Eyjablaðið - 02.04.1954, Blaðsíða 2
EYJABLAÐIÐ
jyii er beira en íhaídið.
Framhald af 1. sífSu.
ir að málin hefðu verið athug-
uð betur í viðkomandi félögum.
Pfegar sýnt þótti að dráttur
ætlaði að verða á frekari við-
ræðuni, 'skrifaði stjórn Sósíal-
istafélagsins hinum flokkunurp,
þar sem gerð var gréin fyrir
þeirri afgreiðslu sem málið iiafði
fengið í Sósíalistaféjaginu.i
í bréfinu segir meðal annars:
„ . Uppistöðu í málefna
samningi milli flokkanna telj-
um við fyrst og fremst þessi verk
efni:
Rammað verði kringum norð
ur hafnargarðshausinn og inn-
siglingin breikkuð.
Unnið verði af ftillum krafti
að byggingu bátakvíarnnar.
Bryggjupláss til afnota fyrir
vélbátana verði aukið, að fengn
um tiilögum fróðustu manna
um tiíhögun þeirra fram-
kvæmda.
Gerð verði bátakví fyrir trill
ur og smærri báta.
Unnið verði að því að fá raf-
magn írá Soginu.
I.okið verði byggingu Gagn-
fræðaskólans.
Elliheimilið verði stækkað.
Bóka -og byggðasafni verði
komið upp.
Dalabúið verði stækkað og
gripafjöldi aukinn.
Strandvegurinn verði steypt-
ur og gerð atliugun a hvaða var
anleg gatnagerð hentar okkur
be/.t á öðrum götum í bænum.
Þó hér' sé minnst á nokkur
hinna stærstu og brýnustu verk-
efna, sem allir eru sammála um
að hrinda þurfi í framkvæmd,
er vitanlega margt fleira sem
bíður úrlausnar og s'amkomulag
ætti að geta orðið um að vinna
að. .
Okkur er fylhlega ljóst, að
þessar framkvæmdir kosta mikið
le og verða ýmsar þeirra ekki
framkvæmdar nerna til komi all
stórar lántökur. Við lítum svo
á að Vestmannaeyjabær sé ekki
svo illa á vegi staddur að á því
verði óyfirstíganlegir erfiðleik-
ar að lá lánsfé tii nauðsvnleg-
ustu framkvæmda og þá sérstak-
lega til hafnarinnar, encla hljóta
allir að vera á einu máli um að
þær framkvæmdir þola enga bið.
Ef samstarf tækist milli vinstri
flokkanna í bæjarstjórn, teljum
við mjög æskilegt að þeir beittu
áhrifum sínum til að fá sam-
þykkt á yfirstandandi Alþingi
þingsályktun sem fyrir liggur
uni að höfnin hér fái 3 milljón
kr. af tekjuafgangi ríkisins árið
1953-
Ef samkomulag næðist um
málelnagrundvöll teljum við
ekki ástæðu til að mannaráðn-
ingar myndu valda ágreiningi,
og um bæjarstjóra viljum við
sérstaklega benda á að æskilegt
væri að við þá ráðningu verði
fremur litið á hæfni til starfans
en það, hverjum þessara flokka
hann kynni að fylgja í stjórnmál
um,
Að endingu viljum við undir
strika, að við lítum svo á, að
þeir kjósendur sem kusu ein-
hvern af vinstri flokkunum, liafi
gert það í þeirri trú að með því
væru þeir að vinna gegn áhrif-
um íhaldsins í bæjarmálum
næsta kjörtímabil, og þess vegna
beri þessum flokkum að taka á
sig þá ábyrgð að mynda meiri-
hluta í hinni nýju bæjarstjórn.
vilji þeir ekki bregðast kjósend
um sínum“.
\7ið bréfi þessu barst stutt
svar frá Sveini og Þorsteini, þar
sem þeir tilkynntu að þeir væru
að semja við íhaldið um meiri
hlutamyndun í bæjarstjórn.
