Eyjablaðið - 06.04.1971, Qupperneq 1

Eyjablaðið - 06.04.1971, Qupperneq 1
ER ALÞYÐUFLOKKURINN ALÞYÐUFLOKKUR ? KRATAR STYÐJA ÍHALDSMENN í VIDHALDI KAUP- RÁNSLAGANNA FRÁ ÁRINU 1968 Lögin frá ‘68. í desember 1968 áleit rík- isstjórn viðreisnarflokkanna að nauðsynlegt væri að gera ráðstafanir í efnahagsmálum, vegna þess hve þau væru illa komin í þjóðfélaginu. Taldar voru upp ýmsar ástæður, svo sem aflabrestur, verðfall á er lendum mörkuðum, óhagstæð viðskiptakjör og fleira af því tagi. í stuttu máli sagt var afkoma þjóðarbúsins sögð svo bágborin, að skjótra úrræða væri þörf. Nú, nú. Ekki skorti úrræð- in. Meðal annarra ráða, sem gripið var til, voru ráð til bjargar rekstri sjávarútvegs- ins. Að sjálfsögðu skyldi það vera á kostnað sjómanna, — úrræðin eru ávallt á einn veg á þcim bæ, enda „Al- þýðuflokkur" við stjórn. Ekki nenni ég að rekja lögin í licild, en segi frá einu meg- inatriði, því atriði, sem mestu máli skiptir fyrir sjómenn hér. Tvöfölclu fiskverði skyldi komið á, fiskverð til útgerð- ar var ákveðið 27% hærra en til sjómanna, í það minnsta. í fyrra náðist þessi pró- senta niður um 5% (fimm prósent) ,og í samningum sjó manna nú í vetur fékkst 6% lækkun enn til þeirra, sem selja á erlendum markaði, enda njóta þeir ekki þeirrar fiskverðslækkunar, sem varð innanlands um áramót; spor í áttina, en ekki nógu langt. Að f? 1000 tonn. Þegar samið er um kaup til þeirra manna, sem sjó stunda við þetta land, virð- ist alltaf vera að miða við að vertíðaraflinn verði þúsund tonn á bát, eða meir. Slík við miðun er auðvitað hin var- hugaverðasta og hrein fjar- stæða að gera ráð fyiúr slík- um mokstri. Hin eina rétta viðmiðun er meðalr.flinn; er þaö sennilega eina meðaltalið sem doktor Gylfa er ekki tamt að nota. Föstudaginn 26. marz kom fyrir neðri deid Alþingis síjórnarfrumvarp þess efnis að staðfesta þessi 6%, sem áð ur var getið um, til þeirra, sem selja eriendis. Tveir þing menn Alþýðubandalagsins, sem báðir hafa verið til sjós, þeir Geir Gunnarsson og Jón as Árnason fluttu breytingar- tillögu þess efnis að helm- inga þegar í stað þess 22% sem eftir voru af hinu tvö- fa'da verði. Kaupránið skyldi sem sagt minnka um helm- ing. Biðu menn nú eftir að sjá hvað ,,Alþýðuflokksmenn“, ésrmt fulltrúa sjómanna, Pétri Sigurðssyni, gerðu í málinu. Ekki verður sagt, að menn hafi beðið spenntir eft- ir úrslitum; þóttust af gam- alli reynslu geta getið sér til um þau. Úrslitin Pétur Sigurðsson, Guðlaug- ur Gíslrson og allt hitt íhald- ið greiddi atkvæði móti hags munum sjómanna, og auk þess allir , alþýðu“—flokks- menn . Eg er viss um að sjó mönnum hér í Eyjum þykir fengur að því að Karl Guð- jónsson skuli nú vera orðinn einn þeirra kratanna. Þegar lögin voru sett voru forsendur þeirra sagðar slæmt efnahagsástand af ýmsum ástæðum. En hvað nú? Varla rennir maður orð- ið auga á blöð stjórnarmanna að ekki sé dásamað með feg- urstu lýsingarorðum tungunn ar hversu gott og fsgurt og indælt sé nú efnahagsástand- ið, svo ég tali nú ekki um útvarpið, syngjandi sína við- reisnarsöngva eða þá sjónvarp ið, scm starfsmenn þess gráta fögrum tárum yfir að geta ekki sýnt dýrð viðreisnarinn ar í litum. Se msagt: forsendur karp ránsins eru horfnar; dampað upp við þann yl, sem við- reisnin ein fær veitt lasburða eínahagsástandi, samt skal því haldið áfram. Hvenær hefur íhald heimsins