Eyjablaðið - 31.01.1954, Side 3

Eyjablaðið - 31.01.1954, Side 3
EYJ.it LAÐ IÐ 3 ! Hversvegna kjósum vii konur sésíal- isfa í bæjarst|óm! í dag eiga bæjarbúar enn eínu sinni að velja i'ulltrúa til að fara með málefni byggðar lagsins næstu fjögur ár. Pá verða liðin átta ár frá því að Vestmannaeyjar báru gæfu til að vinna bug á áratuga íhalds stjórn hér, sem íbúar þessa bæj ar voru sannarlega orðnir lang þreyttir á. Já, fólkið hefur alls ekki gleymt hinu langa og öm- urlega kyrrstöðutímabili frá sijórnartíð afturhaldsins, þegar einstakt/mátti heita, ef einhvers saðar reis af grunni nýtt íbúðar hús, svo hægfara var þróunin til betri lífsskilyrða. Á undan- förnum átta árurn hafa orðið hér stórstígari framfarir en nokkur dæmi eru til um áður, enda þótt með mörg vandamál liafi orðið að Sækja til aftur- -haldssamra ríkisstjórna í land- inu, sem hafa ekki litið hýru auga vinstrisinnaðan bæjar- stjórnarmeirihluta hér, og þeg ar tekið er tillit til þeirra marg víslegu erfiðleika, sem þannig hefur verið við að etja, er furðu legt itve miklu hefur tekizt að koma í verk. Það væri mörgum holl lexía að staldra nti við og minnast þess hvernig hér var umhorfs áður en vinstri menn tóku í taumana, og hyerSu mikilvægar framfarir hafa orðið hér srðan, i)æði hvað snertir stórbættar samgöngur undra- \erðan árangur í bættum húsa- kosti almennings, nýtt og aukið rafmagn} sem fært hefur bæj- arbúum langþráð þægindi, sem við könurnar kunnum vel að meta, og mundum nú ekki getað hugsað okkur að vera án. Komið hefur verið á fót Elli heimili, þar sem garnla fólkið hefur eignazt rólegan og hlý- legan samastað, en margt af því varð áður að búa við öryggis- leysi og ófullnægjandi aðbúnað. Starfsskilyrði sjúkrahússins hafa verið stórbætt m. a. með því, að reist hefur verið fullkom ið þvottahús, sem einnig er til mikilla þæginda fyrir bæjarbúa almennt. (Þetta eru staðreyndir, sem ekki verður í móti mæltf og mundiun við ekki vilja missa neinn af þessum ávinningum. Það vita líka allir, sem nokkru sinni hugsa í alvöru um rnálefn in að hitann og þungann af þessum margháttuðu umbótum, liafa sósíalistar í bæjarstjórn borið, þess vegna berum við traust til þeirra fyrst og fremst, Dómgreind hinnar hugsandi alþýðu bregst ekki, því mun verða lítill hlutur hinna lánlitlu ' ,,Þjóðvarnarmanna“, sem nú ætla að hreykja sér hér} og verða að treysta á þá hugsunar- lausustu, sem jafnan eru gin- keyptir fyrir skrumi einu sam- an. Konum er að verða æ ljósara að þær hafa réttindi og skyld- ur í opinberum málum, og þær varðar eigi síður en aðra, hvert þrónnin stefnir. Þess vegna munum við taka hönd- um saman og vinna ötidlega að sigri sósíalista í þessuin bæjarstjórnarkosningum, þeirra fulltrúa fólksins, Sem alltaf standa trúastan vörð um málstað þess. Alþýðukona. Hjarfanieof þakklæti fyrir okkur sýnda samúð og vin- áttu við fráfcll mannsins míns og föður okkar JÓNS PÁLSSONAR, Garðstöðum. Sérstakar þakkir færum við yfirhjúkrunarkonu Sjúkra- hússins og öðru starfsíóiki þar, fyrir honum veitta hjálp og hlýhug. Eiginkona, börn og aðrir vandamenn. Fyrirliggjandi Hveiti 10/10 Hveiti 50 kíló, Strásykur 45.3 kíló, Molasykur, Haframjöl í pökkum, Cocomalt. HEILDVERZLUN GÍSLI GÍSLASON. Ki örfundur til hœjarstjórnarkosninga í Vestmannaeyj- um hefst eins og áöur er auglýst kl. 10. f. h., sunnudag 31. janúar n. k. Kosið veröur í tveim kjördeildum. A til J í húsi K. F. U. M. Ií til ö í Akógeshúsinu. Talning atkvœöa fer fram í Samkomu- húsinu og hefst aö lokinni kosningu. Vestmannaeyjum, 27. janúar 1954. Y FIRKJÖRS TJÓRNIN. itabrúsar 3 stærðir, ennfremur HITAKÖNNUR. UMBÚÐAPAPPÍR 40 cm. og 57 cm. Fyrirliggjandi. HEILDVERZLUN GÍSLI GÍSLASON. serajíð við hólelstjérann, Vöruhappdrætti S. I. B. S. . ] íj. j Endurnýjun hafin. Dregiö 5. febrúar. UMBOÐSMAMJR, TILKYNNING FRÁ SKATTSTOFUNNI. Þann 31. þ. m. á miðnætti rennur út frestur til að skila skattaframtali yfir tekjur ársins og eign- ir 31/12 1953. Frestur til framtals verður aðeins veittur þeim einstaklingum og félögum, sem hafa umfangsmikinn rekstur, enda hafi þeir aðilar fyrirfram tryggt sér, að fresturinn fáist. Frestbeiðnum annarra verður ekki sinnt. Athugið, að sunnudaginn 31. þ. m. verður af- greiðsla skattstofunnar opin til kl. 7 e. h. og að liægt er að skila framtölum í bréfakassa hennar til kl. 12 á miðnætti. ..... SKATTSTJÓRI.

x

Eyjablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.