebook Stadium. Nolan
var hjá félaginu í 12 ár og skor-
aði 50 mörk í 345 leikjum.
Nokkuð er um forföll í liði
gestanna en Steve Harper
markvörður, Ben Arfa, Dan
Gosling og Ryan Taylor eru
meiddir og þá er vandræða-
gemsinn Joey Barton í banni
sem og Cheik Tiote. Hjá Bolton eru Kevin Davies,
Ricardo Gardner, Jay ÓBrien og JLoyd Samuel
allir á meiðslalista.
omt@mbl.is
Grétar gæti spilað 100. leikinn
Grétar Rafn
Steinsson
Um 40 manna hópur stuðningsmanna Hauka er
mættur til Frankfurt í Þýskalandi og ætlar að
styðja við bakið á liðinu gegn þýska liðinu Gross-
wallstadt í dag, en liðin eigast við í 32-liða úrslitum
EHF-keppninnar í handknattleik. Leikurinn fer
fram í Grosswallstadt en um hálftíma akstur er
þangað frá Frankfurt. Leikur liðanna hefst klukk-
an 18 að íslenskum tíma, eða klukkan 19 að stað-
artíma.
„Það er góð stemning í hópnum. Við búum okk-
ur undir að sjá góðan og skemmtilegan handbolta-
leik. Við vitum að strákarnir geta spilað betur en
þeir hafa gert í deildinni og ég treysti þeim til að
standa sig vel gegn þessu sterka liði. Svo segir sag-
an að það er ekki auðvelt fyrir þessi útlendu lið að
spila á Ásvöllum,“ sagði Valdimar Óskarsson, for-
Um 40 Haukamenn í
Enska knatt-spyrnu-
sambandið þarf
að borga Liver-
pool 500 þúsund
pund vegna
meiðsla Stevens
Gerrards, fyr-
irliða liðsins.
Gerrard meiddist
á lokamínútum í landsleiknum gegn
Frökkum en Liverpool fór fram á að
hann spilaði aðeins í 60 mínútur.
Gerrard gæti verið frá í allt að 4 vik-
ur en knattspyrnusambandið greiðir
með þessari sekt laun hans á meðan
hann er meiddur.
Enska knattspyrnusambandiðskýrði frá þessu í gær og lagði
áherslu á að greiðslurnar kæmu frá
tryggingafélagi, samkvæmt nýjum
samningum, og Arsenal og Totten-
ham hefðu fengið sambærilegar
greiðslur þegar Theo Walcott og
Jermain Defoe urðu fyrir meiðslum
í landsleikjum.
JermainDefoe, sókn-
armaður Totten-
ham, er búinn að
jafna sig að fullu
af ökklameiðslum
sem hafa haldið
honum frá keppni
í tvo mánuði og
getur spilað í ná-
grannaslagnum gegn Arsenal í dag.
Harry Redknapp, knattspyrnustjóri
Tottenham, staðfesti í gær að Defoe
yrði í leikmannahópi sínum á Em-
irates-leikvanginum.
Nígeríski landsliðsmaðurinn Chi-nedu Obasi, samherji Gylfa
Þórs Sigurðssonar hjá þýska liðinu
Hoffenheim, þarf að gangast undir
aðgerð á sköflungi og verður frá
keppni næstu mánuðina. Obasi er 24
ára gamall framherji sem gekk í rað-
ir Hoffenheim fyrir þremur árum.
Hann hefur skorað 13 mörk í 51 leik
með liðinu en hefur aðeins náð að
spila fjóra leiki með liðinu á þessu
tímabili.
Orri Gústafsson og Haukur Hin-riksson skrifuðu á dögunum
undir nýja tveggja ára samninga við
fyrstu deildar lið KA í knattspyrnu.
Þeir félagar eru báðir fæddir árið
1990 og eru uppaldir hjá félaginu.
Fólk sport@mbl.is
1. deild karla
Fjölnir – Stjarnan .................................26:36
Grótta – ÍR.............................................26:21
Staðan:
Grótta 8 6 1 1 221:193 13
ÍR 8 5 1 2 238:211 11
ÍBV 7 4 3 0 189:174 11
Stjarnan 8 5 0 3 237:194 10
FH U 8 4 0 4 220:224 8
Víkingur R. 8 3 1 4 231:227 7
Selfoss U 7 1 0 6 172:212 2
Fjölnir 8 0 0 8 172:245 0
HANDBOLTI
1. deild karla
FSu – Skallagrímur.............................87:70
FSu: Richard Field 29/13 fráköst, Valur
Orri Valsson 20, Guðmundur Auðunn
Gunnarsson 11, Orri Jónsson 8, Sæmund-
ur Valdimarsson 7, Svavar Stefánsson 6,
Arnþór Tryggvason 4/5 fráköst, Sigur-
björn Jónsson 2.
Skallagrímur: Darrell Flake 19/11 frá-
köst, Halldór Gunnar Jónsson 18, Hafþór
Ingi Gunnarsson 16/6 fráköst, Mateuz
Zowa 10/9 fráköst, Ragnar Ólafsson 5/4
fráköst, Birgir Þór Sverrisson 2.