raunar spurt um forsendur, — hvort sem það hefur kennt sig við „sjálfstæði“ eða ,,alþýðu“? AS manna flotann Björgvin Sigurðsson á Stokkseyri skrifaði grein í Þjóðviljann um sjómanna- kjörin 19. marz; skýra, ein- falda, hvassa grein- Þar vitn- ar Björgvin í viðtal Morgun- blaðsins við Kristján Ragnars son hjá LÍÚ, þar sem hann er eitthvað að vælukjóast yf- ir því, að illa gangi að manna bátana. Þar segir Björgvin meðal annars: „Staðreyndir um orsak- ir þess ,hve illa gengur að manna fiskibátana liggja á borðinu. Kaupránslögin frá 1968 og lélegir kjarasamn- ingar valda þar öllu um. Engan þarf að undra þó sjómenn séu ekki ginn- keyptir fyrir því að ráða sig til sjós fyrir kaup, sem nú er lægra en unnt er að fá í landi fyrir ólíkt þægi legri og vosbúðaminni störf en sjávarstörfin eru. . • • . “ Og að lokum segir Björg vin, eftir að hafa bent á, að Irusnin sé fólgin í veruleg- um kjarabótum til handa sjó- mönnum: „Sé þetta gert verður hægt að manna íslenzka fiskiskipaflotann úrvals sjómönnum. Og þetta væri ekki aðeins til hagsbóta sjómönnunum, heldur einn ig útgerðarmönnunum, því staðreynd er, að undir- staða þess að útgerðar- menn fái afla á báta sína, er að hafa góða sjómenn um borð. En meðan kaupi sjómanna er haldið niðri, svo sem nú er gert, fara sí feli't fleiri úrvals sjómenn í land “ Að lokum. Eg ætla ekki að hafa fleiri orð um þesi mál að sinni. Af þessu dæmi er þó ljóst, að með einni handaupp réttingu er hægt að rýra kjör þeirrar stéttar, sem er undirstaða lífs í þessu landi. Framhald á 4. síðu. - Forsetinn reiður - Herra Sigurgeir Kristjáns- son, forseti bæjarstjórnar, olíusali SÍS, lætur svo lítið að senda mér tóninn í síðasta Framsóknarblaði, sem virðist reyndar á góðri leið með að verða málgagn Ólafs Björns- son-a- íhaldsþingmanns. Á pistli þessum er sýnilegt að Sigurgeiri er mikið niðri fyrir; forsetinn er reiður, svo íeiður, að ég hefði ekki viljað heyra hann reyna að koma þessu út úr sér. Sök mín var sú einkum, að hafa minnzt á hans heilag- leika, Helga Bergs, án þess um lcið að fleygja mér í duft ið; án þess að hafa notað orð- in, hinn mikilhæfi, hinn trausti, hinn ábyrgi, o.s.frv., eins og nú er orðinn plagsið- ur á Framsóknarheimilinu um forsprakka SÍS-flokksins. Sigurgeir gerir því skóna, rð ég hafi verið með níð um herra Helga Bergs. Við skulum nú athuga málið, skoða síðan hver það er sem er með persónulegan ó- hróður“. Hingað til hafa Framsókn- armenn ekki talið það sér til vanza að manga til við her- námsliðið, og orðið hermang- ari ætti þar af leiðandi ekki að vera skammaryrði um þá menn, sem það gera. Þetta orð notaði ég um j Helga, auk þess sem ég gat j þess álits míns, að hann væri | harðsvíraður íhaldsmaður. Helgi Bergs notaði menntun s:na og starfskrafta við upp- bygingu herstöðvar NATO á Keflavíkurflugvelli á vegum „Regins“, sem var angafyrir- tæki SÍS á vellinum og síðar rann inn í ísl. Aðalverktaka- Slíkan mann kalla ég harð- svíraðan íhaldsmann og her- mangara, og hafðu það, kall- Hver níðir hvern Þetta kalla ég ekki níð og þaðan af síður persónulegan óhróður. En hvað gerir svo hinn flekklausi forseti? Hann ber mér á brýn beint og óbeint: Frh. á síðu 2.

x

Eyjablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eyjablaðið
https://timarit.is/publication/794

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.