Allt er betra en íhaldið, er
k jöronV þess fólks sem kaus
Svein Guðmundsson og Þof-
stein Víglundsson. Einu vökin
sem Sveinn Guðmundsson hef-
nr fært fram fyrir samstarli sínu
við íhaldið, eru þau, að hann
hafi svo ótakmarkaða trú á láns-
trausti Guðlaugs Gíslasonar.
Mjun hann nú þegar hafa fengið
nokkra reynslu af því trausti,
sem bæjarstjórinn nýtur hjá
þeim, sem yfir-fjármagninu ráða
í þeirri Reykjavíkurferð, sem
þeir fóru á vegum meirihlutans
til ijáröflunar fyrir bæinn, að
þeirra eigin sögn.
Árangur þeirrar ferðar, hvað
riðkemur fjáröflun er ennþá
hernaðarleyndarmál meirihlut-
ans og gefur það ekki fyrirhcil
um að stór afrek hafi verið unn-
in.
í brauðsölubúð strax.
MAGNVS BERGSSON
TII.KYNNING
FRÁ RAF VEITUNNI
Rafinagnsnelnd hefur ákveðið aö ekki skuli gef-
inn lengri greiðslufreslur ■ á rafmagnsreikningum
en til 20. dags mánaðarins eftir þann mánuð er
mælaaflestur fór fram í.
Þannig skulu allir reikningar frá marzmánuði
og eldri vera greiddir fyrir þann .20. þ. m.
RAFVEITAN.
Ú TSV ARSGREIÐEN DUR
1 VESTMANNAEYJUM
eru hér með áminntir um að greiða fyrirframgreiðsl-
ur sínar upp í útsvör 1954 reglulega mánaðarlega.
Hinn 1. apríl 1954 fellur í gjalddaga 2. afborgun
fyrirframgreiðslunnar, eða fjárhæ.ð, sem nernur
i2i/á% af útsvari álögðu árið 1953.
Sérstaklega er alvarlega brýnt fyrir atvinnurek-
endum og kaupgreiðendum að greiða reglulega al-
borganir af útsvörum starfsmanna sinna og eigin
útsvörum samkvæmt þessu, svo og eldri skuldir,
sem starfsmenn þeirra kunna að skulda, þar sem
vanræksla á greiðslum skapar þeim ábyrgð á útsvars-
greiðslunum eins og eigin útsvar væri og veldur þvi,
að öll fyrirframgreiðslan, sem nemur sömu fjárhæð
og hálft útsvar álagt 1953, fellur í gjalddaga og er
kræf í einu lagi.
Vestmannaeyjum, 24. marz 1954.
JÓN HJALTASON
lögfræðingur Vestmannaeyjabæjar.
fara nú frara fyrir óyreiddum útsvörum
1958 og eldri ásamt dráttarvöxturn og kostn
aði.
Eru því þeir, sem skulda eldri skuldir
til bæjarsjóðs Vestmannaeyja, alvarlega á-
minntir að gera þær nú þegar upp, vilji
þeir forðast aukakostnað.
Vestmanpaeyjiwn, 24. marz 1954.
JÖN HJALTASON
lögíræðingur Vestmannaeyjabæjar.
Vélstjórafélags Vestmannaeyja.
Landvélst jórar:
VAKTAVINNA: mánaðarkaup ................... kr. 3672,00
TÍMAVINNA: dagvinna ....................... kr. 18,36
eftirvinna ................... — 27,54
næturvinna ................... — 36,72
Mánaðarkaup á vöruflutningabátum: *
1. vélstjóri ............... kr. 4741,14
2. .vélstjóri ................ — 3966,24
svo og frítt fæði.
Kauptrygging á fiskibátum, vertíðina 1954:
1. vélstjóri ............... kr. 4257,^75
2. vélstjóri ............... — 3458,25
Kauptaxti landvélstjóra og vélstjóra á vöruflutningabátum gild-
ii frá 1. desember 1953 til 1. júní 1954.
STJÓRNIN.