Hamar - 22.12.1956, Síða 11
22. desember 1956
HAMAR
11
&
Fegurð Hnmarkots Hamars
er mcr retíð bugstmð
- segir Árni Helgason ræðismaður íslands í Chicago.
Þeir eru orðnir margir, þeir
íslendingar, sem sezt hafa að í
Vesturheimi. Tugum og jafnvel
hundruðum saman héldu lands-
menn vestur um haf á síðari
hluta nítjándu aldar, og margir
fóru einnig á fyrstu árum þess-
arar aldar. Marga knúði örbirgð-
in og fátæktin að heiman, en
aðra heillaði ævintýralöngunin
og útþráin til fararinnar. Islandi
er mikil eftirsjá í öllum sínum
sonum og dætrum, sem flutzt
hafa vestur um haf. I þeirra
hópi eru fjölmargir dugnaðar
og gáfu menn, sem Islenzka
þjóðin hafði ekki efni á að missa
úr landi. Mun tjón það, er Is-
lendingar biðu við fólksflutn-
ingana til Ameríku seint full
metið.
En þeir íslendingar, sem vest-
ur fóru hafa fjölmargir uniiið
ættjörð sinni heiður og gagn.
Með dugnaði sínum og gáfum
liafa þeir á unnið sér virðingu
í hinum nýju heimkynnum og
og orðið þjóð sinni þannig til
sóma. Fjölmargir hafa þéir líka,
þó í annari heimsálfu væru, unn-
ið málefnum Islands mikið gagn
og reynzt sínu gamla ættlandi
í alla staði góðir synir.
----★-----
Einn þeirra Islendinga, sem
fór til Ameríku á öðrum tug
þessarar aldar, er Hafnfirðing-
urinn dr. Arni Helgason ræðis-
maður í Chicago. Dr. Arni
Helgason er þegar orðinn þjóð-
kunnur maður hér heima, fyrir
hin ýmsu störf sín. Hvergi mun
þó Árni eiga stærri hóp vina og
skyldmenna, en einmitt hér í
fæðingarbæ sínum, Hafnarfirði.
Ritstjóri Hámars átti því sam-
tal við dr. Árna, er hann var hér
á ferð eigi alls fyrir löngu, og
fer samtalið hér á eftir:
„Þú er't fæddur hér í Firðin-
um, Árni, er ekki svo?“
„Jú, ég er fæddur hér í Hafn-
arfirði 16. marz árið 1891, segir
Arni, foreldrar mínir voru þau
Sigríður Jónsdóttir frá Setbergi
og Helgi Sigurðsson, sem var
Hafnfirðingur."
Húsið, sem Arni Helgason
fæddist í stóð einmitt þar, sem
pósthúsið er nú og var nefnt
Helgahús. Munu margir gamlir
Hafnfirðingar muna eftir jiví.
„Hvað getur þú sagt mér af
uppvaxtarárum þínum hér í
Hafnarfirði?“
„Það er nú auðvitað sitt hvað
hægt að segja frá þeim árum,
þó margt sé að sjálfsögðu farið
að fyrnast frá þeim tíma. Eg var
4 ár í barnaskóla hér í Hafnar-
firði. Eru margir af skólabræðr-
um mínum og jafnöldrum frá
þessum tíma nú mikils virtir
borgarar hér í Hafnarf., t.d. Jóel
Dr. Árrxi Helgason ræðismað-
ur lslands í Cliicago er einn
þeirra lslendinga, sem héldu til
Vesturheims í byrjun þessarar
aildar. Þar hefur hann nú verið
búsettur í rúma fjóra áratugi,
Hann lauk meistaraprófi í
verkfræði nokkrum árum eftir
að Itann kom vestur og starfaði
sem tjrirverkfræðingur og síðar
sem forstjóri stórs iðnfyrirtækis,
þar til árið 1953.
Þrátt ftyrir umfangsmikil störf
í sínum nýju heimkynnum, þá
hefur dr. Árni Helgason ætíð
haldið tryggð sinni við sitt gamla
ættland Island.
Við fæðingarbæ sinn Hafnar-
fjörð hefur hann eínnig haldið
°g sýnt í verki, er hann
gaf Þjóðkirkju Hafnarfjarðar for-
kunnafagra stjaka nú fyrir nokkr-
um árum, að hann ann ennþá
fæðingarbæ sínum, þrátt fyrir
áratuga dvöl í annarri heimsálfu.
Ingvarsson skósmíðameistari,
Jón Gestur Vigfússon gjaldkeri
í Sparisjóðnum, Ásgeir Stefáns-
son forstjóri og Magnús Magn-
ússon frá Skuld. Nú af yngri
mönnum, sem þá voru að alast
hér upp man ég vel eftir Ingólfi
Flygenring, Benedikt Gröndal
verkfræðing og mörgum fleir-
um“.
„Þú mannst nú kannski eftir
einhverjum minnisverðum at-
burðum hér í Firðinum frá þess-
um tíma, sem gaman væri að
minnast?“
„Jú, víst man ég það. Ég man
til dæmis vel eftir því er rafmagn
kom fyrst í Hafnarfjörð árið
1904. Við strákarnir vorum mjög
spenntir að sjá þegar verið var
að kveikju á kvöldin. Hópuðumst
við þá oft margir upp að virkjun-
inni hans Jóhannesar Reykdals,
þegar Jón Þórðarson frá Hliði á
Álftanesi kom á kvöldin til þess
að kveikja ljósin.“
„Hvað tók nú við hjá þér, eftir
að barnaskólanáminu lauk?“
„Eftir barnaskólanámið og
ferminguna, en ég var fermdur
í Bessastaðakirkju af séra Jensi
Pálssyni, þá fór ég í Flensborg-
arskólann. V ar ég þar í tvo vetur.
