Eyjablaðið - 02.01.1954, Blaðsíða 4
EYJABLADIÐ
ÍHALDIÐ, sem málsvarí
æskunnar!!!
ÚR RÆNUM
Hjónaband.
Um hátíðirnar voru gefin sam
an í hjónaband:
Leonilla Hansen og Bjarni
Einarsson, verzlunarstjóri í
Verzl. Br. Sigíússon.
Þóra Magnúsdóttir og Jóhann
Kristinn Pálsson frá Þingholti.
Ingibjörg Gísladóttir frá
Hvanneyri og Erling Ágústsson
í-afvirki,
Halla Soffía Hjálmsdóttir og
Torfi L. Torfason.
Hanna G. Halldórsdóttir, Há-
steinsveg 43 og Kristján Frið-
bergsson frá Reykjavík.
Sigríður Karlsdóttir og Björg
vin Magnússon, verzlunarstjóri
á Þingvöllum.
Halldóra Hallbergsdóttir og
Jón Ingólfsson, Mandal.
Jenny Hallbergsdóttir og
Helgi Birgir Magnússon.
16. desember voru gefin sam-
an Ásta Sigurðardóttir frá Vatns
dal og Björn Jónsson.
Jazz-klúbbur
Vastmannaeyja
Fundur á Hótel HB sunnu-
daginn 3. janúar kl. 4 e. h.
Mörg skemmtiatriði.
Nýir félagar velkomnir.
Það fer nú að styttast til kosn
inga, enda mó sjá þess dæmi
nú upp á síðkastið, að íhaldið
er gripið allmiklum kosninga-
skjálfta.
Eitt af því, sem þeim hefur
orðið tíðrætt um íhaldsmönnum,
eru „svik vinstrimanna við æsk-
una", sem þeir kalla svo. —
Ekki skal það sagt, að ekki hafi
verið hægt að gera meira þau
ár sem vinstrimenn hafa farið
með völd í þessum bæ, en hitt
er óhætt að fullyrða, að ekki
hefði hin dauða hönd íhaldsins
afkastað meiru undanfarin ár,
hefði hún haldið um stýrið.
Sannleikurinn er sá, og það vita
Vestmannaeyingar allir, og ekki
sízt æska þessa bæjar, að hér
var allt í kalda koli, þegar íhald
ið skildi við. Það er kannski
ekki úr vegi að rifja upp nokkur
atriði til að sýna, hvernig af-
skipti íhaldsins af málefnum
æskunnar birtast í verki.
Man nokkur eftir dagheimili
fyrir börn hérna í bænum með-
an íhaldið réði? Margur hefur
notið góðs af þeirri stofnun, síð
an hún komst upp — án þess
að íhaldsins nyti við. — Hvernig
leit barnaskólinn út utan og inn-
an húsa á mektardögum þessa.,
sama íhalds? — Hver var hug-
ur þess til gagnfræðaskólans, og
hvaða ráðstafanir hafði það gert
til að ráða fram úr vandamál-
um hans? Kannski það ætli að
eigna sér gagnfræðaskólabygg-
inguna?
Og af því íhaldið nú þykist
bera svo mikia umhyggju fyrir
íþróttunum, þá er líka rétt að
minna á afskipti þeirra íhalds-
manna sjálfra af þeim málum,
og verður hér tekið eitt dæmi:
Hvernig var rekstur sundlaugar-
innar hjá þeim síðustu árin;
var laugin opin, eða hafði hún
staðið ónotuð nokkurn tíma —
eða voru það nokkur ár? — Það
skyldi þó ekki vera. — Það er
líka sagt, að jafnvel á þeim
tíma, sem þeir rausnuðust við
að haída sundlauginni opinni,
hafi eitt sinn viljað svo illa til,
að einn stórlaxinn hér í bænum
varð kokslaus; hafi honum þá í
vandræðum sínum dottið í hug,
að e. t. v. mætti fá koks hjá
sundlauginni. Þeir, sem þá réðu
fyrir sundlauginni voru skilnings
ríkir menn og létu af hendi
koksið — og lokuðu svo laug-
inni um tíma, en hinn stóri lax,
hann kynti og kynti og þurfti
ekki að loka. — Hér var einnig
starfandi sundfélag á þeim ár-
um fhaldsins, og hafði það kom
ið sér upp nokkrum sjóði til að
stuðla með honum að yfirbygg-
ingu laugarinnar; — hverjir
hrömsuðu þann sjóð frá sundfé-
laginu? Og að lokum um
sundlaugina: Eitt af síðustu ó-
þurftarverkum íhaldsins var þeg
ar það festi kaup á hitatækjum
sundlaugarinnar, þeim sem nú
eru á rafstöðinni — ónýt. Þegar
íhaldið festi kaup á þessum tækj
um átti það að vera stór bomba,
en sú bomba varð lítið annað
en reykur; því .tækin, sem kost-
uðu bæjarsjóð stórfé I byrjun,
hafa kostað annað eins eða
meira í viðhaldi, auk þess sem
þau hafa valdið - stöðvun í
rekstri iaugarinnar, sem byrjaði
strax eftir tveggja ára notkun
tækjanna og hafa fylgt þeim
fram á þennan dag, að þau eru
orðin endanlega ónýt. — Kaup-
in á þessum tækjum voru það síð
asta, sem íhaldið gerði fyrir
æsku þessa bæjar, og ráðdeild-
ina og fyrirhyggjuna í kaupun-
um má bezt sjá af því, að hita
tækin voru gerð fyrir vatnslaug.
Samt kaupir íhaldið þau til að
nota í sjólaugina hér — og því
fór sem fór: þau ryðguðu og
tærðust í sundur eins og flest
það, sem íhaldið þykist gera í
almennings þágu.
Það vantar ekki stimamýktina
í íhaldið nú þegar líður að kosn
ingum,. og þá er öllum brögð-
um beitt til að villa mönnum
sýn. Á skemmtisamkomum Sjálf
stæðisflokksins er unga fólkinu
boðið upp á hlýtt handtak,
blítt bros og allskyns skraut —
en látið þið ekki plata ykkur.
Hið sanna eðli íhaldsins kemur
þar ekki.í Ijós; það birtist fyrst
seinna — eftir kosningar.
J.
Stjórnin.
Happdrœtti Háskóla íslands
Sala hlutamiða fyrir árið 1954 hefst mánudagiim 4. janúar n.
k. kl. 5.
Viðskiptavinir eiga rétt til sömu númera og áður til io. þ. m.
Umboðsniaður
Á andi þeirra að svífa yfir atvinnulífi Vestmannaeyinga?