Morgunblaðið - 18.01.2011, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 18.01.2011, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 2011 Í háa herrans tíð hefur sorphirð-an í Reykjavík verið til fyrir- myndar.    Mjög vask-ur hóp- ur borgar- starfsmanna hefur haldið þar vel á mál- um.    Það segir sína sögu að ungt fólk ívinnuleit á sumrin sækist eftir því að fá að starfa með þeim hópi.    Þegar vinstrimenn komust tilvalda í fyrsta sinn í borginni settu þeir á sérstakt sorphirðu- gjald. Sjálfstæðismenn lofuðu að af- nema það kæmust þeir að.    Þeir komust að og afnámu það.    Nú hafa Jón Gnarr og Dagur B.ákveðið að rusl skuli aðeins sótt í hús á 10 daga fresti og ekki lengra en 15 metra og mun fjar- lægðin vera miðuð við einn metra á borgarfulltrúa.    Sú skýring er gefin að einhverjiríbúar í Fossvogi hafi látið ná í tunnur til sín í hundrað metra fjar- lægð.    Með 15 metra reglunni hafifundist leið til að hefna sín á 40 prósentum borgarbúa fyrir til- tækið úr Fossvoginum.    Ekkert hefur heyrst fráSjálfstæðisflokknum í málinu.    Skýringin á því getur ekki veriðönnur en sú að hann sé í rusli og í meiri fjarlægð en 15 metra frá borgarbúum. Borgin í ruslflokk STAKSTEINAR Veður víða um heim 17.1., kl. 18.00 Reykjavík -1 snjóél Bolungarvík 0 snjóél Akureyri -3 skýjað Egilsstaðir -2 léttskýjað Kirkjubæjarkl. -4 léttskýjað Nuuk -5 léttskýjað Þórshöfn 2 skúrir Ósló 1 skýjað Kaupmannahöfn 2 þoka Stokkhólmur 3 skýjað Helsinki 1 súld Lúxemborg 5 alskýjað Brussel 8 skýjað Dublin 5 heiðskírt Glasgow 6 léttskýjað London 7 skýjað París 10 skýjað Amsterdam 8 skýjað Hamborg 8 alskýjað Berlín 7 heiðskírt Vín 2 þoka Moskva -17 heiðskírt Algarve 17 heiðskírt Madríd 6 þoka Barcelona 12 heiðskírt Mallorca 13 léttskýjað Róm 12 léttskýjað Aþena 10 léttskýjað Winnipeg -17 snjókoma Montreal -17 léttskýjað New York -5 heiðskírt Chicago -5 snjókoma Orlando 13 þrumuveður Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 18. janúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:49 16:29 ÍSAFJÖRÐUR 11:18 16:09 SIGLUFJÖRÐUR 11:02 15:51 DJÚPIVOGUR 10:24 15:52 Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Leiðangri rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar lýkur eftir 2-3 daga og má vænta niðurstaðna öðrum hvorum megin við næstu helgi. Aflamark á loðnu í vetur er 200 þúsund tonn, en tillögur um heild- araflamark verða endurskoðaðar gefi niðurstöður mælinga tilefni til þess. Íslensku loðnuskipin hafa fengið ágætan afla austur af landinu síð- ustu daga og sagði Birkir Hreins- son, skipstjóri á Vilhelm Þor- steinssyni, í gær að talsvert virtist af loðnu á miðunum. Þeir voru þá að halda af miðunum, væntanlega til Seyðisfjarðar, með um 1.850 tonn í bræðslu. „Veðrið hefur verið erfitt, bræla mestallan mánuðinn og aðeins nokkrir klukkutímar á milli, sem veður hefur verið skaplegt,“ sagði Birkir. „Nú vonar maður bara að kvótinn verði aukinn,“ sagði Birk- ir, en Vilhelm er búinn með um helming af 12 þúsund tonna kvóta. Fyrstu norsku veiðiskipin til- kynntu sig í landhelgina á föstu- dag og voru þau tíu í lögsögunni í gærmorgun. Síðdegis voru þrjú þeirra komin með 900 tonna leyfi- legan afla og voru á heimleið. Alls mega norsku skipin veiða hér rúm- lega 27 þúsund tonn samkvæmt samningi þjóðanna. Fær- eyskum skipum er heim- ilt að veiða 10 þúsund tonn af loðnu í lögsög- unni og grænlensk skip mega veiða tæplega 12 þús- und tonn. Sex skip eru á gulldepluveið- um í Grindavíkurdýpi suður af Reykjanesi. Þessar veiðar byrj- uðu reyndar fyrir áramót og fékk Hoffell frá Fáskrúðsfirði þá þokkalegan afla. Auk Hof- fellsins eru Huginn VE, Sighvatur Bjarnason VE, Kap VE, Ingunn AK og Bjarni Ólafsson á gulldeplu. Skipin ná einu hali á dag, kastað er í birtingu og síðan er dregið á um þremur mílum fram undir kvöld. Gulldepla meðan eitthvað fiskast Gylfi Guðmundsson, skipstjóri á Hugin, sagði í gær að þeir væru búnir að fá tvö um 200 tonna höl á tveimur dögum og væru að draga í þriðja skipti. Þeir hefðu í tilrauna- skyni fryst um tíu tonn, en annars færi aflinn í bræðslu. „Við verðum í þessu meðan eitthvað fiskast, en síðan tökum við þann litla loðnu- kvóta sem við eigum þegar kemur að hrognafrystingu,“ sagði Gylfi. Bíða niðurstaðna og vonast eftir auknum loðnukvóta  Ágætur loðnuafli undanfarið  Norsk skip byrjuð veiðar  Sex skip á gulldeplu Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Frá Vopnafirði Loðna hefur bæði verið fryst og brædd það sem af er vertíð og sjómenn vonast eftir auknum kvóta. Skipverjar á Vilhelm Þorsteinssyni prísa sig sæla með að ná útsend- ingum frá norskri stöð á HM í handbolta í Svíþjóð í gegnum gervihnött. Birkir skipstjóri segir menn um borð óhressa með að leikirnir skuli ekki vera í ríkissjónvarpinu. „Hér um borð eru miklir áhugamenn um hand- bolta, fótbolta og raunar allar boltagreinar, áfram Ísland,“ segir Birkir. Skipverjar á Hugin eru ekki svona heppnir, því um borð ná þeir ekki sendingum frá HM. „Hér eru miklir íþróttaáhugamenn og eðlilega eru menn sérstaklega áhugasamir um handbolt- ann. Við erum ekki með rétta kortið til að ná þessum sendingum, en erum þó að gera okkur vonir um að þetta standi til bóta. Það er ekki tilviljun að ég dreg trollið beint í norður með þá von í huga að nær landi sé betra netsamband,“ segir Gylfi. Trollið dregið beint í norður SJÓMENN ÓÁNÆGÐIR AÐ GETA EKKI SÉÐ HANDBOLTANN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.