Þór Þ. – Laugdælir............................106:69
Þór Þ.: Eric James Palm 30/8 fráköst/7
stoðsendingar, Vladimir Bulut 27/17 frá-
köst, Þorsteinn Már Ragnarsson 22, Emil
Karel Einarsson 8/4 fráköst, Baldur Þór
Ragnarsson 6/4 fráköst/9 stoðsendingar,
Hjalti Valur Þorsteinsson 5/4 fráköst,
Bjarki Gylfason 4/5 fráköst, Ágúst Örn
Grétarsson 2, Jónas Ástþór Hafsteinsson
2.
Laugdælir: Bjarni Bjarnason 21, Pétur
Már Sigurðsson 15/5 fráköst, Sigurður
Orri Hafþórsson 14/5 fráköst, Arnór
Yngvi Hermundarson 7/5 fráköst, Haukur
Már Ólafsson 5/9 fráköst, Jón H. Bald-
vinsson 5/6 fráköst/6 stoðsendingar, Bald-
ur Örn Samúelsson 2.
Staðan:
Þór Þ. 6 6 0 615:456 12
FSu 6 5 1 537:443 10
Þór A. 6 5 1 520:456 10
Skallagrímur 6 3 3 475:504 6
Valur 6 3 3 578:507 6
Breiðablik 5 2 3 381:381 4
Ármann 6 2 4 481:556 4
Laugdælir 7 2 5 512:579 4
Leiknir R. 5 1 4 373:480 2
Höttur 7 1 6 484:594 2
NBA-deildin
Indiana – LA Clippers...................... 107:80
Orlando – Phoenix ............................. 105:89
Portland – Denver............................... 86:83
Efstu lið í Austurdeild:
Boston Celtics 11 9 2 81,8%
Orlando Magic 11 8 3 72,7%
Atlanta Hawks 12 8 4 66,7%
Miami Heat 11 7 4 63,6%
Efstu lið í Vesturdeild:
New Orl. Hornets 10 9 1 90,0%
San Antonio Spurs 10 9 1 90,0%
Los Angeles Lakers 12 10 2 83,3%
Dallas Mavericks 10 7 3 70,0%
Svíþjóð
Örebro – Sundsvall...........................89:99
Solna – Uppsala................................67:72
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
Evrópukeppni bikarhafa kvenna:
Framhús: Fram – Podatkova ................ L19
Framhús: Fram – Podatkova ................ S17
Úrvalsdeild karla, N1-deildin:
Kaplakriki: FH – Akureyri............... L15.45
Úrvalsdeild kvenna, N1-deildin:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Stjarnan ......... L13
Kaplakriki: FH – Grótta ................... L13.45
Austurberg: ÍR – Haukar...................... L16
1. deild karla:
Vestmannaeyjar: ÍBV – Selfoss U........ L15
Eimskipsbikar karla, 16 liða úrslit:
Vodafone-höll: Valur 2 – Valur.............. L16
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild karla, IE-deildin:
Ásgarður: Stjarnan – ÍR ................... S19.15
DHL-höllin: KR – Tindastóll............... 19.15
Ásvellir: Haukar – Snæfell .................. 19.15
Úrvalsdeild kvenna, IE-deildin:
Stykkishólmur: Snæfell – Hamar ......... L15
DHL-höllin: KR – Haukar..................... L16
Dalhús: Fjölnir – Grindavík .................. L16
Toyota-höllin: Keflavík – Njarðvík ....... L17
1. deild karla:
Austurberg: Leiknir R. – Breiðablik .... S16
ÍSHOKKÍ
Íslandsmót karla:
Akureyri: SA Víkingar – SR............. L17.30
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Fimmtándu silfurleikar ÍR fyrir börn og
unglinga 16 ára og yngri hefjast í Laug-
ardalshöllinni með morgni og standa yfir
þar í allan dag. Keppt er í öllum aldurs-
flokkum, frá 8 ára og yngri og upp úr.
Mótslok eru klukkan 17.
SKYLMINGAR
Íslandsmeistaramótið í skylmingum með
höggsverði fer fram í Skylmingamiðstöð-
inni í Laugardal, Baldurshaga, í dag og á
morgun. Keppt er í flokkum unglinga og
fullorðinna. Í dag er keppt frá kl. 10.15 til
17.45 og á morgun kl. 10.30 til 17.
BLAK
Leikið verður í bikarkeppni karla og
kvenna, Bridgestone-bikarnum, í Nes-
kaupstað um helgina. Sex lið keppa í meist-
araflokki karla og átta lið í meistaraflokki
kvenna. Þar er um riðlakeppni að ræða og
komast sigurvegarar helgarinnar beint í
undanúrslit. Hin liðin keppa að nýju í Ás-
garði í Garðabæ í febrúar um tvö laus sæti í
undanúrslitum.
Í KVÖLD!