Þaðan lauk ég nú samt ekki gagn-
fræðaprófi, því áður en að því
kom hóf ég nám i skósmíði hjá
Oddi Ivarssyni, sem þá hafði
skóvinnustofu, þar sem Pósthús-
ið er nú. Fékkst ég í nokkur ár
við skósmíðar, en lagði hana þó
á hilluna síðustu árin áður en ég
fór vestur um haf og vann ]iá
við ýmsa algenga erfiðisvinnu."
„Varstu ekki þátttakandi í fé-
lagsstarfsemi hér í bænum á upp-
vaxtarárum þínum?“
„Jú, ég hafði mikinn áhuga á
félagsmálum. Ég starfaði mikið
í Ungmannafélaginu, sem þá var
hér starfandi og tók mikin þátt
í íþróttum. Ég lærði að synda í
sjónum, og kendi sund í 3 ár í
Hafnarfirði. Um tíma var ég
meira að segja formaður Ung-
mannafélagsins. Það félag beitti
sér fyrir ýmis konar gagnlegum
málefnum, meðal annars þá man
ég eftir því, að við gerðum til-
raun með skógrækt hér í Firðin-
um. Var það út við Víðistaði. —
Hlóðum við þar skjólvegg og má
vel vera, að eitthvað af honum
standi enn þá. Er þetta að öllum
líkindum einhver fyrsta tilraun
sem gerð var með skógrækt, hér
í Hafnarfirði. Nú er Hafnar-
fjörður hins vegar, eins og allir
vita, einn af meiri skógræktar-
bæjum þessa lands, og Hellis-
gerði einhver fegursti skrúðgarð-
ur landsins."
„Já, þér finnst Hellisgerði fag-
urt eins og flestum, er þangað
koma.“
„Já, mér finnst Hellisgerði dá-
samlegur staður, svarar Arni ró-
lega. Mér finnst Hellisgerði ef
til vill minna mig hvað bezt á
Hafnarfjörð, eins og hann var
áður en ég fór vestur. Að vísu
voru þar engin tré þá eða skipu-
lagður skrúðgarður, en það voru
sömu gjóturnar og sama hraunið
og er þar enn. En það er einmitt
svo víða, sem hraunið, gjóturnar
og önnur kennileiti, sem settu
svip sinn á Hafnarfjörð í mínu
ungdæmi ,hafa orðið að víkja fyr-
ir húsum og öðrum mannvirkj-
um. Það er að sjálfsögðu þróun
tímans, sem orsakar þetta, enda
hefur Hafnarfjörður vaxið svo
mikið síðan og öll fögnum við
vexti Hafnarfjarðar. En það er
samt gaman að sjá hvernig Hafn-
arfjörður einu sinni var, og það
sjáum við ekki sízt á hrauninu
og gjótunum í Hellisgerði.“
„Svo við snúum okkur að vest-
urför þinni, Arni.“
„Hvaða ár var Jiað, sem þú
fórst til Ameríku?“
„Þarð var 1. ágúst 1912, sem
ég hélt til Vesturheims. Ég var
þá 21 árs gamall. Ég fór fyrst til
Kanada og var Jiar í rúmt ár. Þar
vann ég við skógarhögg, og einn-
ig stundaði ég fiskiveiðar á Vinni
pegvatni. Arið 1913 fór ég svo
(Framháld á bls. 13)
I I
X %
^ Óskum öllu safnaðarfólki
gleðilegra jóla |
góðs og farsæls komandi árs með beztu ú
þökkum fijrir ágætt samstarf á líðandi áiri. ö
l
Prestur og stjórn Fríkirkjusafnaðarins
I
Fegrunarfélag Hafnarfjarðar óskar öllum bæjarbúum
gleðilegra jóla
og farsæls nijárs og þakkar gott samstarf og
áhuga um fegrun bæjarins.
Fegrunarfélag Hafnarfjarðar
Óskum öllu starfsfólki okkar og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og nýárs.
Þökkum störfin og viðskiptin á líðandi ári.
Fiskur h.f.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýár!
Úra- og skartgripaverzlun
Magnúsar Guðlaugssonar
GLEÐILEG JOL!
Farsælt nýár!
Þökk fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Bílaverkstæði Hafnarfjarðar h.f.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ „HAUKAR“
óskar félögum sínum og velunnurum
gleðilegra jóla
og farsæls nýárs með þakklæti fyrir líðandi áir.
Óskum öllum viðskiptavinum vorum
glcðilegrra jóla
góðs og farsæls komandi árs.
Þökkum viðskiptin á liðna árinu.
Skipasmíðastöð Hafnarfjarðar h.f.
FIMLEIKAFÉLAG IIAFNARFJARÐAR
óskar öllum félögum sínum og velunnurum
gleðilegra jóla
og farsæls nýárs með þakklæti fyrir líðandi ár.
HAMAR óskar öllum bæjrábúum og öðrum lesendum
sínum
gleðilegra jóla
og gæfuríks komandi árs.
Hugheilar
jóla- og nýárskveðjur
Flugfélag íslands h.f.